Þjóðviljinn - 16.02.1980, Síða 15
Laugardagur 16. febrúar 1980. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 15
hnífur
Stál og
Á morgun veröur fluttur I
útvarp fyrsti þáttur af þrem-
ur um farandverkafólk i
sjávarútvegi fyrr og nú, i um-
sjá þeirra Silju Aöalsteins-
dóttur og Tryggva Þórs Aöal-
steinssonar.
— Nafn þáttarins er fengið
úr laginu Draumur eftir
Bubba Morthens, — sagöi
Silja, — Þeir bræður Bubbi og
Tolli syngja nokkur frumsam-
in lög i þættinum, og Draumur
er eitt þeirra. Einnig flytur
Stella Hauksdóttir, verkakona
i Eyjum, nokkur af sinum lög-
um. -
— Þátturinn er að heita má
sögulegur, en við byrjum i nd-
timanum, nánar tiltekið sum-
ariB 1979 þegar farandverka-
fólk gerBi uppreisn i Vest-
mannaeyjum. Siðan bökkum
við alla leið aftur á landnáms-
öld og rekjum sögu farand-
Útvarp
kl. 15.10
verkafólks gegnum aldirnar,
með dæmum úr bókmenntum.
Ein aðalheimild okkar er rit-
gerð Skúla Thoroddsens um
vistlaust verkafólk frá land-
námsöld og fram á 20. öld.
Þetta var lokaritgerð hpns til
prófs i lögfræðideild HI.
Lengi vel var það andstætt
lögum að vera vistlaus verka-
maður á tslandi, þótt farand-
verkafólk hafi verið til hér frá
þvi á landnámstið. Um þetta
vinnuafl rikti mikil togstreita:
annarsvegar var bændaaðalÞ
inn, sem vildi hafa sitt ódýra
vinnuafl, og hinsvegar vax-
andi sjávarútvegur. Þegar
sjávarútvegurinn varð ofaná
sem aðalatvinnuvegur varð
aftur löglegt að vera vistlaus
verkamaður.
Auk þeirra Silju og Tryggva
Þórs koma fram i þættinum
Gils Guðmundsson, sem segir
sögur af lífi farandverkafólks
frá 17. öld og fram á okkar
daga, og Hjalti Rögnvaldsson
leikari.
Þættir þessir verða á dag-
skrá næstu þrjá sunnudaga.
— ih
Andrée-leiöangurinn: Basl meö bátmn.
Andrée-leiðangurinn
Útvarpsleikrit barna og
unglinga, Andrée-leiðangur-
inn, er á dagskrá útvarps n.k.
mánudag kl. 17.20. Fluttur
verður 3. þáttur. Höfundur er
Lars Broling, en Steinunn
Bjarman gerði islenska þýð-
ingu. Leikstjóri er Þórhallur
Sigurðsson og með hlutverkin
fara m.a. Þorsteinn Gunnars-
Útvarp
kl. 17.20
son. Jón Gunnarsson og Há-
kon Waage.
Siöasta þætti lauk þar sem
Andrée og félagar hans,
Frænkel og Strindberg, leggja
af stað i loftbelg frá Daney á
Svalbarða. Akvörðunarstað-
ur: Norðurheimskautið. 1 3.
þætti segir frá loftsiglingunni,
sem gengur ekki alltof vel, og
er það ekki að undra þar sem
stjórntaugarnar slitnuðu allar
i upphafi ferðarinnar. Samt
gera leiðangursmenn ýmsar
athuganir, en óheppnin er með
þeim og stöðugt sigur á ógæfu-
hliðina.
Breski
aðallinn
enn á ný
Þeir sem enn sakna Hús-
bænda og hjúa geta nú tekiö
gleöi sfna á ný: Þaö er kominn
annar framhaldsmyndaflokk-
ur um breskt aðalsfólk og
þjónustuliö þeirra. Aldrei fór
þaö svo, osfrv.
Sjónvarp
Sunnudag
1 Hertogastræti heitir þessi
nýi flokkur, og byrjaði á
sunnudaginn var. Þátturinn
annað kvöld heitir ,,Að heiðra
og hlýða”. Sagan gerist um
aldamótin siðusti, i húsi Henry
Nortons lávarðar, sem hefur
það sér til ágætis að vera i
fyrsta lagi auðugur pipar-
sveinn, og i öðru lagi vinur
prinsins af Wales. Stúlkukind
nokkur, Lovisa að nafni, nýtur
þess heiðurs að vera aðstoðar-
Hann er svosem ekkert slor,
hann Norton lávaröur, eöa
hvaö finnst ykkur?
matselja i húsi þessa mektar-
manns. 1 fyrsta þættinum
gerðist það helst að prinsinn af
Waies uppgötvaði matreiðslu-
hæfileika Lovisu og þakkaði
fyrir sig.
