Þjóðviljinn - 26.04.1980, Side 7

Þjóðviljinn - 26.04.1980, Side 7
Laugardagur 26. april 1980 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7 Frá aöalfundi Verkalýðs- málaráös Alþýðu- bandalagsins: Á aöalfundi Verkalýös- málaráös Alþýöubandalagsins, sem haldinn var um siöustu helgi fiuttu þeir framsöguræöur As- mundur Stefánsson, fram- kvæmdastjdri ASt, Guömundur Árnason, formaöur Sambands grunnsköla- og framhaldsskdla- kennara og Svavar Gestsson, félagsmálaráöherra. Frá aöalfundi Verkalýösmálaráös. Félagslegar úrbætur og hækkun láglauna Vinnuveitenda- sambandiö gegn verábótum í krónutölu Asmundur Stefánsson rakti gang mála i yfirstandandi kjara- samningum verkalýösfélaganna ogatvinnurekenda. A kjaramála- ráöstefnu þann 11 jarniar s.l. voru mótaöar sameiginlegar kröfur verkalýösfélaganna innan A.S.l. Þá var kosin 43 manna samninga- nefnd og ennfremur hefur starfaö 14 manna undirnefnd. Sex samningafundir voru haldnir meö Vinnuveitendasambandinu en voru árangurslitlir, og slöan ákveöiö aö vísa deilunni til sátta- semjara. FulltrUar Vinnuveitendasam- bandsinshafa hingaö til neitaö al- gerlega kröfu verkalýös- félaganna um aö veröbætur á laun greiöist aö hluta til I fastri krónutölu. Krafa Vinnuveitenda- sambandsins er aö veröbætur á laun veröi greiddar samkvæmt prósentureglu upp allan launa- skalann, en jafnframt er þaö krafa Vinnuve i tenda- sambandsins aö greiöslur verö- bóta veröi skertar hjá öllu launa- fólki um svo sem helming. Asmundur sagöi aö atvinnu- rekendur teldu ekki svigrUm til grunnkaupshækkana, en verka- lýöshreyfingin kreföist ráö- : stafanatilaöauka þetta svigrUm. Fyrsti fundur meö sátta- semjara var haldinn 13. mars og . einn fundur hefur veriö haldinn siöan. Asmundur ræddi einnig upi ' kröfugerö verkalýösfélaganna á sviöi félagsmála og annarra mála er snUa aö stjórnvöldum og greindi f þvl sambandi frá viö- ræöum viö ráöherra. Undirnefndir á vegum félags- málaráöuneytisins og verkalýös- hreyfingarinnar hafa tekiö til starfa og fjalla um hinar ýmsu félagslegu kröfur Félagslegar kröfur Asmundur ræddi nokkrar helstu kröfurnar, sem snUa aö stjórnvöldum, meöal annars þessar: 1. Fæöingarorlof. Krafist er breytipga á þvi frumvarpi, sem fyrir Alþingi liggur, þannig aö fæöingarorlof veröi greitt af al- mennu tryggingakerfi en ekki beint af einstökum atvinnu- rdtendum, sem hafa barnshaf- andi konur I vinnu. 2. Krafan um aö foreldrar barna, yngri en 10 ára, geti fengiö leyfi frá vinnu til um- önnunar barna i veikindum - þannigaö fólk getihaldiö launum allt aö 10 til 15 daga á ári eftir barnafjölda þótt fjarverandi séu frá vinnu vegna veikinda bama. 3. Vextír af orlofsfé. Krafist hefurveriöhækkunar vaxta af or- lofsfé. Þessir vextir hafa nU ný- lega veriö meira en tvöfaldaöir, en þó vantar enn mikiö á aö þeir nái hæstu bankavöxtum eöa verö- bólgustiginu. 4. HUsnæöismál. Verkalýös- hreyfingin leggur mikia áherslu á, aö frumvarp um húsnæöismál, sem fyrir Alþingi liggur veröi af- greitt fyrir þinglok I vor, en jafn- framt aö geröar veröi á þvi ýmsar breytingar. 