Þjóðviljinn - 29.08.1979, Blaðsíða 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 29. ágúst 1979.
(jr myndinni „Kampuchea i ágúst 1978”, sem sýnd veröur l Félags-
stofnun stúdenta
Félagsstofnun stúdenta:
Kvikmynd um
Kampucheu
Annaökvöld. fimmtud .kl. 20.30
verður haldinn fundur um
Kampucheu i Félagsstofnun
stúdenta og sýnd kvikmynd sem
Jan Myrdal geröi fyrir sænska
sjónvarpiö og nefnist
„Kampuchea f ágúst 1978”.
Kvikmynd þessi er tekin viös-
vegar i landinu og sýnir ástandiö
einsog þaö var meöan Pol Pot var
ennþá viö völd. Einnig kemur
fram i henni persónulegt álit Jans
Myrdals og hugleiöingar hans um
bændaþjóöfélag, bændabyltingar
og sögu Kampucheu.
A fundinum veröa einnig veitt-
ar upplýsingar um ástandiö i
landinu nú, og þá stuöst viö þaö
sem fram kom á ráöstefnum i
Paris og Stokkhólmi. Þeir
Þorsteinn Helgason og Hjálmtýr
Heiödal hafa framsögu um máliö,
en á eftir veröa almennar umræö-
ur, og vonast þeir félagar eftir
góöri þátttöku i þeim.
—ih.
Blaðberar
óskast
Austurborg:
Stórholt —
(8. sept. — 22. sept).
Kópavogur
(Þjóðviljinn og Timinn)
Hliðavegur
(4. september)
Kópavogsbráut
(1. september)
Við munum i vetur
greiða 10% vetrarálag.
Nánari uppl. á af-
greiðslu blaðsins.
DJÚÐVIUINN
Simi 81333
Mannréttindanefnd
skipuð á næstunni
ísland fullgildir tvo alþjóðasamninga um mannréttindi
Tómas A. Tómasson fastafulltrúi (t.h.) afhendir John Scott fullgild-
inarskjölin (Ljósm. S.Þ. —S. Lwin).
Sérstök mannréttinda-
nefnd til að fjalla um
skýrslur og kærumál
verður væntanlega skipuð
hér á landi næsta vetur
samkvæmt ákvæði í
alþjóðasamningi um
borgaraleg og stjórnmála-
leg réttindi sem ísland
hefur nú fullgilt og tekur
gildi hér í nóvember. Sam-
kvæmt valfrjálsri bókun
með samningnum er
nefndinni heimilað að taka
við kærum frá einstakling-
um.
Tómas A Tómasson, fasta-
fulltrúi Islands hjá Sameinuöu
Frétt um
stööu Einars
frá ráðu-
neytinu
Untarikisráöuneytiö sendi loks
i gær frá sér staöfestingu frétta
allra dagblaöanna i fyrri viku, aö
ákveöiö hafi veriö aö Einar
Agústsson alþingismaöur og fyrr-
verandi utanrikisráöherra taki
viö starfi sendiherra i Kaup-
mannahöfn. Hann mun gegna
starfinu frá áramótum.
Agnar Klemens Jónsson, sem
gegnt hefur sendiherrastörfum i
Kaupmannahöfn siöan áriö 1976
mun láta af störfum i utanrlkis-
þjónustunni fyrir aldurs sakir.
þjóöunum afhenti f siöustu viku
John Scott, settum yfirmanni
lagadeildar Sameinuöu þjóöanna,
fullgildingarskjöl vegna aöildar
Islands aö tveimur alþjóöasamn-
ingum um mannréttindi, sem
taka gildi fyrir Island 22.
nóvember n.k. Alþingi veitti
heimildina til fullgildingar 8. mai
s.l.
Samningarnir eru annars vegar
um borgarleg og stjórnmálaleg
réttindi ásamt valfrjálsri bókun
og hins vegar alþjóöasamningur
um efnahagsleg, félagsleg og
menningarleg réttindi,
samþykktir á 21. allsherjarþingi
S.Þ. og lagöir fram til undirrit-
unar 19. desember 1966.
I samningnum eru talin upp
réttindi sem verndar skulu njóta
og kveðiö á um skyldu samnings-
rikja til skýrslugjafar og ákvæöi
um stofnun sérstakrar mannrétt-
indanefndar til þess aö fjalla um
skýrslur og kærumál sem áöur
segir.
Alþjóöasamningurinn um
borgaraleg og stjórnmálaleg
réttindi tók gildi 23. mars 1976 og
eru aðildarriki 60 talsins, en 22
þeirra eru aðilar aö bókuninni.
Alþjóðasamningurinn um efna-
hagsleg, félagsleg og menningar-
leg réttindi tók gildi hinn 3.
janúar 1976 og eru 62 riki aöilar aö
honum segir i fréttatilkynningu
utanrikisráðuneytisins. — vh
bækur
Structural Anthoropology.
Claude Lévi-Strauss. I-II. Trans-
lated from the French by Claire
Jacobson — Brooke Grundfest
Schoepf and Monique Layton.
Penguin Books 1977 — 78.
Fyrra bindiö er safn sautján
greina um mannfræöi og kom
fyrst út á Frakklandi 1958. Grein-
arnar eru ritaðar á árabilinu 1944
— 57 og telur höfundurinn þær
vera lykilritgerðir kenninga
sinna. Greinarnar I fyrra bindinu
eru alls sautján. Seinna bindið
kom út fimmtán árum eftir út-
komu þess fyrra, þaö skiptist i
fjóra þætti, þar sem höfundur
fjallar um mannfræðina sem
fræöigrein, gerö samfélaga,
goöafræöi og samfélagsskipan nú
á dögum, auk lista og bókmennta.
