Þjóðviljinn - 07.03.1980, Page 5
Föstudagur 7. mars 1980 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5
Umhvetfismálin
veröa efst á baugi
næsta áratuginn
Miklar pólitiskar sviptingar
hafa veriö i Svlþjóð á seinustu
árum. Borgaraflokkunum tókst
að hremma rikisvaldið úr
höndum sósialdemókrata og
þrfflokkastjórn hefur setið að
völdum með harmkvælum og
innbyröis deilum. Spurningin um
notkun kjarnorku i orkukerfi
Sviþjóðar er nú i brennidepli þar
og sú þjóðaratkvæðagreiðsla
klýfur þjóðina pólitiskt I heröar
niður og riðlar flokkaböndum. i
þessu pólitíska óvissuástandi
hafa flokkarnir til hægri og
vinstri fengið óvæntan byr og
sumir pólitfskir fréttaskýrendur
spá þvl að framundan sé söguleg
uppstokkun á sænska flokkakerf-
inu, sem einkennst hefur I hálfa
öld af sterkum jafnaðarmanna-
flokki, og smáflokkum til hægri
og vinstri við hann.
A þingi Norðurlandaráðs sem
stóð hér I vikunni voru meðal
annarra formaður og varafor-
maður Venstre partiet
kommunisterna I Svlþjóö, Lars
Werner og Eivor Marklund. Lars
Werner tók fyrir nokkrum árum
við formennsku I flokknum af
hinum vinsæla C.H. Hermanns-
son og við siðustu kosningar I Svi-
þjóð i haust þótti þessum unga
járniðnaðarmanni takast mjög
vel upp og er staða hans nú sterk
innan flokks sem og I almenn-
ingsáliti I Svíþjóð. Eivor Mark-
lund er af annarri árgerð en þessi
roskna kona er vinsæll varafor-
maður flokksins og fulltrúi á þingi
fyrir Norðlendinga i Sviþjóð, en
einmitt á þeim slóðum hafa
sósialistar átt I illdeilum og
„Moskvukommar” þar klufu sig
frá flokknum með málgagnið
Norrskensflamman sem var eina
dagblaö sænskra kommúnista.
Þessi klofningur hefur ekki orðið
VPK til trafala. Þvert á móti
hefur flokkurinn eflst mjög, ungt
fólk streymir inn I flokksstarfið
og I skoðanakönnunum fær
flokkurinn nú 7-12% eftir að hafa
verið lengi á 4-5% stiginu.
Grasrótapólitik
Werner sagði i samtalinu við
Þjóðviljann að ástæðurnar fyrir
þvi aö það blæs I seglin hjá VPK
um þessar mundir væru margar.
Mikilvægast væri þó aö flokknum
hefði tekist aö reka áróður fyrir
málum sem stæðu almenningi
næst hjarta og tengja þau við
hugmyndafræðilega baráttu
flokksins. Það sem snertir dag-
legt lif hins almenna manns og
VPK berst fyrir er til að mynda
veröstöðvun, afnám söluskatts á
matvöru (sem Alþýðubandalagiö
knúði I gegn I siöustu vinstri
stjórn), rétturinn til vinnu,
baráttan gegn gróðaöflunum á
húsnæöismarkaöinum, og fleira
sem snertir daglega lifsafkomu
fólks. Þessi barátta VPK hefur
orðið trúverðug I augum almenn-
ings i Sviþjóð og ýmis baráttumál
sem merkt eru VPK eru nú oröin
dagskrármálefni verkalýðsfélaga
og samtaka.
Hörö barátta
VPK hefur ásamt Miðflokknum
og umhverfisverndarsamtökum
sameinast um linu nr. 3 i sam-
bandi við þjóöaratkvæöagreiösl-
una um notkun kjarnorkunnar i
Sviþjóð. Þessi baráttusveit vill að
hætt verði við byggingu fleiri
kjarnorkuofna og stefnt að þvi aö
hætta notkun kjamorku I Svíþjóð á
Rætt við Lars
Werner og
Eivor Marklund
formann og
varaformann
Vánsterpartiet
kommunisterna
í Sviþjóö
tiu ára timabili. Enda þótt að svo
horfi nú að lina 1. og 2. sem
kratar, hægri flokkurinn og
þjóðarflokkurinn styðja sigri I
þjóðaratkvæðinu eru likur á þvi
að Nei-menn nái um 40%
atkvæöa. í kjölfar slikra úrslita
hljóta að koma upp ný pólitisk
vandamál i Sviþjóð, bæði innan
þriflokkastjórnarinnar sem er
illa klofin I málinu, og hjá
Jafnaðarmönnum, sem hafa gert
kjarnorkumálin aö flokkspóli-
tisku trúnaðarmáli.