5. Réttindamál sjómanna. Krafan er aö Alþingi samþykki Asmundur Stefánsson nokkur slik mái fyrir þinglok i vor, sumtþegar komiö inn I frum- varp, sem rlkisstjórnin hefur lagt fram en annaö ekki. Asmundur Stefánsson kvaöst telja aö verkalýöshreyfingin ætti aö standa mjög fast á kröfum sin- um um breytt visitölukerfi og knýja fram sérstakar hagsbætur fyrir láglaunafólk I kjara- samningunum nU. Hann minnti aö l,.'kum á þann mikla mun sem oft væri á launum manna, sem ynnu hliö viö hliö sömu störfin, eftir þvl I hvaöa stéttarfélagi þeir væru. Hér þyrfti sam- ræming aö koma til. Krafa BSRB að láglaun hækki mest Guömundur Arnason minnti á aö 13 mánuöir væru liönir slöan samþykkt var aö segja upp kjara- samningum BSRB.og samningar hafi veriö lausir frá 1. jUlI s.l. Guömundur Arnason sagöi aö kröfur B.S.R.B. væru miöaöar viö aö draga Ur launamismun, þvi aö kröfumar geröu ráö fyrir meiri hækkun hlutfallslega á lægri laun en hærri. Guömundur ræddi nokkuö samn- ingsstööuna i kjaramálunum al- mennt og minnti á aö I kosning- eru meginkröf- ur verkalýðs- hreyfingarinnar unum í desember hafi um 80% þjóöarinnar kosiö stjórnmála- flokka sem opinskátt boöuöu nauösyn kauplækkana og hin 20%-in flokk, sem ekki heföi taliö Guömundur Arnason verulegt svigrúm til grunnkaups- hækkana. Þá ræddi Guömundur um bréf fjármálaráöherra til BSRB frá 12. mars og greindi frá þvl aö skipaöar hafi veriö tvær nefndir frá BSRB og ráöuneytinu til aö fjalla um samningamálin. Ætti önnur aö fjalla um launastigann og kaupkröfurnar en hin um samningsréttarmál og félagsmál. Staða þjóðarbúsins Svavar Gestssonræddi nauösyn þess aö tryggja hlut láglauna- fólksins sérstaklega og kvaö rikisstjórnina reiöubUna aö greiöa fyrir kjarasamningum meö viöræöum um Urbætur I þeim félagsmálum, sem kröfugeröin fjallar um. Hann rakti ýmsar upplýsingar um þróun þjóöarbúskaparins og kom þar m.a. þetta fram: Þjóöarframleiöslan er talin veröa 1230 miljaröarkróna I ár og er þaö 1,5% aukning frá slöasta ári. Gerter ráö fyrir 15 miljaröa halla á viöskiptajöfnuöi, fyrst og fremst vegna hins háa olluverös. Mikil þörf er fyrir auknar framkvæmdir I orkumálum, en jafnframtnauösyn á aö auka ekki um of erlendar skuldir. Þama er erfiöur vandi á ferö. Reiknaö er meö aö greiöslubyröi af erlendum skuldum veröi I ár um 16% af út- flutningstekjum en var i fyrra um 14%. Orkuframkvæmdir og yms- ar aörar mikilvægar framkvæmdir, sem erlendu láns- fé hefur veriö variö til, munu hins vegar styrkja stööu okkar út á viö á komandi árum. Taliö er llklegt aö þorskafli veröi iárum 400 þús. tonn.ená fyrstu þrem mánuöum þessa árs var botnfiskafli I heild um 23% meiri en á sama tíma I fyrra, og var öll aflaaukningin þorskur. Svavar Gestsson Gert er ráö fyrir aö útflutnings- framleiöslan I heild aukist um 2 og 1/2% á þessu ári en I fyrra óx hún um 13%. Rýrnun viðskipta- kjara 9% 1979 og 5% 1980 A siöasta ári hækkaöi verölag á ölium okkar innflutningi um 19% til jafnaöar, en verö á útflutn- ingnum um 8% I erlendri mynt. Viöskiptakjörin rýrnuöu þvf á siöasta ári um 9%. Reiknaö er meö aö viöskiptakjörin rýrni enn um 5% á þessu ári frá meöaltali síöasta árs.enda voru viöskipta- kjörin strax um 5% lakari á slöasta ársfjóröungi 1979 heldur en svarar meöaltali þess árs. Áhrif þessarar rýrnunar viöskiptakjara eru nú þegar aö mestu komin fram I kaupi. Reiknaö er meö aö