Þjóðviljinn - 26.04.1980, Page 2
2 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 26. aprll 1980
Af dreifbýLisfréttum útvarpsins
[ vikunni voru merk tímamót, nánar tiltekið
sumardagurinn fyrsti. Á slíkum „tímamót-
um" hefur skapast sú ágæta hefð hjá sjón-
varpi og útvarpi að hafa samband við dreif-
býlið, sjálfsagt meðal annars til þess að
byggðastefnan lognist ekki útaf.
I útvarpinu er þetta venjulega gert með
þeim hætti að hringt er í „f réttaritara" stof n-
unarinnar, sem jafnframt er venjulega einn
af framámömnum hinna smærri en jafn-
framt merkari byggðarlaga I landinu.
Síðan tíundar „f réttaritarinn" símleiðis það
sem merkast hefur borið við I heimabyggð
hans.
Útvarp og sjónvarp brugðust sannarlega
ekki skyldu sinni I tilefni af sumardeginum
fyrsta, en það verður að segjast að öll eru við-
tölin furðu keimlík.
Þau gætu satt að segja öll verið einhvern
veginn svona:
„Nú verður rætt við Hallstein Sveinsson
námsstjóra í Skarnavík.
„Hallsteinn! Hvað er helst tíðinda úr
Skarnavík?"
„TjaSumarkoman varð með þeim hætti
að vetur og sumar f rusu saman. Nú, við reikn-
um með því að í vel gróin tún komi grænn litur
með vorinu en ef til vill eitthvað seinna í kal-
bletti.
Bændur vænta þess hér I Skarnavík að sauð-
burður hef jist með hefðbundnum hætti í vor
þar sem fengitíminn var á venjulegum tíma f
vetur.
Annars hefur verið hér einmuna tíð. Þó vill
það bera við, ef kólnar í veðri, að frjósiá poll-
um og snjói í fjöll.
Elstu menn hér spá því að brátt fari að
heyrast í farfuglum,og ef þeir reynast sann-
spáir þá má reikna með því að sumarið sé í
nánd.
An þess að ég vilji neitt um það fullyrða á
þessu stigi málsins, þá þykir mér liklegt að fé
verði rekiðá f jall þegar búiðer að rýja, það er
að segja það f járins sem ekki verður haft í
heimahögum, en eins og ég sagði er þetta
fremur mín eigin ágiskun en staðhæfing.
Flestir bændur hér í Skarnavík munu hafa
hug á því að hef ja slátt, þegar tún eru nægi-
lega sprottin og mun það af heyfengnum, sem
ekki verður þurrkaður, verða votheysverkað-
ur. Súrheysverkun hefur gefist hér ágætlega,
þegar ekki hefur verið hægt að þurrka heyið
vegna vætutíðar.
Margir hér eru farnir að hugsa sér gott til
glóðarinnar um vinnu í sláturhúsinu í haust,
en eftir heyannir hefst sláturtíðin og það er
raunar þá f yrst, sem hægt er að gera sér grein
fyrir meðalfallþunga dilka.
Af útgerðinni er það helst að segja að nýtt
skip bættistá dögunum I fiskiflota Skarnavík-
ur, sautján tonna trilla: Pétur forseti. Menn
hér binda miklar vonir við þetta skip, einkum
ef eitthvað aflast. Þess vegna mun Pétur for-
seti hefja róðra eins fljótt og unnt er.
Hér I Skarnavík voru hátíðahöldin á sumar-
daginn fyrsta með hefðbundnum hætti.
Klukkan ellefu um morguninn var f jölskyldu-
guðsþjónusta, en prestur var skiptipresturinn
Robert Hálfdown.
Sú nýbreytni var við þessa f jölskylduguðs-
þjónustu að f ólk í óvígðri sambúð f ékk að taka
þátt í henni, þó ekki væru allir á einu máli um
réttmæti þeirrar ráðstöfunar, en séra Robert
Hálfdown lagði áherslu á að þessi háttur yrði á
hafður við þessa f jölskylduguðsþjónustu og
varð þetta til þess að kirkjusókn varð f jórum
sinnum meiri en ella hefði orðið.
Klukkan hálftólf hófst síðan víðavangs-
hlaupið og voru keppendur þrír, allir úr ung-
mennafélagi Skarnavíkur. Það háði keppend-
um nokkuð að niðaþoka var skoilin á þegar
hlaupið hófst og villtust hlaupararnir allir af
leið. Klukkaneittátti síðan barnakröfugangan
að hef jast, en henni varð að fresta, þar sem
skátarnir, sem jafnframt voru fánaberar
urðu að hef ja leit að víðavangshlaupurunum.
Um kaffileytið f undust svo hlaupararnir niðri
undir Neðra Hundagerði svo skrúðgangan gat
hafist um hálf f jögur. Þá var komin úrhellis
rigning og háði það hornaflokki Skarnavíkur
nokkuð.
