Þjóðviljinn - 16.02.1980, Side 16

Þjóðviljinn - 16.02.1980, Side 16
MOÐVIUINN Laugardagur 16. febrúar 1980. Aðalsími Þjóðviljans er 81333 kl. 9 — 20 mánudaga til föstudaga, kl. 9 — 12 f.h. og 17 — 19 e.h. á laugardögum. Utan þess tima er hægt að ná i blaðamenn og aðra starfs- menn blaösins i þessum simum: Ritstjórn él382, 81257 og 81285, afgreiðsla 81527 og Blaðaprent 81348. VI81333 Kyöldslml er 81348 Innflutningsgjald af bensíni: Endur- greiðslur felldar niður Kemur hart niður á bændum og vélabátaeigendum A þessu ári munu falla niöur endurgreiðslur vegna bensins sem notað er á dráttarvélar i bú- rekstri og vélbáta til fiskiveiöa, þar sem rikisstjórn Alþýðuflokks- ins nam úr gildi reglugerö um þessar endurgreiðslur hinn 28. desember sl. Ýmsir eru að vonum óhressir yfir þessari ákvöröun fyrrverandi stjórnvalda og þvi hefur stjórn Bunaðarfélags Islands ákveðið að leggja málið fyrir Búnaðarþing það, sem nú er nýhafiö. Gunnlaugur M Sigmundsson hjá ,íjármálaráðuneytinu kvað ekki auðgert að sjá i fljótu bragði hversu hárri upphæö endur- greiðslurnar hefðu numið t.d. sl. ár, en hins vegar færi ört fækk- andi þeim dráttarvélum, sem gengju fyrir bensini. Þó munu þær vera allmargar i notkun enn. Hitt stingur kannski ofurlitið i augu aö erlendir sendiráösmenn hér fá endurgreiðslu á innfiutn- ingsgjöldum af bensini, og er ekki auövegt að sjá ástæðu til þess að þeir skuli njóta þessara friðinda umfram þá lslenska bændur og fiskimenn, sem enn búa við ben- sinvélar. — mhg Skoða uiigverskii vagnana 1 næstu viku mun þriggja manna sendinefnd frá Reykja- vikurborg skoöa ungversku IKARUS-strætisvagnana sem skv. tilboöum eru þeir ódýrustu sem völ er á. Þeir sem fara utan eru Egill Skúli Ingibergsson, borgarstjóri, Jan Jansen yfirverkstjóri SVR og ögmundur Einarsson forstöðu- maður Vélamiðstöðvar borgar- innar. Einnig mun Karl Arnason forstj. Strætisvagna Kópavogs slást I förina. A fundi stjórnar SVR i gær voru tilboðin 11 sem bárust kynnt, en engar ákvarðanir teknar. Til tals haföi komið aö fulltrúar úr stjórn- inni færu utan en sökum ónógs fyrirvara gat ekki af þvi orðið, en sendinefndin heldur utan i dag. — AI 10 þúsund manna ibúðarhverfi myndi rúmast á núverandi flugvallarstæöi og er uppbygging þess mun ódýrari en uppbygging á landi Úlfarsfeils eöa annars staðar,utan borgarmarkanna. Ljósm. — gel. Verður Reykjavíkurflugvöllur loks lagður rtiður? Rís nýr innanlandsflug- í Kapelluhrauni? völlur Þróunarstofnun Reykjavíkur er andvig þvi aösamþykkt verði nýtt skipulag að Reykjavíkurflugvelli og Ieyfð mannvirkjagerð þar sem festa muni flugvöllinn f sessi á núverandi stað. Hefur stofnunin lagt til að stefnt verði að af- lagningu Reykjavikurflugvallar hið fyrsta og að sérhæfðum aðil- um verði strax falið aö gera ná- kvæma og endanlega könnun á byggingu innanlandsflugvallar. 