Þjóðviljinn - 25.08.1979, Qupperneq 16
DJÖÐVILJINN
Laugardagur 25. ágúst 1979.
Aöalsimi Þjóöviljans er 81333 kl. 9 — 20 mánudaga til
föstudaga. kl. 9 — 12. f.h. og 17 — 19 e.h. á laugardögum.
Utan þess tima er hægt aö ná i blaöamenn og aöra starfs-
menn blaösins i þessum simum_: Ritstjórn 81382, 81527,
81257 og 81285, afgreiösla 81482 og Blaöaprent 81348.
C 81333
Kvöldsími
er 81348
Vandræöaskipiö Hafþór
Þegar ákveðið var að
breyta Landhelgisskipinu
Baldri fyrir tveimur árum
í hafrannsóknarskip réði
sjávarútvegsráðuneytið
ráðgjafafyrirtækið
Skipatækni h/f til að sjá
um útboð á breytingum
þeim sem fyrirhugaðar
var að gera á skipinu og sjá
RAUNASAGA UM HAF(N)ÞÓR
HÁSKÓLINN Á
NÆSTA LEIK
þess að auki um eftiriit á
þeim breytingum.
Togvindukerfi skipsins var eitt
þeirra atigöa sem rétt þótti aö
breyta. Aöaltrollspil skipsins sem
var rafdrifiö 12 tonna spil, var
skipt í tvö 6 tonna, oliudrifin spil
og þau færö aftar á skipiö en stóra
spiliö haföi verið áöur.
Til aö vinna aö þessum
breytingum var Vélaverkstæöi
Siguröar Sigurjónssonar ráöiö
enda haföi verkstæöið lægsta til-
boðiö i verkiö.
Þegar skipiö var oröiö fullbuiö
og átti aö vera tilbúiö til rann-
sóknarstarfa virkuðu nýju
olluspilin ekki eins og átti aö
vera.
* I rúmt ár hefur veriö unniö aö
viðgeröum á spilinu og farnir
hafa veriö þrlr könnunarleið-
angrar út 1 Faxaflóa til aö prófa
spilið en allt situr viö það sama.
Þann 15. mars s.l. var verk-
takanum viö spilaviögeröina sagt
upp störfum þar sem ljóst þótti aö
hann gatekki gert viö þaö vegna
tæknileg vankunnáttu.
1 dag liggur Hafþór enn viö
bryggju á Ingólfsgarði meö nýja
spilkerfiö ennþá bilaö, en sjávar-
útvegsráöuneytiö bíður eftir
umsögn frá Verkfræði-og Raun-
visindadeild Háskólans um hvað
gera skuli næst I málinu. -lg.
Viðgerðin á togvindunum i Hafþóri
Létum hætta viðgerðum
• Ljóst er að enginn innlendur aðili ræður yfir
tœkniþekkingu til að leysa þetta mál
Þetta er ósköp einfalt mál, við
létum verktakann hætta viðgerð-
um þvi við treystum honum ekki
til að fullkiára verkiö. Það virðist
þvl miður vera staöreynd aö hér
innanlands fyrirfinnst ekki sú
þekking sem þarf til að lagfæra
þessháttar togvindukerfi sem er I
Hafþóri,” sagði Ingimar Einars-
son deildarstjóri I sjávarútvegs-
ráðuneytinu I samtali við Þjóð-
viljann i gær, en Ingimar hefur
haft umsjón með verksamningum
út af viðgerðinni I Hafþóri fyrir
hönd ráðuneytisins.
Ingimar sagði að viðgerðarað-
ilanum, Vélsmiðju Sigurðar-
Sveinbjörnssonar, heföi veriö
sagt upp störfum þann 15. mars
sl. Verksamningur heföi verið
gerður upp og stæöist hann nokk-
urn veginn upp á krónu, eða um
233 miljónir.
Aðspurður sagði Ingimar að
heilmikið hefði verið unnið við
nýsmiöi auk viðgerða á togvind-
um þó svo þær væru enn ónothæf-
ar.
Umboðsaðila ráöuneytisins,
Skipatækni h/f, sem sá um út-
boðsvinnu á sinum tima fyrir viö-
gerðina og hefur verið eftirlitsað-
ili ráöuneytisins meöan á viö-
gerðinni stóð var sagt upp störf-
um þann 25. júli.
Ekkert hefur aftur á móti verið
unniö að viðgerðum i skipinu frá
því viögerðaraðilanum vélaverk-
stæði Sigurðar Sveinbjörnssonar
var sagt upp þann 15. mars s.l.
Ingimar sagöi þaö hefðu verið
mestu mistökin á sinum tlma að
senda skipið ekki út til viðgerða
þar sem lægi nú staðfest á borð-
inu að engir Islenskir aöilar heföu
tækniþekkingu til að vinna að
þessum viðgerðum en vélaverk-
stæði Sigurðar heföi þótt einna
liklegast til þess á sinum tlma, en
ekki dugað til.
