Þjóðviljinn - 14.11.1979, Qupperneq 16
16 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 14. nóvember 1979
4skáh
Umsjón: Helgi ólafsson
5. Be3-Rf6 7. C3?!
6. f3-Bg7
(Venjan er að leika riddaranum á
þennan reit. Elvar er fljótur aö
notfæra sér ótrygga stöðu hvits
á miöborðinu)
Unglingameistaramót Islands
Elvar sigraði
Unglingameistaramót islands,
1979, var nýlega haldið i Reykja,
vlk. Rétt tii þátttöku höfðu
unglingar 20 ára og yngri. Alls
voru 18 með i mótinu, 10 frá Tafl-
féiagi Reykjavfkur, 2 frá
Akureyri, 1 frá Mjölni, Kópavogi,
Hafnarfiröi og Eskifirði. Tveir
voru ekki félagsbundnir. Athygli
vakti að flestir þátttakendur voru
i kring um 15 ára.
Fyrir keppnina var talið aö þeir.
Elvar Guömundsson — sem varð
þriðji á Skákþingi Reykjavlkuíl
og Þorsteinn Þorsteinsson, sem
sigraði i B flokki Skákþingsins,
myndu berjast um efsta sætiö og
um leiö ferð á unglingameistara-
mótið i Hallsberg, Sviþjóð. Stl
varð og raunin á, að endanleg
úrsíit urðu þessi:
1. Elvar Guðmundss. T.R. T.5 v.
af 7.
2. Ragnar Magnússon, T.R. 5 v.
3. Þorsteinn Þorsteinss. T.K. 5 v.
4. Lárus Jóhannesson T.R. 5 v.
5. Pálmi Péturss. S.A. 4 v.
6. Gunnar Freyr Rúnarss. T.R. 4
v.
7. Rögnvaldur Möller T.R. 4 v.
8. Jóhann Ragnarsson T.R. 4 v.
Elvar var mjög vel að sigrinum
kominn. Hann náði hálfs vinnings
forskoti á borstein meö sigri yfir
Lárusi Jóhannessyni I 3. umf.,
þegar Þorsteinn geröi jafntefli
við Ragnar Magnússon.
I 4. umferð gerðu þeir báðir
jafntefli, en siöan sigraði Elvar i
öllum sinum skákum. Þorsteinn
tapaði hins vegar i siöustu um-
ferð, fyrir Lárusi.
Frá hendi sigurvegarans kem-
ur hér stutt og snaggaraleg skák,
sem telja veröur nokkuö óvenju-
legt, þvi flestar skákir Elvars i
mótinu voru langar.
Hvltur: Eggert Þorgrimsson
Svartur: Eivar Guðmundsson.
Sikileyjarvörn
1. e4-c5 3- d4-cxd4
2. Rf -Rc6 *■ Rxd4-g6
(Dreka-afbrigðiö er uppi á ten-
ingnum)
7...-0-0
8. Be2-d5!
9. Rxc6-bxc6
10. e5-Rd7
11. Í4-16
12. exf6-Rxf6
13. Rd2-Bf5
14. g4?
(14. 0-0 hefði að sjálfsögðu verið
eini rétti leikurinn. Það hefur
aldrei þótt gæfulegt að opna
þannig stöðuna á kóngsvæng)
14. ...-Be4 16. Dx2-e5!
15. Rxe4-Rxe4 17. fxe5
(Hvitur virðist hafa veriö I sjálfs-
morðshugleiöingum I þessari
skák. Spurningarmerki eru
reyndar óþörf hér eftir, enda
hvitur einfaldlega meö tapaö
tafl).
17. ...-Dh4+ 20. Bd3-Dxg4+
18. Kdl-Bh6 21. Kel-De4! +
19. Bgl-Rg3!
Stórmeistaramótið
i Hollandi
Sosonko, Hollandi, og Roman-
ishin, Sovétrikjunum, eru I efsta
sæti á stórmótinu i Hollandi eftir 9
umferðir. Karpov heimsmeistari
á þó möguleika á að skjðtast upp
fyrir þá, þvi hann á biðskák gegn
Hort, Tékkóslóvakiu.
