Þjóðviljinn - 06.03.1980, Qupperneq 16
DIOÐVIUINN
Fimmtudagur 6. mars 1980
Aðalsimi Þjóðviljans er 81333 kl. 9 — 20 mánudaga til
föstudaga, kl. 9 — 12 f.h. og 17 — 19 e.h. á laugardögum.
Utan þess tima er hægt að ná i blaðamenn og aðra starfs-
menn blaðsins i þessum simum: Ritstjórn 81382, 81257 og
81285, afgreiðsla 81527 og, Blaðaprent 81348.
U| 81333
Kvöldsími
er 81348
0007
NAMSMENN HERVÆÐAST:
ÚTIFUNDUR
Kosningaskjálfti á blaöamannafundi
DAG
Þrjú námsmanna-
samtök boða til úti-
fundar á Amarhóli i dag
kl. 13.15 til að leggja
áherslu á kröfur náms-
manna i lánamálum. Á,
fundinum verða flutt
stutt ávörp og bomar
upp ályktanir, sem
afhentar verða forseta
Norðurlandaráðs sem
og mennta- og fjármála-
ráðherra. Samtökin sem
til fundarins boða eru
Stúdentaráð Háskóla
íslands, Samband
islenskra námsmanna
erlendis og Bandalag
islenskra sérskólanema.
Á blaðamannafundi sem
samtökin efndu til i gær
greindu þeir Þorgeir
Pálsson (SHl), Pétur
Reimarsson (SÍNE) og
Einar Birgir Steinþórs-
son (BISN) frá þvi að
eftirfarandi kröfur yrðu
settar fram á fundinum:
1. að við Uthlutun aöallána nil i
mars verði veitt 90% af lánsfjár-
þörf námsmanna,
2. aö allar tekjur námsmanna
dragist ekki frá reiknaðri fjár-
þörf,
3. aö fleiri bekkjardeildir fram-
haldsskóla fái aðild að Lána-
sjóðnum en nil er.
Fram kom á fundinum, aö fjár-
málaráðuneytiö gerir ráð fyrir að
85% af fjárþörf námsmanna verði
briluð nvlna viö vlthlutun f vor, en
að 90% brilun fjárþarfar komi til
framkvæmda við ilthlutun i
haust. Lánasjóöurinn mun þurfa
6.4 miljaröa til að geta staöið við
85% lána á þessu ári, en ef gengið
yröi aö öllum kröfum náms-
manna yröi talan um 7.4
miljaröar.
Það fór ekki fram hjá blaða-
mönnum á fundinum, aö kosn-
ingar til stUdentaráös eru i
Háskólanum i næstu viku, þvi að
fulltrUar ihaldsmanna i skólanum
ruddust inn á fundinn og kröföust
þess að fá aö taka til máls, og var
tilgangur þeirra að reyna aö yfir-
bjóða kröfur heildarsamtaka
námsmanna.
-þm.
I Friðfinnur ólafsson: Mogg-
* inn er ekki 1000 manna viröi. •
Bióin i
auglýsingastridi
viö Morgunblaðid:
! Fær tífalt !
meira en
önnur
dagblöð
I,,Þetta auglýsingastrið við
Moggann er bUið að standa i
30 ár að ég held. NU er svo,
. komið að hvert bló fyrir sig
Iþarf að fá yfir 1000 manns á
mánuði til þess að borga
Mogganum einum saman og
. við höldum að hann sé ekki
1 1000 manna viröi, Mogginn.
Við borgum þeim tlfalt á við
önnur dagblöð og vei það og
. okkur finnst engin skynsemi
II þessu.”
Þetta sagöi Friöfinnur
Ólafsson formaður Félags
. kvikmyndahUsa er Þjóðvilj-
Iinn ræddi stuttlega við hann i
gær. Engar bióauglýsingar
voru i Morgunblaöinu I gær
■ nema frá Gamla blói, sem
Isagði sig Ur Félagi kvik-
myndahUsa fyrir nokkrum
árum.
■ „Ætlið þiö að halda þessu
til streitu?”
I„AÖ sjálfsögðu. Við erum
bUnir að gera þeim mjög gott
tilboö, aö þvi er viö teljum,
, um aö borga þeim tvöfalt á
Ivið hin blöðin, — og við verð-
leggjum þá ekki hærra en
það.”
, Friöfinnur sagðist ekki
Ihafa trU á þvi að Morgun-
blaöið kæmist upp meö
þetta, þar sem auglýsingar
, kvikmyndahUsanna væru
fyrst og fremst þjónusta við
lesendur. „Morgunblaðið
J glennir til dæmis siðu eftir
I siðu fyrir sjónvarpið með
I dagskrá, myndum og um-
' sögnum. Svo kemur bara
J reikningur á hvert bió fyrir
I 5-600 þUsund á mánuði,”
I sagði Friöfinnur.