Siðasta greinin i siðara bindi
fjallar um kynþætti og sagnfræöi
og þar geta menn kynnt sér m.a.
þá skoöun höfundar, aö sagnfræöi
sé alltaf meira og minna saga
þeirra tima sem sagnfræöingur-
inn lifir og sé þvi i raun ekki saga
þeirra timabila sem höfundurinn
leitast viö aö tjá.
Inntak kenninga Levi-Strauss
er leit hans aö grundvallargerö
mennskrar tilveru og mennskra
samfélagshátta, og rannsóknir
hans beinast aö þvi aö rannsaka
samfélagshætti og venjur og þá
einnig goösögurnar og helgisiöi,
jafnframt þvi sem hann leitast
við aö nálgast frumgerö þeirra.
Hann telur sig hafa fundið sam-
svörun milli að þvi er virðist ó-
likra samfélaga með þvi að beita
oft á tiöum aö þvi er mörgum
finnst langsóttum rökum. A þann
hátt telur hann sig greina alls-
herjar frumgerö sem samsvarar
þeirri getu og mögulegu hæfileik-
um sem heili mannsins og likam-
legt ásigkomulag býr yfir. Lévi-
Strauss hefur mjög leitað fanga i
hellenskum goösögum og bók-
menntum, auk þess sem hann
hefur einkum kynnt sér samfélög
frumbyggja Amazon-svæðisins i
Brasiliu, þar sem hann stundaöi
vettvangsrannsdknir. Kenningar
hans hafa veriö og eru umdeildar,
en þær eiga sér I rauninni hlið-
stæöu i strúktúralisma málvis-
indamanna, en Lévi-Strauss beit-
ir hliðstæöri rannsóknaraöferö.
Charles Stewart Parneil
F. S. L. Lyons. Fontana/Collins
1978.
Höfundurinn er vel kunnur fyrir
skrif sin um irska sögu á 19. öld.
Fyrir þessa bók, sein kom út i
fyrstu 1977, hlaut hann ágæta
dóma og viöurkenningar, en þessi
ævisaga þykir sú besta um ævi
Parnells.
Barátta Parnells fyrir heima-
stjórn á írlandi var stormasöm,
en honum tókst aö vinna fylgi
Gladstones á sinum tima og
stuöning Frjálslynda flokksins
viö stefnu sina. Auk þess heppn-
aðist honum aö sameina hin ó-
samstæöustu öfl á Irlandi til fylg-
is viö baráttumá! sitt. Höfundur-
inn segir þessa sögu alla mjög svo
ýtarlega, rekur upphaf Parnells
og menntun og stjórnmálasögu og
gerir einkamálum hans góö skil.
Kvennamál uröu honum aö falli,
enda voru þau óspart notuö hon-
um til ófrægöar af pólitiskum
andstæöingum. Fáir menn hafa
veriö elskaöir jafnt og Parnell af
írum og fáir hataöir eins og hann
af pólitiskum andstæöingum sin-
um.
Höfundur ævisögunnar álitur
að enginn hvorki fyrr né siöar
hafi verið liklegri til þess aö friöa
allt Irland og jafna ágreininginn
og Parnell, en atvikin höguöu þvi
svo að hann dó fyrir aldur fram.
The Devil's Horsemen
The Mongol Invasion of Europe.
James Chambers. Weidenfeld
and Nicolson 1979.
Sama áriö og Snorri Sturluson
var veginn i Reykholti héldu liö-
sveitir Batu Khan yfir Dóná.
Evrópa virtist liggja opin og
varnarlausfyrirhinum ósigrandi
hjörðum mongólanna. Atvikin
höguöu þvi á þann veg aö hinir ó-
sigrandi herskararhurfu austur á
bóginn og ibúar vesturhluta álf-
unnar voru ekki færöir undir ok
mongóla. Saga mongóla hefur
verið skráð af fjölda höfunda. I
þessari bók leitast höfundurinn
viö aö kryfja ástæöurnar fyrir sig
urvinningum mongóla og lýsa
hernaöarsnilli þeirra, sem hann
telur hafa veriö langt á undan sin-
um tima I samanburöi viö her-
tækni Evrópubúa á miööldum.
Höfundur álitur aö mongólar hafi
beitt svipaöri hertækni og Romm-
el og Patton beittu i siöari heims-
styrjöld.
Chambers rekur einnig áhrif
mongóla á öörum sviöum. Þeir
tryggðu friö i þeim rikjum sem
þeir réöu og efldu þar meö versl-
unarviöskipti milli austurs og
vesturs. Aftur á móti uröu sigur-
vinningar mongóla til þess aö
hefta framgang kristninnar á
þeim landsvæöum, sem þeir réöu.
Páfavaldiö og valdstjórnarmenn
mongóla voru ósættanlegir og þar
átti sér aldrei staö nein slökun.
Mongólar réöu viölendasta riki
sem um getur, þegar veldi þeirra
var mest, frá Kinahafi aö
Karpatafjöllum og aö Evfrats-
fljóti og allt suður aö Indlands-
hafi. Eins og áöur segir varö frá-
fall Stór-Khansins og eftirmanns
hans til þess aö vesturtakmörk
rikisins uröu ekki Atlantshafiö, en
þá væri saga Evrópu önnur.
Bókin er lipurlega samin, og
hertækni mongóla eru gerb góö
skil i knöppu máli.