Kratar í kreppu
1 samtalinu viö Eivor og Lars
kom fram að þau gera sér grein
fyrir þvi aö VPK nýtur nú góðs af
því „þverpólitiska” samstarfi
sem þaö á nú viö ýmis önnur öfl i
landinu. En þó bendir margt til
þess að VPK sé aö ná nýrri og
sterkari stöðu I Sviþjóð. Meöal
annars sú staðreynd að unga
fólkiðvelur frekar VPK heldur en
sósialdemókrata. Sænskir
jafnaðarmenn eru i hugmynda-
fræöilegri kreppu og ekki er lik-
legt að þeir nái aftur þeirri stöðu
að hafa nær helming atkvæða
sænskra kjósenda á bak við sig.
Það er meginregla innan VPK að
berjast ekki gegn sósialdemó-
krötum. VPK hefur aldrei fellt
verkalýðsst jórn i Sviþjóð og berst
fyrir þvi að I landinu sé
sósiaUskur meirihluti við völd.
Hinsvegar hafa sænskir kratar
hikað við að setja fram slika
kröfu að hafa sýnt mikla tilburði I
þá átt að taka upp formlega
stjórnarsamvinnu við sænsku
miðflokkana.
Rússagrýlan
Þegar innrás Sovétrikjanna i
Tékkóslóvakiu var á dagskrá 1968
beið VPK mikinn hnekki, en nu
þegar svipað mál kemur upp i
Afganistan virðist þaö ekki hafa
áhrif á afstöðu Svia til flokksins.
Eivor Marklund taldi aö i þessu
efni hefðu orðiö straumhvörf og
fólk skildi að VPK væri ekki útibú
frá Sovétrikjunum heldur flokkur
sem fengist við vandamál
almennings I Sviþjóð. Þá hefði
það sitt að segja að svokallaðir
„Moskvukommar” hefðu klofið
sig frá flokknum.
Aukin áhrif
Aðspuröur um áhrif VPK I
sænsku verkalýðshreyfingunni
sagði Lars Werner að I kosn-
ingum innan verkalýðsfélaganna
hefði VPK átt mjög auknu fylgi að
fagna á siðustu árum. Kynslóða-
skipti færu nú fram viða i verka-
lýösfélögum og i starfsmanna-
félögum og það sýndi sig aö viö
þau ykist hlutur VPK verulega.
Rannsóknarstofnun
í marxisma
Lars Werner sagði að VPK
héldi uppiskipulegu fræðslustarfi
sem einkum beindist aö þvi aö
uppfræða nýja félaga. Þvi miður
heföist ekki undan i þessu starfi
þvi straumur nýrra félaga er svo
striður aö erfitt væri að anna
eftirspurninni. í grunneiningum
flokksins er haldið uppi fræðslu-
starfsemi sem aðallega ungt fólk
sækist eftir en einnig eldri félagar
blanda sér I. Þá gefur flokkurinn
út blaöiö Socialistisk debatt, og
heldur reglulega námskeiö i
grundvallaratriðum marxis-
mans. Þá hefur fyrir tilstilli
flokksmanna verið stofnuð sjálf-
stæð stofnun til marxiskra rann-
sókna, „Centret för marxistiska
studier”. A vegum hennar hefur
verið efnt til umræðufunda,
námsstefna og Alþýðuháskóla
yfir sumartimann.
Sósialismi með
stórum staf
Lars Werner lagði mikla
áherslu á það að hin fræðilega
hliö baráttunnar mætti ekki vera
of iþyngjandi I daglegu starfi
sósialisks flokks. Það heföi háö
VPK á fyrri tið að flokkurinn
hefði lagt meiri áherslu á
SOSIALISMANN með stórum
staf heldur en dagleg viðfangsefni
og vandamál almennings. Hér
þyrfti þaö aö fara saman aö
flokkurinn glimdi við vandamál
dagsins en kynni aö setja þau I
samhengi við framtiðarmarkmið
og þróun þjóðfélags I áttina til
lýðræðislegs sósialisma.
