Þjóðviljinn - 19.01.1980, Page 8

Þjóðviljinn - 19.01.1980, Page 8
8 SIÐA — ÞJÓÐVÍLJINN Laugardagur 19. janúar 1980. Laugardagur 19. janúar 1980. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9 Heimsókn í verbúð Meitilsins í Þorlákshöfn i mötuneytinu. Fyrstu vikurnar fúr nær allt kaupið I matarpeninga Hvað ætli lang- afí hefði sagt? A slöustu öld var Þorlákshöfn ein af stærstu verstöðvum lands- ins en fáir höfðu þar fasta búsetu. Nú hefur þetta snúist við. Þor- lákshöfn er orðin álitlegt þorp meðfastaðeitt þúsund ibúum og flestir.sem starfa þar til sjús og lands. búa á staðnum sjálfum. Þú er þar ennþá margt um aðkomu- fúlk á vertið, fúlk sem nú er farið að kalla farandverkafúlk. Blaða- maður og ljúsmyndari Þjúöviij- ans voru á ferðinni þar eystra fyrir skömmu og litu þá við i ver- búð Meitiisins en þar búa I vetur um 30 manns og þar af 19 útlend- ingar af fjúrum þjúðernum. 1 þessari grein er einkum spjallað við útlendingana en þeir eru 9 stúlkur frá Astraliu, 6 stúlkur frá Nýja Sjálandi, 3 frá Suður Afriku og 1 irskur karlmaður. Sfðar mun verða rætt við íslenskar stúlkur i þessari verbúö. Kvennærbuxur í langri röð Frystihús Meitilsins eb til húsa I stúrri hvitblárri byggingu á hafn- arbakkanum og þar upp á efstu hæö er verbúöin. Viö göngum upp kaldranalegar^ stigagang sem leynir engu um aö við erum staddir I frystihúsi. Klukkan er að veröa 7 aö kvöldi miðvikudagsins 16. janúar og vinnudegi er um það bil aö ljúka. Efst uppi standa dyr upp á hálfa gátt og viö göngum hikandi innfyrir. Langur gangur meö dyr á báöar hendur blasir við. Viöa eru stigvél og bláir sloppar á þessum gangi og viö heyrum hljóö i sturtu, hlátra og sköll, og upphrópanir á engilsax- neska tungu. Við erum hálffeimnir enda ger- um viö okkur ljóst aö viö erum aö ryðjast óboðnir inn i einkahibýli. Við sjáum sem snöggvast inn i snyrtiherbergi á vinstri hönd og þaö er ekki um aö villast. Þar hanga kvennærbuxur I langri röö uppi á snúru og augnatillit okkar verður undirfuröulegt. Hvað ætli langafi hefði sagt? Brátt verður á vegi okkar hressileg og brosmild stúlka sem viö komumst brátt aö raun um aö heitir Suzanne Daws og er alla leiö frá Jóhannesarborg i Suður Afriku. Viö berum upp erindiö um að fá aö hafa blaöaviötal og þaö er meira en velkomiö. Hún visar okkur inn í herbergi sitt og þar eru þrjár aðrar stúlkur eöa nánar tiltekiö þær Charmaine Bester og Linda Whyte frá Höföaborg i Suöur Afriku og Jill Johnstone frá Melbourne i Ástraliu. Þær búa saman i allstóru Herbergi og hafa útsýn yfir gjörvallan Eyrar- bakkabug og Selvogsgrunn út um gluggann. Ætli honum Helga Jónssynilangafa minum sem reri ótal vertiðir frá Þorlákshöfn á siöustu öld heföi ekki þótt furðu- legt aö hafa fanggæslu alla leið frá hinum enda heimsins? Þénustan minni en búist var við. Og hvers vegna eru þær komn- ar hingaö á hjara veraldar ? Svar iö er einfalt: Til þess aöþéna pen inga. Og hvernig gengur? Þvi miður. Viö höfum ekki verið nægilega heppnar, segja þær. Haustvertíöin i Þorlákshöfn hef- ur veriö i lakara lagi og oftast nær ekki unnið nema til kl. 5 á dagirtn i frystihúsinu. Þær vilja meiri vinnu til aö geta þénaö sem allra mest þvi aö þær eru á heimshornaflakki og þurfa lfka aö komast heim til sin fyrr eöa siðar. Og þaö er dýrt. Frysti- húsavinna á Islandi er einungis ætluð til fjármögnunar fyrir frekari feröalög. —- Meö hvaöa kjörum eruö þið ráönar hingaö? — Viö erum ráönar á vegum ráðningarskrifstofu I London, fáum ókeypis feröir þaöan og til baka aftur svo fremi sem við verðum út allttimabiliö eöa fram i mal. Viö vinnum eftir þvi bónuskerfi sem hér