Þjóðviljinn - 19.04.1980, Síða 8

Þjóðviljinn - 19.04.1980, Síða 8
8 SÍQA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 19. april 1980 Flestir landsinenn sem komnir eru tii vits og ára þekkja áreiöan- lega til Hjörleifs Sigurössonar listmálara. Hann hefur um langt skeiö veriö leiöandi i samtökum sinum FÍM, skrifaö fjölda greina um myndlist i blöö og.timarit, kynnt ungum sem öldnum söfn borgarinnar og siöast en ekki sfst unniö merk störf I þágu verka- lýössamtakanna sem forstööu- maöur Listasafns ASÍ um árabil og starfsmaöur Menningar- og fræöslusambands alþýöu. Þaö var þvl meö nokkrum söknuöi sem vinir Hjörieifs kvöddu hann og konu hans, Elsu Miu Einarsdóttur, fyrir rösku ári er þau fluttu búferlum til Lófóten I Noregi en þar geröist Else Mla bókasafnsstjóri á Vestvogey. Ég er I rauninni mjög ánægöur meö þaö að geta nú sinnt málverkinu flestar stundir dagsins enda veitir ekki af. Ég hef stundum sagt bæöi I gamni og alvöru aö ekki dygöu færri en tvö lif til aö ná umtals- veröum árangri. — Ljósm.: —eik. þröngt um mig í gömlu sporunum Ennfrekari ástæða er þvi nú til fagnaöar er Hjörleifur er kominn færandi varninginn heim. Hann opnar i dag sýningu á nýj- um verkum sinum i FÍM-salnum að Laugarnesvegi 112 og stendur hún til 4. mai n.k..Af þvi tilefni tókum við hann tali á dögunum og komum viða við. Skynsamlegt að breyta til Hjörleifur, hver var ástæöan til þess aö þú fluttir til Noröur- Noregs 1 fyrra? Ástæðan var nú fyrst og fremst sú að okkur datt i hug að breyta til — og auðvitað langaði Elsu Miu til að koma til ættarlands sins og vera þar a.m.k. um nokkurt skeið. Ég vildi gjarnan losa mig viö störfin, sem höfðu hlaðist á mig hér heima og höfðu kannski aðallega með stjórnun aö gera, þannig að ég átti erfiðara með að sinna viðfangsefnum minum sem málari. Ég hafði um nokkurt skeið haft hug á þvi að breyta til. Fannst þaö skynsamlegt. Hvernig hefur ykkur liöiö þarna i Noröur-Noregi og hvernig likar ykkur fólkiö sem þiö kynnist þar? Það er nú alltaf erfitt að reyna að skilja eða skilgreina hugi fólks eða segja frá hvernig lifi þaö lifir, Þó held ég að við Islendingar ættum einna helst að geta skilið þetta, þvi að margt er svipað. Okkur hefur liðið vel. Viö erum aö visu komin á stað þar sem viö kynnumst nýju fólki svo aö segja á hverjum degi. Og megingallinn er kannski sá að þarna eru hópar fólks — ýmissa sérfræðinga að sunnan — sem dvelja aðeins stuttan tima og eru farnir áður en varir. Þetta er vitaskuld, já dálitiö sorglegt. Nú, mér hefur fundist það taka iengri tima að kynnast hinum innfæddu Lófót- búum og það er ekkert óeölilegt. Menn eru alltaf dálitið varkárir gagnvartþeim sem koma utanað. Ég býst við, aö það taki nokkur ár þangað til aðkomufólk getur raunverulega fallið inn i nýtt samfélag. Eitthvert sérkennilegasta pláss i Evrópu Er atvinnuiífiö I Lófóten i .Noröur-Noregi einhæft miöaö viö aöra hluta landsins? Ég býst við að segja megi það með nokkrum sanni. Það eru fyrst og fremst tvær framleiöslu- greinar, sem þarna eru rikjandi: landbúnaður og fiskveiöar. En Vestvogey er nokkuð sér á parti. Hún er fjölmennasta eyja I Lófóten og önnur stærsta að flatarmáli. Hvar er hún? Hún er i Vestur-Lófóten, þriöja i röðinni frá oddanum ef Væreyja og Röst eru ekki taldar meö. A