„Og það þýöir ekkert að
Ivera aö tala um Utbreiðslu
Moggans Uti á lándi við okk-
ur — við höfum ekkert meö
. þaö aö gera hér,” sagöi hann ,
I að lokum. -eös |
að
i mörg ár hafa smábáta-
eigendur i Reykjavik kvartað
sáran yfir aðstöðuleysinu I
vesturhiuta Reykjavlkurhafn-
ar, þar sem þeir hafa sitt at-
hafnasvæði. Vesturhöfnin er
fyrir iöngu orðin of litil, og nú er
búið að þrengja enn meira að
þeim með uppfyllingu þeirri,
sem Slippfélagið hefur látið
gera og fyrirhugað er aö viö
komi bryggja, sem veitir aö-
stöðu til viögeröar á skipum.
— Við munum reyna að leysa
þetta með þvi aö koma upp flot-
bryggjum, bæði i vesturhöfninni
og eins við Ægisgarð. Við von-
umst til að þaö dugi eitthvað, en
okkur er fullkomlega ljóst hve
þröngt er um smábátana i höfn-
inni, sagði Gunnar B. Guð-
mundsson hafnarstjóri i
Reykjavik I samtali við Þjóð-
viljann.
Við inntum hann eftir þvi,
hvað liði sameiginlegri aðstöðu
til skipaviðgerða hjá Slippfélag-
inu og Stálsmiðjunni, en þessi
fyrirtæki standa hlið við hlið i
vesturhöfninni og kvarta bæöi
yfir aöstöðuleysinu. Gunnar
sagði, aö fullkomið ósamkomu-
lag rikti milli þessara fyrir-
tækja um hvað þau vildu að
þarna yröi gert. Nefndi hann
sem dæmi, að á siðasta fundi
hafnarstjórnar lágu fyrir bréf
frá báöum þessum aöilum, þar
sem nánast er fariö fram á af
báðum aðilum að taka svæöi
hins yfir.
Frá vesturhöfninni. Enn þrengist um triliurnar, en reynt verður að bjarga málunum með flotbryggjum.
Enn þrengist um smábátana í vesturhöfninni:
Reynt að leysa máliði
'með flotbryggjum
Ósamkomulag Slippfélagsins og Stálsmiðjunnar
um athafnasvœði til viðgerða veldur vandrœðum
Þar sem ljóst er, að til fram-
búðar er viögerðarsvæðið þarna
óviðunandi, inntum viö Gunnar
eftir hvað til stæði i þessum efn-
um.
Sagði hann, að i áætluninni
um Sundahöfn væri gert ráð
fyrir fullkominni viðgerðaraö-
stöðu og væri ákveðið aö Lands-
smiðjan fengi þar aðstöðu til
viðgerða. Þar er gert ráð fyrir
skipalyftu á viðgerðarsvæðinu.
Sundahafnarmáliö hefur legið
niðri nú um hrið m.a. vegna
stjórnarkreppunnar, en nú er
ákveðið að taka upp viðræður
hafnarstjórnar og iönaðarráðu-
neytisins um fjármögnun fram-
kvæmda i Sundahöfn.
-S.dór
1
Sinfóniuhljómsveitin i kvöld:
Flautukonsert
fyrir Manúelu
Manúela Wiesler er einleikari
með Sinfónluhijómsveit islands I
kvöld og leikur flautukonsert eftir
Þorkel Sigurbjörnsson: Evridls
— konsert fyrir Manuelu og
hljómsveit.
Stjórnandi á tónleikunum er
Páll P. Pálsson og önnur verk á
dagskránni eru Sinfónia nr. 1 eftir
Lutoslavsky og LeynibrUðkaupiö
eftir Cimarosa.
Óþarfi er aö kynna þau Pál
Manuelu og Þorkel, svo mjög sem
þau hafa komiö viö sögu i Islensku
tónlistarlifi á undanförnum ár-
um. En um verk sitt segir Þor-
kell:
„Þessi konsert varð til fyrir
áeggjan Manuelu Wiesler og upp-
örvun Páls P. Pálssonar. Heitiö
bendir til þess, aö hér sé a^ ferð-
inni enn ein „Musica rappresent-
ativa” um alþekktu goösögnina
og að þessu sinni frá sjónarhóli
Evridisar. Ekki þarf aö rekja hér
kunnan soguþráðinn. Reynt er að
fylgja honum. Þar sem heimild-
um sleppir, er Manuela eiginlega
ein til frásagnar — og það gerir
hún oröalaust”.
Manuela Wiesler hefur undan-
farið haldiö tónleika i Vin,
London, Kaupmannahöfn, Stock-
hólmi og Osló og m .a. lagt áherslu
á aö kynna Islensk tónverk er-
lendis. HUn hefur gert upptökur
Manuela Wiesler — einleikarinn I kvöld.
fyrir Utvarpsstöðvar I Sviþjóð,
Noregi og Austurriki auk þess
sem hún hefur haldiö fjölmarga
tónleika hér heima, tekið upp
fyrir sjónvarp og Utvarp og leikið
inn á tvær plötur. A næstunni
veröur Manuela einleikari með
Filharmóniuhljómsveitunum i
Osló og Stokkhólmi.