Þjóðviljinn - 19.04.1980, Page 13

Þjóðviljinn - 19.04.1980, Page 13
Laugardagur 19. april 1980 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 13 Alþýðubandalagið í ReykjavVk: Viðtalstímar þingmanna og borgarfulltrúa i dag 19. apríl kl. 10—12 verða Guðrún Helgadóttir borgarfulltrúi og alþingismaður og Adda Bára Sigfús- dóttir borgarfulltrúi til viðtals fyrir borgarbúa á skrifstofu flokksins að Grettisgötu 3. Borgarbúar eru hvattir til að nota sér þessa viðtals- tíma með því að koma á skrifstofuna á umræddum tíma. Tímakaupiö Framhald af bls. 2. þá sem kannski nenna ekki aö reikna út timakaup þessara manna, get ég upplýst, að það er einhvers staðar á bilinu 1200 og 2.200 kr., eftir þvi hvað menn vilja ætla, að vinna þessara manna sé mikil á hverjum sólarhring, en skylduvinna þeirra eru 12 klst. á sólarhring. Ekki er það óalgengt, að frivaktir séu staðnar til að koma aflanum undan. Og mundi ég eftir viðtöl viö sjómenn þess- ara skipta telja að 15 til 18 klst. i sólarhring væri nær þvi sanna um meðalvinnutima þessara manna. Þá ber að gæta þess einnig við út- reikninga á launum þessara manna, að ef unnið er i landi á vöktum, kemur vaktaálag allt að 33% til 36%. Ég undrast ekki þótt oddviti út- gerðarmanna reyni að slá ryki i augu landsmanna um tekjur þessara manna, en þegar fólk úr verkalýðshreyfingunni reynir að gera baráttu vestfirsku sjómann- anna tortryggilega finnst mér mælirinn fullur. Það er staðreynd, að það eru ekki nema harðgerðustu mennirnir sem geta stundað vinnu á þessum skipum. Margir þeirra eru að gefast upp. Launin eru ekki i neinu samræmi við vinnuálag og áhættu. Laun þessara manna i krónutölum litið eru kannski há, en vinnan sem liggur þarna á bakvið er ofboðsleg. Aður en fólk fer að býsnast yfir launum þessara manna ætti það að ihuga hvar þjóðin væri stödd ef þeir tækju upp á þvi að vinna aðeins 8 klst. dagvinnu og kannski tvo tima i eftirvinnu. Þetta er ekkert gamanmál. Otgerðarmenn og reyndar þjóðin öll ættu að ihuga vel afstöðu sina RAUÐA LIÖÐRIN tíl hjálpar heymarskertum Söludagar: 18., 19. og 20. apríl o til sjómanna almennt, þvi þótt sjómenn á skuttogurum séu með þessar háu krónutekjur eru aðrir sjómenn verr settir. Þessi skip verða ekki gerð út nema með úrvals mannskap, og það úrval er nú til staðar. Ef þið hrekið þessa menn i land, útgerðarmenn, fyrir vanmat i störfum þeirra, þá má leggja togaraútgerð á tslandi niður. Laun þessara manna á að hækka, eða það sem er kannski skynsamlegra, koma þvi á, að þeir hafi fri á fullum launum i minnst tvo til þrjá mánuði á ári. Að lokum sendi ég öllum sjó- mönnum baráttukveðjur og árna þeim allra heilla i baráttu þeirra fyrir bættum kjörum. Standið saman og sækið ykkar rétt, það eruð þið sem með vinnu ykkar gerið mögulegt að lifa i landi , þessu þvi mannlifi sem raun er á. íhaldid Framhald af bls. 3. þriðja fjölsóttasta leikhús lands- ins. Á siðasta ári sáu tugþúsundir landsmanna sýningar hússins og áreiðanlega hafa þeir flestir skemmt sér konunglega og fræðst nokkuð um leiö. Þá vék Sigurður að tillögu ihaldsins um að skera alveg niður 6 miljón króna styrk til uppbygg- ingar Bernhöftstorfunnar og sagði hann að húsfriðunarfólki, sem merkilegt nokk væri til i Sjálfstæðisflokknum, hlyti að bregða illilega viö þessa aöför að Torfusamtökunum. Samtökin hefðu nýlega ráðist i það tröll- aukna verkefni að éndurbyggja og lifga þessi hús sem i áratuga aögeröarleysi Ihaldsins hefðu grotnað niður. Tillaga þessi væri ekkert annað en tilraun til að bregða fæti fyrir það verk og væri yfirlýsing um þaö, aö borgarfull- trúar Sjálfstæðisflokksins styddu ekki friðun Bernhöftstorfunnar. Þá vék Sigurður einnig að þeirri tillögu að heimila ekki ráðningu 2ja eftirlitsfóstra með dagvistun barna á einkaheimil- um. Hann benti á aö nú er aöeins ein fóstra i þessu starfi en nú eru 400 heimafóstrur starfandi í borg- inni. Ekki veitti af bættri þjónustu við þær og börnin sem þær passa. Foreldrar myndu skilja þetta skeyti. —AI Hjörleifur Framhald af 9 einskonar þungamðja þessarar sýningar en þab voru aöallega vatnslitamyndir, ef ég man rétt. Heldur þú þig enn við vatnslitina? Ég hef málað bæði vatnslita- myndir og oliumálverk i Lófóten þetta siðasta ár. En það verður að segjasteins