Þjóðviljinn - 26.04.1980, Síða 3

Þjóðviljinn - 26.04.1980, Síða 3
Laugardagur 26. april 1980 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 3 Árni Blandon og Tinna Gunnlaugsdóttur I hlutverkum útlagans og smalastúlkunnar. Ljósm. Jóhanna ólafsdóttir, Þjóóleikhúsið. Smalastúlkunni og útlögunum frábær- lega vel tekid Leikrit Siguröar málara og Þorgeirs Þorgeirssonar „Smala- stúlkan og litlagarnir” var frum- sýnt fyrir fullu húsi á sumardag- inn fyrsta og var leiknum mjög vel tekið 1 fullskipuöum salnum. Sérstaka athygli vakti frábær frammistaða tveggja ungra leik- ara, þeirra Arna Blandon og Tinnu Gunnlaugsdóttur, sem nú leika I fyrsta sinn stór hlutverk á sviði Þjóðleikhússins. Þá vöktu þekktari leikarar eins og Krist- björg Kjeld og Baldvin Halldórs- son i hlutverkum Priorsins og Möngu griökonu mikla hrifningu og eins túlkun Arnars Jónssonar og Guðrúnar Stephensen. Leikstjóri er Þórhildur Þor- leifsdóttir og leikmynd og bún- inga geröi Sigurjón Jóhannsson. Var þeim og leikendum fagnað vel aö lokinni sýningu en búningar Sigurjóns, sem hann byggir á verkum Bruegels, fá mikiö lof. Leikritiö er sýnt i tilefni 30 ára afmælis Þjóöleikhússins en Sig- uröur málari má teljast einn af frumkvöölum þess, þótt ekki yröi bygging þess aö veruleika fyrr en löngu eftir dauöa hans. I þvi efni var Siguröur löngu á undan sinni samtiö eins og reyndar i mörgu ööru. Leikritið var sýnt i annaö sinn i gærkvöldi, en sýningar fyrir fastagesti eru 8. Næsta sýning er á sunnudagskvöld. — AI íslensk skemmtisnekkja meö öllum búnaöi til úthafssiglinga, aö verömæti um 18,2 milljónir. Dregin út í ágúst. 100 bílavinningar á 2 og 3 milljónir hver, þar af tveir valdir bílar: Ford Mustang í maí. Peugeot 305 í október. Auk þess glæsilegur sumarbústaöur, 10 íbúöavinningar á 10 milljónir og 35 milljónir, 300 utanferöir á 500 þúsund og ótal húsbúnaöarvinn- ingar. Sala á lausum miöum og endurnýjun ársmiöa og flokksmiöa stendur yfir. Dregiö í 1. flokki 6. maí. ÍTIIÐI ER mÖGULEIKI Dúum ÖLDRUÐUm ÁHYGGJULAU/T ÆVIKVÖLD e Leiguflug Sverris Þóroddssonar sendir Tryggingaráöi bréf varðandi óeðlilega samkeppni um sjúkraflug: Ásakanir á hend- ur Arnarflugi Hefur við engin rök að styðjast, segir Jón Kristins- son flugrekstrarstjóri Arnaiflugs F élagsheimilið varð fyrir valinu Fyrir nokkru barst Tryggingaráði bréf frá Leiguflugi Sverris Þór- oddssonar með ásökunum um að Arnarflug væri að sölsa undir sig sjúkraflug með óeðlilegum hætti en Leiguflug Sverris hefur undanfarin ár haft nætur- vakt vegna sjúkraf lugsins. Jón Kristinsson flug- rekstrarstjóri Arnarflugs sagði að hann væri vægast sagt hissa á þessum ásök- unum enda hefðu þær ekki við rök að styðjast. Asakanirnar I bréfinu voru á þá leið aö Arnarflug heföi boöiö um- boösmönnum sinum, sem margir eru flugvallarstjórar úti á landi, 10% ef þeir útveguöu sjúkraflug og heföi þetta m.a. oröið til þess aö kallaö heföi veriö á flugvélar frá Reykjavik þó aö vélar frá Sverri væru beint yfir viðkom- andi staö. Þá fylgdi sögunni aö þegar Arnarflug sendir Trygg- ingastofnun reikning bæti það fyrrgreindum 10% ofan á hann og hafi þannig fengiö meira úr být- um en önnur flugfélög. Þegar Þjóöviljinn haföi sam- band viö Arna Yngvason flug- mann sem séö hefur um sjúkra- flugiö fyrir Sverri Þóroddsson vildi hann ekki staðfesta aö þessar ásakanir heföu veriö bornar fram I bréfinu en sagöi aö félagiö heföi sent Tryggingaráði bréf þar sem beöið var um af- stööu þess hvort halda ætti nætur- vörslunni áfram. Jón Kristinsson flugrekstar- stjóri Arnarflugs sagöi þaö vera fasta