gildir en þvi miöur hefur afraksturinn ekki verið eins mikill og viö bjugg- umst viö. Bæöi hefur ekki fiskast nógu vel og svo tók þaö okkur tima aö ná upp hraöa og góöri nýtingu ibónusnum. Þaö er fyrst núna sem viö erum komnar á strik. — Hvaö hafiö þiö mikiö eftir vikuna? — Þegar búið er að taka af okkur 25% af launum i skatta og þær máltiöir sem viö boröum i mötuneytinu komumst viö upp i 40 þúsund krónur á viku þegar best lætur. Viö höfum heyrt aö þénustan sé betri fyrir noröan. — Hvaö reikniö þiö meöaö eiga eftir i vor? — 1 upphafi höföum viö gert okkur vonir um aö eiga 2000 pund eftir veturinn en þau veröa sennilega einhvers staöar á bil- inu 1000-1500 þegar upp er staðið. Hvorki þvotta- né eldunaraðstaða — Hvernig likar ykkur aöbún- aöurinn hér I verbúðinni. — Viö teljum hann mun lakari en okkur haföi verið lofað. Hér ér t.d. engin aöstaöa til að þvo þvott af okkur. Þaö er aö visu kona i frystihúsinu sem þvær þvotta en hún er ekki um helgar og við vilj- ■■ ■ George Brown frá Dublin og Sævar frá Reykjavik i herbergi sinu I verbúðinni. Þar búa þeir ásamt tveimur öðrum. A baðherberginu fer daglega fram handþvottur viö frumstæðustu aðstæður I vaski. Þar héngu m.a. 8 kvennærbuxur i röö eins og s já má. Útlendu stúlkurnar I Þorlákshöfn: t fremstu röð sitja frá vinstri: Wendy Crockett Astrallu, Vicki Falkenberg Astraliu, Jeanette Murphy Astraliu og Jenny Wust Astrailu. t miðröð eru f.v.: Margaret Campell N-Sjálandi, Nicola Kelly N-Sjálandi, Lynette Grosser Astraliu, Claire Lawrence Astrailu, Enid Pascoe Astrallu og Leone Bonella Astraliu. t efstu röö eru f.v.: Suzanne Daws S-Afriku, De- borah O’Leary N-Sjálandi, Linda Whyte S-Afrlku, Jean Gundersen N-Sjálandi, Jill Johnstone Astraliu og Charmaine Bester S-Afrlku. um ekki nota nema einn klæönaö I vinnuna vegna fiskfýlunnar sem kemur af honum. Viö erum þvi öllum stundum aö handþvo af okkur i vaski. Þá finnst okkur fæðið i mötuneytinu of dýrt. Helst vildum viö elda ofan i okkur sjálfar en hér er engin eldunar- aðstaöa. islendingar elskulegir — Hafiö þiö unnið i fiski áöur? — Nei, aldrei snert við honum. Linda og Charmaine eru röntgentæknar aö menntun, Suzanne hefur aöallega veriö læknaritari og Jill skrifstofu- stúlka. Vinnan og umhverfiö hér er okkur þvi mjög framandi. — Finnst ykkur skemmtilegt aö vinna i fiski? — Nei, ekki er það nú beint en það er ómaksins vert aö prófa eitthvaö nýtt. — Hvernig likar ykkur viö Islendinga? — Þeir eruákaflega elskulegir og vilja allt fyrir okkur gera. Þetta er i fyrsta skipti sem svona hópur af útlendingum er hér i Þorlákshöfn og fyrst i staö var fólk feimiö að tala við okkur en nú er þaö farið af. Við urðum lika dálitið varar viö tortryggni vegna þess aö viö tækjum vinn- una af heimamönnum en þaö er lika gjörsamlega úr sögunni. Út að hlaupa Viö þökkum þeim stöllum nú fyrir spjalliö og litum inn i næsta herbergi. Ekki eru móttökurnar siöri þar. I herberginu búa þær Lynette Grosser og Vicki Falkenburg frá Nuriootpa i Suöur-Astraliú, Jenny Wust frá Rockhampton i Queenslandi i Astraliu og Jean Gundersen frá Northland i Nýja Sjálandi. • Þær segjast ekki boröa nema einu sinni til tvisvar i viku i mötuneytinu en svelta þess á milli eöa fá sér eitthvert snarl sem þær kaupa i kaupfélaginu. En þær mega litiö vera að þvi aö tala viö okkur þvi aö tvær þeirra eru uppábúnar i iþróttagalla og ætla út aö hlaupa. Viö spyrjum hvort þær séu ekkert þreyttar eftir langan vinnudag en þær gera litið úr þvi. Liklega yrðu tslendingar sem færu að hlaupa i myrkri og kulda eftir langan vinnudag i þorpi eins og Þorláks- höfn álitnir eitthvað