Þjóðviljinn - 26.04.1980, Síða 5
Laugardagur 26. april 1980 ÞJÓDVILJINN — SIÐA 5
Slökun og mynd-
ræn tjáning
Síðasta
sýningar-
helgi
Slöustu forvöö eru nú aö sjá
verk meistaranna á sýningu
Menningarsjóðs Kópavogs I Nor-
ræna húsinu þar sem þetta er slð-
asta sýningarhelgin. 1 Sunnu-
dagsblaði Þjóðviljans, á mogum
er grein um verkin, listamennina
og sýninguna.
Sigrlöur Björnsdóttir
mvndlistarmaður stjórnar dags-
námskeiöum (intensive Work-
shops) sem ætluö eru starfsfólki á
sjúkrahúsum og vistheimilum og
haldin veröa aö Freyjugötu 16
nokkrai* næstu helgar. Viöfangs-
efnin á þessum námskeiðum eru:
slökun, myndræn tjáning og um-
ræöur.
Sigriður sagði, að markmiöið
með þessum námskeiðum væri aö
gefa starfsfólki stofnanna kost á
að kynnast af eigin raun þvi fyrir-
bæri sem kallað er á útlensku
máli Art Therapy og ekki er til
heiti yfir á islensku. Þarna er um
að ræða listræna tjáningu sem aö-
ferð til meðhöndlunar og/eða
endurhæfingar sjúklinga.
Sagðist Sigriður vona að fólki
fyndist námskeiðið skemmtilegt
og góð hvild frá daglegri streitu,
hjálp til að lita I eigin barm og
tækifæri til að leysa úr læðingi
eigið afl og hugmyndir, sem að
gagni geta komið I samskiptum
við annaö fólk.
Sigriöur hefur staðið fyrir slik-
um námskeiðum erlendis, og
byggir hún þau á starfi sinu við
Maudesley-geðsjúkrahúsið i
London. Innritun og upplýsingar
um námskeiðin eru i sima 1 71 14
á morgnana.
-ih
Brian
Pilkington
sýnir
Brian Pilkington opnar i dag
sýningu á 20 málverkum i
Djúpinu við Hafnarstræti.
Brian er fæddur i Liverpool árið
1950, en hefur verið búsettur hér á
landi i tæp 4 ár. Hann hélt fyrstu
sýningu sina hérlendis áriö 1977, i
Sólon lslandus. Málverkin sem þá
voru sýnd voru einkum af dæmi-
geröum Englendingum il ensku
umhverfi, en á sýningunni sem
hann opnar I dag gefur að lita
myndiraf islensku fólki 1 íslensku
umhverfi.
Sýningin verður opnuð kl. 15 i
dag og stendur til 9. mai. Hún
verður opin daglega frá kl. 11 til
23. -ih
Bassaleikur í Djúpinu
Vestur-þýski bassaleikarinn
Peter Kowald leikur einleik á
tónleikum sem Galleri Suöurgata
7 gengst fyrir I Djúpinu við
Hafnarstræti kl. 16.00 I dag.
Kowald hefur hér viökomu á
leið sinni til Bandarikjanna, þar
sem hann mun stunda hljóm-
leikahald á næstunni. Hann hóf
hljómlistarferil sinn um 1960, hef-
ur einkum starfað innan svo-
kallaðrar „frjálsrar tónlistar” og
þykir einn fremsti bassaleikari á
þvi sviöi I V-Þýskalandi i dag.
Flaututónleikar
Birna Bragadóttir heldur A efnisskrá eru verk eftir
flaututónleika I sal Tónlistarskól- HSndel, Bach, Roussel og
ans i Reykjavik kl. 14.30 á morg- Reinecke. Þórunn H. Guðmunds-
un sunnudag. dóttir leikur með á pianó. Velunn-
Er það burtfarar- arar skólans eru velkomnir á
próf hennar frá skólanum. meðan húsrúm leyfir.
Kanntu aö hirda
trén í garðinum?
