Þjóðviljinn - 19.01.1980, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 19.01.1980, Blaðsíða 2
2 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardag«r 19. janúar 1980. AF LESENDABREFUM Af öllum hinum fjölmörgu starfsstéttum hins íslenska þjóðfélags, hefur aðeins ein séð ástæðu til að setja sér svo kallaðar siðareglur. Þetta eru blaðamenn. Ef draga ætti einhverja ályktun af þessari staðreynd þá væri sú að sjálfsögðu rökréttust, að í hópi blaðamanna hefði siðleysið keyrt svo úr hóf i f ram, að ekki væri á öðru stætt en að setja blekbullurum ein- hverjar siðaskorður svo að þeir legðust ekki í eitt alsherjar siðleysissvall. Hér skal ósagt látið á hvaða siðgæðisstigi blaðamenn eru yf irleitt, en hins sakar ekki að geta, að engan hef ég hitt, sem undraðist þetta siðgæðaframtak blaðamanna, og má víst af því draga nokkurn lærdóm. Allir hefðu til dæmis orðið undrandi, ef skó- smiðir, vegavinnumenn, brúarsmiðir, heild- salar, pulsugerðarmenn og osta hefðu sett sér siðareglur, en öllum þótti sjálfsagt að blaða- menn settu sér einhver mörk, sennilega að fenginni reynslu. Astæðan til þess, að ég er að orða þetta hér, er sú, að undanfarið hefur talsverð umræða átt sér stað um málið og sýnist sitt hverjum. Persónulega er ég þeirrar skoðunar, eftir ára- tuga viðkynningu af blaðamönnum, að þeir séu hvorki meiri né minni skíthælar en annað fólk, bara svona eins og gerist og gengur. Hinsvegar er það bjargföst skoðun mín, að annar hópur ætti hið bráðasta að setja sér ein- hverjar siðareglur, en það eru ritstjórar, sem bera ábyrgðá nafnlausum lesendabréf um, og mættu þeiref til vill vera með í hópnum, sem þurfa að fást við að koma slíku efni fyrir almenningssjónir. Það er staðreynd að allt það sem birtist naf nlaust í blöðum er á ábyrgð ritstjóranna og er jafnvel hægt að ganga svo langt að túlka slik skrif sem skoðun ritstjóra á mönnum og málefnum. Hvað er til dæmis auðveldara en það — fyrir ritstjóra Vísis — ef hann þarf að ná sér niðri á bakara — en að skrifa í blaðið lesandabréf, einhvern veginn svona: Reið kona í Vesturbænum skrifar: Ég hef í mörg ár verslað við bakarann á Túngötu 42 og verð að segja að mér hefur alltaf líkað það vel, þósjaldan hafi fengist þar mikið af brauði eða kökum. Nú er aftur á móti annað bakarí beint á móti á Túngötu 41 og af því hef ég svo slæma reynslu að ég ætla að vara alla viðað versla ekki við það. Eða ef ritstjóri Morgunblaðsins þarf að ná sér niðri á f isksala. Hvað er þá auðveldara en að skrifa svona bréf nafnlaust í Velvakanda: Langþreytt húsmóðir í Vesturbænum skrifar: Oft hefur mér nú verið nóg boðið en aldrei eins og núna. Eru engin takmörk fyrir því hvernig fisksalar mega haga sér? Mér finnst fisksalinn á Túngötu 42 ætti að nota öðruvísi mannasiði þegar hann er að afgreiða en hann gerir. I gær kom ég inní þessa fiskbúð og ætlaði að kaupa nokkrar gellur. Fisksalinn, sem var að gera að þorski, sagðist ekki eiga neinar andsk. gellur (orðrétt) og bætti meira að segja við að ég gæti (eins og hann sagði) étið þorsk eins og aðrir. Ég var í pelsi og þegar hann tók innanúr þorskinum sletti hann slorinu yfir mig alla svoleiðis að ég verð sennilega að láta hreinsa hann fyrir jólin, fyrir offjár. Mér fannst ég eiga fullan réttá því að vilja f rekar gellur og ég sagði fisksalanum það, en mjög kurteis- lega. Þá sagði hann (ég hef mörg vitni að því) ,,sjálf getur þú verið andsk. gella". Ég er ekki móðgunarg jörn, en það er hægt að ganga f ram af manni. Ég snöggreiddist og þó ég sé ekki vön að nota stór orð, þá sagði ég í þetta skipti: „afsakið". Þá sló fisksalinn mig utanundir með þorskinum, sem hann hélt ennþá á. Þó ég haf i ekki skrifað fyr, þá hef ur þetta oft komið f yrir áður bæði mig og hinar konurnar hérna í hverfinu. Ég ákvað að versla ekki við fisk- salann þennan daginn og ætlaði útúr fisk- búðinni, en þá rann ég um koll í slorinu á gólf- inu og þar sem ég lá þarna ósjálfbjarga, fleygði hann í mig tveim kúttmögum. Ég þarf víst ekki að segja hvernig pelsinn var orðinn. Ég komst samt út og um leið og ég lokaði