Þjóðviljinn - 03.04.1980, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 03.04.1980, Blaðsíða 9
Fimmtudagur 3. aprll 1980 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 9. Framkvœmdasjóður öryrkja og þroskaheftra: þings|á ,/Meginefni málsins er það að í stað 450 miljóna króna (erfðaf járskattur meðtalinn) til öryrkja og þroskaheftra á f járlögum í fyrra er sambærileg tala í fjárlögum nú 1432 miljónir króna" sagði Helgi Seljan er Þjóðviljinn leitaði álits hans á þeim ummælum stjórnarandstæðinga að fjárlög ríkisstjórnarinnar feli í sér niðurskurð á framlögum til Framkvæmdasjóðs öryrkja og þroskaheftra en Helgi Seljan á sæti f fram- kvæmdastjórn sjóðsins. '„Til viöbótar þessum 1432 míljónum’,’ sagöi Helgi ennfrem- ur, „er um aö ræöa nokkra miljónatugi þar sem viöhald vist- Fjárlög afgreidd Fjárlög voru afgreidd frá Alþingi siödegis í gær. Viö þriöju og siöustu umræöu fjárlaga f gær voru allar breytingartillögur fjárveitingarnefndar i heild sem og breytingartillögur meirihluta fjárveitingarnefndar samþykkt- ar, en breytingartillögur ein- stakra þingmanna stjórnarand- stööunnar voru felldar, aö undan- skilinni tillögu frá Pétri Sigurös- syni þess efnis aö undanþiggja fé þaö skemmtanaskatti sem aflaö er til byggingar dvalar- og sjúkraheimila. Auk fjárlaga voru þrenn önnur lög afgreidd. Hér er um aö ræöa breytingar á lögum um sjúkra- tryggingargjald, landflutninga- sjóö og lífeyrissjóö sjómanna. Nánari grein veröur gerö fyrir þessum lögum eftir páska. —þm ------------\ Felixstowe alla mánudaga Weston Point annan hvern mióvikudag Hafðu samband EIMSKIP SÍMI 27100 heimila er tekiö inn i daggjöld þeirra sem færir töluna upp i nær 1500 miljónir króna.” Meö lögum nr. 47/1979 um aö- stoö viö þroskahefta var Fram- kvæmdasjóöur öryrkja og þroskaheftra.sem hér var nefnd- ui; stofnaöur. Helgi var beöinn aö rekja aödraganda þess máls. Gerbreytt afstaða til þroskaheftra „Þaö ber aö fagna gerbreyttri afstööu bæöi á Alþingi og meöal þjóöarinnar til þroskaheftra” sagöi Helgi. „Sú breyting er mikil á minum þingtima þó ekki sé hann langur. Ein fyrsta tillaga min á þingi var um vistheimili fyrir vangefna á Austurlandi og Vestfjöröum (meöflutningsmenn Karvel Pálmason og Vilhjálmur Hjálmarsson). Þessi tillaga mætti tregðu og fram kom frá- visun i fyrstu og þurfti tvö þing til að fá tillöguna samþykkta. Endurskoöun laga eöa ný lög um þroskahefta komu fyrst fram i tillögu frá mér ásamt þing- mönnum úr öllum flokkum, en þeirri tillögu var visað frá og þótti þarflaus. En meö áframhaldandi baráttu, sérstaklega Landssam- takanna Þroskahjálpar komst málið á hreyfingu og frumvarp sá dagsins ljós i fyrra. Lög um þroskahefta Ab áðurgreindu frumvarpi var mjög vel unnið af nefnd á vegum • ráðuneytis og Þroskahjálpar. Á þeim lögum sem þingiö sam- þykkti I fyrra er byggt I dag. í þeim lögum var ekki upphaflega gert ráö fyrir neinum sérsjóðum, heldur eölilegum fjárlagaveiting- um til þessara þarfa enda var lit- ið á þaö sem samfélagslega skyldu aö þroskaheftir heföu jafnrétti á viö aðra, einnig i fjár- framlögum. Um sama leyti var á feröinni frumvarp úm Fram- kvæmdasjóö öryrkja og þroska- heftra og á slðustu stundu var þessum frumvörpum steypt sam- an. Sambræösla þessara frum- varpa ruglaði nokkuö myndina. Sumt var sérmerkt úr sjóönum, annað algjörlega utan viö, m.a. vistheimilin, sem eru buröarás- inn I þessu i dag og uppbygging viöa um land að hefjast. Einnig gekk Framkvæmdasjóöurinn inn á sama sviö og erföafjársjóði er ætlað til byggingar endur-^ hæfingaraöstööu. Ég tel aö hér sé nauðsyn á samræmingu og breyt- ingu. Ohugsandi er að setja nýjan sjóö viö hliðina á Framkvæmda- Ný nefnd til að vinna að reykinga- vörnum Heilbrigðis- og trygginga- ráöherra hefur skipað 5 manna nefnd til að endurskoöa ráðstaf- anir til að draga úr tóbaksreyk- ingum með hliðsjón af reynslu undanfarinna ára. Nefnd þessi kemur i staö „Samstarfsnefndar um reykinga- varnir” meö þvi aö henni hefur einnig veriö falið að annast fram- kvæmd gildandi laga um þessi efni i samvinnu við ráðuneytið þar til annaö veröur ákveðiö. 