Þjóðviljinn - 16.10.1979, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 16.10.1979, Blaðsíða 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 16. október 1979 ÚTBOÐ Hitaveita Suðurnesja óskar eftir tilboðum i að reisa stöðvarhús 2 og byggja spenni- stöð i Svartsengi. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Hitaveitu Suðurnesja Vesturbraut 10A Keflavik og á Verkfræðistofunni Fjarhitun hf. Álftamýri 9 Reykjavik frá og með þriðjudeginum 16. október gegn 75.000 — kr. skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á skrifstofu Hitaveitu Suðurnesja 5. nóvember 1979 kl. 14. Lóðir í Arnarnesi Lóðir eru til sölu i Arnarnesi. Upplýsingar á lögfræðiskrifstofu Vil- hjálms Árnasonar hrl. Iðnaðarbanka- húsinu Lækjargötu 12. Simar 16307 og 24635. Húsnæði óskast Einhleypur maður óskar eftir að taka á leigu litið ibúðarhúsnæði. Upplýsingar i sima 16313 milli kl. 5 og 7. V erslunarhúsnæði Verslunarhúsnæði á jarðhæð óskast til leigu.helst 5 — 10 ára leigusamningur. Húsnæðið þarf að vera i miðbænum eða við Laugaveg neðanverðan. Stærð ca 60-100 fermetrar. Upplýsingar á lögfræðiskrifstofu Vilhjálms Árnasonar hrl. Iðnaðarbanka- húsinu Lækjargötu 12. Simar 16307 og 24635. Blaðberar óskast Austurborg: Blönduhlið — Hamrahlið (l.nóv.). Drápuhlið — Eskihlið (1. nóv.). Miklabraut — Barmahlið (strax). DJÚDVIUINN Sími 81333 Blikkiðjart Ásgaröi 1, Garöabæ Önnumst þakrennusmiöi og uppsetningu — ennfremur hverskonar blikksmíöi. Gerum föst verötilboö SÍMI 53468 Auður Haralds Thor Vilhjálmsson BÆKUR BÆKUR Egill Egilsson Skáldrit frá Iðunni Iðunn gefur út hátt I niutiu bækur i ár og er það svipaður bókafjöldi og i fyrra. Meðal frum- saminna skáldrita frá útgáfunni koma út nýjar skáldsögur eftir Thor Vilhjálmsson og Egil Egils- son, ný ljóðabók eftir Þórarin Eldjárn, leynilögreglusaga eftir Gunnar Gunnarsson. Væntanleg er ný skáldsaga eftir Thor Viihjálmsson sem nefnist Turnleikhúsið. — Thor er löngu viðurkenndur sem einn sérkenni- legasti samtimahöfundur okkar og meðal helstu tilraunamanna i prósaskáldskap. Nýja bókin er framhald þeirrar persónulegu mannlifsstúdiu sem Thor hefur iðkað i verkum sinum af æ meiri iþrótt. 1 þetta sinn er vettvangur hans leikhúsið og heimur þess veitir höfundi tilefni til að varpa ljósi á ýmsar nærgöngular spurningar um lif og list. Ný skáldsaga eftir Egii Egils- son mun koma fyrir jól. Nefnist hún Sveindómur og er önnur skáldsaga höfundar. Fyrir tveim árum gaf hann út bókina Karl- menn tveggja tima sem vakti töiuveröa athygli. Nýja sagan mun ekki siöur þykja forvitnileg, en hún fjallar um lif unglings i Reykjavik, heima og i skóla. Margt I samfélagslýsingu verks- ins er liklegt til að vekja umræður og deilur, en sagan er meðal ann- ars hugsuð sem innlegg I umfjöll- un um lifskjör islenskra barna á barnaári. Það telst til nýlundu að IÐUNN mun i ár hefja útgáfu á frum- sömdum lögreglusögum. Kemur nú út sagan Gátan leyst, hin fyrsta i fyrirhuguðum sagna- flokki um rannsóknarlögreglu- manninn Margeir. Höfundur er Gunnar Gunnarsson, sem áður hefur gefiö út tvær skáldsögur og var annar tveggja höfunda framhaldsleikritsins Svartur markaðursem flutt var i útvarpi fyrr á árinu. — Gátan leyst er spennandi lögreglusaga, gerist i Reykjavik, Akureyri og á Spáni. Hvunndagshetjan, þrjár örugg-' ar aðferðir til að eignast óskilget- in börn nefnist óvenjuleg bók sem hér er talin með skáldritum vegna listræns frásagnarháttar höfundar. Þetta er minningasaga eftir Auði Haralds.Hún er skrifuð af mikilli stiliþrótt, fjöri og húmor, og hreinskilnari og opin- skárri en menn eiga að venjast um ódulbúnar minningabækur. 