Þjóðviljinn - 28.12.1979, Síða 6
6 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 28. desember 1979
Or jólaóperu Þjóöleikhússins Orfeivi og Evridls eftir Gluck
Stórmerkur áfangi
Orfeifur og Evridis.
Öpera í þremur þáttum
eftir
Christoph W. Gluck.
Texti eftir:
R. Calzabigi.
Þýðing:
Þorsteinn Valdimarsson.
Kór og hl jómsveitar-
stjóri:
Ragnar Björnsson.
Dansar:
Kenneth Tillson.
Leikmynd og búningar:
Alistair Powell.
Lýsing:
Kristinn Daníelsson.
en flestir tónsmiöir fyrr og siB-
ar: hann gerir rétta múslk á
réttum stööum. I hans höndum
veröur óperan meira en aríu-
eöa dúettasyrpa — röö af auö-
læröum melódíum. Gluck sem-
ur músikdrama eöa músikleik-
hús. Vissulega fá áheyrendur
slagarann sinn, t.d. arlu
Orfeifs: Ég hef glataö Evridisi
eöa ballettmúsikkina á Ódáins-
völlum, þar sem hinir sælu and-
ar dansa menúett — alþekkt
óskalagaþáttamúsikk. En þetta
eru aöeins þættir I órjúfanlegri
heild leikrænnar og músikk-
alskrar framvindu hjá Gluck.
Ollu þessu hefur leikstjórinn
Kenneth Tillson gert sér grein
fyrir: hann setur á sviö
klasslskt músikkdrama I anda
verksins og höfundarins.
Klassík er misskiliö hugtak —
söngur Orfeifs og Evridlsar I 3ja
þætti, einnnig þrlsöngurinn I
sama þætti. (Hér er sennilega
aö finna kveikjuna aö þrisöngn-
um fyrir sama raddhóp I Rósa-
riddaranum, sem Richard
Strausssamdi 150árum slöar!).
Aöþessu sinni hefur Þjóöleik-
húsiö, rétt eins og önnur óperu-
hús, annan hóp einsöngvara
æföan til aö syngja til skiptis á
móti frumsýningarhópnum:
þær Sólveigu Björling, Elísa-
betu Erlingsdóttur og Ingveldi
Hjaltested. Veröur spennandi
aö hlýöa á þær.
Leikmynd og búningar
Alistairs Powells, svo og lýsing
Kristins Danlelssonar, eru meö
þvi besta sem ég hef séö I Þjóö-
leikhúsinu, enda var leikmynd
og lýsing órjúfanleg heild.
Ragnar Björnsson stjórnaöi
Atli Heimir
Sveinsson skrifar um
jólasýningu
Pjóöleikhússins
Jólasýning Þjóöleikhússins á
hinu gamla meistaraverki
Glucks var sérlega falleg og
yndisleg. Þaö var vel til fundiö
aö taka þetta verk til sýningar
og vonandi mun þaö ganga sem
lengst.
Óperusýningar Þjóöleikhúss-
ins hafa frá upphafi veriö nokk-
uö skrykkjóttar og misjafnar.
Þar hafa veriö sýnd jöfnun
höndum hin ágætustu verk
óperugeröar, óperettumoö, og
mjúsiköl — verslunarvara, sem
ekki er unnt aö leggja á listræn-
andóm. Allttil aö uppfylla laga-
kvöö Þjóöleikhússins um söng-
leikjasýningar. En á siöari ár-
um, undir forystu Sveins Ein-
arssonar, hefur verið vel unniö,
þrátt fyrir slþrengdan fjárhag
leikhússins I veröbólguþjóðfé-
laginu.
Orfeifur og Evridls er óbrot-
gjarnt meistaraverk, sem allir
merkustu óperusmiöir siöari
tima hafa tekið miö af. Ég nefni
aðeins nokkur nöfn: Mozart,
Weber, Wagner, Debussy,
Alban Berg og Bernt Alois
Zimmermann. Allir þessir höf-
undar hafa reynt aö fram-
kvæma hugmyndir gamla
Glucks um allsherjarlistverkiö
— Gesámtkunstwerk.
óperan um Orfeif og Evridis
er ekki eingöngu arluópera eöa
einsöngvaraópera — hún er
jafnframt kórópera, hljóm-
sveitarópera, ballettópera, leik-
tjaldaópera, leikbúningaópera,
bókmenntaópera, o.s.frv.. Hér
fléttast saman allir þættir leik-
hússins I einu verki. Ópera
merkir (bókstaflega) verk — I
fleirtölu.
Gluck var mjög gott tónskáld,
en margir starfsnautar hans
höföu meiri laglinugáfu og betri
úrvinnslutækni. En hann haföi
meiri listræna greind til aö bera
teigt og togaö. Gluck (fæddur
1714, dáinn 1787) skildi hiö forn-
griska hugtak þannig aö listin
ætti aö vera auöskilin, einföld,
viröuleg, upphafin, en bæri
samt í sér léttleik og þokka.