Staða efstu manna er nú þessi:
1. Sosonko 5.5. v.
2. Romanishin 5.5 v.
3. Karpov 5 v. og biðskák.
4. Larsen 5 v. og biðskák.
5. Spassky 5c.
Nýmarxisminn í bókmenntum
Willy Dahl, prófessor I norrænum bókmenntum viö háskólann I
Þrándheimi, flytur opinberan fyrirlestur I boði heimspekideildar
Háskóla Islands I dag. kl. 17.151 stofu 1011 Lögbergi.
Fyrirlesturinn nefnist „Strukturalismen og nýmarxismen I
litteraturvitenskapen — antagonister eller forbundsfeller? ” og
veröur fluttur á norsku. öllum er heimill aðgangur.
AUGLÝSING |
Greiðsla oliustyrks i Reykjavik fyrir
timabilið júli — september 1979 er hafin !
Oliustyrkur er greiddur hjá borgargjald- j
kera, Austurstræti 16.
Afgreiðslutimi er frá kl. 9.00 —15.00 virka j
daga
Styrkurinn greiðist framteljendum og ber j
að framvisa persónuskilrikjum og kvitt- j
unum v/oliukaupa við móttöku
Frá skrifstofu borgarstjora.
Sonur okkar, bróöir og mágur,
Guðmundur Kvaran,
Kleifarvegi 1, Reykjavik
sem fórst af slysförum 8. nóvember s.l. veröur jarðsung-
inn frá Dómkirkjunni i Reykjavik ásamt félaga sinum
Hauki Jóhannessyni föstudaginn 16. nóvember kl. 14.
Blóm eru vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vildu minn-
ast hans er bent á Styrktarfélag vangefinna.
Kristin Kvaran Einar G. Kvaran
Karitas Kvaran Baldur Guðlaugsson
Gunnar E. Kvaran Snæfrfður Egilson
Helgi E. Kvaran
Sameinumst
gegn íhaldi
Góðir fundarmenn
Það er kannski timanna tákn að
Kvenréttindafélag Islands skuli
standa að svona fundi, þar sem
eingöngu konur úr hinum ýmsu
stjórnmálaflokkum ræða lands-
mál, fjalla um pólitik, þegar eng-
in kona er i öruggu sæti i næstu
Alþingiskosningum. Allar
stöndum viö á bak við karlana,
sem eru i öruggu sætunum.
Þannig er staða Islenskra kvenna
innan stjórnmálaflokkanna.
Þannig er lýöræðið i reynd hvað
þetta áhrærir.
En allt um það, viö ætlum að
ræða um hina ýmsu málaflokka,
ég ætla t.d. aö tala um baráttuna
um brauðið. Baráttuna um það
hvort Islenskt atvinnulif á að
þjóna auðvaldi, innlendu eða er-
lendu, hámarksgróða atvinnu-
rekenda, eða hvort aö þeir sem
með vinnuafli sinu, skapa verð-
mætin skulu fyrst og fremst njóta
.afraksturs vinnu sinnar, með
betri launum, með bættri félags-
legri þjónustu, með bættri
menntun.
Þetta er það sem tekist er á um
I stjórnmálum. Annarsvegar er
það svo kölluö frjáishyggja, sem
Sjálfstæðisflokkurinn boöar nú
sem stefnuskrá sina I komandi
kosningum, hins vegar fagleg og
pólitisk barátta verkalýösstétt-
anna, sem Alþýðubandalagið
fremst allra flokka styður.
i
Frelsi auðmagnsins
Við skulum aðeins athuga hvað
erátt við meö frjálshyggjuþeirra
sjálfstæöismanna og hverjar eru
forsendur þess að hugmyndir
þeirra ganga upp.
Þetta er fyrst og fremst frelsi
auðmagnsins, athafnafrelsi hinna
sterku, þar sem lögmál frum-
skógarins skal verða ailsráðandi.