hurð- inni, sem er mestan part úr gleri, skall heljar- stór þorsklifur á rúðunni. Hana hefði ég fengið í höf uðið, ef ég hefði ekki verið búin að loka hurðinni. Þetta er kannske kvabb útaf smámunum, en mér finnst samt rétt að benda öðrum hús- mæðrum hérna í vesturbænum á það að það er kominn annar fisksali beint á móti hinum,á Túngötu 41 og allir eru sammála um það að hann sé kurteisari en hinn. (Prófarkalesari ath! Þetta á að vera svona). Mörgum finnst óviðeigandi af ritstjórum dagblaðanna að notfæra sér nafnleynd til að koma svona ef ni á f ramfæri. Og enginn blaða- maður mun nokkru sinni gleyma sálminum góða, sem lesendabréfablaðakonan söng svo oft fyrir ritstjórann sinn: Lag: „Þú guð sem stýrir o.s.frv...." Þú stórum blaða stýrir her og stjórnar skoðun minni. í straumi bréfa birtu mér eitt brot af meining þinni. Ritstjóri svarar: Aðalprinsipp eitt ég hef þó allri synd ég hafni, að birta aldrei aðsent bréf nema undir fölsku nafni. Reiður húsbóndi í Vesturbænum 6972-8364-007 Einar G. Baldvinsson sýnir að Kjarvalsstöðum 1 Vestursal Kjarvalsstafia opnar Einar G. Baldvinsson listmálari yfirlitssýningu á verkum sinum I dag. Sýningin veröur opin daglega kl. 14-22. Henni lýkur sunnudaginn 27. janúar. A myndinni hér fyrir ofan er Einar meö eitt af verkunum á sýning- unni. — ih Myrkir músikdagar Kammersveitin í Bústadakirkju Næst á dagskrá hjá Myrkum músikdögum eru tónleikar Kammersveitar Reykjavikur i Bús taöakir kju kl. 17.00 á morgun. Stjórnandi er Páli P. Pálsson, einleikari Helga Ingólfsdóttir og einsöngvari Ruth L. Magnússon. Fyrsta verkiö á efnisskránni er Brot, eftir Karólinu Eiríks- dóttur, sem nýlega hefur lokiö meistaraprófi I tónsmíöum i Bandarikjunum og starfar hér nú sem tónlistarkennari. Karólína lauk viö aö semja Brot I des. sl. og er verkiö nú frumflutt — Þá veröur i fyrsta sinn hérlendis flutt verkiö Zeit eftir danska tónskáldiö Vagn Holmboe og syngur Ruth L. Magnússon Bandarísk veggspjöld 1 dag veröur opnuö sýning á Kjarvalsstööum á bandarískum veggspjöidum og nefnist hún ,,Poster Art USA”. Hér er um aö ræöa bandariska farandsýningu, sem fariö hefur vlöa um lönd og vakiö mikla athygii. Hingað tii lands kemur hún fyrir tilstilli Menningastofnunar Bandarikj- anna. A sýningunni eru 34 verk eftir 23 listamenn, þ.á m. marga af fremstu listamönnum Ba..4arikj- anna svo sem Joseph Alberts, Roy Lichtenstein, Georgia O’Keeffe, Alexander Calder, Saul Steinberg, Willem de K Kooning, Louise Nevelson, Robert Rauschenberg, Jasper Johns, Mark Rothko og Milton Glaser. Sýningin er i anddyri Kjarvals- staöa og veröur opin kl. 14-22 dag- lega til 10. febrúar. Kammers veit Reykjavikur. einsöng i þvi. Holmeboe er eitt virtasta tónskáld á Noröurlönd- um ogvarö70áraásl. ári. Hefur nokkrum sinnum komiö hingað Atriöi úr sýningu Leikfélags Keflavlkur á leikriti Hilmars Jónssonar, Útkail 1 klúbbinn. Utkall í klúbbinn siöan fyrir jól. Leikritiö birtist á prenti nýveriö, I siöasta hefti timaritsins Lystræninginn. _________________— ih Háskóla- tónleikar Þriöju Háskólatónleikar vetrarins veröa haldnir i dag kl. 17 I Félagsstofnun stúdenta viö Hringbraut. Aögangur er öllum heimill og kostar 1500 krónur. Aö þessu sinni syngur Agústa Ágústsdóttir viö undirleik Jónas- ar Ingimundarsonar. Agústa Ágústsdóttir hefur á undanförn- um árum haldið fjölda tónleika viös vegar um landiö og Jónas Ingimundarson er löngu vel þekktur fyrir pianóleik sinn. A tónleikunum veröur frum- fluttur nýsaminn lagaflokkur eft- ir Atla Heimi Sveinsson sem hann nefnir Smásöngva. A efnis- skránni eru einnig sönglög eftir Skúla Halldórsson, Hallgrim Helgason, Jón Þórarinsson, Þórarin Guömundsson og Franz Schubert. sýnt í Kópavogi Sunnudaginn 20. jan. kl. 20.00 sýnir Leikfélag Keflavikur leik- ritiö Otkall i klúbbinn eftir Hilm- ar Jónsson i Félagsheimili Kópa- vogs. Útkall I klúbbinn hefur veriö sýnt i Stapa viö góöar undirtektir til lands i boöi Norræna hússins og samiö verk fyrir Hamra- hliöarkórinn viö ljóö Halldórs Framhald á bls. 13

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.