Vestvogey stunda menn land- búnað sem aðalatvinnugrein og hafa gert það frá alda öðli. Astæðan er ákaflega einföld. Hún er sú að þarna er langsamfelldast og breiðast undirlendi i Lófóten og iandið mjög vel fallið til búskapar. Annars eru fiskiveiðar og fisk - iðnaður þessi gamla og rika hefð, sem fyrst og fremst hefur gert Lófóteyjarnar þékktar um viða veröld og að einhverju sérkenni- legasta plássi i Evrópu — náttúrlega fyrir utan landslagið' sjálft. A Vestvogey eru mörg gömul fiskiver og þar er gert út af miklum krafti enn i dag með nýtisku bátum og litlum togurum. Forréttindi sunnanmanna Viö lesum um þaö hér aö einmitt á þessum slóöum séu átök milli sjómanna annars vegar og stjórnvalda og annarra þeirra hinsvegar sem koma vilja upp oliuvinnsiu á fiskimiöunum úti- fyrir? Það hafa alltaf verið mjög sterkar raddir uppi um það, ekki bara i Lófóten heldur I öllum Norður-Noregi, að mjög væri varhugavert aö fara aö bora eftir oliu fyrir norðan 62. breiddar- gráðu. Hún er reynar alllangt fyrir sunnan þetta svæöi en ætl- unin mun lika vera að bora i hafinu við Noröur-Noreg. Ég veit ekki betur en að norska sjó- mannasambandið— Norges Fisk- arlag — hafi verið búið að komast að fullgildu samkomulagi við rikisstjórnina um þetta mál. Bak við samkomulagið liggja vafa- laust einhverjar tilslakanir af hálfu stjórnvalda og allörugg vissa um aö ekki geti komið til mengunar á fiskimiðunum. En eftir olfuslysið mikla i Mexico fóru menn aö fá nokkra eftirþanka, enda telja margir að hvergi i heimi búi menn enn yfir þeirri tækni, sém geti hindrað stórfellda oliumengun viö boranir i hafinu eða bætt úr henni. Stjórn- in stendur fast við fyrri ákvarð- anir sinar i þessu efni. Aftur á móti hafa flokkar eins og Miðflokkurinn, sem er vaxinn upp úr Bændaflokknum gamla, Kristilegi Þjóðarflokkurinn og Sósialski Þjóða.rflokkurinn krafist endurskoðunar málsins I heild sinni. Hefur þú á tilfinningunni, aö fólkiö I Noröur-Noregi liti á sig sem annars flokks fóik, ég á viö aö þeir, sem búa á Oslóarsvæöinu eöa þar um kring hafi margháttuö forréttindi? A þvi er litill vafi i huga minum. Og það sem stingur i augu aðkomumanna er fyrst og fremst, aö norðanfólkið viröist stundum ekki fylgja réttmætum kröfum sinum eftir sem skyldi. Og þó. Mér dettur i hug að nefna sam- göngumálin i þessu sambandi. Þegar ákveðið hafði verið að byggja ný strandferðaskip i stað hinna gömlu og úreltu — sem sigla enn i dag meðfram ströndinni allt frá Bergen til Kirkenes og koma við á fjöida hafna með farþega og vörur — hugöist ráðuneytið hafa þau fremur litil. Langflestir ibúar I Norður-Noregi óskuðu hins vegar eftir stórum og rúmgóðum skip- um. Þetta olli harðvitugum deilum og endirinn varö sá að byggja skyldi einhvers jkonar millistærð strandferðaskipa. Annars er Hurtigruta — en svo nefnast strandferðaskipin i dag- legu tali — fullpökkuð ferða- mönnum um sumur, svo að sjálfir ibúarnir komast varla að. Þá hafa vegirnir t.d. i Lófóten ekki verið byggðir nema fyrir sumar- umferö. A vetrum hrynja þeir saman og verða næstum ófærir i leysingum og vetrarveörum. Vekja athygli alheims á aðstöðu Sama Nú, hvernig er samstaöa þeirra þarna fyrir noröan innbyröis? Hafa ekki oröiö einhverjir árekstrar viö Sama? Samstaðan er vist svona upp og ofan eins og