Frjálst markaöskerfi, sem spyr
ekki um landamæri, aðeins auð-
magn, þar sem hægt er að halda
launum niörimeð hötunum um að
farameö fyrirtækin burt, kannski
úr landi, fara meö þau þangað
sem llkurnará hámarksgróða eru
mestar, burt séö frá þörfum eða
vilja verkafólksins sem vinnur
við þaö; þetta eru staðreyndir
sem allsstaöar gerast þar sem
auömagnið stýrir frjálsu
markaðskerfi. Hvað ætli yrði um
islenska byggðastefnu, hvað um
búsetu vittog breitt um landið, ef
þessi stefna sjálfstæðismanna
yrði framkvæmd?
Erlent auömagn myndi
streyma inn ilandið, stóriðja taka
við af þjóðlegum atvinnuvegum,
islenskt f jármagn streyma út úr
landi, ef henta þætti. Islenskar
auðlindir falar hverjum sem
væri, við myndum skilyrðislaust
ganga inn i Efnahagsbandalag
Evrópu. Allt yrði falt fyrir pen-
inga. Og til að gæta þessa alls yrði
staða hersins á Miönesheiði
styrkt. Aronskan myndi
blómstra, þvi þetta frelsi auð-
magnsins getur ekki gengið upp,
eins og þeir sjálfir hafa margoft
sagt, nema með þvi að hefta
verulega frelsi a»*narra; nema
meö þvi að brjóta á bak aftur
samtök launafólks. Forstjóri
Járnblendifélagsins Jón Sigurðs-
son, tekur á um þetta i grein sem
hann skrifaði, þar sem hann telur
að forsenda fyrir þvi að árangur
náist i islenskum efnahags-
málum, sésú að fjötra launafólk
og samtök þeirra. Einn af leiö-
togum Varins lands, Þór
Vilhjálmsson, flutti erindi i út-
varpiö, þar sem hann reynir að
rökstyöja nauðsyn þess að breyta
stjórnarskránni á þann veg að
takmarka mjög umsvif verka-
lýösfélaganna.
Gegn launalækkun
Sigurður Lindal prófessor hélt
þvi á lofti i sjónvarpsþætti og
fylgdi þvi eftir I mörgum og löng-
um greinum, að verkalýðshreyf-
Bjarnfriður Leósdóttir
Ræða Bjarnfríðar
Leósdóttur á
fundi Kven-
réttindafélagsins
ingunni tækist aö knýja fram
óraunhæfa samninga, nauö-
ungarsamninga, i krafti samtaka
sinna, sem atvinnurekendum
bæri ekki aö standa viö.
Þennan sama söng kyrja siðan
forkólfar vinnuveitendasam-
bandsins, og móttóið er orðrétt
haft eftir. „Það verður að lækka
laun framleiöslustéttanna”.
Þaö er hinn klassiski 3. taxti
Dagsbrúnar 212.931 á mánuði og
hækkar upp i 219.862 eftir f jögur
ár. Þeir ættu að prófa á sjálfum
sér að lifa á þessum launum,
þessir postular frjálshyggju
Sjálfstæðisflokksins.
Þetta er atvinnustefna þeirra,
þetta er launastefna þeirra. Og
siðast en ekki sist, þetta er frels-
ishugsjón þeirra.
Gegn þessu stendur verkalýðs-
hreyfingin. Gegn þessu standa
vinstri menn.
1 siðustu alþingiskosningum
hafnaði þjóöin rikisstjórn Geirs
Hallgrimssonar, tæki auðvalds-
stéttarinnar i landinu til að deila
og drottna yfir kjörum almenn-
ings. Henni haföi tekist á
stjórnarferli sinum með aöstoö
Framsóknarflokksins aö drabba
niður þjóölega atvinnuvegi, svo
þeir voru aö stöðvast og stórfellt
atvinnuleysi blasti við.
Það er búið aö boða stöðvun
allra frystihúsa Ilandinu. Um leið
stóð rikisstjórnin með lagaboöi að
stórfelldu kaupráni, svo stór-
felldu að hún ætlaði á skömmum
tima að þurrka burtu allan mis-
mun á yfir- og næturvinnutöxtum
verkalýösfélaganna. Láta hinn
eina og sanna dagvinnutaxta
duga sem er innan við 220 þús. á
mánuöi.
