Þjóðviljinn - 26.02.1980, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 26.02.1980, Blaðsíða 16
DWÐVIUINN Þriðjudagur 26. febrúar 1980 Lopapeysuprjón: Aöalsími Þjóðviljans er 81333 kl. 9 — 20 mánudaga til föstudaga, kl. 9 — 12 f.h. og 17 — 19 e.h. á laugardögum. Utan þess tima er hægt að ná i blaðamenn og aðra starfs- menn blaösins i þessum simum: Ritstjórn 81382, 81257 og 81285, afgreiðsla 81527 og Blaðaprent 81348. 81333 Kvöldsími er 81348 Tímakaupið 584 krónur! Konur sem sitja heima og prjóna lopapeysur hafa að meöal- tali 584 krónur á timann i kaup er niðurstaða könnunar sem nefndin „Endurhæfing til starfs” á veg- um Samtaka kvenna á frama- braut gerði nýlega. Það er lægsta timakaup sem viö höfum heyrt af til þessa segir nefndin I greinar- gerð sinni. Nefndin kannaði laun og kostn- að kvenna sem vinna heima við að prjdna lopapeysur, sokka og vettlingá og var könnunin gerð á timabilinu 1. okt. 1979—19. jan. Slys um borð í Saxhamri Margir bátar lentu i miklum erfiöleikum á Breiöafirði I veðurofsanum I gær. Þeirra á meðal var Sax- hamar SH 50 frá Rifi en hann er 125 lesta stálbátur. Saxhamar fékk á sig brot og laskaöist all-mikiö, og slas- aðist einn skipverja, mun meöal annars hafa fót- brotnað. Stjórntækin á Saxhamri fóru Ur sambandi og kallaði hann á aðstoð. Varðskip sem var nærri fór til aðstoöar en þegar það kom á vettvang hafði tekist að koma stýri skipsins I lag og komst það siöan af eigin rammleik til hafnar. —S.dór 1980. Hún náði til 12 kvenna. en þaraf voru fáeinar sem hafa þetta sem tómstundaiðju, þannig að marktækar voru taldar tölur 10 kvenna sem einungis prjóna lopa- peysur. Könnunin var gerð utan Reykjavikur, á stööum þar sem litið annað en frystihúsin standa konum til boöa sem vinnustaöir, en konurnar 10 uröu að afla pen- inga, til heimilisins til að endar næöu saman. Tölur eru byggöar á upphæð, sem konurnar fá frá kaupanda að frádregnum kostnaði á lopa, sem þær kaupa frá sama fyrirtæki. Ekki er innifalinn tími eða kostn- aöur sem konurnar leggja fram viö þvottaefni, þvott og pressun á peysunum. Peysur voru viktaðar hjá flestum konunum. Lægsta verð sem borgað var fyrir heila peysu af medium stærö var kr. 8.300 og kr. 8.350 fyrir samskonar peysu með rennilás. Þar lagði kaupandi sjálfur til rennilásinn, en það tekur 1 klukkutlma að hekla 2 jaðra og sauma rennilásinn á peysuna, svo pjónakonan fær aukalega 50 kr. fyrir þennan klukkutlma. Meðalverö, sem borgaö var fyrir heilapeysu af medium stærð var kr. 8.900 en kr. 9.300 fyrir peysu með rennilás. Þar lagði kaupandi ekki til rennilás svo prjónakonan fékk 400 kr. meira fyrir rennilásapeysuna — en, rennilásar kosta frá kr. 780 til 1.000 kr. út úr búð. Pjónakónan tapar algjörlega klukkutlmanum sem fer I að hekla og festa renni- lásinn á peysuna. Athugað var söluverð á Iopa- peysum hjá þrem fyrirtækjum, sem selja þessar peysur á almennum markaði og var veröiö frá kr. 15.400 upp I kr. 20.000 hver. Þanníg var Selsvörin yfir að llta um hádegisbilið I gær. Kröpp lœgð gekk yfir landið: -Ljósm.: —gel— Banaslys á Hátfdám er bíll fauk útaf veginum Óhemju vedurhæd, þrumur og eldingar. Víöa