Um áframhald málsins sagði
Ingimar að ráðuneytið byði nú
eftir skýrslu frá Verkfræði- og
Raunvisindadeild Háskóla Is-
lands um hvaða leiöir sú stofnun
állti vænlegastar sem næsta skref
I þessu máli. — Ig
Alþjóðlega vörusýningin var opnuð f Laugardalshöllinni i gær að viðstöddu mörgu hefðarmenninu. Að
sjálfsögðu mun Þjóðviljinn kynna starfsemi sina á sýningunni nú sem fyrr. A meðfylgjandi mynd sést
Forseti Islands skoða sýninguna.
Framkvœmdastjóri Æskulýðsráðs:
Ömar kosinn í borgarráði
Undir miðnættið i gær var
samþykkt með þremur
atkvæðum f borgarrráði að Ómar
Einarsson yrði ráðinn fram-
kvæmdastjóri Æskulýðrráðs.
Ómar fékk atkvæði frá Sjöfn
Sigurbjörnsdóttur og tveimur
fulltrúum Sjálfstæðisflokksins en
Björgvin Guðmundsson og Adda
Bára Sigfúsdóttir sátu hjá. Þau
mótmæltu f bókun að afgreiðsla
á málinu var knúin fram að'
Kristjáni Benediktssyni fjar-
stöddum.
Borgarráð hóf fund sinn
samkvæmt venju kl. 12 á hádegi I
gær og hann stóð fram undir kl.
16, þegar Björgvin Guömundsson,
formaður borgarráðs frestaði
honum fram til kl. 22 I gærkvöldi.
Hafði þá ýmislegt gengið á, enda
lá fyrir fundinum harðorö ályktun
frá Æskulýðsráði þar sem þess
var krafist að borgarráð gengi frá
ráðningu framkvæmdastjórans
á þessum fundi. Stóð formaöur
Æskulýðsráðs Sjöfn Sigurbjörns-
dóttir fast á þeirri kröfu framam
af, en féllst siðan á að fresta
málinu þar til Kristján Bene-
diktsson sem nú er fjarverandi
veröur kominn til starfa I næstu
viku. Hafði Kristján óskaö
frestunar og á þaö verið fallist.
Magnús L. Sveinsson lét þá
bóka að formaður Æskulýðsráðs
hefði þar með á borgarráös-
fundinum hundsað kröfu Æ.sku-
lýðsráðs um tafarlausa ákvörðun
I málinu, og þá dró Sjöfn stuöning
sinn við frestunina til baka.
Fundinum var svo frestað til kl.
22. Þá var hins vegar frestunar-
tillaga frá Björgvini felld. Þvi
næst var ómar ráðinn. Bókun
OdduBáruvar svohljóöandi: „Eg
tel mjög óeðlilegt að knúin sé
fram afgreiðsla málsins aö
borgarráðsmanni Framsóknar-
flokksins fjarstöddum. Upplýst er
aö Kristján Benediktsson féllst á
að fresta málinu á slðasta fundi
borgarráðs eftir að viðstaddir
meirihlutafulltrúar höfðu heitið
honum aö afgreiða málið ekki I
fjarveru hans.” 'AI
Jakob Jakobsson
Jakob Jakobssort
fiskifrœðingur um
! Hafþórsmálið:
i,Búið
j að
I vera
! algjör
! martröð’
„Það er búið að vera
hræöilegt ástand með þetta
1 skip, hrein martröð”, sagði
! Jakob Jakobsson fiski-
I fræðingur i samtali viö Þjóð-
I viljanni gæren Jakob gegnir
1 nú störfum forstöðumanns
• Hafrannsóknarstofnunar I
I sumarleyfi Jóns Jónssonar.
I Jakob sagöist þurfa að
; leiðrétta það atriði I frétt
• Þjóðviljans frá I gær að 18
I skipverjar væru enn skráðir
I I áhöfn á Hafþóri. Þeir væru
I aöeins fjórir um þessar
• mundir flestir hinna væru
I við afleysingastörf á öðrum
I rannsóknarskipum stofn-
I imarinnar.
• Ollum áformum stofn-
I unarinnar um að segja stór-
I um hluta skipverja upp,
I hefði sifellt verið slegiö á
• frest þar sem menn hefðu átt
I von á þvi að skipið væri nú
I loksins að verða tilbúið til
I starfa. Þær vonir manna
• hefðu ætið brugðist þegar til
I kom
I Að öðru leyti væri þetta
• mál ekki I höndum Hafrann-
J sóknarstofnunarinnar heldur
I sjávarútvegsráðuneytisins
I sem gert hefur alla verk-
• samninga um viðgerð á tog-
• vindum Hafþórs.
Aðspuröur um hvort ekki
I væri ágreiningur innan Haf-
• rannsóknarstofnunar um
J notagildi Hafþórs sem rann-
I sóknarskips fyrir stofnunina
I sagði Jakob að sá ágrein-
■ ingur hefði ekki rist djúpt
J meðal starfsmanna.
I Allir væru þeir sammála
I um þörfiná fyrir nýtt haf-
' rannsóknarskip til að sinna
J störfum á dýpra hafsvæöi en
I hingað til hefur verið hægt.
Hins vegar væri spurning
[ um það hvort Hafþór væri
• eina sanna skipið til sllkra
starfa eða eitthvaö annað
| skip.