Aö þessu sinni leikur betri
helmingur Sinfóniuhljómsveit-
arinnar meö I Þjóöleikhúsinu og
er þaö vel. Vonandi veröur svo I
framtiöinni. Hljómsveitin geröi
lika margt mjög vel. Þjóöleik-
húskórinn hefur aö mlnu mati
aldrei veriö eins góöur, þvl hann
hefur endurnýjast. lslenski
ballettflokkurinn var prýöileg-
ur. Leikstjórinn, sem einnig
samdi dansana, geröi rétta og
skynsamlega dansmynd sem
féll vel saman viö sviösstööur
kórsins.
Einsöngshlutverkin i óper-
unni eru aöeins þrjú. Aö þessu
sinni voru þau i höndum Sigrfö-
ar Ellu Magnúsdóttur, sem söng
Orfeif; Ólafar Kolbrúnar Harö-
ardóttur,sem söng Evridisi,og
Onnu Júllönu Sveinsdóttur sem
söng ástarguöinn Amor. Þær
fóru allar vel meö hlutverk sln,
og gaman er aö heyra unga kyn-
slóö söngvara á sviöi Þjóö-
leikhússins. Sigrlöur Ella haföi
mesta tækni og reynslu til aö
bera. Túlkun hennar á Orfeifi
var mikill sigur fyrir hana. Ólöf
og Anna sungu ai mikilli næmi
og innlifun og vissulega vel.
Einkum var áhrifamikill tvl-
tónlistinni röggsamlega: hraöa-
val hans var mjög „klassiskt” I
samræmi viö hinn músikkalska
texta. Styrkbreytingar heföu þó
mátt vera greinilegri.
Óperanvarsunginá islensku I
þýöingu Þorsteins heitins
Valdemarssonar. Ég man
óljóst eftir textanum á þýsku
og Itölsku, sem ég skil illa, og
hef hvorugan til samanburöar.
Þó grunar mig aö þar sé ekki
svo tæra lýrikk aö finna:
...Sem vordögg hlý
hrynji niöur:
fuglakliöur
krónum frá;
lágvært hvisl
I lind og á,
ljóshvit ský,
er vart sig bæra —
allt lofar ljúfri fró
og laöar hug I dá.
Þvi miöur skildist textinn ekki
nógu vel, hvorki hjá einsöngv-
urum né kór. En þaö er gömul
saga I söng hérlendis.
Fyrir tæpu ári eöa svo urðu
mikil blaöaskrif hér um óperu á
íslandi. Mikið var sagt og margt
miöur spaklegt. En hvaö um
þaö —sýning sem þessi réttlætir
tilurö íslenskrar óperu meir en
ótal langhundar. Hún var stór-
merkur áfangi óperusýninga
hérlendis, og mikill sigur fyrir
alla aöstandendur.
Atli Heimir Sveinsson.
Fimmtadagsgleði
stúdenta
verður í Sigtúni í kvöld 28. des. kl. 10-3.
Miðasala í dag frá kl. 10-16 á skrifstofu
Stúdentaráðs
HITTUMST í TÚNINU Stúdentaráð Háskóla íslands
MINNING
Gísli Dan
Daníelsson
f. 23. nóv. 1957
d. 15. des. 1979
1 dag er til moldar borinn
elskulegur tengdasonur okkar og
vinur Gisli Dan Danielsson.
Hörmulegt slys hrifur nú þennan
unga mann á morgni lifsins, frá
unnustu sinni og ófæddu barni
þeirra, foreldrum, systkinum og
öörum ástvinum.
Söknuður og sár harmur gagn-
tekur hugann og leggst meö full-
um þunga á viökvæmu augnabliki
og gerir skammdegisnóttina nær
endalausa.
Litillátur,
Ijúfur, kátur.
Þessi fögru heilræði eru sem
lýsing á lyndiseinkunn Gisla heit-
ins. Frá honum stafaöi birtu og
gleöi hinnar hrekklausu sálar.
Einlægni og hjartahlýja var hans
viömót.
Hann var öllum góöur og hjálp-
samur og svo laus vib þaö dramb
og eigingirni, sem sýrir hugann
og er rót þess illa i mannheimi.
Frá honum stafaöi þeirri birtu
sem er ljós heimsins.
Þau ólust upp saman i Garðabæ
Maria dóttir okkar og Gisli. Kom
hann nánast sem unglingur inn á
okkar heimili, er þau felldu hugi
saman. Hreint hjarta og trúfesta
voru siðan þræöir er knýttu þau
bönd er hönd dauöans ein megnar
aö rjúfa.