reglu aö umboösmenn fengju 10% greiðslu fyrir þaö flug sem þeir panta.enda væri þaö ekki óeðlilegt miöaö viö þá vinnu sem þeir þurfa aö leggja fram svo sem aö vakna upp um miöjar nætur, fara út á flugvöll og biöa þar kannski langtimum saman. Hitt væri firra aö þessum 10% væri bætt ofan á reikning til Try ggingas tof nunar vegna sjúkraflugs. Þar væri fariö eftir fastri gjaldskrá. Þá sagði Jón þaö vera rétt aö umboðsmenn á 2-3 stööum væri jafnframt flugvallarstjórar en hann bjóst við aö kvörtunin væri einkum komin vegna þess aö um- boösmaöurinn á Blönduósi æki jafnframt sjúkrabilnum. Varðandi þá ásökun aö kallað heföi veriö á flugvélar langan veg þó aö vélar frá Sverri væru sveimandi yfir, sagöi Jón, aö hún væri tilhæfulaus. Umrætt tilvik heföi veriö á þveröfugan hátt. Arnarflugi heföi borist pöntun og látiö kalla upp vél frá Sverri sem vitað var um á þessari leiö, og látiö hana taka sjúklinginn. Sagöi hann Þórhall Magnússon flug- mann hjá Flugleigu Sverris vera til staöfestingar um þetta atriöi. Þá ræddi Þjóöviljinn viö Eggert G. Þorsteinsson forstjóra Trygg- ingastofnunar og staöfesti hann aö bréfiö heföi komiö en vildi ekki tjá sig neitt um innihald þess á þessu stigi málsins. Björn önundarson trygginga- yfirlæknir staöfesti hins vegar I samtali viö blaðiö aö I framhaldi af þessu máli heföi hann nýlega sent dreifibréf til heilsugæslu- stööva þar sem fariö væri fram á aö reynt væri aö lækka kostnað viö sjúkraflug með þvi aö panta alltaf hagkvæmustu vélarnar og læknar sneru sér beint til þess flugfélags sem taliö væri aö veitt gæti besta og ódýrasta þjónustu. Hvorki Arni hjá Leiguflugi Sverris né Jón hjá Arnarflugi töldu félögunum neinn sérstakan akk I aö ná sem flestum sjúkra- flugum þar sem þau væru mjög erfiö og oft hættuleg. — GFr Ákveðið hefur verið að hefja undirbúning að gerð 6 framhaldsmyndaflokka til sýningar í sjónvarpinu í samræmi við hugmyndir og tilboð Hrafns Gunn- laugssonar, Egils Eðvarðssonar og Björns Björnssonar. Nefnast þættirnir „Félags- heimilið", en að sögn Hinriks Bjarnasonar, for- stöðumanns LSD, verða þeir vart teknir upp f yrr en á næsta ári. Útvarpsráði bárust fyrir nokkru tvö tilboö um létta fram- haldsþætti, annars vegar „Félagsheimiliö” og hins vegar „Kómedia fyrir 24ra tommu tjald” frá Auöi Haraldsdóttur, Eddu Björgvinsdóttur og Helgu Thorberg. Kómedian fjallar aö sögn Hinriks um hlutverkaskipan kynjanna en meö öfugum for- merkjum, þar sem heimilis- móðirin fer út aö vinna en heimilisfaöirinn veröur eftir heima. Hugmynd þeirra stall- systra er aö sögn Hinriks geymd en ekki gleymd og hugsanlegt er að siöar veröi unniö úr henni leik- rit en ekki framhaldsþættir. 1 Félagsheimilinu er sögusviöiö aö sjálfsögöu félagsheimili, þar sem ótal tækifæri gefast til sögu- efnis meöal gesta þess, starfs- fólks og þeirrar starfsemi sem þar fer fram. —\i Vikubann 1. maí Sjávarútvegsráöuneytiö hefur gefiö Ut reglugerö, sem bannar þorskveiöar togbáta timabiliö 1,- 7. mai n.k., aö báöum dögum meötöldum. Bann þetta tekur til togskipa annarra en skuttogara meö 900 hestafla vél og stærri, og togskipa 39 metra aö lengd og stærri, þ.e.a.s. þeirra togskipa, sem falla ekki undir 27 daga þorskveiöi- banniö 1. janúar-31. april 1980. A timabilinu 1.-7. maf n.k. mega skip þessi stunda aörar veiöar en þorskveiöar, enda fari hlutur þorsks ekki yfir 15% af heildarafl hverrar veibiferðar. Fari þorskafli yfir 15%, veröur þaö sem umfram er gert upptækt samkvæmt lögum. NÝTT HAPPDRÆTTIJÁR UNGIR /EÍTI ALDNIR ERU mEÐ

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.