Þjóðviljinn - 24.01.1980, Page 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 24. janúar 1980
GUÐMUNDAR OG GEIRFINNSMALIN FYRIR HÆSTARÉTTI:
Verdandi
rithöfundar
vöktuðu
Andreu meinaður að-
gangur að Litla-Hrauni
Eins og skýrt var frá í Þjóö-
viijanum i siðustu viku, játaði
Andrea Þórðardóttir á sig að hafa
borið skilaboö fyrir Sævar
Ciecielski tfl stúlku sem er vitni
gegn honum i Guðmundarmálinu
og beðið hana að breyta fram-
burði sfnum.
Þar sem Sævar er i gæsluvarð-
haldi er þetta að sjálfsögðubrot á
reglum, en Andrea hefur unnið
við að stytta föngum á Litla
Hrauni stundir með kvöldvökum
o.fl. ogaðstoöaöþá á ýmsan hátt i
sambandi við snúninga utan
fangelsisins.
En eftir aö þetta komst upp
hefur Helgi Gunnarsson
fangelssisstióri á Litla Hrauni
bannaö Andreu aögang aö fang
elsinu á meðan dómur er ekki
failinn i Guðmundar og Geir-
finnsmálunum. Hann staðfesti
þetta I samtali við Þjóðviljann i
gær.
-S.dór.
Rétt fyrir kl. 19.00 i
gærkvöld lauk mál-
flutningi i Guðmundar
og Geirfinnsmálunum
fyrir Hæstarétti. Hafði
þá málflutningur tekið
um 37 klukkustundir en
hann hófst mánudaginn
14. janúar.
Taliö er að dómur Hæstaréttar i
málinu falli innan eins mánaöar,
en varla þó fyrr en eftir 3 vikur,
enda er hér um gríðarlega viöa-
mikið mál að ræða, málskjölin
sem fyrir Hæstarétti liggja uppá
um 25 þúsund siöur af A 4 stærð.
Vegna plássleysis i blaöinu i
dag verða frásagnir af varnar-
ræðum þeirra Guðmundar Ingva,
verjanda Erlu Bolladóttur, Bene-
dikts Blöndals,verjanda Guöjóns
Skarphéðinssonar, siðari ræðu
rikissaksóknara, Þórðar Björns-
sonar, og siðari ræðum vetjenda
að biða til morguns.
■—S.dór
Kristján Viöar Viöarsson
LÖGREGLAN
HÓTAÐI MÉR
LÍFLÁTI
— ef ég ekki tæki
þátt i meinsœrinu.
Lýsi mig
saklausan af ákæru
um manndráp
Eins og skýrt er frá i frétt á
forsiöu Þjóöviljans i dag,
neyttu 3 ákærðu i Guömundar
og Geirfinnsmálunum þess
réttar sins aö taka til máls
fyrir Hæstarétti undir lok
málflutnings þar.
Kristján Viðar Viðarsson
sagði:
,,Ég vil lýsa þvi yfir að ég er
saklaus af þeirri ákæru að
hafa banað Guðmundi Einars-
syni og Geirfinni Einarssyni.
Geirfinn hef ég aldrei séð og
aldrei talað viö þann mann.
Guðmund Einarsson þekkti ég
sem barn og búið. Varöandi
rangar sakagiftir vil ég taka
fram að ég er saklaus. Ég var
þvingaður til ,aö nefna þessi
nöfn, lögreglan hótaði mér lif-
láti annars. Ég þekkti ekkert
þessa 4 menn, þeir hafa aldrei
gert mér neitt og ég hef heldur
ekki gert þeim neitt. Að lokum
vona ég að Hæstiréttur veröi
hlutlaus I þessum málum og
dæmi samkvæmt þvi;’.
Þessi orðræöa Kristjáns er
næstum þvi orörétt, en ekki
alveg, en efnislega er hún rétt.
—S.dór
og vona að frá Hœstarétti fái ég
þá uppskeru sem ég hef til sáð
Hér fer á eftir þaö sem Erla
BoIIadóttir sagði fyrir Hæsta-
rétti i gærkveld . Þaö er ekki_
nákvæmlega orðrétt þótt lltið
vanti þar uppá, en efnislega
var það á þessa leiö:
„Af minpi hálfu er ekki
þörf á að bæta miklu við það
sem fram hefur komið hjá
verjendum i málinu. Hér eru
allir mér færari á sviði laga-
greina.
Ég vil segja þaö, aö allt
þetta mál hefur haft djúpstæö
áhrif á mig. Ég var allt önnur
persóna en ég er i dag, þvi I
dag er mér batnað, en ég hef
öölast mikla lifsreynslu.
Það stakk mig áðan þegar
verjendur vor ( að fjalla um
þessi mál, að allan timann
sem rannsóknin stóð yfir
reyndum við að segja sann-
leikann en okkur var ekki trú-
að. Aö öðruleyti fékk ég alltaf
áheyrn og mér var trúað og
tekiömarká þvi sem égsagði. H
Þaösem ég hef nú sagt er satt |
ogégvona að mér verði trúað ■
nú og tekið mark á þvi sem ég |
sagði. ■
I dag er það einlæg von min ■
að sannleikurinn komi i ljós og *
vona að frá Hæstarétti fái ég J
þá uppskeru sem ég hef til I
sáðj’ -S.dór. ■
HIBIBil ■■ ■■MMI wA
réttar
höldin
SÆVAR MARINÓ CIECIELSKI:
Þaö hefur vakið athygli þeirra
sem fylgst hafa með málflutningi
Guðmundar-og Geirfinnsmálanna
og nokkrir menn hafa verið
viðstaddir þau uppá hvern dag.