hérna hjá okkur. Og málefni Samanna hafa ætið verið talsvert vandamál, skilst mér. Virkjunin fyrirhugaða á Alta- Kautokeino-vatnasvæöinu virðist snerta þá alveg sérstaklega. Menn hafa t.d. bent á, að hreindýraræktin muni biða tjón við framkævmdirnar. Ráðu- Baldur * Oskarsson rœðir við Hjörleif Sigurðsson listmálara sem opnar í dag sýningu á myndum frá Lofoten neytismenn vilja ekki gangast við þessu og telja röskunina óveru- lega bæði hvað snertir búskap Samanna og lifriki náttúrunnar. En það sem hefur gerst núna upp á siðkastið er hins vegar það — sem margir vita kannski þegar — að hætt hefur verið viö virkjunina i bili. Ástæðan er i fyrsta lagi sú, að hundruð manna hindruðu framkvæmdirnar i marga mánuði. Fólkið sat þarna meginhluta siðasta sumars og fram á haustið. Hvaöa fóik var þaö? Voru þaö Samar eöa fyrst og fremst aökomumenn? Það var fólk úr öilum áttum. Samar höfðu að mestu leyti stjórn á mótmælaaðgerðunum sjálfir, að ég hygg. Að minnsta kosti þegar fjölmiðlar komu á vettvanginn. En einnig voru þátttakendur viðsvegar að úr Noregi, frá hinum norrænu þjóðunum og erlendir umhverfis- verndarmenn. Nú, en stöðvunin kom til framkvæmda þegar nokkrir ungir Samar slógu upp tjöldum sinum fyrir framan Stór- þingsbygginguna i Osló og hugðust svelta sig til bana málstaðarins vegna. Þeir voru vel komnir á veg með það þegar stjórnvöldin gugnuðu. En tilgang ur þeirra var samt miklu viðtæk- ari. Þeir vildu i sem stærstum dráttum vekja athygli umheims- ins á þeim órétti sem Samar hafa veriö beittir um iangan aldur aö þvi er snertir landsréttindi, menntunarmál og fjölmargt ann- aö. Ég held að margir hafi rangar hugmyndir um Samana, telji þá aðeins þjóðflokk, sem frá aldaöðli hafi stundað hreindýrarækt og feröast milli hásléttunnar og strandarinnar með dýraflokka sina. En það eru lika til Sjó- Sam- ar i Noregi, fólk sem settist snemma að á ströndinni og stundar fiskiveiöar alveg eins og Norðmennirnir, sem flestir munu hafa komið þangað siðar. Mér skilst að Sjó-Samar hafi aðlagast betur norsku samfélagi. I dag eru Samar allsundurleitur hópur og eiga ekki að öllu leyti sömu hags- muna aö gæta. En nú virðast stjórnvöld viija rannsaka hver sé réttur þeirra sem frumbyggja norðurhjarans alveg eins og Indjánanna i Ameriku. Hefur þú kynnst eitthvaö heföum Samanna t.d. hvaö varöar listir og önnur menningar- verömæti? Litið meira en áður og aðeins um fjölmiðla. Ég veit að þeir reyna að halda i heiðri hinum rót- gróna listiðnaði sinum. 1 dag eiga þeir góða listamenn, sem skera sig talsvert úr. I næsta nágrenni stórveldis Áöur en ég vik aö þvi aö ræöa frekar um menningarlif og listir langar mig aö spyrja þig: finnst þér áberandi aö þaö sé mikill ótti hjá Norömönnum og þá hjá þeim sem nyrst búa viö innrás frá Sovétrikjunum? Ég vil ekki taka svo djúpt i árinni. Aftur á móti virðist fylgja þvi sérstök tilfinning að lifa svona i næsta nágrenni viö stórveldi. Og ekki er þvi að neyta að stundum veröa árekstrar milii norskra og sovéskra fiskimanna i Barents- hafinu til að mynda. Auk þess má nefna, að i Norður-Noregi eru nokkrir herflugvellir og vafalaust má segja hið sama um viðbún- aðinn handa landamæranna i austri. Þetta skapar vitaskuld einhverja spennu I samskiptun- um. Sovétmenn voru vinsælir fyrst eftir strið