Konur og sósialismi
Meðal baráttumála VPK 1 dag
eru eins og áður sagði krafan um
veröstöövun og krafan um aö
kreppa kapitalismans og verð-
bólgan verði ekki eingöngu látin
bitna á launafólki eins og
borgaralegir hagfræðingar og
borgarastjórnin er áfram um. Þá
er þaö ofarlega á dagskrá flokkg-
ins að berjast fyrir þvi aö hús-
næöismál I Sviþjóð séu tekin allt
öðrum tökum en nú, markaðsöflin
séu ekki látin spila meö hagsmuni
launafólks á þvl sviði, og hefur
flokknum orðið mjög vel ágengt
innan samtaka leigjenda i Svi-
þjóð. Þá eru dagheimilismálin
einnig mjög fyrirferðarmikil I
flokksstarfinu og einn flokka I
Svlþjóð hefur VPK gert sér
stefnuskrá i jafnréttismálum
kvenna. Bæði Eivor Marklund og
Lars Wemer eru sýnilega stolt
yfir þvi sem þau kalla „Kvinno-
politiskt program” og telja aö
konur séu aö verða áhrifarikar i
flokksstarfinu án þess að til hafi
komiö kvótakerfi eða annars-
konar timabundinn forgangur.
Um 32% virkra félaga I flokknum
eru konur og I trúnaðarstörfum
eru nú 25-30% konur innan flokks-
ins.
s
Obeinn árangur
Starf VPK á þingi er erfitt.
Flokkurinn hefur 20 af 150 þing-
mönnum og á ekki sæti I helstu
nefndum þingsins. Þessvegna
verða flokksmenn að taka mjög
virkan þátt i hinum almennu
umræöum. Eivor Marklund sagði
aö auðvitað væri árangurinn af
tillöguflutningi og röksemdum
VPKI þinginu littsýnilegur, en þó
geröist þaö að frumkvæöi VPK I
ýmsum málum gengi aftur i
breyttri mynd i tillögum annarra
flokka og með slikum áhrifum
næðist stundum árangur.
Umhverfismálin
efst á baugi
Að lokum var rætt við Werner
og Marklund um þau mál sem
setja myndu mestan svip á starf
flokksins á næsta áratug. Lars
Werner sagöi að I sinum huga
væri enginn efi á þvi að
umhverfismálin myndu þar bera
hæst. Fleiri og fleiri væru nú aö
vakna til meðvitundar um
umhverfi sitt og væru farnir að
spyrja, hverskonar þjóðfélag er
það sem við höfum byggt upp?
Var það þetta sem við vildum? -
spyr fólk. Segja mætti að
flokkurinn hafi tekið seint við sér
varðandi það að taka undir þessi
nýju viöhorf en nú mætti segja að
VPK hefði tekið vissa forystu á
þessu sviði og hefði gengið þar á
undan öðrum flokkum. Mikilvæg
viöhorfsbreyting ætti sér nú stað
meöal almennings til umhverfis-
mála 1 viðasta skilningi þess orös
og VPK hefði einsett sér að gerast
málsvari þessarar nýju vakn-
ingar. _ekh.
Skákfélagið Mjölnir
Unglingameistaramót Mjölnis hefst
laugardaginn 8. mars kl. 13.00 i Fellahelli.
Skákfélagið MIÖLNIR
Húsgagna- eða
húsasmiðir
vanir innréttingavinnu óskast til starfa.
GLUGGASMIÐJAN
Siðumúla 20.
UTBOÐ
Hampiðjan h.f. óskar eftir tilboðum i jarð-
vinnu vegna byggingar 1. áfanga verk-
smiðjuhúsa við Bildshöfða i Reykjavik.
Útboðsgögn verða afhent hjá Almennu
verkfræðistofunni h.f. Fellsmúla 26,
Reykjavik.frá og með föstudeginum 7.
mars gegn 30.000 kr. skilatryggingu.
Tilboðum skal skilað til almennu verk-
fræðistofunnar h.f. fyrir kl. 11.00 mánu-
daginn 17. mars n.k..
Hampiðjan.