Þjóðviljinn - 29.08.1979, Síða 4
4 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagnr 2». ágúst 1979.
OIODVIUINN
Málgagn sósialisma, verkalýös-
hreyfingar og þjóðfrelsis
Otgefandi: (Itgáfufélag Þjóöviljans
Framkvemdastjóri: Eiöur Bergmann
Ritstjórar: Arni Bérgmann, Einar Karl Haraldsson.
Fréttastjóri: Vilborg Haröardóttir
Umsjónarmaöur Sunnudagsblaös: Ingólfur Margeirsson.
Rekstrarstjóri: Olfar Þormóösson
Auglýsmgastjóri: Rúnar Skarphéöinsson
Afgreiöslustjóri: Valþór Hlööversson
Blaöamenn: AlfheiÖur Ingadóttir, Einar Orn Stefánsson, Guöjón
Friöriksson, Ingibjörg Haraldsdóttir, Magnús H. Gislason, Sigurdór
Sigurdórsson.
Erlendar fréttir: Halldór Guömundsson.
Iþróttafréttamaöur: Ingólfur Hannesson.
Ljósmyndir: Einar Karlsson, Leifur Rögnvaldsson.
(Jtlit og hönnun: Guöjón Sveinbjörnsson, Sævar Guöbjörnsson.
Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elias Mar.
Safnvöröur: Eyjólfur Arnason
Auglýsingar: Sigriöur Hanna Sigurbjörnsdóttir, Þorgeir Ólafsson.
Skrifstofa: Guörún Guövaröardóttir, Jón Asgeir Sigurösson.
Afgreiösla:GuÖmundur Steinsson, Kristin PétUrsdóttir.
Sfmavarsla: Ólöf Halldórsdóttir, Sigriöur Kristjánsdóttir.
Bflstjóri: Sigrún Báröardóttir
Húsmóöir: Jóna Siguröardóttir
Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir.
(Jtkeyrsla: Sölvi Magnússon, Rafn Guömundsson.
Ritstjórn, afgreiösia og auglýsingar: Síöumúla 6, Reykjavik, sfmi 8 13 23.
Prentun: Blaöaprent hf.
Nú er að duga
leigjendum
# Merk lög gengu í gildi 1. júní síðastliðinn. Þau veita
stórum réttlausum hópi mikilvæg réttindi á pappírnum
og nú veltur á framkvæmdinni hvort lagabókstafurinn
verður leigjendum það haldreipi sem vonir standa til.
Samningar sem gerðir eru um leigu húsnæðis eftir 1. júní
falla undir hin nýju lög, en um næstu áramót gilda lögin
um alla húsaleigusamninga hvenær sem þeir hafa verið
gerðir, svo og skal eftir þeim farið þegar deilur koma
upp út af munnlegum samningum.
# Samkvæmt nýju lögunum er skylt að gera skriflega
samninga um allt leiguhúsnæði og frá því er engin und-
antekning eftir 1. janúar næstkomandi. Þá er og vert að
vekja athygli á að húsaleigusamninga má aðeins gera á
eyðublöð sem staðfest hafa verið af félagsmálaráðu-
neytinu. Þau eru aðgengileg og auðskilin og samnings-
eyðublöð frá öðrum aðilum hafa ekki lagagildi.
# I nýju lögunum er gert ráð fyrir tvennskonar samn-
ingum, tímabundnum og ótímabundnum. Mikilsverðasta
nýmælið er að sé gerður tímabundinn samningur er
leigjanda ekki skylt að víkja úr húsnæðinu þegar leigu-
tíma lýkur. Leigjandinn getur notfært sér forgangsrétt
til húsnæðisins, sem er þannig skilgreindur að húsaleigu-
samningurinn framlengist í jafnlangan tíma og upphaf-
lega var samið um, ef leigjandinn tilkynnir eiganda að
hann vilji notfæra sér forleiguréttinn. Sé gerður ótíma-
bundinn samningur um leigu íbúðar, er þriggja mánaða
gagnkvæmur uppsagnarfrestur, nema þegar eigandi
segir leigjenda upp eftir að hann hefur haft fbúðina á
leigu lengur en f imm ár. Þá er uppsagnarf restur eitt ár.
# Eitt hvimleiðasta háttalagiðá leigumarkaðinum hafa
verið fyrirframgreiðslur til mánaða og ára án þess að
leigjandi haf i öðlast nokkurn rétt í staðinn. I nýju lögun-
um er sú regla skýr að ekki er heimilt að taka leigu-
greiðslu fyrirfram til lengri tíma en sem nemur f jórð-
ungi umsamins leigutíma. Sé samið til eins árs má f yrir-
framgreiðsla i hæsta lagi nema þriggja mánaða leigu.