1 niðurstöðum skýrslu, sem Þróunarstofnun hefur unnið um flugvöllinn segir, að umhverfisleg áhrif flugvallarins i hjarta borg- arinnar séu mjög neikvæð, auk þess sem ibúum Reykjavikur stafi alltaf nokkur hætta af flug- Kapelluhrauni rétt við Alveriö. velli inni i miðri borg. Hávaða- mengun sé nú þegar mjög mikil i sumum borgarhverfum vegna flugvallarins og litlar likur á að hún muni minnka. Hins vegar myndi hún aukast ef teknar verða upp þotur i innanlandsflugi. I skýrslunni kemur fram, að bæjarstjórn Reykjavikur mót- mælti harðlega, þegar Bretar byggðu flugvöllinnn á núverandi stað i striöinu og taldi að bæjar- búum stafaði stórhætta af honum svo nálægt byggðinni. Þegar flug- völlurinn var afhentur Islending- um að striöinu loknu hófust strax deilur um hvort byggja ætti nýjan á öðrum staö eða hafa hann þar sem hann var kominn. Samgöng- ur á landi voru þá erfiðari en nú og þótti mönnum eðlilega þægi- legt að hafa flugvöllinn svo ná- lægt sér. Deilur um flugvöllinn hljóðnuðu nokkuö þegar milli- landaflugið var flutt til Keflavik- urflugvallar áriö 1957 en á sjötta áratugnum voru athugaðir nokkrir möguleikar á flutningi flugvallarins úr miðborg Reykja- vikur. Komu þá þrir kostir helst til á- lita, Alftanes, sem ráðherra kvað uppúr með að ekki kæmi til greina, Kapelluhraun og Garða- hraun norðan Hafnarfjarðar. Vegna vaxandi byggöar i nálægð Garðahrauns þykir flutningur þangað ekki raunhæfur möguleiki svo eftir stendur Kapelluhraunið eitt, auk Keflavikurflugvallar, sem flestum finnst æði langt i burtu frá höfuðborgarsvæðinu. Um fleiri flugvallarstæði viröist ekki vera að ræða á þessu svæði, þar sem m.a. hæð yfir sjávarmáli er ráðandi atriði i vali flugvallar- stæða. 1 skýrslunni kemur fram að uppbygging flugvallar i Kapellu- hrauni myndi taka um 5 ár. Myndi hann ekki valda teljandi hávaðatruflun i byggð né hefta byggðaþróun um fyrirsjáanlega framtið ef hann væri takmarkað- ur við innanlandsflug. Fyrstu veöurfræðilegar athuganir benda til þess að nýting flugvallar i Kapelluhraúni myndi verða 4- 11% minni en nýting núverandi flugvallar, en forsendur þeirra Framhald á bls. 13 Verkalýðsfélögin á Akranesi: Ráðstefim um hottustu- hætti á vinnustöðum Aðbúnaður i Sementsverksmiðjunni hefur ýtt á að slik ráðstefna sé haldin, segir Herdis Óskarsdóttir t dag, laugardag milli kl. 14.00 og 18.00 verður haldin i Rein á Akranesi ráðstefna um holl- ustuhætti á vinnustöðum þ.e. vinnustaði og atvinnusjúkdóma. Það eru öll verkalýðsfélögin á Akranesisem gangast fyrir ráð- stefnunni. Herdis ólafsdóttir hjá Verka- lýðsfélagi Akraness sagði I samtali við Þjóðviljann I gær, að það væri ætlun verkalýðs- félaganna á Akranesi að gang- ast fyrir fundaröð á næstunni, en ástæðan fyrir þvi að byrjað væri á þessu málefni væri sú, að Sementsverksmiðjan ,og aðbú- aður manna þar eftir að farið hefði verið að blanda kisilryki i sementið, hefði verið mjög i brennidepli að undanförnu. A ráðstefnunni i dag, mun Sigrún Clausen ræða um baráttuna fyrir bættum vinnu- aðstæöum, Helgi Guðbergsson læknir mun ræða um vinnuum- hverfi og atvinnusjúkdóma, Haraldur Halsvik ráðunautur hjá Heilbrigðiseftirliti rikisins mun svo flytja erindi. Þá mun Hrafn Friðriksson læknir, for- stöðumaður verða gestur ráð- stefunnar og svara fyrirspurn- um og Guðjón Jónsson formað- ur Sambands málm- og skipa- smiða mun ræða um löggjöf um aðbúnað og hollustuhætti á vinnustöðum. Herdis sagðist vonast til að sem flestir mættu á ráðstefnuna til að fræöast um þessi mikils- veröu mál vinnandi manna. S.dór BÍLASÝNING Sýnum laugardag og sunnudag frá kl. 1—6 Komið og skoðið hina vinsælu og sparneytnu Renault bíla íhúsakynnum okkar að Suðurlándsbraut 20 KRISTINN GUÐNASON Hl. SUÐURLANDSBRAUT 20. SÍMI 86633

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.