-ih
frá
Sendibréf
að austan
Uhnar Brynjarsson á Hræ-
rekslæk I Hróarstungu sendi
okkur bréf um daginn. Þaö hefst
á vangaveltum um stjórnar-
myndun, sem ekki var afstaðin
þegar Unnar byrjaöi aö skrifa
bréfiö:
— Alþýðubandalagið verður
að vera með, segja hinir
flokkarnir/ svo unnt reynist að
halda friðinn við verkalýðs-
hreyfinguna. En er það hlutverk
Abl.að fara i samsteypustjórn til
aö lappa uppá auðvaldsappa-
ratið? Eða snúast meö
skopparakringlupólitik Fram-
sóknar?
Ef rikisstjórn þarf aö láta
framkvæma harkalegar að-
geröir, þá skiptir þaö miklu
málihvort Abl., sem er iraun og
veru ekkert annað en samtök
launafólks, er I rikisstjórninni
eöa ekki. Ef Abl. er utan stjórn-
ar við slikar aðstæður trúir fólk
þvi einfaldlega ekki að þurfi
svona haröar aðgerðir, en sé
það innan stjórnar er mun auö-
veldara aö telja þvi trú um að
svona verði að gera. Hinir verða
alltaf grunaðir um græsku
vegna oftrúar sinnar á auð-
valdskerfið, jafnvel þótt sé um
sambærilegar aðgerðir að ræða
i báðum tilfellum.
Hægriflokkarnir þrir, ihald,
framsóknarihald og alþýöu-
flokkurinn með öfugmælanafn-
iö, þora ekki að mynda stjórn
saman. Sennilega af hræðslu við
atkvæðatap i næstu kosningum,
sem óhjákvæmilega hlýtur aö
verða, hvað sem þeir gera.
1 kosningunum 1978 virtist
þróunin ætla aö ganga i hag-
stæða átt, a.m.k. fyrir Alþýðu-
bandalagiö. Hlutföllin að liða
inn á normalar brautir. En svo
tapaöi Abl. I kosningunum 1979,
og þá kom upp pattstaða i
pólitikinni. Ekki er óliklegt aö
ætla að sumum hafi fundist Abl.
átt að vera utan stjórnar siðast,
og tapiö sé til komið að ein-
hverju leyti þess vegna. Slikur
flokkur hlýtur aö vera eðli sihu
samkvæmt stjórnarandstöðu-
flokkur, vegna sérstöðu sinnar.
Annars yröi hann aö fá verulega
mikiö meira fylgi en verið hefur
áöur. Ábyrgðarleysi til málefna
og misnotkun á verkalýðshreyf-
ingunni, segja andstæðingarnir.
Getur þetta staðist? Eru félögin
innan verkalýðshreyfingarinn-
ar ekki frjáls, eða hvaö?
Abyrgðarleysið sem talað er
um, er það ekki til komiö vegna
vantrúar Abl. á þjóðfélagskerfið
einsog þaö er núna? En þaö
hlýtur alltaf aö vera álitamál
hvort sé betra fyrir Abl. að vera
i stjórn og ná að mjaka sinum
hugsjónamálum aðeins framá-
við, eða berjast utan stjórnar
fyrir áliti fólksins gegn ihalds-
öflunum.
Þó er það ekki mitt að segja til
um það, hvað Abl. á að gera. Ég
er ekki einusinni flokksbundinn,
þótt ég fylgi þvi aö málum.
Nú er ég búinn að vera svo
lengi að skrifa þetta bréf, að nú
er Gunnar Thoroddsen búinn aö
mynda stjórn með þátttöku Abl.
Það var gott að hann varð ekki
forseti, á sinum tlma, þvi þá
væri vafalaust stjórnarkreppa
ennþá. En ef hann byði sig fram
sem forseta núna og fengi ein-
hvern annan til að veita stjórn-
inni forstööu, þá hugsa ég að
hann mundi sigra hina fram-
bjóðendurna vegna þess álits
sem hann er búinn að ávinna sér
núna slöustu dagana.
Þótt Gunnar Thoroddsen sé
ekki sósialisti, þá held ég að
mikill hluti alþýðubandalags-
manna hljóti að fagna þessari
lausn mála, þvl ekki er hægt að
Hringið í síma 8 13 33 kl. 9-5 alla virka
daga eða skrifið Þjóðviljanum
Síðumúla 6, 105 Reykjavík
lesendum
Megas myndi taka sig vel út sem forseti, segir bréfritari.
sjá aö annaö betra heföi orðiö að
veruleika meö stjórn landsins.
En úr þvl ég minntist á þaö að
likur væru á þvi aö Gunnari
Thoroddsenn myndi ganga vel,
byöi hann sig fram núna, vil ég
taka fram að ég hringdi I Dag-
blaðiö um daginn og stakk upp á
forsetaefni, nefnilega Megasi.