skemmdir 1 fárviðrinu sem gekk yfir Vest- firði i gær fauk flutningablll útaf veginum yfir Háifdán og lést far- þegi i bilnum, en ökumann sakaði litið. Viða fuku bilar og lögreglan átti fullt i fangi með að hemja lausa hluti sem voru á ferð og flugi, en ekki urðu meiri háttar slys á fólki annarsstaðar. Kröpp lægð gekk yfir landiö I Vinnuverndanika bygg- ingamanna hófst í gær „Vinnuumhverfi er hluti af llfs- kjörum fólks. t vinnuverndarvik- unni reynum við að vekja. athygli á þvl hvernig ástandið er og hvað þarf að gera til þess að bæta úr,” sagöi Tryggvi Þór Aðalsteinsson fræöslufulltrúi MFA á fundi með fréttamönnum I gær. Vinnu- verndarvikan, sem Fræöslumiö- stöð Sambands byggingamanna gengst fyrir, hófst I gær og stendur út þessa viku. 1 vinnuverndarvikunni verður vakin athygli á þörfinni á bættum aðbúnaði og auknu öryggi á vinnustöðum. Alla þessa vikur verða vinnu- staða- og félagsfundir, þar sem spjallað veröur um þessi mál og sýndar myndir. Auk þess veröur fjallað um vinnuvernd I útvarpi, sjónvarpi og blööum. Hugtakiö vinnuvernd nær yfir allt, sem gerter til aö fyrirbyggja vinnuslys, eiturverkanir eöa llk- amsslit, og er til verndar öryggi og velferö verkafólks. Vinnu- vernd er þvl meðvituð viðleitni til að gæta fyllsta öryggis á vinnu- stað og tryggja aðbúnað og vel- llöan verkafólksins. Aöilar að Fræöslumiðstöð Sambands byggingamanna eru Múrarafélag Reykjavlkur, Sveinafélag húsgagnasmiöa, Tré- smiöafélag Reykjavlkur, Tré- smiðafélag Akureyrar og allflest félög og deildir byggingariðn- aðarmanna úti á landi. 1 vinnu- staöafundunum taka einnig þátt Múrarafélag Reykjavlkur, Verka mannafélagiö Dagsbrún og leitaö hefur veriö til Iðju, félags verk- smiöjufólks. — eös gærmorgun, fór ört dýpkandi og fylgdi henni mikil veðurhæð og þrumur og eldingar um vestan- vert landið. Veðurhæöin var 9—10 vindstig, en komst I 12—13 vind- stig I hviðunum. Flug lá að mestu leyti niðri, þó var flogið til Akur- eyrar snemma morguns, en þaöan komst vélin ekki aftur suð- ur. Ekki er unnt að skýra frá nafni mannsins sem fórst er hlaðinn flutningabfll fauk útaf veginum yfir Hálfdán. Slysiö varð um þrjúleytið I gærdag og var svo hvasst á veginum, sem liggur milli Tálknafjarðar og Blldudals, að björgunarsvéitarmenn, sem komu á slysstað, uröu að skrlöa til að komast að bllnum og mönn- unum tveim, sem I honum voru. ökumaöurinn slapp lítt meiddur. Snemma I gærmorgun fauk bfll út af veginum á Hellisheiði og valt um koll og seinna fauk annar á Sandskeiði út af veginum og voru ökumaöur og farþegi fluttir á slysadeild en munu ekki hafa veriö alvarlega slasaðir. A bila- stæöi við Engjahjalla I Kópavogi fauk kyrrstæöur Datsunbill um koll og fór heila veltu þannig að hann kom niður á hjólin aftur en var töluvert mikið skemmdur. Enginn var I bilnum. Þá fuku tveir bllar út af veginum skammt frá Akranesi og einnig blll á öákjuhliðarveginum milli lsafjaröar og Bolungarvlkur. Einnig fuku bilar inni I Skutuls- firöi en engin alvarleg slys urðu á mönnum. A Bjargarstlg 2 I Reykjavik fauk skorsteinn af húsi og skemmdi bll sem stóð undi^og við Engjahjalla I Kópavogi fuku steypumót og