Boðuðu skerðingu á félags-
legum réttindum, undir kjörorö-
inu „Báknið burt”, sem þeir nú
umbúðarlaust boða undir slag-
oröinu „Leiftursókn gegn verð-
bólgu” sem þessir sömu kyntu
hvað mest undir i sinni eigin
rikisstjórn.
Gegn þessu reis verkalýös-
hreyfinginog allur almenningur i
landinu og kaus verkalýðs-
flokkana, Alþýðubandalagið og
Alþýðuflokkinn til þess aö gæta
hagsmuna sinna gegn þessari
árás; gerði kröfu til þess, aö
þessir flokkar ynnu saman að
hagbótum fyrir Vinnandi stéttir i
landinu og mynduðu rikisstjórn i
þeim tilgangi.
Leiftursóknin
gegn fólkinu
Nú vita allir að kratar eru
hlaupnir úr vistinni. Sumir telja
nú að þeir hafi hiaupið svo hratt,
að þeir hafi misstigið sig verulega
og gangi nú haltir eftir, allavega
vinstri fóturinn, sá sem þeir
virtust standa i þegar þeir gengu
til samstarfs i siðustu rikisstjórn,
en hægri fóturinn, Vilmundarfót-
urinn,sé kominn i gips frá Ihald-
inu, og þeir sem kunnugastir eru
telja að vinstri fóturinn verði ein-
faldlega tekinn af i næstu kosn-
ingum.
Alþýðubandalagið stefniraöþvi
nú eins og alltaf áður aö standa
viö hlið verkalýðshreyfingarinn-
ar og sækja fram til betri og rétt-
látari lifskjara almenningi til
handa, gegn auðvaldi, gegn her-
valdi, gegn þeirri stefnu sem
Sjálfstæðisflokkurinn rekur núna
undir slagoröinu „Frjálshyggja”
sem ekki aðeins myndi færa lifs-
kjör almennings til baka um ára-
tugi, jafnvel aldir, heldur stefna
efnahagslegu og pólitisku sjálf-
stæöi þjóöarinnar i voða.
Nú hafa þeir bætt við slagorð-
unum „Leiftursókn gegn verð-
bólgu”. Ég held aö allur almenn-
ingur þyrfti að kynna sér ræki-
lega á hvernhátt þeir sjálfstæðis-
menn ætla sér að framkvæma
þessa leiftursókn, gegn hverjum
hún beinist fyrst og fremst.
Alþýðubandalagið
Nú þegar stefna Sjálfstæöis-
flokksins liggur ljós fyrir,
grimulaus ihaldsstefna, og flokk-
urinn er hættur að reka þann
áróöur aö hann hafi möguleika á
þvi aö ná meirihluta þingmanna,
þá er það spurningin sem al-
menningur verður aö gera upp
við sig i næstu kosningum, hvort
hann ætlar aö styðja Alþýðuflokk-
inn, sem meö brotthlaupi sinu úr
rikisstjórn virðist vera að af-
henda Sjálfstæðisflokknum að-
stöðu til þess aö framkvæma yfir-
lýsta stefnu sina, eða þá Fram-
sóknarflokknum sem ævinlega er
opinnibáðaenda ogengumsýnir
á spilin sin fyrr en um leið og
hann lætur út, og þá annaðhvort
til hægri eða vinstri, sem mun
fara eftir þvi hver styrkur hans
verður, eða hann felur Alþýðu-
bandalaginu I rikara mæli en
fyrr, að tengja baráttu verkalýðs-
hreyfingarinnar pólitisku afli,
með þvi aö senda fleiri Alþýðu-
bandalagsmenn inn á Alþingi
Islendinga.
Tilkynning til sölu-
skattsgreiðenda
Athygli söluskattsgreiðenda skal vakin á
þvi, að gjalddagi söluskatts fyrir októ-
bermánuð er 15. nóvember. Ber þá að
skila skattinum til innheimtumanna rikis-
sjóðs ásamt söluskattsskýrslu i þririti.
Fjármálaráðuneytið 9. nóvember 1979.