Fræöslufundur veröur haldinn i
Skðgræktarstööinni i Fossvogi, i
dag kl. 2 eh. Þar veröur sérstak-
lega ieiöbeint meö uppeidi á
trjám og runnum, svo sem sáning
umplöntun, græðlingaklipping, og
fjölgun plantna á þann hátt. Þá
verður sýnikennsla i klippingu og
snyrtingu runna, gróöursetning
trjáplantna og færsla stærri
trjáa.
Sigurður Blöndal skógræktar-
stjóri, Hulda Valtýsdóttir fram-
kvæmdastjóri Ars trésins ásamt
sérfræðingum Skógræktarfélags-
ins veröa til viðtals um skógrækt
og trjárækt og er þarna einstakt
tækifæri til að fá upplýsingar frá
fagfólki.
Jafnframt þessari fræðslu
verður hægt að fá ýmsa bæklinga
og rit um trjárækt og garðrækt á
staðnum.
Kvikmyndasýningar veröa i
húsi félagsins frá kl. 3-5. Sýndar
verða skógræktarmyndir.
Allir eru velkomnir, tekið verð-
ur á móti nýjum félagsmönnum,
o
Ake
Leijon-
hufvud hér
í heimsókn
Sænski rithöfundurinn ÁKE
LEIJONHUFVUD er um þessar
mundir gestur Norræna hússins.
Hann er fæddur árið 1945.
Fyrsta bókin sem hann sendi
frá sér var ljóðasafnið „Potatis-
plockarna ger sig av för dagen”
sem kom út 1967 og ári siðar kom
annað ljóðasafn,„Ge dem deras
ögon tillbaka”. Fyrsta skáldsag-
an, „Vaksduken”, kom út 1970,
„Schaktningen” kom út 1971 og
„Hemresan” 1974, hvort tveggja
skáldsögur. Arið 1978 kom enn út
skáldsaga, „Anna och Christian”,
sem vakti mjög mikla athygli. I
henni er sagt frá samskiptum
hjóna og lætur höfundur þau
standa i sviðsljósinu til skiptis
með þvi að láta þau koma fram i
öörum hvorum kafla. I bókinni
kemur lika litil dóttir hjónanna
fram, og verður hún vitni aö
magnþrungnum reikningsskilum
þeirra, þar sem þau lenda m.a. I
handalögmálum, og hefur það
mikil áhrif á sálarlíf barnsins.
Þessi bók hlaut óvenju góðar
móttökur, ekki einungis i Sviþjóö,
heldur einnig I Danmörku.
ÁKE LEIJONHUFVUD mun
kynna ritverk sin i Norræna hús-
inu þriöjudaginn 29. april kl.
20:30, og eru allir velkomnir á
fyrirlesturinn.
*
AÐ HOTEL
LOFTLEIÐUM
25.APRÍL
TIL 2. MAÍ
1980
i
I VIKINGASAL,
BLÓMASAL, VÍNLAN
OG RÁÐSTEFNUSAL
Breskur matreiðslumeistari frá
Mayfair Hotel.
Fjórréttaður matseðill öll kvöld.
Breskir skemmtikraftar
Magnús Magnússon, hinn kunni
sjónvarpsmaður, ræðir við gesti.
Matargestir fá happdrættismiða.
Vinningur vikudvöl í London fyrir tvo,
fargjöld, gisting og matur innifalinn.
Stuðlatríó leikur fyrir dansi.
Ókeypis kvikmyndasýningar um helgar.
Magnús Magnússon flytur tvo fyrirlestra um
Víkingasýninguna í London.
Sjáið gimsteina bresku krúnunnar!
Kynningarrit um Bretland liggja frammi.
Borðapantanir og nánari upplýsingar hjá
í símum 22321 og 22322.
ÍVerið velkomin
~«!Kz —ÚWL'if • 39. «9»«.-
HÓTEL LOFTLEIÐIR
BRESKA FERÐAMÁLASTJÓRNIN
BRESK
VIKA