Blaöamenn hafa orðið að gera
þetta Ilka og ekki þótt það nein
skemmtiseta, þannig að menn
undruðust þrásetu þe s s ara
manna.
Þvi heyrist núfleygt að þeir séu
byrjaðir eða i þann mund að hefja
bókaskrif um málin. Ekki er
vitaö hvort þar á að vera um
sagnfræðilegar bækur að ræöa
eða skáldsögurbyggðar á þessum
málum.
S.dór
Vitnaöi í varnar-
ræðu Sókratesar
Ég á enga vini lengur vegna þessara mála
Sævar Ciecielski hélt all langa
ræöu fyrir Hæstarétti I gær, flutti
hana skörulega og vitnaöi m.a. I
varnarræðu Sókratesar. Hann
virtist óstyrkur þegar hann ætlaði
upp i ræðustólinn og spurði gæslu-
menn sina hvort ekki mætti fresta
málflutningi til morguns. Þaö var
ekki fáanlegt og fór hann þá i
pontu og mæltist efnislega á
þessa leiö og næstum orörétt:
Nú eru vegamót i þessum
málum, þegar þau koma fyrir
Hæstarétt. Þvi vil ég fá tækifæri
til aö-andmæla. Ég þekkti þessa
menn ekkert og átti ekkert erindi
viö þá. Hvarf þeirra er mér jafn
mikil ráðgáta og öörum.
Gæsluvaröhaldið hefur bitnað
mjög hart á mér og þaö hefur
veriö móöur minni og ættingjum
mikil raun. Ég var I algerri ein-
angrun i Siðumúlafangelsinu I 2
ár og ég mun aldrei ná mér eftir
þaö. Ég haföi ekki skriffæri,
bækur, tóbak, jafnvel ekki
sængurver.
Ég undirritaði skýrslur viö
yfirheyrslur, en ég dró framburð
minn jafnóöum til baka, ég kærði
jafn óöum en gat ekki kært vegna
þess aö ég fékk ekki aö hitta
réttargæslumann minn mánuöum
saman. Ég kærði varðhaldsúr-
skurö en vegna þess aö lög-
fræöingur minn var ekki við-
staddur fór sú kæra aldrei áfram.
Ég á aö hafa sagst hafa sparkaö
i Guömund Einarsson; þegar sá
framburður fékkst fram var ég
orðinn úrvinda af þreytu vegna
yfirheyrslna og ég gafst upp. Og
þann 30. april kóperaði ég það
sem Kristján Viðar hafði sagt af
sömu orsökum.
Ég benti á skýrslu sem til væri
hjá fikniefnadómstól sem gætii:
sannað mitt mál, en mér var ekki
trúaö.
Mér var sagt að Albert Skafta-
son heföi sagt aö ég hefði verið I
húsi i'Hafnarfirði og ég játti þvi i
örvilnun.
t Geirfinnsmálinu komu þeir
inni klefa til min og sögðu aö ég
heföi fariö með Erlu Bolladóttur
til Keflavfkur og þeir hótuðu
barnsmóður minni og þröngvuöu
mér þannig til aö sknifa undir
skýrslu um þetta. Siðar var mér
svo sagt að Erla og Kristján
Viðar heföu sagt aö ég hefði verið
með 1 Keflavik. Ég sat þvi fastur I
snörunni eftir að mér haföi veriö
þröngvað til aö skrifa undir fyrri
skýrsluna. Ég dró þessa játningu
strax til baka vegna þess að ég
var ekki meö sjálfum mér þegar
ég undirritaöi skýrsluna.
Erla og Kristján báru uppá mig
söguna og þiö vitið ekki hvað þaö
er að lenda i svona vitleysu. 8.
mai var skýrsla tekin af mér um
nótt og um morguninn dró ég allt
til baka og trúði þvi ekki þá að
þeir ætluðu aö nota þetta gegn
mér.
Þvi næst vék Sævar að ásök,-
unum um aö hann hefði reynt aö
hafa áhrif á vitni'og að vinir hans
hefðu hótað vitni ef þaö ekki
breytti framburöi.
„Það er sviviröa að halda þessu
fram, ég hef misst alla vini og
kunningja, ég hef misst þá alla
útaf þessum málum.
Ef Hæstiréttur telur mig sekan,
þá vil ég segja þetta til vara: Nú
er mál komiö að vér göngum
héðan. Ég fer til að deyja en þér
til þess að lifa. Hvorir okkar fari
betri för er öllum hulið nema
guöunum einumj’ —S.dór
Erla Bolladóttir flytur mál sitt fyrir Hæstarétti. Hún bannaði
myndatöku ( Ljós m.: eik)
ERLA BOLLADOTTIR:
Ég vona að I
sannleíkurinn;
komi í ljós I
Kristján Viðar Viðarsson:
Málflutningi lokið
Hann stóð ium 37 klukkustundir — talið
að dómur Hœstaréttar falli innan mánaðar