Gengið var sem leið liggur f rá barnaskólan-
um tvo hringi kringum hraðfrystihúsið og
niður á síldarplan. Þar hóf ust síðan skemmti-
atriðin með því að lítið söngdúó söng og síðan
var glíma og fánahylling. Þá komu fram
trúðar og léku listir sínar og hraðfrystihús-
stjórinn hélt hátíðarræðu. Segja má að öll
þessi skemmtiatriði hafi vakið mikla kátínu.
Hátíðahöldunum lauk síðan með dansleik á
vegum kvenfélagsins, en að honum loknum
var efnt til veðreiða.
Sem sagt þetta er nú það helsta að frétta
héðan úr Skarnavík."
„Þakka þér fyrir Hallsteinn.
Rætt var við Hallstein Sveinsson, náms-
stjóra, fréttamann okkar í Skarnavík".
Eða eins og bókfært var á síðasta útvarps-
ráðsfundi, þar sem f jallað var um það, á hvað
leggja skyldi áherslu I fréttum I vor:
I fréttum vorum ekkert er
jafn áríðandi
eins og hvernig ærin ber .
útá landi. Flosi.
Sýning
Sendiráð Tékkóslóvakiu, Þýska
Alþýðulýðveldisins, Póllands og
Sovétrikjanna ásamt útflutnings-
bókamiðstöðinni „Mezdunarodnaja
Kniga” gangast fyrir sýningu á bók-
um, grafik, plakötum, frimerkjum og
hljómplötum í tilefni 110. afmælis-
dags V.I. Lenins.
Sýningin er opin að Hallveigarstöð-
um v/Túngötu kl. 14—19.
Sýningunni lýkur á morgun,sunnu-
dag.
Aðgangur ókeypis.
ra Kjörskrá
^7 Kópavogs
vegna kjörs forseta íslands sem fram
á aö fara 29. júnl 1980 liggur frammi
almenningi til sýnis á bæjarskrifstofunni i
Kópavogi frá 29. apríl til 6. júni 1980 kl.
9.30—15.00 mánudaga til föstudaga. Kærur
vegna kjörskrár skulu berast skrifstofu
bæjarstjóra eigi siöar en 7. júni 1980.
29. apríl 1980
Bæjarstjórinn í Kópavogi
<!íi
Hér var verið að æfa siðasta þátt, frá vinstri:Elisabet Þorgeirsdóttir, Guðrún Eyþórsdóttir og Reyni
Sigurðsson.
Litli leiklúbburinn á Isafiröi:
„Hart í bak”
eftir Jökul Jakobsson, frumsýnt i byrjun mai
Undanfarnar vikur hafa staðiö
yfir æfingar á leikritinu „Hart i
bak” eftir Jökul Jakobsson hjá
Litla leikklúbbnum á lsafiröi. Er
fyrirhugaö aö frumsýna leikritiö i
byrjun mai í 'Alþýöuhúsinu á
ísafirði.
Þegar blaöamaöur Þjóöviljans
var á ferö á Isafiröi á dögunum
var litiö inná æfingu hjá Litla
leikklúbbnum i húsi leikklúbbsins
I Hnifsdal.
Margrét öskarsdóttir leikstýrir
„Hart i bak” en meö helstu hlut-
verk fara Kristján Finnbogason,
sem ieikur kafteininn, Reynir
Sigurösson.Guörún Eyþórsdóttir
og Elisabet Þorgeirsdóttir.
Margrét Oskarsdóttir sagöi aö
all mikiö lif væri i starfsemi Litla
leikklúbbsins. S.l. haust sýndi
klúbburinn Fjalla Eyvind eftir
Jóhann Sigurjónsson og yfirleitt
væru sýnd tvö leikrit á ári hjá
Litla leikklúbbnum. Hún sagöi aö
i klúbbnum væri nú dálitill hópur
fólks sem heföi oröiö nokkra
reynslu sem leikarar en þar sem
hér væri um áhugahóp aö ræöa
yröi alltaf aö sækja út fyrir þenn-
an hóp, til þess aö ofbjóöa ekki
fólki viö timafrekar og strangar
æfingar, sem oft á tlöum yröi aö
fórna vinnu fyrir. En áhuginn er
mikill og þvi hefur tekist aö
manna i leikritin.
Litli leikklúbburinn á hús i
Hnifsdal, sem nefnist Sel og þar
fara æfingar á leikritum fram,
utan slöustu vikuna fyrir frum-
sýningu, þá er æftl Alþýöuhúsinu,
þar sem sýnt er.
Sem fyrr segir, verður „Hart I
bak” frumsýnt I byrjun mal og
sagöi Margrét aö vanalega
næöust 8 til 10 sýningar á ísafiröi.
Kristján Finnbogason I hlutverki
kafteinsins I „Hart I bak” eftir
Jökul Jakobsson, sem Litli leik-
kiúbburinn á tsafiröi frumsýnir i
byrjun mai. Myndin er tekin á
æfingu áöur en leikbúningar voru
tilbúnir.