Þjóðviljinn - 29.08.1979, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 29.08.1979, Blaðsíða 1
Yfirvirmu- bannið jafngildir verkfalli hjá vaktavinnu- mönnum, segja prentsmiðju eigendur BHM og bœjarstarfsmenn á samningafundum í gœr Aöalkjarasamningur Bandalags háskólamanna rennur út 1. nóvember nk. 1 gær var haldinn fyrsti samningafundur BHM og vinnukaupenda þeirra hjá sáttasemjara rikisins. BHM hefur ekki lagt fram launakröfur enn. Á fundinum i gær var rætt um aðrar kröfur BHM og skipuð undirnefnd til að fjalla um þær. 1 gær hélt sáttasemjari einnig fund meö starfsmönnum nokk- urra sveitarfélaga. Aðalkjarasamningur BSRB rann út 1. júlisl. og eru opinberir starfsmenn nú með lausa samninga. — eös. Miðvikudagur 29. ágúst 1979 — 197. tbl. 44. árg. Heimilisþjónusta viö aldraöa i Reykjavík: 123ja miljóna viðbótar■ fjár- veiting 123ja miljón króna auka- fjárveiting til heimilisþjón- ustu við aldraða var einróma samþykkt I borgarráði i gær samkvæmt umsókn féiags- málaráðs. Gifurleg aukning hefur orðið á þessari þjónustu i sumar og fariö langt framúr þvi sem gert var ráð fyrir viö gerö fjárhagsáætlunar. Með fjárveitingunni hækk- ar upphæöin sem varið verður til heimilisþjónustu við aldraða á þessu ári úr 390,3 milj. kr. i 513,9 milj. kr. A árinu hefur bæði aukist i Reykjavik fjöldi aldraðra sem þurfa á heimilis- þjónustu að halda og einnig aukist álag vegna sjúkra I heimahúsum og hefur t.d. beiðnum um heimilishjálp fjölgað bara á þessu ári um 30%. Það telur Sveinn Ragnarsson félagsmála- stjóri I greinargerð til borgarráðs ma. stafa af stóraukinni kynningu á þjón- ustu við aldraða á ráðstefn- um og námskeiðum. Auk þeirra sem njóta einhverrar þjónustu smá- tima daglega eða i viku hverri fá nú 25 heimili aðstoð allan daginn og 100 heimili i 4 stundir á dag og vex áberandi fjöldi þeirra sem þurfa að fá aðstoð og umönn- un daglega. Er langt frá þvi að hægt sé að anna öllum beiðnum og biða nú 134 aldr- aðir eftir hjálp. Sú aðstoð sem nú er veitt er talin jafngilda 75 stöðugildum, en félagsmála- stjóri telur 180 stöðugildi viö hjálp og þjónustu á heimilum algert lágmark. Er sýnt að mikils átaks verður þörf i þessum efnum við gerð næstu fjárhagsáætlunar.-vh Við störf I Blaðaprenti i gær. — Leggst öil vinna niður i næstu viku? — Ljósm. Leifur. XJtlit fyrir að blöðin stöðvist Allt útlit virðist nú fyrir, að út- gáfa dagblaðanna, allra eða flestra, stöðvist I næstu viku vegna yfirvinnubanns Grafiska sveinafélagsins, sem boðað hefur verið frá og meö 3. september. Atkvæðagreiöslu um verkfalls- heimild lauk I gær, en áhöld eru um til hverra yfirvinnubanniö svo og verkfallið ef til þess kemur, nær, þarsem margir félagsmenn i Hinu Islenska prentarafélagi vinna störf á sviði offsett- prentunar á undanþágum frá Grafíska sveinafélaginu. — Við teljum yfirvinnubanniö jafngilda algjöru verkfalli hjá vatkavinnumönnum blaða- prentsmiðjanna, sagði Öðinn Rögnvaldsson, prentsmiöjustjóri i Blaðaprenti, I viðtali við Þjóö- viljann, og hafði þar á bakvið sig úrkurð Vinnuveitendasambands- ins um aö vaktavinnumenn 1 verkfalli verði ekki ráðnir til dag- vinnustarfa og launagreiöslur þeirra falli þvl niður að fullu og öllu. óðinn taldi aðeins tvo starfs- menn Blaðaprents