Þjóðviljinn - 16.02.1980, Blaðsíða 13
Laugardagur 16. febrúar 1980. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 13
Nýr flugvöllur
Framhald af bls. 16
útreikninga hafa verið véfengdar.
Flugvallarstæðiö i Kapelluhrauni
er á hrauni á góöri undirstöðu,
vallarsvæðiö er óbyggt og talið ó-
hæft til ræktunar.
Þróunarstofnun leggur mikla
áherslu á skipulagslega stöðu
Reykjavikurflugvallar i álitsgerð
sinni og varar eindregið við þvi að
hann verði festur i sessi i borgar-
landinu með nýju skipulagi eða
leyfi til byggingar nýrrar flug-
stöðvar og nýrra flugbrauta. Bent
er á að á flugvallarsvæðinu mætti
byggja upp 10 þúsund manna
byggð og að sá kostur væri mun
hagkvæmari en að reisa jafnfjöl-
mennt ibúðarhverfi uppi i Olfars-
fellslandi.
Ofangreindar tillögur og
skýrsla Þróunarstofnunar sem
unnin er af Bjarka Jóhannessyni
hefur verið lögð fyrir borgarráð
en engar ákvarðanir verið tekn-
ar._____________________-AI.
Laugardagskaffi
Framhald af bls. 6.
lega mikilvægt vegna sjálfs-
virðingar hverrar fulloröinnar
manneskju.
Jrs: Hvernig er hægt að
berjast fyrir breytingum á
þessu ástandi?
Elisabet: Dagvistarmálin eru
númer eitt og sóknina i þeirri
báráttu þarf að herða mjög.
Mörgum heimavinnandi konum
finnast dagheimilin ekki aölað-
andi — þau eru undirmönnuð og
mikið álag á starfsfólki og börn-
um. Og það eru yfirleitt börn
láglaunafólksins, þess einstæöa,
sem eru lengstan dag á dag-
heimilinu og njóta minnstrar
samveru við foreldra sina, af
þvi þeir vinna óhóflega langan
vinnudag. Það er t.d.
hneykslanlegt að borgarstjórn
stóö ekki við loforð sin um húsa-
kaup undir dagheimilið i
Vesturbænum sem búið var að
samþykkja. Það má segja aö
þeir hafi staðiö með lif 20
kvenna i höndunum. Og þvi er
ekki einu sinni svarað hverjir i
vinstri meirihlutanum komu i
veg fyrir kaupin!
Jrs: Verkaskipting viö
heimilisstörfin — hvað viltu
segja um það?
Eiisabet: Þaö er alveg rétt
sem fram hefur komiö að
verkaskiptingin er sorglega
stutt á veg komin einmitt hjá
fjölskyldum i verkalýösstétt.
Þvi hver hefur andlega orku til
að hugsa um jafnréttismál ef
vinnudegi lýkur t.d. klukkan 9 á
kvöldin? Hið gifurlega vinnuá-
lag skiptir þarna miklu, karlar
taka alla yfirvinnu sem býðst
þvi hún er betur borguð en vinna
kvennanna. Þá byrjar hin hefö-
bundna hlutverkaskipting og
festist smámsaman þó ætlunin
hafi kannski verið allt önnur i
upphafi.
Jrs: Lokaorð?
Elisabet: Já, konur þurfa að
standa miklu sameinaðri að
baráttumálum sinum. Verka-
kvennafélögin og Rauðsokka-
hreyfingin þurfa að taka
höndum saman og reyna öll til-
tæk vopn málum konum til
framdráttar. __________—hj.
Fulltrúar
Framhaid af bls. 7
Agústsson, 30. Tryggvi Emilsson.
31. Hrafnhildur Guömundsdóttir,
32. Anna Sigr. Hróömarsdóttir,
33. Guðmundur Bjarnleifsson, 34.
Snorri Styrkársson, 35. Hörður
Bergmann, 36. Guömundur Ólafs-
son, 37. Þórunn Klemensdóttir,
38. Kristin Þorsteinsdóttir, 39.
Guðmunda Helgadóttir og 40.
