Þjóðviljinn - 28.09.1979, Side 16
— segir menntamálaráðherra um skólastjóradeiluna í Grindavík
„Aödragandinn aö þessu máli
er orftinn býsna langur og þaö
hefur gengiö á ýmsu i skólamál-
um Grindvikinga undanfarin ár”
sagöi Eagnar Arnalds mennta-
málaráöherra i samtali viö Þjóö-
viijann I gær vegna deilna sem
risiö hafa eftir aö hann setti
Hjálmar Arnason skólastjóra i
Grindavik i fyrradag.
„Friöbjörn Gunnlaugsson hefur
veriö skipaöur skólastjóri i
Grindavik, en hann hefur átt i úti-
stööum viö heimamenn og þegar
hann ætlaöi aö taka viö starfi sinu
i haust var honum meinaöur aö-
gangur aö skólastjóraibúöinni og
skólahúsnæöinu. Sagöi hann þá af
sér og meirihluti skólanefndar
lagöi til aö Bogi Hallgrimsson,
sem gegnt hefur störfum skóla-
stjóra undanfarin 3 ár, yröi settur
I embættiö án auglýsingar.
Minnihluti skólanefndar var þvi
andvigur, og ég taldi raunar frá-
leitt aö auglýsa ekki starfiö þegar
skólastjóri hefur hrökklast úr þvi
á þennan hátt. Meö þvi aö fara aö
tilmælum meirihluta skólanefnd-
ar heföi menntamálaráöuneytiö
aöeins veriö aö taka þátt I þvl aö
koma einum skólastjóra frá em-
bætti og setja f hans staö mann,
sem vissulega átti sinn hlut aö
hvernig málum var komiö.
Staöan var siöan auglýst og um
hana sóttu tveir. Annar, Bogi
Hallgrimsson, hefur Iþrótta- og
handavinnukennarapróf, en hinn,
Hjálmar Arnason, hefur margra
/ára háskólanám aö baki, 7 ára
kennslureynslu og rétt vantar
herslumuninn á fullgild réttindi.
Þess vegna var hann ekki settur,
heldur skipaöur tileins árs. Hann
hefur nú þegar mun meiri mennt-
un en hinn umsækjandinn og þeg-
ar hann hefur aflaö sér tilskilinna
réttinda uppfyllir hann allar þær
kröfur sem geröar eru til skóla-
stjóra hvort heldur er I grunn-
skóla eöa framhaldsskóla.”
— Nú má ráöa þaö af blööunum
i gær, aö hann sé lögreglumaöur
án nokkurra réttinda.
„Þessar upphrópanir sýna I
hnotskurn hversu hart stuönings-
menn Boga Hallgrimssonar
ganga fram i áróöri sinum. Aö
sögn allra sem til þekkja er
Hjálmar Árnason afbragös góöur
skólamaöur, enda meö langa
kennslureynslu. ÞaÖ er varla
verra þó hann hafi stundaö lög-
reglustörf i sumarleyfum sínum,
enda viröist þaö vera góöur und-
irbúningur fyrir starf, þegar
skólastjórastaöa i Grindavik á I
hlut.”
— Nú hefur þaö veriö gagnrýnt
aö umsóknarfrestur hafi veriö ó-
eölilega stuttur.
— „Já, — þaö er rétt, aö eins og
oft í slikum tilfellum varö aö hafa
umsóknarfrestinn stuttan.
Kennslan var I lamasessi þar til
Heimingurfundarmanna söngbaráttusöngva lnnan vallargiröingar I hálftima igærkvöldi. Ljósm. Leifur.
TAUGAVF.IKI.IJN f HERSTÖÐINNI
Varaherinn kvaddur út!
Mikillar taugaveiklunar gætti
I gær hjá „islensku” lögreglunni á
Keflavikurflugvelli vegna fundar
herstöövaandstæöinga og marg-
vislegar varúöarráöstafanir
geröar fyrir fundinn, herstöövar-
giröingin styrkt, flughöfninni
iokaö og „varaherinn” hiö
bandarisktlaunaöa slökkviliö
hersins, kvatt út og þvf fyrirskip-
aö aö vera i viöbragösstellingu.
Blaöamaöur haföi hug á þvi f
gærmorgunaö bregöa sér suöur i
herstööina til þess aö lita á vett-
vanginn, og bar þá svo vel f veiöi
aö áfjörur hans rak Jónas Arna-
son, alþingismann, er haföi bfl til
umráöa og þegarvartil i feröina.