en þaö virðist nú liðin tið. Brýn nauðsyn að kynna málstað islendinga Er mikil athygli manna þarna á Jan-Mayen málinu? Mjög mikil. Ég efast um að hún sé meiri annarsstaðar i landinu. Menn telja — og þá kannski aðal- lega útgerðarmenn og fiskimenn — að stjórnvöldin sýni íslending- um alltof mikla linkind og eru alltaf að heimta útfærslu við Jan- Mayen þegar i stað. Hafa íslendingar aö þinu viti gert eitthvaö markvisst I þvi aö kynna málstaö sinn I Noregi? Ég hef ekki oröið var við það. Aftur á móti er aliö á þvi sýknt og heilagt t.d. I landshlutablöðunum, að tslendingar séu mjög heimtu- frekir, þótt réttur þeirra sé nánast enginn. Sagt er að þeir virði ekki einu sinni samhljóða álit norskra og islenskra fiski- fræöinga um loðnuveiðarnar og takmörkun þeirra. Samt hef ég hitt allmarga einstaklinga, sem skilja málstað okkar. Og þekktan lögfræðing heyrði ég halda þvi fram i útvarpssamtali að Islend- ingar hefðu mikið til sins máls. En þegar veriö er að tala um kynninguna af okkar hálfu er alveg bráðnausynlegt að beina henni út til fjöldans, ekki sist þar sem fiskurinn er svo að segja lifiö sjálft. Félag áhugafólks um myndlist Nú, ef viö vikjum frá þessu aftur aö þvi, sem þú ert mest bundinn viö I Noregi,þ.e. lista- og menningarlifi. Er þaö fjölbreyti- < iegt á þessum slóöum? Já, það er mjög vaxandi og fjöl- breytilegt en þá verðum við að tala um landshlutann i heild sinni. Ekki dugir að miöa við borg eins og t.d. Reykjavik. Fjarlægðirnar innan Norður-Noregs eru svo geysilegar. Er erfitt fyrir fólk á þessum slóðum aö helga sig list sinni einvörðungu? Ætli það ekki. Það er erfitt i dag viðast um heiminn, jafnvel hjá velþekktum listamönnum. Lista- fólk I Norður-Noregi stundar oft aðra vinnu samhliða glimunni við hin listrænu viöfangsefni t.d. kennslu i skólum. I landshlut- anum hefur það með sér samtök, er vinna að hagsmunamálum þess á ýmsa lund og standa llka fyrir sýningum i byggðum og borgum. Við hlið þeirra starfar félagsskapur áhugamanna um myndlist. Hann er öllum opinn og stofnar gjarnan til happdrættis um góð myndlistarverk að aflok- inni sérhverri sölusýningu. Alþýðuleikhús og vísnasöngur. En þaö er kannski ekki jafn- almennur áhugi fyrir myndlist og maöur verður var viö t.d. hér i Reykjavik? Tæpast. En eins og ég sagði áðan er varla hægt að bera saman þéttbýli I höfuðborg eins og Reykjavik og dreifbýlissvæði Norður-Noregs. En ég ætti kannski aö minnast á aðra list- grein. Ég hef reynt að fylgjast dálitið meö henni lika, þótt úr fjarlægö sé. Leikhóparnir eru mjög áberandi þarna. Þeir fara vitt og breitt um norðurfylkin og koma stundum aö sunnan. Til aö mynda sá ég prýöilega leik- sýningu i Stamsundi i Vest- vogeyju. Hún fjallaði um verka- lýðsbaráttu á nýtiskan hátt. Eru þetta jafnt áhugahópar sem atvinnumenn? Ætli það væri ekki best að likja þeim við Alþýðuleikhúsið. Þetta er fólk sem vinnur af óslökkvandi áhuga og reynir að standa á eigin fótum fjárhagslega en nælir sér þó i einhverja styrki i byggðar- lögunum, sem það sækir heim og kannski fær það lika stuðning frá bæjum og fylkjum. Slikt er ekkert óvenjulegt i Noregi. En svo vildi ég nefna visnasöngvarana og visnahópana. Þeir eru ákaflega áberandi og blómstra kannski

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.