Margrét Sigurðardóttir.
1 dag kl. 14 er annar umræðu-
fundur ABR tii undirbúnings
flokksráðsfundinum og fjalla þeir
Bragi Guðbrandsson og Stefán
Jónsson um utanrikis- og þjóð-
frelsismál. A mánudagskvöldið
kl. 20.30 verður fjallað um at-
vinnu- og efnahagsmál og hafa
þeir Hjörleifur Guttormsson og
Ragnar Arnalds þá framsögu. A
miðvikudagskvöldið i næstu viku
er slðasti fundurinn i þessari röð
og fjallar hann um verkalýös-
hreyfinguna og áhrif hennar á
rfkisstjórnir. Þessir fundir eru
sérstaklega ætlaðir fuiltrúum
féfagsins i flokksráöi og eru bæði
aðai- og varamenn hvattir til þess
að sitja þá. Þeir eru allir haldnir I
Sóknarsalnum aö Freyjugötu 27.
— AI
Alþýðubandalagið:
Kjördæmisráð Alþýðubandalags-
ins
i Reykjaneskjördæmi
heldur fund i Félagsheimilinu á Seltjarnarnesi
n.k. sunnudag kl. 14.30.
Rætt verður um úrslit siöustu alþingiskosninga
og Lúðvik Jósepsson kemur á fundinn og ræöir
um stjórnmálaviðhorfið.
Lúðvik.
Alþýðubandalagið i Mosfellssveit
Félagsfundur verður haldinn I Hlégarði laugardaginn 16.2. kl. 2.
Dagskrá 1. Stjórnarmyndunin. 2. Afganistan. Magnús Guðmundsson
hefur framsögu.— Stjórnin.
Alþýðubandalagið Húsavik
Arshátið —Alþýðubandalagsins á Húsavik verður haldin laugardaginn
1. mars nk. —Félagar og stuðningsmenn annarsstaðar úr kjördæminu
sérstaklega velkomnir. Reynt verður aö útvega öllum gistingu. —
Nánar auglýst siðar.
Árshátið Alþýðubandalagsins i Reykjavík
verður haldin i Sigtúni, efri sal, laugardaginn 23. feb.. Húsið opnað kl.
19.30. — A boðstólum verða ljúffengir réttir á vægu veröi úr grillinu.
Fjölbreytt skemmtidagskrá hefst kl. 21.00. Fram koma m.a.: Gestur
Þorgrimsson, Guðmundur Magnússon leikari, sönghópur og Þórhallur
Sigurösson leikari.
Ræða: Helgi Seljan.
Kynnir og stjórnandi: Guðrún Helgadóttir.
Hljómsveit Jóns Sigurðssonar leikur fyrir dansi til kl. 02
Félagar! Pantið miða timanlega i sima 17500.
Skemmtinefnd ABR
Alþýðubandalag Héraðsmanna
Hreppsmálaráð Albvðubandalags Héraðsmanna boðar til almenns
fundar um atvinnumál Egilsstaða og nágrennis i Valaskjálf mánudag-
inn 18. febrúar kl. 20.30.
Frummælendur: Sigurjón Jónasson, Sveinn Jónsson, Guðrún
Aðalsteinsdóttir.
Fundarstjóri: Sigurjón Bjarnason.
Efnahags- og atvinnumál
Umræðufundur um efnahags- og atvinnumálatillögur Alþýðubanda-
lagsins verður n.k. mánudagskvöld 18. febr. kl. 20.30 i fundarsal
Sóknar, Freyjugötu 27,
Fundurinn er til undirbúnings flokksráðsfundar.
Nánar auglýst siðar. — Stjórn ABR.
j Auglýsið í Þjóðviljanum !