smáskrýtn- ir. Vantar krárnar Við vendum nú okkar kvæöi i kross og heilsum upp á tvo karl- menn sem búa i verbúðunum. Þeir eru irinn George Brown og Sævar Hafsteinsson frá Reykja- vik. Þeir vinna i vélasal og i móttöku. George Brown er frá Dublin og er kvæntur islenskri konu. Þau búa i Fossnesi i ölfusi ásamt tveimur börnum hans af fyrra hjónabandi, 13 ára og 9 ára. George Brown er ákaflega ánægöur með lifiö hér á íslandi en segir þó aö mikil viöbrigöi hafi verið að flytja úr stórborg- inni og upp I sveit á tslandi. Krakkarnir hans eru farnir aö tala reiprennandi islensku og sjálfur skiiur hann flest. Hann er búinn að vera hér i tvö ár og þénar meira en hann gæti gert á írlandi fyrir sambærilegt starf. George Brown er vanur sjó- mennsku. Þaö eru helst krárnar sem vantar hér, segir hann. Löng biðröð í sturtubað Sævar segir aö ágætt sé aö vera hér i verbúðinni og mun ró- legra en þar sem eingöngu eru tslendingar. Þeir vilja sukka og svalla helst tii mikið. Hann er þvi mjög ánægður með sambúðina við útlendingana. Sævar er vanur verbúðarlif- inu þvi að hann hefur bæði verið á vertiö i Höfn i Hornafirði og Grindavik. Hann segir aö aðbún- aðurinn á Höfn hafi veriö lang- bestur. 1 nýju verbúöunum þar eru þrir i herbergi og sturta á hverju herbergi. Hér i Þorláks- höfn er hins vegar bara eitt sturtuherbergi meö tveimur sturtum fyrir allan mannskap- inn. Þaðer mjögóþægilegtþvi aö oft getur tekið 3-4 klukkutima aö komast að og er þá stundum komiö fram á 11. timann á kvöld- in. Tekjur hafa veriö i lakara lagi það sem af er vetri, segir Sævar. Þegar búið er aö draga fæðis- kostnaö, skyldusparnaö, félags- gjöld o.fl. af kaupinu eru svona 48-55 þúsund krónur eftir aö jafnaöi á viku. Eftir baðfarir Viö tefjum nú ekki lengur hjá þeim félögum þvi aö við viljum spá meira i þær áströlsku. Sum- ar eru á sveimi um ganga harla fáklæddar eftir baöfarir. Þær bjóöa upp á kaffi i mötuneytinu og kjaftar á þeim hver tuska. Svo er öllum smalað til myndatöku i setustofu. Ekki næst þó til tveggja svo aö alls verða 16 með á myndinni. Viö notum tækifæriö til aö spjalla viö hópinn i heild. — Hvað vissuð þið um Island áöur en þiö komuö hingaö? — Mjög litiö. Þaö var rétt minnstá það i skólabókum heima og viröist vera mjög erfitt aö afla sér upplýsinga um landiö nema panta sérstaklega bækur héðan. Viö vissum eiginlega ekk- ert nema þetta land væri til og þaö væri eldfjallaeyja. Enid Pascoe: Ég kom hingaö i sumarleyfi i júni i sumar og Texti: GFr Myndir: gel Utan á herbergishuröum má sjá ýmsar áletranir. Þessi er á her- bergi þeirra Jean, Jenny, Lynette og Vicki. ákvað þá að leita mér vinnu i vet- ur. — Vilduð þiö vera hér aftur næsta vetur? — Nei, ekki i Þorlákshöfn en frekar á einhverjum öðrum staö á tslandi. Vicki Falkenberg: Ég var hér i fyrravetur lika en þá á Breið- dalsvik. Þar fannst mér betri aðbúnaður en hér og höfðu t.d. sumar stúlkurnar einkaher- bergi. Breiðdalsvik er lika fal- legri staður. — Getið þið s kipt um s tað meö- an á dvöl ykkar stendur hér? — Við höfum spurst fyrir um það en þaö kom i ljós að alltof mikil skriffinnska fyigir sliku. Okkur skildist helst að við þyrft- um aöþá fyrst aö fara til Eng- lands og koma svo aftur. Allur matur soöinn — Hvernig var á jólunum hérna? — Það var alveg dásamlegt og e' ..i siður um nýáriö. Viö feng- um eldhúsiö i mötuneytinu alveg til eigin umráöa, kokkuöum ofan i okkur, settum upp jólatré og höföum þaö i alla staði gott. — Höföuð þiö samskipti viö Þorlákshafnarbúa? — Já, þeir voru okkur mjög góöir. öllum hópnum var boðiö i hús upp á kaffi, kökur og glas. Fólkið hefur veriö