Engin fyrirstaöa var viö aö kom-
ast i gegn um aöalhliöiö aö her-
stööinni og hægt aö frilysta sig aö
vild innan herstöövarinnar.
Girðingin styrkt
Hliöin aö herstöövarsvæöinu
eru þrjú. Eitt þeirra er Turner-
hiiö. Þaö er einvöröungu notaö til
þess aö hleypa i gegn hermönnum
meö matarskammtinn s inn og þvi
aöeins opiö fáar klukkustundir i
viku, óhrjálegt hliö og ryögaö.
Meðfram veginum upp aö þvi
hliöi voru starfmenn hersins,
islenskir þó, aö vinna viö aö
styrkja giröinguna og gera hana
mannhelda, tveir til þrir vinnu-
hópar.og slödegis mun hafa veriö
tjaslað upp á hliöiö sjálft.
Viðbótarlöggæsla
Fyrir hádegiö var enginn viö-
búnaöur af lögreglunnar hálfu, en
I hádeginu kom þaö boö frá varn-
armáladeild utanrikisráöuneytis-
ins, aö engum yröi hleypt inh á
hemámssvæöiö nema hann heföi
þartilgeröa pappira.
Upp úr miöjum degi var svo
ljóst hver viöbúnaöur lögreglunn-
ar yröi, allt liö flugvallarlögregl-
unnar var kallaö út svo og lög-
regluliö nærliggjandi byggöar-
laga.
Flugstöðinni lokað
Næst fréttist af þvi, aö t&’l þess
aö vernda lif og limi Islendinga
sem f flugstöövarbyggingunni
vinna, yröi flutt heim klukkan
19.00 og flugstööinni lokaö.
„Varaherinn”
Eins og lesendum er kunnugt
þá greiöir bandariski herinn laun
slökkviliösins á Keflavfkurflug-
velli, en þaö er mikiö verölauná-
liö innan bandariska hersins um
veröld alla. Stýrir liöinu Sveinn
Eiriksson, uppnefndur „Patton”
eftir frammistööuna viö aö
sprauta á glóandi hraun i gosinu i
Vestmannaey jum.
Undir kvöldiö bárust
blaöamanni fregnir af þvl sunnan
úr Keflavík, aö .T’attœi” heföi
kvatt út allt sitt liö og f yrirskipaö
þvf aö vera i viöbragðsstööu, til-
búiö aö sprauta niöur landa slna
ef þeir geröust of ágengir viö ætt-
jöröina, þann hluta hennar sem er
i klóm hersins, en slökkviliö hers-
ins er eingöngu skipaö islenskum
mönnum.
Hvers vegna?
Hvers vegna alla þessa tauga-
veiklun vegna mótmælafundar,
sem ætlaö er aö fara friösamlega
fram, og fyrirskipaö hefur veriö
aö halda utan herstöövarinnar?
-úþ
Eagnar Arnalds: „Ekki pólitik af
minni hálfu.”
búiö var aö ganga frá þessum
málum.”
— Nú liggur þú undir þvi ámæli
aö þetta sé pólitisk stööuveiting
og sá sem var settur sé flokks-
bróöir þinn.
„Ég veit lftiö um stjórnmála-
skoöanir Hjálmars Arnasonar,
enda hef ég aldrei rætt viö hann
um stjórnmál. Þetta er þvi ekki
pólitisk stööuveiting af minni
hálfu, en þetta virðist ætla aö
Framhald á 14. siöu
Síldin
Eyjabátar
heim úr
fyrsta
túrnum
Eyjabátarnir komu heim f
gær úr fyrstu veiöiferöinni á
reknet og fengu 7 bátar
samanlagt um 1600 tunnur,
sem landaö var hjá lsfélag-
inu, Fiskiöjunni og Vinnsiu-
stööinni.
Arni i Göröum fékk 262
tunnur, Danski Pétúr 245,
Kópur VE 250, Ófeigur III.
105, Dalarafn 130, Sæþór
Arni 350 og Friðrik Sigurös-
son 250. Þá landaöi Pétur
Ingi úr Keflavik 63 tunnum I
Eyjum. \
15 bátar lönduðu á Höfn i
Hornafiröi samanlagt um
1300 tunnum. Þaöan róa nú
um 30 heimabátar og aö-
komubátar.