Ef t.d. er samið um fyrirf ramgreiðslu til árs skal leigu-
tímabil vera fþað minnsta f jögur ár. Þetta þýðir að þeir
sem tekið hafa íbúð á leigu eftir 1. júní s.l. og greitt árið
fyrirfram eiga skýlausan rétt á f jögurra ára leigutíma-
bili og gildir einu hvað stendur í leigusamningi. Þennan
rétt er ekki hægt að semja af sér.
# Ýmis f leiri nýmæli eru í lögunum svo sem um trygg-
ingarfé, viðhald, kvartanir og um embætti úttektar.
manna er falið skal að meta ástand leiguhúsnæðis. Auk
úttektarmanna eiga að vera starfandi í hverju bæjarfé-
lagi þriggja manna húsaleigunefndir á vegum bæjar-
stjórna. Hlutverk þeirra á m.a. að vera að fylgjast með
framkvæmd húsaleigumála og efla upplýsingar um þau.
# Þjóðviljinn vill hvetja allar bæjarstjórnir í landinu til
þess að vinda bráðan bug að skipan húsaleigunefnda og
setja í þær fólk sem hef ur hug á því að bæta úr ófremd-
arástandinu á leiaumarkaðinum. Komist ekki á raun-
hæft eftirlit með framkvæmd laganna svo og möguleik-
ar fyrir leigjendur aðstanda á rétti sínum,sitjum við von
bráðar uppi meðdauðan lagabókstaf og óteljandi smug-
ur f yrir leigusala til þessaðsmeygja sér í gegnum.
# Ákvæðinu um húsaleigunef ndir var skotið inn í lögin
við síðustu umræðu á Alþingi í vor, einmitt af því að
nokkrir alþingismenn höfðu áhyggjur af framkvæmd
laganna. Bæjarfélögin verða nú að duga vel til þess að
tryggja framgang þeirrar mikilvægu réttarbótar sem í
lögunum felst. Þjóðviljinn hvetur Alþýðubandalagsfólk í
öllum bæiarfélöqum til þess að brýsta vel á eftir málinu,
og styðja viðleitni Leigjendasamtakanna.
# Nýju lögin ná ekki til upphæðar húsaleigu. Enda þótt
meirihluti leigusala séu síður en svo okrarar af nokkru
tagi er misræmið í leiguupphæðum og einstök okurdæmi
nægileg ástæða til þess að taka þau mál fastari tökum.
Unnið hef ur verið að undirbúningi f rumvarps til laga um
húsaleiguupphæðir og leggur Þjóðviljinn áherslu á að
það verði lagt fram á Alþingi í haust til skjótrar af-
greiðslu. Leigjendur í landinu hafa nógu lengi verið rétt-
iaust fóik.
Svíþjóð
Kosningar í
1 Svíþjóö standa fyrir dyrum
þingkosningar um miöjan næsta
mánuö, og er kosningabaráttan
þar farin af staö meö fullum
skriöi. Frá þvi aö borgaraflokk-
arnir lögöu sænska krataflokk-
inn eftir 44 ára rikisstjórnar-
þátttöku fyrir þremur árum,
fyrst og fremst á nokkrum
hneykslismálum, svo og á
spurningunni um nýtingu kjarn-
orkunnar, hefur margt gerst i
Sviþjóö. Borgaraflokkarnir þrir
áttu i byrjun erfiða sambiíö og
sameinuöust um fátt nema aö
halda áfram hinni sósialdemó-
kratisku pólitik. Stjórn þeirra
féll þó loks á eigin bragði, þaö er
aö segja afstööunni til nýtingar
kjarnorkunnar. Siöan á miöju
kjörtimabili hefur minnihluta-
stjórn Þjóöarflokksins veriö viö
völd og stuöst ýmist við jafnaö-
armenn eða hina borgarflokk-
ana.
Nú er spurt i Sviþjóð hvort
jafnaðarmenn taki á ný viö
stjórnartaumunum meö hlut-
leysiVinstri flokksins kommún-
istanna, eöa hvort borgara-
flokkarnir halda sameiginlegu
forskoti sinu. Þótt hiö síöar-
nefnda yröi upp á teningnum,
þarf ekki endilega aö vera aö úr
þvi veröi ný samstjórn borgara-
flokkanna, þvi að reynslan frá
liönu kjörtimabili er ekki lokk-
andi. Hinsvegar hefur deilunum
um nýtingu kjarnorkunnar ver-
iö visaö til þjóöaratkvæöa-
greiöslu sem fram á aö fara eft-
ir þingkosningarnar og eftir aö
búiö er aö afgreiöa hana ættu
friöarhorfur milli borgaraflokk-
anna að vera betri en áður.
