Þjóðviljinn - 28.09.1979, Blaðsíða 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 28. september 1979
Félagsfundur MAÍ
verður haldinn sunnudaginn 30. sept. kl. 2
e.h. i húsnæði Sóknar að Freyjugötu 27
Dagskrá:
1. Skýrsla um Albaniuferö
2. Ferðasaga frá Albaníu með
myndasýningu
3. Kaffihlé
4. Kynning á bók Envers Hoxha:
,,Heimsvaldastefnan og byltingin”
5. Starfið framundan
6. Fyrirspurnir og umræður
Félagar fjölmennið.
Nýir félagar eru velkomnir.
Menningartengsl Albaníu og íslands
Tökum að okkur
viðgerðir og nýsmiði á fasteignum.
Smiðum eldhúsinnréttingar: einnig við-
gerðir á eldri innréttingum. Gerum við
leka vegna steypugalla.
Verslið við ábyrga aðila
TRÉSMIÐAVERKSTÆÐIÐ
Bergstaðastræti 33,
simi 41070.
Lyfsöluleyfi
sem forseti Islands veitir
Lyfsöluleyfið á Seyðisfirði er laust til um-
sóknar.
Umsóknarfrestur er til 1. nóvember 1979.
Umsóknir sendist landlækni.
Fráfarandi lyfsali óskar að notfæra sér
heimild 32. gr., lyfsölulaga nr. 30/1963 um
að viðtakanda sé skylt að kaupa vöru-
birgðir og áhöld lyfjabúðarinnar.
Einnig skal viðtakandi kaupa húseignina
Austurveg 32, Seyðisfirði, þar sem lyfja-
búðin er til húsa.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið.
26. september 1979
Gullfallegir kettlingar
fást gefins
Upplýsingar í síma 54383
Auglýsingasimi;
Þjóðyiljans er
81333
DJOOVIUINN
Blikkiðjan
Asgaröi 7, Garðabæ
önnumst þakrennusmiöi og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar blikksmíöi.
Gerum fost verötilboö
SÍMI 53468
Atvinnusjúkdómar í sviðsljósinu
í lágmarki
Arni Björnsson, skurölæknir, og Tryggvi Ásmundsson, sérfræöingur i
lungnasjúkdómum (t.h.) — ljósm. eik.
Eimskip:
Hafnir úti á landi í
N orðurlandasamband
Eftirlit
Lœknar efna
til ráðstefnu
með aðilum
vinnumarkaðarins
Atvinnusjúkdómar verba æ
meir áberandi hér á landi, enda
varúöarráðstafanir gegn þeim
svotil engar. Aöbúnabur aö
starfsfólki er viöa slæmur, mikill
hávaöi á vinnustööum, hættuleg
efni i notkun og vinnan erfiö og
einhæf.
Á aöalfundi Læknafélags
Islands í júni 1978 var vakin
athygli á aukinni þörf á heilsu-
gæslu á vinnustööum og eftirliti
og rannsóknum á atvinnusjúk-
dómum. Fundurinn fól stjórn L.I.
að efna til ráðstefnu um þessi
mál, þar sem rædd yrðu læknis-
fræðileg vandamál atvinnusjúk-
dóma og jafnframt hvernig haga
beri heilbrigðiseftirliti á vinnu-
stöðum.
Ráðstefna um atvinnu-
sjúkdóma
Arni Björnsson, skurðlæknir og
formaður færðslunefndar L.I. og
Tryggvi Asmundsson, lungna-
sjúkdómalæknir kynntu nám-
skeið lækna og ráðstefnuna sem á i
eftir fer fyrir blaðamönnum I |
gær. Enn sem komið er hafa at-
vinnusjúkdómar ekki verið rann-
sakaðir sérstaklega hér á landi,
fyrir utan rannsóknir sem ólafur
BjÖrnsson fyrrum héraðslæknir á
Hellu geröi á heymæði bænda.
Læknar iýmsum sérgreinum, s.s.
sérfræöingar i lungnasjúkdóm-
um og húðsjúkdómalæknar"ha'fa
þó óhjákvæmilega fengiö til með-
feröar sjúklinga sem þjáðst hafa
af atvinnusjúkdómum. Auk
islensku læknanna voru fengnir
hingað þrir erlendir fyrirlesarar
sem allir hafa fengist við atvinnu-
sjúkdóma.
Erlendu gestirnir eru dr. med.
Ole Bentzen, yfirlæknir við
heyrnarmiöstöð danska ríkisins,
Sven Forsman, dósent I atvinnu-
sjúkdómum við Karolinska
sjúkrahúsið I Svlþjóö og ráðgjafi
WHO á Evrópuskrifstofunni I
Kaupmannahöfn, og Kaye H. Kil-
burn, prófessor við Mount
Sinai, forstöðumaður lungna-
deildar Bronx V.A. Hospital og
hefur mikið fengist við rannsókn-
ir á atvinnusjúkdómum lungna.
Fjórði gesturinn er Michael
Brennan, prófessor I heimilis-
lækningum I Ontario I Kanada og
er þekktur fyrir störf að skipu-
lagningu á menntun heimilis-
lækna.
