Þjóðviljinn - 22.12.1979, Qupperneq 2
J
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 22. desember 1979.
Af barnahatri
, Ég er hálf partinn að hugsa um að láta verða
af því að fara til sálfræðings. Það sem mér
finnst ógna sálarheillinni um þessar mundir
er svo óhugnanlegt, að ég hika við 'að trúa
nokkrum manni fyrir því, hvað þá að setja það
á þrykk.
Eftir nokkurra daga umhugsun læt ég þó
slag standa, því ef til vill fæ ég einhvern bata
á því sem mig hrjáir ef ég létti lítillega á mér.
Herrar mínir og f rúr: Ég er að verða barna-
hatari.
Slíkt þætti sjálfsagt ekki saga til næsta bæj-
ar, ef um einhvern annan væri að ræða en mig,
en ég hef til skamms tíma verið talinn barna-
vinur mesti, og sumir af mínum bestu vinum
og kunningjum eru raunar á því aldursskeiði
að barnatennurnar eru að víkja fyrir fullorð-
instönnunum.
Þetta litla fólk lítur oft við hjá mér á daginn,
og eru þar á ferðinni miklir aufúsugestir,
enda hingað komnir til að ræða yfir mjólkur-
glasi og súkkulaðimola um landsins gagn og
nauðsynjar af því viti og þeirri visku, sem
jaf nan einkennir þá sem ekki enn hafa mótast
af þeim skoðunum, sem hagkvæmast er að
hafa í augnablikinu.
Þessir litlu vinir mínir eru gæddir mörgum
þeim kostum, sem fólk gjarnan glatar með ár-
unum, og það sem mér finnst ef til vill mest
um yert í fari þessa litla fólks er, að það er
ennþá eins og það er, en ekki eins og það á að
vera.
Og nú hefur sem sagt sá ótti verið að naga
mig að undanförnu, að ég sé að breytast úr
barnavini í barnahatara.
Og hver skyldi nú vera ástæðan fyrir þess-
um uggvænlegu sinnaskiptum? Barngæska
mín að breytast í barnahatur?
Hver gæti verið ástæðan?
Það er þá f yrst til að taka, að fólk sem er á
þeimaldri, aðætla mætti aðþað væri komið úr
barndómi og ekki gengið í hann aftur, ákvað í
upphaf i ársins 1979 að helga það „barninu" og
kalla árið „ár barnsins".
Þessi hugmynd var að sjálfsögðu góðra
gjalda verð, enda til þess ætluð að vekja at-
hygli alþjóðar á stöðu barnsins í samfélaginu.
Allt fór þetta nú heldur rólega af stað, og
frameftir árinu mátti ætla sem svo, að barna-
árið yrði öðrum árum líkt. Foreldrar gátu
vpndað um við börnin sfn eins og gert hefur
verið f rá því að Guð almáttugur rak Adam og
Evu úr Paradís, en þegar börn bar á góma var
það helsttil að vekja athygli foreldra á því, að
ekki væri nógu gott að skilja þau eftir ein og
yfirgefin sólarhringum saman eða berja þau
til óbóta að ósekju.
En eftir því sem líða tók á árið ókyrrðust
sjálfkjörnir fulltrúar æskulýðsins í landinu æ
meir, og núna undir lok ársins er barnapexið
orðið svo yfirþyrmandi að menn fá grænar
bólur ef minnst er á börn.
Uppá sjónvarpsskjáinn eru færðir skóla-
stjórar, yfirkennarar, aðstoðaryfirkennarar,
barnasálfræðingar, barnafélagsfræðingar,
barnakennarar, að ótöldum alls kyns æsku-
lýðssénium — já, og meira að seg ja listamenn.
Síðan þusað um það fram og til baka hvernig
íslensk börn séu stórlega vanrækt af foreldr-
um og þjóðfélaginu.
Fundiðhefurverið upp fyrirbrigði sem kall-
að er „barnamenning", og mætti ætla að sú
menning væri í engum tengslum við aðra
menningu í landinu, væntanlega þá: kyn-
þroskamenningu, miðaldramenningu, efri-
áramenningu og ellimenningu.
Helst er að skilja að börn eigi að taka að sér
stjórnsýslu í landinu og önnur þau störf, sem
áður hafa verið ætluð fullorðnum, og svo er
þessum litlu greyjum hampað með alls konar
kjafthætti þar til þau eru orðin hálfrugluð af
allri dellunni.
AAikil vá er fyrir dyrum að dómi sérfræð-
inga, að börn skuli vera „passífir móttakend-
ur" þegar þau fara í bíó, leikhús, eða horfa á
sjónvarp. Væntanlega er hægt að bjarga því,
en aðeins með því einu að þau skrifi, fram-
leiði og leiki öll, allt sjónvarpsefni, kvik-
myndaefni og leikhúsefni, skrifi allar bækur,
máli allar myndir, verði sem sagtaktif og þrói
með sér sköpunargáfuna. Og ekkert barn má
skilja útundan til að verða passíft. Það verður
aðeftirláta okkur fullorðna fólkinu. Æ, þegar
ég hugsa málið betur, þá er ég auðvitað ekki
barnahatari, en mikið djöfull hafa þeir löng-
um farið í taugarnar á mér, sem f jallað hafa
um málefni barna og unglinga.