og er, að vatnslitirnir eru mér miklu tamari efniviður, enda hef ég glimt við þá samfellt allt frá þvi um 1970. Þó hef ég málað mikið i oliu. en var einhvern veginn ekki búinn að leysa vandamálin nægilega til þess að senda verkin frá mér. Auk þess hef ég teiknað með bleki og koli. t stórum dráttum hef ég tikið upp þá stefnu að vikka at- hafnasviðið og verksviðiö. Mér fannst orðið heldur þröngt um mig i gömlu sporunum. Líf og fjör Framhald af bls. 6. Fellahelli. Meðal dagskráratriða þar má nefna nýja kvikmynd sem tekin var s.l. vetur af tómstunda- starfinu. Myndin er tekin af tveimur fyrrverandi nemendum i tómstundaflokkunum i kvik- myndagerö. A sviði i samkomusal kynna nemendur skólanna þætti eins og útilif, félagsmál, snyrtingu, kvik- myndagerö og hjálp í viðlögum. í föndurherbergjum verða nemendur að starfi og sýna m.a. leirvinnu, hnýtingar, leðurvinnu, radióvinnu, flugmódelvinnu og ljósmyndavinnu. Ljósmyndir veröa sýndar I veitingasal. Skákmótiö og borötennismótið fer fram á sama stað og tima I Fella- helli. Það skal tekið fram að skákmótið hófst I húsakynnum Tafifélags Reykjavikur að Grensásvegi 46 laugardaginn 12. april kl. 13:30. Þess er vænst að þeir sem áhuga hafa á félags- og tóm- stundastörfum I skólum liti við I Fellahelli og Breiöholtsskóla eftir kl. 13.30 og fylgist með þvi sem er að gerast i tómstundastarfi innan grunnskólanna I Reykjavik. NÝLAGNIR/ BREYTINGAR og viðgerðir á hita- og vatnslögnum, og hreinlætistækjum. Danfoss-kranar settir á hitakerfi. Stilli hitakerfi til lækkunar hitakostnaðar. Löggildur pípulagningarmeist- ari. Sími 35120 eftir kl. 18 alla daga. Geymið auglýsinguna vtermir, Afgreiöum einangrunar olast a Stór Reykjavikur* svœóið frá mánudegi föstudags. Afhendum vöruna á byggingarst viðskipta J mönnum að kostnaðar lausu. Hagkvœmt______ og greiðsluskil málar við flestra hoefi. einangrunar ■■Hplastið framleiðsk/vörui pipueinangrun *Sog skrúfbútar Boisameiil umi9i nn kwöld Of hclgammi 93 7355 ALÞÝÐUBANDALAGIÐ Fljótsdalshérað — almennur fundur Alþýöubandalags Héraðsmanna boöar til almenns fundar um iönaðar- og orkumál i Valaskjálf laugardaginn 19. april kl. 13.00. Frummælendur: Hjörleifur Guttormsson orku- og iðnaöarróöherra og Kristjón Jónssor. rafmagns- veitustjóri. Allir velkomnir. . Stjórnin. Alþýðubandalagið i Reykjavik Kvenfrelsi og sósialismi Fimmti fundur fundaraöarinnar veröur haldinn nk. þriðjudag 22. aprll kl. 20.30 I Sóknarsalnum á Freyjugötu 27. Vilborg Sigurðardóttir kennari flytur framsögu, sem hún nefnir: Kvennamól — karlamál Alþýðubandalagið Hafnarfirði Fundur í bæjarmálaráði mánudaginn 21.4 kl. 20.30 I Skálanum. Dag- skrá: Fjárhagsáætlun. Onnur mál. Allir velkomnir. — Stjórnin. 5. deild, Breiðholtsdeild, ABR Fundur um borgarmálefni veröur haldinn n.k. mánudag 21.4 kl. 20.30. I kaffistofu KRON v/Noröurfell. Guðrún Helgadóttir alþingismaður og borgar- 'w' •aHBaBiaK: fulltrúi kemur á fundinn. Allir velkomnir. — Stjórn- in. Árshátið á Suðurlandi __ Arshátið Alþýöubandalagsfélaganna á Suðurlandi veröur haldin i Tryggvaskála föstudaginn 2. mai og hefst kl. 20.30. Dagskrá auglýst siðar. Kjördæmisráð. Málarafélag Reykjavíkur Aðalfundur Málarafélags Reykjavikur verður haldinn i húsnæði félagsins að Lág- múla 5, laugardaginn 26. april kl. 2. Mætum allir. Stjórnin. F élagsmálanámskeið Fimleikasamband Islands og Kvenna- nefnd Í.S.Í. efna til félagsmálanámskeiðs dagana 2.-4. mai n.k. ef næg þátttaka fðBSt Þátttaka tilkynnist til skrifstofu Í.S.Í., simi 83377 fyrir 27. april. Kvennanefnd Í.S.Í. Fimleikasamband ísiands Nauðungaruppboð sem auglýst var i 13., 16., og 21. tölublaði Lögbirtingar- blaðsins 1980 á eigninni Aiaugareyjarvegi 2, Höfn I Horna- firði, þinglýst eign Vélsmiðju llornafjarðar, fer fram eftir kröfu Iðnþróunarsjóðs, Stofnlánadeildar Landbúnaðarins, Byggðasjóbs og nokkurra lögmanna á eigninni sjálfri mánudaginn 21. mars 1980 kl. 10 árdegis. Sýslumaðurinn i Austur-Skaftafeilssýslu. Friðjón Guðröðarson. Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug við andiát og jarðarför Þórarins Einarssonar Höfða. Sérstakar þakkir færum við læknum og hjúkrunarfólki á deild A 1 Landakotsspítala. Dætur, fósturbörn og tengdabörn.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.