Hávaði, eiturefni
og fleira
Eftirlit með atvinnusjúkdóm-
um og þeim þáttum sem valda
þeim og varúðarráðstafanir gegn
atvinnusjúkdómúm er alveg i
lágmarki hérlendis. Mjög slælegt
eftirlit er með þeim efnum sem
flutt eru inn og notuö til alls kyns
iönaöarframleiðslu og iðnvæðing
er tiltölulega ný á Islandi
og þvi enn sem komið er
ekki farið að bera verulega á
ýmsum fylgikvillum hennar. Þeir
Árni og Tryggvi bentu á aö fleira
getur valdiö atvinnusjúkdómum
en hávaöi og hættuleg efni. Þar
má benda á að fólki sem vinnur
einhæfa vinnu meö sifelldri
endurtekningu á sömu hreyfing-
unum hættir til þrálátrar vöðva-
bólgu, einnig aö alltof langur
vinnutimi, slæmur aðbúnaöur
starfsfólks á vinnustað og engin
hvildaraðstaða geta einnig or-
sakaö ýmsa atvinnusjúkdóma.
Ráðstefna þessi er fyrst og
fremst haldin til að vekja athygli
á vandamálinu og koma af stað
frekari umræðum um þessi mál.
Ráöstefnan veröur i Domus
Medica föstudaginn 28. septem-
ber og er öllum opin. Auk Lækna-
félagsins var Alþýðusambandi
Islands, Vinnuveitendasambandi
Islands, Stéttarsambandi bænda
og Vinnumálasambandi sam-
vinnufélaganna boðin aðild að
ráðstefnunni. SR
Eimskip hefur hafiö
reglubundnar sigiingar frá
Reykjavlk til fjögurra annarra
hafna innanlands i beinum
tengslum viö feröir skipa félags-
ins frá Noregi og Gautaborg. Er
þetta gert til aö bæta þjónustuna
viö inn- og útflytjendur og aöra
flytjendur, segir I fréttatilkynn-
ingu frá félaginu. Þrjú af skipum
þess halda uppi vikulegum ferö-
um milli Reykjavikur, tsafjarö-
ar, Akureyrar, Gautaborgar og
Moss I Noregi, en hálfsmánaöar-
lega hafa þau viökomu á Siglu-
firöi, Húsavik Bergen og
Kristiansand.
„Alafoss”, „Tungufoss” og
Mál og menning hefur
gefið út nýja kennslubók í
samfélagsfræði. Bókin er
þýðing og staðfæring Auð-
ar Styrkársdóttur á bók Jo-
achims Israel og heitir á
íslensku „Samfélagið —
fjölskyldan, vinnan, rík-
ið".
Auður valdi þessa bók til þýö-
ingar, af þvi að hún gefur góðar
upplýsingar um byggingu þjóð-
félagsins og hjálpar nemendum
til að afla sér undirstöðuþekk-
ingar i greininni. Bókinni er skipt
i þrjú aöaltemu: fjölskyldu, vinnu
og riki, sem eru þrir aöalþættirnir
I llfi manna. Bókin er ætluö til
kennslu i svokölluðum kjarna, i
menntaskólum og fjölbrauta: -
skólum, og miðuö viö byrjendur I
greininni. Hún er staðfærö og töfl-
ur og ýmsar upplýsingar sér-
islenskar og vissir hlutar hennar
eru þvi endursamdir af Auöi
Styrkársdóttur.
Samfélagiö kom fyrst út I Dan-
mörku árið 1977 og hlaut þar góð-
ar viðtökur og hefur verið kennd i
dönskum framhaldsskólum.
Flestir framhaldsskólar I
Reykjavik munu kenna hana i
vetur, hiö sama gildir um
Menntaskólann á Akureyri og lik-
legt er að hún verði einnig kennd
við Menntaskólann á Isafirði.
„Oöafoss” munu sigla á þessari
áætlunarleiö, en þessi'skip henta
jafnt til gámaflutninga sem og til
annarra flutninga. Reynslan hef-
ur sýnt að aukin gámanotkun
leiðir til bættrar vörumeðferðar
og býður Eimskip viðskiptavin-
um sinum upp á notkun fjöl-
margra 10 og 20 feta gáma fyrir
almenna stykkjavöru og einnig
frystigáma.
Er þess aö vænta, að þetta fyr-
irkomulag auki hagræði I rekstri
viöskiptavina Eimskips og bæti
enn frekar samkeppnisaöstöðu is-
lenskra fyrirtækja á erlendum
mörkuðum.
Höfundurinn, Joachim Israel,er
menntamaður I Sviþjóð og hefur
lengst af dvaliö I Kaupmannahöfn
<og' I Lundi. Hann er prófessor I
félagsfrjsði og mun nú starfa I
Kaupmannahöfn. Israel er marx-
isti og m.a. frægur fyrir skrif sin
um kenningar Karls Marx um
firringu. Israel hefur þannig
komiö þessum kenningum vel til
skila og á aðgengilegan hátt.
Hann hefur einnig samið kennslu-
bækur I samfélagsfræði fyrir há-
skólastig og ein þeirra hefur t.d.
verið kennd viö Félagsvisinda-
deild Háskóla íslands.
—SR
Mál og menning
Gefur út samfélags-
frædi eftir Joachim
Israel