Haf i nokkuð verið aðkallandi á barnaárinu,
þá var það svo sannarlega ekki að breyta
börnum í f ullorðið fólk um aldur fram. Það er
ekki svo lengi sem mannskepnan fær að njóta
barnæskunnar.
Og því segi ég: Leyfið krökkunum að vera
börn eins lengi og mögulegt er, svo þau þurfi
ekki að taka undir sorgarsöng snáðans sem á
dögunum var gerður að útvarpsstjóra og það
áður en hann var farinn að geta stautað sig
f ram úr Litlu gulu hænunni og kvað við raust:
Barnæskan Ijúfa útrunnin er,
ungur ég var og giaður.
Svo fékk ég ei lengur að leika mér
nema láta' eins og fullorðinn maður
Flosi.
Jólahugvekja fyrir
blinda og fatlaða
Myndlistar-
sýning i
Borgar-
spitala
Starfsmannaráb Borgar-
spítalans hefur nokkur undan-
farin ár staöiö fyrir myndlistar-
sýningu I Borgarspitalanum um
jól og áramát, sem hafa llfgaö
uppá skammdegiö og veitt bæöi
sjúklingum og gestum mikla
gleöi.
Að þessu sinni sýna þar lista-
mennirnir Siguröur Þórir
Sigurðsson og Jóhanna Bogadótt-
ir, alls 35 myndir, bæöi grafik og
málverk. Sýningin stendur til 7.
janúar n.k. og eru öll listaverkin
til sölu, en myndirnar hanga i
aðalanddyri og göngum
spitalans.
Sigurður Þórir er fæddur 1948,
stundaði nám við Myndlista- og
Handiðaskóla tslands og siöan við
konunglegu Akademiuna i Kaup-
mannahöfn. Hann hefur haldið
fjölda einkasýninga hér heima og
erlendis auk samsýninga.
Jóhanna Bogadóttir er fædd
1944, hefur stundaö nám I
Frakklandi og Sviþjóð og haldið
margar einkasýningar bæöi hér á
landi og erlendis og tekið þátt i
fjölda samsýninga viða um heim.
A Þorláksmessu gangast
bræörafélög Dómkirkjunnar og
Langholtskirkju ásamt Blindra-
félaginu og Sjálfsbjörg fyrir jóla-
hugvekju i Langholtskirkju kl.
14.00.
A dagskrá verður talað orð og
tónlist. Tónlistarhliðina annast
Jón Stefánsson (orgel), GIsli
Helgason (flauta) og Jónas Þ.
A Útimarkaöinum á Lækjar-
torgi hefur verið komiö fyrir
sviösvagni, og er öllum sem vilja
skemmta börnum I jólainnkaup-
um á barnaári heimilt aö troöa
þar upp meö skemmtilegheit.
Dagbjartsson (fiðla).
Séra Hjalti Guðmundsson,
dómkirkjuprestur, flytur
formálsorð, Benedikt Gröndal,
forsætisráðherra, flytur ræðu og
loks mun séra Sigurður Haukur
Guðjónsson flytja jólahugvekju
og bæn.
Allir eru velkomnir á jólahug-
vekju þessa.
J Jólasvéinar Útimarkaðarins
verða á staönum kl. 15 i dag og
kann að vera að þeir eigi eitthvaö
smávegis I pokahorninu handa
í krökkum.
Jólalegt á Útimarkaði
Þökkum öllum okkar ágætu viðskipta-
mönnum ánægjuleg viðskipti um
áraraðir. Það er von okkar að útgáfu-
flokkar Þjóðsögu hafi orðið öllum í fjöl-
skyldunni fróðleiksbrunnur og bækumar
séu heimilisprýði.
Jafnframt óskar útgáfan öllum við-
skiptamönnum sinum
gleðflegra jóla og
farsældar á komandi tímum
Bókaútgáfan Þjóðsaga
Strengjasveitin á Selfossi
Ný hljómsveit hefur veriö
stofnuð og heitir Strengjasveitin.
Meðlimir hennar voru áður i
hljómsveitunum Evrópu og
Öperu, en þær eru báðar hættar.
Strengjasveitin leikur fyrir dansi
I Selfossbiói á annan I jólum.
Strengjasveitin hefur áöur komiö
fram I Klúbbnum og viðar. x
Hljómsveitina skipa: Einar M.
Gunnarsson, Ömar Þ. Halldórs-
son, Sigurður I. Asgeirsson,
Sigurjón Skúlason og Sævar
Arnason.