. L M M MMMM M M MMMH M ^MMM—M M ^MIIMM M IM^^MMM - ^
Finnsku tónlistarmennirnir SEPPO TUK-
IAINEN, fiðluleikari, og TAPANI VALS-
TA, pianóleikari, halda tónleika i Norræna
húsinu ÞRIÐJUDAGINN 19. FEBRUAR
KL. 20:30 A efnisskrá verða:
Jonas Kokkonen: Duo (1955),
Johannes Brahms: Sónata op. 108
Aulis Sallinen: Fjórar etýður
Claude Debussy: Sónata (1917).
og Henry Wieniawski: Polonaise brill-
ante.
Aðgöngumiðar i kaffistofu hússins og við
innganginn.
Verið velkomin
NORRÆNA
HÚSIO
Utanrikis- og
þjóðfrelsismál
Alþýöubandalagiö i Reykjavik
boðar til umræðufundar um utan-
rikis- og þjóðfrelsismál, laugar-
daginn 16. febrúar kl. 14.00 I
fundarsal Sóknar, Freyjugötu 27.
Fundurinn er haldinn til undir-
búnings flokksráðsfundar 22i-2A
febrúar.
Stuttar framsöguræöur flytja:
Bragi Guöbrandsson og Stefán
Jónsson.
Bragi Stefán
Félagar fjölmennið.
Stjórn ABR
Alþýðubandalagið á ísafirði
Félagsfundur verður sunnudaginn 17. feb. kl. 5 I Safnaöarheimilinu
Gúttó.
Dagskrá:
1. Kosning fulltrúa á flokksráðsfund.
2. Stjórnmálaviðhorfið.
3. Vetrarstarfið.
4. Rætt um árshátið.
Félagar fjölmennið. Nýir féiagar velkomnir. — Stjórnin.
Til félaga ABR
Þeir sem geta hýst félaga utan af landi, sem koma á flokksráðsfund
22.-24. febrúar eru góöfúslega beðnir aö hafa samband við skrifstofuna
sem fyrst i sima 17500.
Stjórn ABR.
Alþýðubandalagið i Borgarnesi og nærsveitum.
Félagsfundur verður haldinn
þriðjudaginn 19. febrúar n.k. aö
Kveldúlfsgötu 25. kl. 20.30.
Fundarefni:
1. Kosning fulltrúa á flokks-
ráðsfund.
2. Stjórnarmyndunarviðræður og
stjórnarsáttmáli.
3. önnur mál.
Þingmennirnir Skúli Alexanders-
son og Stefán Jónsson koma á
fundinn. — Stjórnin.
Skúli Stefán
Efnahags^ og
atvinnumál
Kagnar Hjörleifur
Alþýðubandalagið i Reykjavik boðar til umræðufundar um efnahags-
og atvinnumál mánudaginn 18. febrúar kl. 20.30 I fundarsal Sóknar,
Freyjugötu 27.Pundurinn er haldinn til undirbúnings flokksráðsfund-
ar. Stuttar framsöguræður flytja
Ragnar Arnalds, fjármálaráðherra og Hjörleifur Guttormsson, ráö-
herra.
Félagar fjölmennið.
Stjórn ABR.
Alþýðubandalagið —
félögin i uppsveitum
/
Arnessýslu
Almennur og opinn stjórnmálafundur
verður haldinn i Aratungu miðvikudaginn
20. feb. og hefst kl. 21.00. Framsöguræðu
flytur Svavar Gestsson ráðherra. Allir
hjartanlega velkomnir meðan húsrúm
leyfir.
Stjórn Alþýðubandalagsfélaganna i
uppsveitum Árnessýslu.
KALLI KLUNNI
48 <6 '-OPvrtqh' Þ ' H Km e (.ogmilinari
— Hvaö skyldi vera oröiö af Yfirskeggi?
Lánaðu mér kikinn og ég skal gá hvort
hann er I honum.
— Þegar maður heldur rétt á honum, þá
er hann alveg nógu góður. Ég sé bæði
Yfirskegg og pipuna hans, þau eru æðru-
laus bæði tvö!