okkur mjög elskulegt. — Hafið þið smakkaö islensk- an mat? — Já, hangikjötiö en þaö skipt- ist mjög I tvö horn hvort okkur fannst þaö gott. Sömu sögu er aö segja um brennivinið. Sumum okkar finnst það gott, öörum vont. — Hvað um almennan mat hér? Okkur finnst það skrýtiö aö allur matur hér virðist vera soö- inn og einnig er hann aö okkar áliti frekar bragölaus. Aldrei snert snjó áöur. — Finnst ykkur landslagiö hr jóstrugt? — Já, fremur en sólarlag- iö er dásamlegt hér i Þorláks- höfn og einnig höfum viö séö norðurljós sem voru stórkost- leg. Þegar snjórinn leggst yfir frikkar allt landið. — Höfðuö þið kynnst snjó áð- ur? — Um helmingur okkar haföi aldrei séð snjó áöur og enn fleiri aldrei snert hann, aðeins séö hann i fjarlægð. — Hvað geriö þiö i tómstund- um? i- Við glápum á sjónvarp, prjónum og á föstudagskvöldum höfum við „social evenings”. — Þiö hafiö þá væntanlega horft á áströlsku myndina And- streymi? — Já, segja þær allar I kór og sumar þær áströlsku segjast einmitt vera komnar af saka- mönnum svipuðum þeim sem lýst er i myndinni. Strákarnir eru svo fáir og ungir — Veröiö þiö fyrir ásókn strákanna hér i þorpinu? — Nei, þeir eru svo fáir og ungir að það kemur ekki til en stundum koma aökomumenn sem eru dálitið frekir. — Farið þið á böll? — Mjög litið. Inngangseyrinn er svo hár aö við timum þvi ekki. Þaö kostar lágmark 6000 krónur aö komast inn. Svo líst okkur ekki meira en svo á aðfarirnar á þessum böllum, slagsmál og drykkjuskap. Við förum þá frek- ar til Reykjavikur stökusinnum. — Hvað er ólikt meö Þorláks- höfn og sambærilegu þorpi i ykk- ar heimalöndum? — Fyrst og fremst krárnar sem eru á hverju strái heima og einnig er meiri iþróttastarfsemi þar. Vildum heldur hafa lykla sjálfar — Hafiö þiö lyklavöld aö ver- búöinni? — Nei, húsinu er lokað kl. hálf tólf á kvöldin og eftir þaö eru gestir bannaöir. Sjálfar veröum við aö banka upp á hjá húsverð- inum til aö komast inn eftir þann tima. Þetta finnst okkur minna óþarflega mikið á heimavistar- skóla eöa fangelsi og vildum frekar hafa lykla sjálfar. — Er vinnan erfiö? — Nei, viö vissum nákvæm- lega aö hverju við gengum meö rtana. Okkur var sagt að hún væri erfið og litiö um fritima. — Nú eruö þiö fjórar saman á herbergi. Er það ekki tauga- tr ekkjandi. — Nú lita þær brosandi hver á aöra en neita þvi aö svo sé og segjast lika hafa gert ráö fyrir sliku þegar þær réðu sig i þessa vinnu. Úrvalsfólk Við kveðjum nú þessar elsku- legu stúlkur en áöur en viö förum heim svifum við á Guöna Jóns- son yfirverkstjóra til aö spyrja hann litillega um verbúöirnar og erlenda fólkið. Guöni segir strax aö erlendu stúlkurnar séu með afbrigðum gott og stööugt vinnuafl. Þetta er úrvalsfólk, segir hann. Siðastliöiö sumar var flikkaö svolitiö upp á verbúöirnar i fyrsta skipti i þau 20 ár siöan þær voru byggöar. Þaö voru settar þær reglur aö hámarks- fjöldi i herbergi ætti aö vera 4 I staö 8 áöur. Teppi voru lögö á gólf og lagöar nýjar rafmagns- leiöslur og sett upp ný ljós. Kojur voru teknar úr flestum herbergjunum og sett rúm i staöinn. Þá var ákveöiö aö taka eitt herbergi undir setustofu en þeirri framkvæmd er ekki aö fullu lokiö. Guðni segir að oft hafi veriö sukksamt i þessari verbúö og unglingar úr þorpinu mikiö leitaö þangað vegna þess aö þeir áttu engan annan samastað. En i vet- ur er bragurinn töluvert öðru visi, og þá fyrst og fremst vegna tilkomu útlendinganna. Aö lokum fræöir Guöni okkur á aö máltiö i mötuneytinu kosti rúmar 1400 krónur en kaffi 700 krónur og er fæöið þá greitt niö- ur um helming.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.