Þjóðviljinn - 03.11.1979, Blaðsíða 20
DWDVIUINN
Aðalsimi Þjóðviljans er 81333 kl. 9 — 20 mánudaga til
iöstudaga. kl. 9 — 12. f.h. og 17 — 19 e.h. á iaugardögum.
Utan þess tima er hægt að ná i blaðamenn og aðra starfs-
menn blaðsins i þessum simun\: Ritstjórn 81382, 81527,
81257 og 81285, afgreiösla 81482 og Blaöaprent 81348.
U81333
Kvöldsímí
er 81348
Happdrœtti Þjóðviljans 1979
Vinir Þjóðviljans duga
best þá þörfin er mest
— Við erum komnir á
fulla ferð/ sagði Theodór
Bjarnason, þegar við litum
inn til hans á Grettisgöt-
unni í gær, en Theodór sér
um happdrætti Þjóðviljans
að þessu sinni.
— Við erum sem óðast að senda
miöa út um allt land, en þar
höfum við hvarvetna ákveöið
umboðsmannakerfi sem auglýst
verður rækilega i Þjóðviljanum
og eru velunnarar blaðsins
kvattir til að kynna sér það.
Stefnt er að þvi að dreifa miðum
hér i Reykjavik um miðja næstu
viku svo að um aðra helgi ætti
útsendingu þeirra að vera lokið.
Aformað er að draga i
happdrættinu 1. des. og þvi er
árröandi að menn geri skil sem
allra fyrst, enda ber og nauösyn
til þess blaðsins vegna.
Vinningar i happdrættinu eru
mjög góðir, þar á meðal 12 glæsi-
legir ferðavinningar. Nefna má
og 10 reiðhjól og á það vel við nú i
hinni illræmdu orkukreppu.
Akveöið er að birta vinnings-
númerin fyrir jólin.
— Hvert er upplag miðanna?
— Þaö er 28 þús. Þar af fara um
26 þús.beint tii fastra „viðskipta
vina”, ef svo má að orði komast
en um 2 þús. miðar veröa til sölu
thaldid klöfið
á Suöurlandi?
Illa gengur Ihaldinu aö berja
saman lista i Suðurlandskjör-
dæmi. Sjálfur Geir Hallgrimsson
mætti á fundi meö frammá-
mönnum flokksins i kjördæminu
á Hellu i gær.
Ekki var að sjá eða heyra á
mönnum að þeir myndu ná
saman, og er nú einna heist gert
ráð fyrir þvi að boðnir verði fram
tveir listar Sjálfstæöisflokksins 1
kjördæminu. Kjördæmisráð mun
koma saman á Selfossi um
helgina til að ganga endanlega
frá framboðinu. _ih
hjá umboðsmönnum viðsvegar
um land og i skrifstofu
happdrættisins að Grettisgötu 3.
Þaö er ekkert launungarmál að
Þjóðviljinn á I fjárhagslegum
erfiðleikum. Framundan er
einnig fjárfrek kosningabarátta.
En þá er þess lika að gæta, aö
aldrei er rikari þörf á að efla
Þjóðviljann til áhrifa en einmitt
þegar þannig stendur á. Hann er
það vopnið sem brýna þarf best til
undirbúnings þeirri orrustu, sem
framundan er, — og er raunar
þegar hafin.
— Og þú ert ekki svartsýnn á
árangurinn?
— Nei, þvert á móti. Það hefur
jafnan sýnt sig að vinir Þjóð-
viljans duga þá best þegar þörfin
er mest.
-mhg.
Theódór Bjarnason á skrifstofu
Alþýðubandaiagsins að Grettis-
götu 3 i gær, þar sem happdrætti
Þjóðviljans hefur höfuðstöðvar
sinar: Meðal vinninga eru tiu
reiðhjól. Ljósm. eik.
Yfirgripsmikil tilraun á vegum OECD
Tenging menntunar
og atvinnulífs
1 dag fer fram kynningarfundur
á Sauðárkróki um samstarfs-
verkefni á vegum OECD sem ts-
land hefur ákveðið að tengjast og
er megintilgangur þess að tengja
saman menntun og atvinnuiif. Til
fundarins i dag er boðið um 300
forstöðumönnum fyrirtækja á
Noröurlandi vestra en starfs-
hópur sem Ragnar Arnaids fyrrv.
menntamálaráðherra skipaði i
haustá að vera heimamönnum til
aðstoðar Við undirbúning og
framkvæmd þessarar tilraunar.
Jón Hjartarson skólameistari
Fjölbrautaskólans á Sauðárkróki
sagði i samtali við Þjóðviljann að
hér væri um mjög stórt og yfir-
gripsmikið verkefni að ræða.
Tilraun OECD sem Island tekur
nú þátt I varðar fyrst og fremst
dreifbýli og þess vegna var
Noröurland vestra valið en þar er
nú veriö að endurskipuleggja
framhaldskólastigið með Fjöl-
brautarskólann á Sauðarkróki
sem miðpunkt.
Ætlunin er að gera yfirlit um
þær greinar atvinnullfs, aörar en
löggiltar iöngreinar, sem kanna
þyrfti hvort skóli I umdæminu
gæti sinnt sérstaklega, kanna
hvernig viðhorf fólks á svæðinu er
til starfsgreinanna og gera til-
lögur um námsþætti og tilhögun á
samstarfi skóla og atvinnulifs.