Kapitalið kallar
Og kapitalið kallar á sam-
stööu borgaraflokkanna gegn
verkalýöshreyfingunni og Jafn-
aöarmannaflokknum sem sett
hefur upp róttækan svip I stjórn-
arandstööunni. Þannig hefur
Sænska vinnuveitendasam-
bandið hafiö „ópólitiska” áróö-
ursherferö sem beinist gegn
jafnaöarstefnunni og er einhliöa
andsósialisk. Hér er um tvær
aðgreindar herferöir aö ræöa
undir kjöroröunum „Látum
hjólin snúast i Sviþjóö” og
„Veðjaöu á sjálfan þig”. í þess-
ar herferöir hefur Sænska
vinnuveitendasambandiö variö
sem svarar 435 miljónum is-
lenskra króna á landsvisu, auk
þess sem annaö eins er taliö
hafa fariö til þess aö undirbUa
jarðveginn meö staöbundnum
áróðri.
Áróðursfé
Atvinnulifssjóöurinn svokall-
aði hefur einnig látiö til sin taka
og variö um fimm miljónum
króna til Utgáfustarfsemi sem
beint eöa óbeint má telja and-
sósialdemókratiskan áróður.
Ungkratasambandiö i Sviþjóö
hefur auk þess sett saman lista
þar sem talin eru upp nokkur
stærstu fyrirtækin i Sviþjóð sem
reglulega leggja miklar fjár-
hæöir i borgaralegan pólitiskan
áróöur. Þá hefur komið fram að
Hægri flokkurinn, sem nú siglir
i meöbyr i Sviþjóð hafi áriö 1977
fengiö sem svarar 260 miljónum
islenskra króna til starfsemi
sinnar 1977. Þessi tala hefur
verið birt I blaöi þeirra en ung-
kratar telja upphæöirnar sem
borgaraflokkarnir fá til áróöurs
frá fyrirtækjunum miklu hærri
þótt þeim hafi reynst erfitt að
^sannreyna þær.
Miöflokkurinn neitar þvi nú
aö taka viö peningum frá fyrir-
tækjum ogsegistalfariö treysta
á félaga i flokknum og samtök i
landbúnaöi.
Kratar geta líka
En sænskir jafnaöarmenn eru
ekki á flæðiskeri staddir. Tengsl
þeirra viö verkalýöshreyfing-
una eruþaö mikil aö þar verður
ekki sundur greint. Flest
stærstu verkalýösfélögin eru
sem heild meðlimir i flokknum
og aö meöaltali greiöir hver fé-
lagi i Alþýöusambandi Sviþjóð-
ar um 500 krónur til Jafnaðar-
mannaflokksins á ári hverju.
Aöeins i einu af 25 landssam-
böndum Alþýöusambandsins
hafa félagar ákveöið að styöja
Jafnaðarmannaflokkinn ekki.
Þaö var i þvi landssambandi
sem hefur innan sinna vébanda
starfsmenn Tryggingarfélaga.
Samtals munu þær fjárhæðir
sem LO-samböndin hafa ákveð-
ið aö verja til Jafnaöarmanna-
flokksins nema um 870 miljón-
um islenskra króna.
Þegar herferð Vinnuveitenda-
sambandsins hófst gegn sósial-
demókratiskum lausnum i at-
vinnulffinu ákváöu sum verka-
lýössamböndin að hækka fram-
lag sitttil flokksins um helming,
og hafa s varaö sókn atvinnurek-
enda meö ýmsum hætti öörum
en fjárstuöningi, m.a. með
fundaherferðum um land allt.
Eins og aö framansögöu má
sjá eru miklir peningar á ferö-
inni i kosningabáráttunni i Svi-
þjóö og hart tekist á I áróðri
milli fulltrúa verkalýöshreyf-
ingarinnar og þeirra sem eru á
mála hjá atvinnurekendum.
Ekkiber þóá neinum ásökunum
um fjárstuðning erlendis frá,
þótt bæöi fyrirtækin og jafnaö-
armannaflokkurinn eigi sterka
bakhjarla erlendis.
Herkostnaður
Engar heildartölur höfum við
séö um þaö hvað kosningabar-
áttan i' Sviþjóð kostar, en þegar
til viðbótar kemur að sænsku
flokkarnir njóta mjög riflegs
fjárstuönings frá hinu opinbera
til starfsemi sinnar, amk. ef
mælt er á íslenskan mæli-
kvaröa,erljóstað þarerumenn
ekki að horfa i aurinn i barátt-
unni um völdin.
Af þessu má einnig ráöa að
sænsku verkalýössamtökin gera
sér ljóst aö þaö er mjög kostn-
aöarsöm barátta að standa i
striöi viö lævisan nútimaáróður
atvinnurekenda sem spara ekk-
ertviösigogbeita fullkomnustu
fjölmiðlaþeldiingu tilað auglýsa
hugmyndir sinar inn i bein á al-
menningi. Aðferðirnar viö aö
mæta fjölmiðlaáróðri atvinnu-
rekenda eru i Sviþjóö dagskrár-
málefni verkalýðshreyfingar og
hljóta einnig aðsækja æ meira á
sem umræöuefni I islenskri
verkalýöshreyfingu i ljósi þess
áróöurs sem á henni hefur staö-
ið linnulaust nú um skeið.
—ekh.
—ekh.