1 haust gefur IÐUNN út þriðju ljóðabók Þórarins Eldjárns og nefnist hún Erindi. Fyrri bækur Þórarins, Kvæðiog Disneyrimur, vöktu ekki litla athygli sem kunn- ugt er. Sú fyrrtalda kom i nýrri útgáfu i vor með nýjum teikning- um eftir Sigrúnu Eldjárn og var þaö fjóða prentun bókarinnar. Erindimunu ekki siður þykja tiö- indum sæta, enda nýtur sin þar Gunnar Gunnarsson Þórarinn Eldjárn vel húmor hans, leikni og ádeilu- broddur. IÐUNN hefur byrjað útgáfu bókaflokks sem flytur ljóðasöfn meiri háttar samtiðarskálda. Fyrir tveim árum kom Kvæða- safn Hannesar Péturssonar og i ár koma Ljóð eftir Stefán Hörð Grimsson. Hringur Jóhannesson myndskreytti bókina sem er vönduð eins og frekast er kostur. Stefán Hörður er eitt listfeng- asta skáld þeirrar kynslóðar sem fram komu um 1950 og oft eru nefnd atómskáld. I þessu safni eru allar þrjár ljóðabækur hans, Glugginn snýr I norður, Svart- álfadans og Hliöin á sléttunni. Sú fyrsttalda hefur verið með öllu ófáanleg um áratugaskeið. Þýddar skáldsögur og Margaret Trudeau Að vanda gefur IÐUNN út margt þýddra skáldsagna. Fyrst er að telja Kastaniugöngin eftir Deu Trier Mörch í þýðingu Ólafar Eldjárn. — Sagan Vetrarbörn eftir sama höfund kom út i fyrra og vakti geysimikla athygli. Þetta er minningasaga og segir frá sambandi þriggja barna úr Kaupmannahöfn við afa sinn og ömmu á sjálenskum sveitabæ, einkar hiý og lifandi saga. Hún er myndskreytt af höfundi. Uppgjör eftir Bente Clod er opinská minningabók, lýsing konu á tilfinningalífi sinu, eink- amálum og nánum samskiptum við annaö fólk. Bókin hefur vakiö mikla athygli i Danmörku aö und- anfórnu. Alfheiður Kjartansdóttir . þýddi. Afhjúpun nefnist ný skáldsaga eftir bandariska konu, Susan Isaacs i þýðingu Úlfs Ragnars- sonar. Þetta er spennandi saga um unga konu sem að eigin frum- kvæði tekur aö kanna morömál. Njósnir I Berlín eftir Adam Haller njósnasaga eins og nafnið bendir tU. Höfundurinn er margfaldur metsöluhöfundur og er hann breskur. Þá koma út bækur eftir höfunda sem löngu eru kunnir islenskum lesendum og IÐUNN hefur gefið út margar bækur eftir: Kristals- hellirinner ný, stór rómantisk og Dea Trier Mörch óvenjuleg saga eftir Mary Stewart. Eldur er spennandi og dularfullur róman eftir Phyllis A. Whitney. FHasporheitir bók eftir Hammond Innes,spennandi saga frá Afriku. — Þrjár siðasttaldar bækur þýddi Alfheiður Kjartans- dóttir. Arás I dögun eftir Brian Callison er spennandi striðssaga sem segir frá strandhöggi breskra vlkingasveita i norskum smábæ — Andrés Kristjánsson þýddi. Siðast en ekki sist kemur nú saga eftir Alistair MacLean, Ég sprengi klukkan 10. Þetta er tutt- Margaret Trudeau ugasta bók höfundar sem IÐUNN gefur út. Anna Valdimarsdóttir þýddi. — önnur bók kemur út eftir MacLean og er hún annars eðlis: Kafteinn Cook nefnist hún og er byggð á dagbókum þessa fræga könnuöar. Saga þessi er spennandi eins og skáldsaga og prýdd mörgum myndum. Rögn- valdur Finnbogason þýddi. Að lokum skal hér sagt frá bók sem likleg er til að vekja ærna at- hygli, en það eru minningar Margretar Trudeau, fyrrum eiginkonu Pierre Trudeau fyrr- verandi forsætisráöherra Kanada.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.