Þau opinberuöu siöan trúlofun
sina fyrir rúmu ári og horföu nú
fram á veginn full bjartsýni og
tilhlökkunar um lifið og framtið-
ina, einmitt þá daga er Gisli lauk
starfstima sinum sem vélvirkja-
nemi i Stálvik I Garöabæ. En þá
er öllu lokiö, nema þvi lifi, sem
eftir lifir, og þeim_björtu minn-
ingum sem þessi góöi drengur
lætur eftir sig.
Gisli ólst upp meö foreldrum
slnum i stórum systkinahópi.
Hann var foreldrum sinum góður
sonur og systkinum sinum stoð og
stytta, er gegndi vissu forystu-
hlutverki.
Þaö er stórt skarö höggið en
Guö gefi þeim nýjan styrk og trú
á hið fagra og góöa. Innilega
samúö okkar vottum við unnustu
hans, foreldrum, systkinum og
öörum ástvinum og biöjum góöan
guö að styrkja þau i sárri sorg.
Við kveðjum kæri vinur
og þökkum allt og allt.
Það vorar senn og birtir
þótt nú sé myrkt og kalt.
Þá vex úr grasi lltiö barn
er brosir móti sól.
Og endurvekur gleðina
sem sorg um tima fól.
Tengdaforeldrar.
-0-
Viö gátum ekki trúaö þessari
helfregn, hann Gisli dáinn, hann
svo fullur af lifi. En nú þegar okk-
ur er ljóst að þetta er ekki vondur
draumur, heldur iskaldur veru-
leiki.veröur harmurinn sem ljúf-
sár viö minningu. Gisli og Maja
eru svo samtengd fjölskyldu okk-
ar aö þau eru sem eitt og Gisli
okkur sem kær bróöir. Já betri
bróöur gátum viö vart átt. Hann
var alltaf svo glaður aö öll sorg
vék I návist hans, þó svo hógvær
og nærgætinn aö oröa var ekki
þörf.
Þaö stafaöi frá honurn hlýju
sem yljaöi öllum. Fjölmargar
góöar minningar rifjast upp. A
stóru heimili eins og okkar i
Grenilundi var i mörgu aö snúast
og margt þurfti aö gera en alítaf
var Gisli jafn reiöubúinn til hjálp-
ar, jafn ljúfur og góður og þvi
fremur sem meiri hjálpar var
þörf.
Þess vegna hændust börn og
dýr aö Gisla og var hann þeirra
besti vinur, það breikkaöi brosiö
hans i þeirra návist og varö að
glaðværð og leik sem hann naut
Framhald á bls. 13
Bréí’-
korn
til
Þjóð-
yiljans
Réttfyrir jólin skrifaöi ég i
Þjóöviljann umsögn um
Snorrabók Sögufélagsins.
Þegar ég sá ritsmið mina á
prenti I blaöinu hugsaöi ég
meö mér aö ég heföi átt aö
láta þaö vera. 011 vargreinin
morandi i prentvillum, svo
sem tiökast isóöablööum, en
i einhverju sakleysi og fljót-
færni tók ég upp þaö sem viö
fyrsta augnabragð sýndist
verst (niöurfelling tveggja
lina I heilu lagi) og bað rit-
stjóra fyrir leiðréttingu sem
birtist degi siöar. Aö svo
búnu fór ég aö lita á þetta
nánar og sá þá aö einhverjir
höföuekki reynzt menn fyrir
þvi aö tveir Halldórssynir
heföu fjallaö um Snorra
Sturluson samkvæmt hand-
riti mínuj höföu gert einn Ur
báöum, valiö Óskar aö nafn-
inu til og eignaö honum þaö
sem ólafur vann, en sleppt I
staöinn verki Óskars: ein-
hverskonar málamiölun. Aö
visu má segja aö Þjóöviljinn
gæti stundum tamiö sér
meiri oröasparsemi á ýms-
um sviöum, en séu aöstand-
endurhans aö reyna þaö meö
þessu, þá fullyröi ég aö þeir
eru á rangri braut. — Siöar i
greininni, þar sem mér var
ákaflegaannt um aö skoöan-
ir minar kæmust til skila,
var þeim breytt I óskapnaö
meö niöurfellingu lína, svo
sem ég drap á áöan;
sparsemi li"ka? Mér er um-
hugaö aö þaö sem ég skrifa
af frjálsum huga komi ekki
afskræmt fyrir augu ann-
arra.
Slælegur prófarkalestur er
fyrir löngu oröinn
Þjóöviljanum til van-
sæmdar. Vonandi veröur
þar bót á ráðin, en þaö
veröur þá aö gerast af
heilum hug, en ekki eingöngu
fyrir tilmæli og þráhyggju
utanað komandi aöila. Þaö á
aö vera sjálfsagður hlutur aö
krefjast menningarlegra
vinnubragöa.
Þorsteinn frá Hamri.