varð að loka vegin- um frá Alflíólsvegi og niður I Engjahjallann um hrlð meðan hættuástand skapaöist þar. Þá munu járnplötur víða hafa verið á ferðinni og skúrar fuku um koll t.d. á ísafirði. Lögreglan hafði þvl nóg að gera I gær m.a. við að aöstoöa skóla- börn sem voru á ferli en sums staðar var gripiö til þess ráðs aö loka skólum eða gefa foreldrum I sjálfsvaldhvort þeir sendu börnin I skóla eða ekki. Þrumur og eldingar fylgdu óveðrinu m.a. I Reykjavlk og Vestmannaeyjum. Elding. fór I slmallnu milli Hvolsvallar og Selfoss og varð sambandslaust þar á milli. Einnig skemmdist loftnet við Kothraun og var erfitt að ná slmasambandi við Snæ- fellsnes af þeim orsökum. — GFr/vh Hart deilt um ráðningu starfsmanna í bæjarstjórn Kópavogs Pólitískar ofsóknir á hendur umsækjanda Eins og skýrt var frá I Þjóðvilj- anum sl. föstudag standa nú yfir harðar deilur innan meiri- hlutans ibæjarstjórn Kópavogs út af ráðningu I stöðu deildarverk- fræðings við Tæknideild bæjarins. Óskað eftir umsögn 1 samtali við Þjóðviljann I gær staöfesti Egill Skúli Ingi- bergsson formaöur Verk- fræðingafélags Islands frétt þess efnis að óskað hefðí verið umsagnar félagsins um með- ferö á umsókn Guðmundar Magnússonar um starf deildarverkfræöings hjá Kópavogskaupstað. Kvaðst hann hafa boðað stjórnarfund I félaginu I kvöld og yrði þar fjallaö um mál þetta. — v. A bæjarstjórnarfundi sl. föstudag var tíllaga Richards Björgvins- sonar fhaldsfulltrúa um að fresta ráðningu I umrætt starf felld með 6 atkvæðum gegn 5. Klofnaöi þar með meirihlutinn út af máli þessu og skipuðu bæjarfulltrúar Framsóknar, Jóhann H. Jónsson og Jón Sigurðsson, sér I sveit með fulltrúum Sjáifstæðisflokksins i bæjarstjórn. Aðdragandi máls þessa var ýtarlega rakinn I Þjóðviljanum á föstudaginn var og skal nú greint frá umræðum á bæjarstjórnar- fundinum þar sem tillaga þessi var leidd til lykta A fundi þessum, sem stóð frameftir kvöldi, urðu allsnarpar umræöur. Kvaddi sér hljóðs Björn ólafsson formaður bæjar- ráðsog rakti gang málsins frá þvl skipurit tæknideildar var samþykkt I nóvember sl. Hrakti hann lið fyrir liö „röksemdir” Jóhanns H. Jónssonar foringja framsóknarmanna gegn ráðningu I stöðuna. Mergurinn málsins væri auðvitað sá að samblástur væri gegn Guömyndi Magnússyni vegna þess að hann væri yfir- lý'stur sóslalisti, enda heföu engin rök á faglegum grundvelli komiö gegn honum.Væri þvl nú svo kom- ið aöeinstakir meirihlutamenn heföu brugðið fæti fyrir eðlilega uppbyggingu deilda bæjarins og nytu að sjálfsögðu til þess góös stuðnings ihaldsins I bæjarstjórn Kópavogs. Efling tæknideildar- innar þýddi einfaldlega aö minna fé þyrfti að verja til aðkeyptrar hönnunar og að spara mætti miljónatugi meö þvl að láta tæknideild bæjarins sinna sem flestum verkefnum. Lagði Björn þunga áherslu á að hér væri um grófar atvinnuofsóknir aö ræða og mjög hæfur verkfræðingur lát- inn gjalda stjórnmálaskoöana sinna. Ásmundur Ásmundsson bæjar- fulltrúi minnti á að tillaga um frestun á ráðningu I umrætt starf kæmi upp eftir ýtarlegar umræöur allra þerra aðila sem Framhald á bls. 13

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.