Hringnótabátarnir eru
sem óðast aö hef ja veiðar og
landaði Kópur GK f Grinda-
vðc i gær um 70 lestum,
veiddum í nót. Aður höföu
HrafnSveinbjarnarson II. og
m. landaöþarum 75lestum.
1 Grindavik er saltaö á tveim
stööum og ætlunin aö salta
þar á tveim til viöbótar.
— vh
I
Farþegum SVR jjölgar, en vagnarnir úr sér gengnir
[Nýir vagnar nauðsynlegir
segir Guðrún Ágústsdóttir, formaður SVR
„Borgarráö hefur nú til af-
greiöslu tfllögur um kaup á nýj-
um strætisvögnum, og ég
vona i_ aö nýir vagnar veröi
komnir á göturnar hér á næsta
ári,”, sagöi Guörún Agústs-
dóttlr, formaöur stjórnar SVE i
samtali viö Þjóöviljann I gær.
Talsveröar farþegaaukning-
ar hefur gætt hjá SVR undan-
fariö og sagöi Guörún þaö sorg-
legt aö geta ekki mætt þessari
auknu þörf meö betri þjónustu.
„Staöreyndin er sú”, sagöi hún,
„aö vagnarnir eru úr sér gengn-
ir, — þaö vantar nauösynlega
nýja vagna og þeir heföu þurft
aö koma fyrr.”
Stjórn SVR lagöi á þaö
áherslu fyrir afgreiöslu fjár-
hagsáætlunar i fyrra aö gengiö
yröi frá kaupum á 40 nýjum
vögnum á næstu 5 árum, en
vegna erfiörar fjárhagsstööu
borgarsjóös og mikils halla-
reksturs SVR reyndist þaö ekki
unnt aö sögn Guörúnar. „Nú
hefurhins vegar komiö fram aö
fjárhagsstaöa borgarinnar er
aUt önnur, en þegar viö tókum
viö í fyrra og þvf erum viö I
stjóm SVR bjartsýn,” sagöi
hún.
Stjórnin setti niöur sérstaka
nefnd f þessu mál I vor og m.a.
hefur 1 samvinnu viö atvinnu-
málanefnd borgarinnar veriö
kannaö hvort islensk fyrirtæki
heföu aöstööu til þess aö byggja
yfir vagnagrindur hér á landi.
Guörún sagöi aö 5 fyrirtæki
heföu sýnt málinu áhuga en þau
heföu ekki getaö skuldbundiö
sig. Komiö heföi fram aö til
þess aö yfirbygging hér innan-
lands væri hagkvæm þyrfti aö
byggja yfir 18 vagna á 3 árum
minnst.
50% tollar
Hver strætisvagn kostar um
60-70 miljónir á núverandi
verölagi og lætur nærri aö
helmingur þeirrar fjárhæöar sé
ýmis konar aöflutningsgjöld.
Stjórn SVR og borgarráö hefur
nýlega beint þeim tilmælum til
rikisstjórnarinnar aö hún felli
niöur þessi gjöld og sagöi Guö-
rún aö meö þvi móti mætti
endurnýja vagnakost SVR á
helmingi styttri tima. „Þetta
tiökast viöast hvar erlendis”,
sagöi Guörún „en viö erum á
eftir i þeim efnum eins og svo
mörgum öörum. Hins vegar
hljóta ráöamenn aö sjá hvaö
þaö er miklu hagkvæmara i 100
þúsund manna byggöarlagi aö
beina samgöngum fremur aö al-
menningsvögnum en aö einka-
bilum. Þetta eru Reykvfkingar
farnir aö skilja”, sagöi Guörún
„ogéghef þá trú aö rfkisstjórn-
in taki þessu erindi vel meö til-
liti til tillagna hennar um orku-
sparnaö.” — AI
"I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
DJODVIUINN
■Föstudagur 28. september 1979
Aðalsimi Þjóöviljans er 81333 kl. 9 — 20 mánudaga til
föstudaga, kl. 9 — 12. f.h. og 17 — 19 e.h. á laugardögum.
Utan þess tima er hægt aö'ná i blaöamenn og aöra starfs-
menn blaðsins i þessum simurn: Ritstjórn 81382, 81527,
81257 og 81285, afgreiösla 81482 og Blaðaprent 81348.
C81333
Kvöldsími
er 81348
Utanaðkomandi maður
heppilegasta lausnin