1 samstarfsnefndinni sem
fyrrv. menntamálaráöherra
skipaði eru Atli Guðmundsson,
starfsmaður skólarannsókna-
deildar Menntamálaráðuneytis-
ins, Gunnar Guttormsson
deildarstjóri i Iðnaðarráðuneyt-
inu og Kristján Bersi ólafsson
skólameistari I Hafnarfirði.
Jón Hjartarsson skólameistari
lýsti i samtalinu við Þjóðviljann
yfir ánægju sinni með að Norður-
land vestra hefði veriö valið i
þetta verkefni og sagði aö það
yrði mjög til að ýta undir og efla
Fjölbrautaskólann. ---gfr.
Dagstimp-
ill á nidur-
suðuna
líka
Heilbrigðisráðuneytið
hefur breytt reglugerð um
merkingu matvæla þannig
að eftir 1. janúar n.k. ber
að stimpla á allt lagmeti og
niðursuðuvörur pökkunar-
dag og síðasta leyfilegan
söludag.
1. mars 1977 tók gildi reglu-
gerðarákvæði þess efnis að skylt
var áð skrá á umbúöir pökkunar
dag og siðasta leyfilegan söiudag
þegar um var að ræða kjöt, fisk
eða aðrar viðkvæmar neyslu-
vörur i luktum umbúðum eða
hraðfrystar. Þetta gilti þó ekki
um niðursoðnar eöa niðurlagðar
vörur og I könnun Neytendasam-
takanna og Heilbrigðiseftirlitsins
I sumar kom i ljós að mjög
gamalt lagmeti var á markaði i
verslunum.
I gær gaf heilbrigðisráðuneytið
siðan út breytingu á þessari reglu
gerð þar sem lagmeti er sett
undir þessi ákvæði þannig aö frá
og með 1. janúar 1980 skal
einnig skrá pökkunardagsetningu
á umbúöir og siðasta leyfilegan
söludag sé um að ræða lagmeti úr
kjöti og kjötvörum, fiski og fisk-
meti eða aðrar viðkvæmar lag-
metisvörur, t.d. álegg.
— AI.
Olga með
unglingasíðu
Auður með
fastan dálk
í Sunnudagsblaði
Þjóðviljans
Tvær ungar skáldkonur hefja
föst skrif i Sunnudagsblaði Þjóð-
viljans, þær Olga Guðriín Arna-
dóttir sem mun ritstýra siðu fyrir
unglinga og Auður Haralds sem
mun tjá skoðun sina á mönnum og
málefnum f föstum tvidálki i
blaðinu.
Báðar þessar konur ætti að
vera óþarfi að kynna, Olga Guð-
nin hefur sent frá sér bækurnar
„Trilla, Tralli og álfabörnin”, og
„Búrið”, sungið inn á plötur meö
meiru. Auður sendi frá sér sina
fyrstu bók á dögunum „Hvunn-
dagshetjan — þrjár öruggar að-
ferðir til að eignast óskilgetin
börn”, en hefúr fengistviö blaöa-
mennsku I nokkur ár.
Olga Guðrún tjáði blaöinu að
unglingasiðan yröi mikiö til
byggð upp á hlutdeild krakkanna
sjálfra og reynt að fjalla um lif,
skoöanir og áhugamál unglinga
hverju sinni.
Tvidálkur Auðar ber nafnið
„Úr ediktunnunni”, og sagöi
Auður við Þjóðviljann aö nafn-
giftin væri fyrirboði um þær
Olga Guðrún: Gerir unglingunum
skil
Auður Haralds: Úr ediktunnunni.
árásargjörnu tilhneigingar sem
fælust i þessum skrifum hennar.
„Annars”, sagði Auður, „spanna
þessi skrif allt milli himins og
jarðar, og þó aðallega þaö hvað
færi i taugarnar á mér á lföandi
stund.”
Auöur Haralds hefur skrif sin i
Sunnudagsblaöinu á morgun, en
unglingasiöa Olgu Guðrúnar hef-
ur göngu sina i næstu viku.
Fyrir komandi Alþingiskosningar vill
Alþýöubandalagiö gefa fólki kost á aö
koma á framfæri spurningum um
stefnu og störf flokksins. Allir
forystumenn flokksins og frambjóð-
endur i öllum kjördæmum eru reiðu-
búnir aö svara og skýra mál frá
sjónarhóli Alþýðubandalagsins.
Svörin veröa birt jafnóöum i Þjóðvilj-
anum fram að kosningum.
Sendið hvassar
og
spurningar
Hvað viltu
vita?
Hvað viltu vita um Alþýðu-
bandalagið?
Hver eru meginmál
kosninganna?
Kjaramálin? Verðbólgan?
Atvinnumálin? Sjálfstæðis-
málin?
Hvers vegna er Alþýðu-
bandalagið ótvíræður
forystuflokkur launafólks?
Hvernig á að koma i veg
fyrir nýja viðreisn?
Síminn er 17500
5-7 virka
Hver er
spurning þín?
Alla virka daga fram að
kosningum getur þú hringt
f rá kl. 5-7 eftir hádegi í síma
1 75 00 og borið fram
ALLAR þær spurningar sem
þú vilt beina til forystu-
manna og frambjóðenda
Alþýðubandalagsins. Þeim
verður síðan svarað í Þjóð-
viljanum. Hringið strax á
mánudaginn.