félaga i Grafiska, en margir ynnu þar hinsvegar á undanþágu frá félag- inu. Kæmi til verkfalls mundi prentsmiðjan láta á þaö reyna, hvort ekki væri hægt aö starfa á- fram með undanþágumönnunum. Þetta taldi formaður Graflska sveinafélagsins, Arsæll Ellerts- son, hinsvegar fráleitt og sagði, að þeir sem fengiö hefðu skrifleg- ar undanþágur teldust félags- menn og bæri að greiöa gjöld til félagsins. Þarmeð teljast allir pressumenn, en skeytingar- og plötugerðarmenn hafa hinsvegar áfram verið i HIP. Kröfurnar Atkvæöagreiöslu um verkfalls- heimild lauk I gærkvöld og verða atkvæði talin I dag. Félag prent- iönaðarins, þe. prentsmiðjueig- endur, munu einnig halda fund i dag. Kröfur Grafiska Sveinafélags- ins er, aö sögn Arsæls, að gerðir verði heilsárssamningar, sem gildi frá 1. september 1979 — 1. sept 1980 með fimm áfangahækk- unum á grunnkaupið. Meö fyrstu hækkuninni, sem gilti frá 25. júnl Kramhald á 14. slðu UOBVIUINN Grafíska sveinafélagið: Atkvœði talin í kvöld Atkvæöagreiðslu meðal fé- lagsmanna I Grafiska sveinafélaginu um boöun vinnustöðvunar lauk kl. 19 i gærkvöld. Um miðjan dag I gær hafði um helmingur fé- lagsmanna neytt atkvæðis- réttar slns. Kosning fór einnig fram á Akureyri og var beðiö eftir kjörgögnum þaðan I gær. Atkvæði verða talin I kvöld. Stjórn félags prentiðn- aðarins hefur visað deilunni til sáttasemjara. 1 gær haföi sáttafundur ekki verið boð- aöur. Hver dœmdi spilketfið i Haf(n)þóri ónýtt? Enginn vill bera ábyrgðina # 6 af aflahæstu skuttogurunum meö sama togvindukerfi og var í Hafþóri Hver var sá aðili eða stofnun sem á sinum tlma tók þá afdrifa- riku ákvörðun að dæma raf- m a g n s t o g v in d u k e r f ið I Haf(n)þóri ónýtt? Þetta er ein af þeim spurning- um sem enn er ósvaraö þrátt fyriiýtarlega umfjöllun um málið i Þjóðviljanum undanfarna daga. Hingað tii hefur hver aðilinn viljað benda á annan og firra sig ábyrgö I þessu máli enda hefur þessi ákvörðun verið þess vald- andi að rannsóknarskipiö hefur legið ónothæft I höfn I rúmt ár. Böndin hafa borist að nokkrum aðilum s.s. Hafrannsóknarstofn- un eða ákveðnum fiskifræðingum innan þeirrar stofnunar, Skipa- tækni h/f sem var ráðgjafaraðili og sá um tilbúning á útboði fyrir breytingarnar sem geröar voru þegar skipinu var breytt I rann- sóknarskip, og að siðustu sjávarútvegsráðuneytinu, þvl vissulega ber það ráöuneyti á- byrgð á aö samþykkja á slnum tima áðurnefnda ákvörðun um að rafmagnstogvindukerfið I skipinu væri ónýtt og heimila slðan upp- setningu á tveimur vökvadrifn- um spilum. Hafþór.áður skuttogarinn Bald- ur, er eitt af fimm systurskipum sem smlöuð voru i Póllandi áriö 1973 og 74. Hin skipin eru Engey, Viðey, Guðsteinn og Jón Dan. I þessum öllum fjórum skipum er nákvæmlega það sama spil- kerfi og dæmt var ónýtt I Baldri. Engin rök hafa enn verið lögð á boröiö um að spilin hafi verið ónýL Þá eru skuttogararnir Ogri og Vigrieinnig meö sama rafmagns- togvindukerfi og var um borð I Hafþóri. Þaö er þvl undarlegt hvers vegna sú ákvörðun var tekin að dæma spilin ónothæf eða ónýt I Hafþóri á sama tlma og sams- konar spil eru talin meira en vel nothæf I sex af aflahæstu skutt- togurum landsins. —lg-

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.