Nú veit ég ekki hvort sá
maður myndi vilja gefa kost á
sér, þó eftir væri leitaö. Svo er
verið að segja að forsetaefni
verði að vera orðinn 35 ára.
Ekki veit ég hvað Megas er
gamall, en mér finnst hægt að
gera undantekningu með hann,
ef hann er yngri en 35.
Nú skal ég reyna að gera
grein fyrir hvers vegna ég mælti
með Megasi. Ég er viss um að
hann er I hávegum hafður
meðal margs yngra fólks vegna
tónlistar sinnar. En þó er hún
ekki aðalatriöið, heldur texta-
smlð hans. Þar leggur hann
margt gott til þjóðfélagsum-
ræðu, og er sýnilega nokkuð vel
að sér um Islendingasögur og
mannkynssögur yfirleitt, svo
það hlýtur að mæla með honum
I embættið.
Ég hef fengið að heyra ými's-
legt útaf þessu simtali, sem ég
átti við þá á Dagblaöinu og
mælti með Megasi. Og jafnvel
kallaöur asni og álika virðuleg-
um nöfnum, fyrir að láta mér
detta sllkt i hug. Sennilega hefur
það verið vegna þess að við-
mælendur minir hafa veriö
stuöningsmenn annarra fram-
bjóðenda, og taliö þá I hættu ef
Megas byði sig fram.
En gaman væri að vita um álit
fólks á þessari uppástungu.
Allavega mundi Megas taka sig
vel út sem forseti þegar hann
smælar framani þjóðina, einsog
þegar hann smælar framanl
heiminn, en sllkar vangaveltur
koma fram i texta hans. Sumir
hafa haldið þvl fram að þetta
hafi veriöeitthvert djók hjá mér
að mæla með Megasi. En ég tek
það fram að svo er alls ekki.
En svo ég minnist aðeins á
rikisstjórnina aftur, þá þykir
mér liklegt að það eigi eftir að
koma fram gagnrýni á hana frá
sóslalistum, eölilega vegna
þeirrar málamiölunar sem
óneitanlega má sjá I málefna-
samningnum. T.d. skilst mér I
sambandi við hermáliö, að
reynt sé að friða herstöðvaand-
stæðinga með þvi að hefja at-
vinnuuppbyggingu á Suðurnesj-
um til meiri vegs. Þannig aö
hægt sé með þvi móti að láta
herinn fara, þegar fólk er ekki
tilneytt að vinna hjá honum,
þegar um aðra atvinnu veröur
aö ræða. En ekki er vlst að her-
stöðvaandstæöingar séu
ánægðir með ágæti þeirrar ráð-
stöfunar. Þeim finnst kannski
að þetta geti jafnvel orðið sein-
virkt markmið.
Læt ég hér staðar numið að
sinni. Mest af þessu er skrifað 9.
febrúar. Unnar Brynjarsson,
Hrærekslæk,
Hróarstungu, N-Múlasýslu.
Enn um Höfðabakkann
1 fimm ár hefur undiirituö bú-
ið við Vesturberg I neðstu húsa-
röð fyrir ofan brekkuna, þar
sem fyrirhugaö er að
leggja Höfðabakkann. Að visu
erég flutt þaöan núna, en ég get
ekki látiö hjá liða að segja frá
þvi fjölbreytta lifi sem á sér
stað I brekkunni. Fyrir utan all-
an þann fjölbreytta gróður, sem
þar er, ef grannt er skoðað, er
þessi brekka leiksvæði barn-
anna bæði I efra og neðra Breið-
holti.
Þau byggja sér kofa og fara
I búleiki, berjamó á haustin,og
yfirleitt er brekkan hið besta
leiksvæði sem völ er á. Góð
sleðabrekka þegar snjór er og á
sumrin gróöursæl meö afbrigö-
um. Margan blómvöndinn fékk
ég að minnsta kosti úr brekk-
unni frá minum börnum. Siðan
byggö hófst‘1 Breiðholti hefur
veriö mikið rætt um ómann
eskjulegt umhverfi þar (hvað
sem þaðnú þýöir), og hef ég oft-
sinnis lent I stælum viö fólk, sem
hefur fordóma gagnvart þessu
hverfi, og þá gjarnan notað þau
rök máli minu til stuönings að
opnu svæðin þar I kring og
brekkan margnefnda bjóði upp
á óteljandi möguleika til útivist-
ar bæði fyrir börn og fullorðna,
sem önnur borgarhverfi hafa
ekki. Geri ég það hér með að til
lögu minni að I stað þess aö
leggja hraðbrautina þarna verði
ofanbyggðarvegurinn lagður og
unglingar I Breiðholti fái það
verkefni I sumar að leggja
göngustiga um brekkuna, sem
tengist útivistarsvæðinu viö
Elliðaárnar, þannig að hægt
væri aö ganga með kerrur,
barnavagna eða hjóla og ganga
þarna I óspilltu gróðurlendinu.
Sigriöur