1 nefndinni eiga sæti: Sigrún Stefánsdóttir, fréttamaöur, Þor- varöur örnólfsson, fram- kvæmdastjóri, Auöólfur Gunnarsson, læknir, Björn Bjarman rithöfundur og Ingimar Sigurösson deildarstjóri i heil- brigðisráðuneytinu, en hann er formaöur nefndarinnar. sjóði. Nógu erfitt er að halda þvi litla fjármagni inni, sérstaklega fyrir styrktarsjóð vangefinna. Það er jákvætt viö Fram- kvæmdasjóðinn aö hann er verö- tryggöur en þó er ekki séð fyrir nema hluta þeirra verkefna sem vinna þarf á grundvelli laganna. Sýndarmennska Alþýðu- flokks I fjárlagafrumvarpi Tómasar Arnasonar var gert ráö fyrir 20% verðtryggingu og 15% niöur- skuröi, en sá sami niöurskurður gekk yfir alla stofnlánasjóöi. Samkvæmt frumvarpinu var þvi gert ráð fyrir 1020 miljón króna framlagi til Framkvæmdasjóös öryrkja og þroskaheftra. Fjár- lagafrumvarp Alþýöuflokksins var með sömu tölu og sami rök- stuðningur var i báðum þessum frumvörpum aö visa verkefnum á sjóöinn án lagabreytinga. Frum- varp Alþýðuflokksins var einka- frumvarp þess flokks og þvi ljóst hvað þeir ætlubu sér i þessu efni. Engar sýndartillögur Alþýöu- flokksmanna nú, breyta þeirri staðreynd. I fjárlagafrumvarpi Ragnars Arnalds voru allir sjóöir skornir niður um 30% nema Fram- kvæmdasjóður öryrkja og þroskaheftra, og 1020 miljónir voru áfram i frumvarpinu. Siöan hefur ýmislegt gerst og er i deigl- unni, án þess að ég telji þaö full- nægjandi, en hér er um verulega viðleitni að ræða til úrbóta. Miklar framkvæmdir í ár Nú er tryggt aö á næsta ári verður full verðtrygging á sjóön- um milli ára. Þá hefur fjárveit- inganefnd að tilmælum Svavars Gestssonar, félags- og heilbrigöis- málaráðherra, hækkaö fjárveit- ingu tii sjóösins um 40 miljónir króna. Sérstakur liöur var og tek- inn upp til viðbótar til aöstoðar þroskaheftum upp á 30 miljónir, auk 15 miljóna króna byggingar- styrks til Sjálfsbjargar, lands- sambands fatlaðra. Viöhald vistheimila er nú tekið inn I daggjöld þeirra og er þar um miljónatugi að ræða. Þetta ber ekki aö vanmeta þó minnst sé á þörfina. Eins og i upphafi var frá greint eru samanburöatölur á fjárlögum 1979 og 1980 þær aö nú er gert ráö fyrir nær 1500 miljón- um en i fyrra var sambærileg tala 450 miljónir. Þetta veröur þvi byltingarár i framkvæmdum fyrir þroskahefta og öryrkja, þó enn betur þurfi aö gera. Og vist- heimilin og sjálfseignarstofnan- irnar verða að fá sinn hluta af þessum 1500 miljónum, en til þess þarf lagabreytingu og félags- málaráðherra er meö hana i undirbúningi. Siðar verður gerö grein fyrir skiptingu þessa fjármagns og ætti þá að sjást enn skýrar aö hér er um gerbyltingu að ræöa. En verk- efnin eru óþrjótandi. Framtiöin hlýtur að vera sú,svo sem aö var stefnt i upphaflega frumvarpinu um þroskahefta, að á hverjum tima fáist beint og milliliöalaust fjárveitingar úr rikissjóði til óhjákvæmlegra framkvæmda. Þetta á að sjálfsögðu einnig viö um öryrkja almennt” sagöi Helgi Seljan ab lokum. -þm Safnlánakerfi Verzlunarbankans gerir ráð fyrir 100 þúsund kr. hámarkssparnaði á mánuði. Þú ræður sparnaðarupphæðinni upp að því marki. Sparnaðartíminn er frá 3 mán. upp í 48 mán. í þriggja mánaða tímabilum. Þú velur þann tíma og upphæð sem þú ræður við. Þannig öðlast þú lánsrétt á upphæð sem er jafn há þeirri sem þú hefur safnað. Einfaldara getur það ekki verið. SAFMAR -VIDIANUM VeRZlUNflRBflNKINN Spyrjið um Safnlánið oa fáið bækling í afgreiðslum bankans: BANKASTRÆTI 5, LAUGAVEGI 172, ARNARBAKKA 2, UMFERÐARMIÐSTÖÐ, GRENSÁSVEGI 13 og VATNSNESVEGI 14, KEFL. ^ue/ •AI

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.