fjármuna- myndunin hér innanlands aukist aö raungildi um nálægt 7% I ár fyrst og fremst vegna Hrauneyjarfossvirkjunar. í forsendum þjóöhagsspár er gert ráö fyrir aö kaupmáttur launa veröi aö jafnaöi 1—2% lakari i ár en I fyrra, en þær tölur kunna aö sjálfsögöu aö breytast I tengslum viö kjarasamninga. Gert er ráö fyrir aö halli á viöskiptajöfnuöi muni I ár nema 1,2% af þjóöarframleiöslu. Samkvæmt þjóöhagsspá er gert ráö fyrir aö þjóöarframleiösla á mann muni vaxa um nálægt 1 og 1/2%, en þjóöartekjur á mann varla ná þvi sem þær voru I fyrra vegna versnandi viöskiptakjara. Reiknaö er meö 13% framfærsluvlsitölu 1.2,—1.5. I ár og 11—12% hækkun peningalauna þann 1. júnl. Slöan er spáö 9—10% hækkun framfærsluvísitölu á hvoru þriggja mánaöa tímabili framtií 1. nóv. lár. Svavar ræddi nauösyn þess aö bæta innlenda fjármögnun til þjóöfélagslegra brýnna framkvæmda vegna takmarkaös svigrúms til aö taka erlend lán. Eitt stærsta sjálfstæöismál þjóöarinnar er sjálfstæöi I orku- málum. Þetta kom best I ljós 1 orkukreppunni, sem hófst á slöasta ári. Skattamál Svavar^ rakti slöan nokkrar staöreyndir um skattamál og kom þar m.a. fram þetta: 1. Tekjur rlkisins af tekjuskatti á þessu ári veröa óbreyttar frá þvl sem veriö heföi og hefur aldrei staöiö til af hálfu rlkis- stjórnarinnar aö bæta þar neinu viö. 2. Hækkun söluskattsins um 1,5% kemur fram I 1,23% veröhækk- uná öörum vörum en matvör- um og þessi hækkun hefur I för meö sér 0,6—0,7% hækkun launa strax 1. jUnl þannig aö vlsitöluáhrifin af þessari skatt- lagningueru um einn tuttugasti partur þeirra veröhækkana sem nú ganga yfir. 1 þessari skattheimtu felst ekki skeröing ráöstafunartekna. 3. Eina raunverulega hækkunin sem umtalsverö er I þessu sambandi er hækkun útsvars- ins.HUn getur numiö allt aö 1% af tekjum sl. árs, kannski 0,8% af tekjum þessa árs, i Reykja- vfk Hklega um 0,6% af tekjum ársins hiö mesta.Hér er því um óverulega breytingu aö ræöa frá þvl sem veriö heföi. Taliö er aö hér á landi séu allir beinir skattar um 14% af brúttó- tekjum framteljenda i ár, en i grannlöndum okkar eru sam- svarandi tölur um og yfir 30% Félagslegar úrbœtur — Launajöfnun Svavar sagöi aö svo væri aö skilja aö ýmsir vildu hverfa 30 ár aftur I tímann, þegar öll skattheimta opinberra aöila nam ekki nema um 25% af þjóöar- framleiöslunni — En vilja menn þá láta sér nægja þaö trygginga- kerfi sem þá var boöiö upp á? Vilja menn láta sér nægja þaö heilbrigöiskerfi sem þá var boöiC uppá? Áriö 1950 námu útgjöld ti heilbrigöismála 3,1% af vergri þjóöarframleiöslu en á árinu 1971 var þessi tala 7.5%. Ef menn skera skattana niöur um helming þá veröa menn aö skera opinbera þjónustu og opinberai framkvæmdir niöur um helming lika. Svavar rakti slöan ýmis fleiri dæmi af þessu tagi, en ræddi aö lokum um einstök atriöi kröfu- geröar verkalýösfélaganna og lýsti fullum vilja rikisstjórnar innar til aö stuöla aö framgang launajöfnunarstefnu verkalýöí samtakanna og til aö greiöa fyri. kjarasamningum meö félagsleg- um Urræöum. Skodanakönn- un í ísbirninum Vigdís og Pétur efet Nú I vikunni fór fram skoðanakönnun um fylgi for- setaframbjóöenda meöal stárfsfólks Isbjarnarins I Reykjavik og tóku 156 þátt I henni. Flest atkvæöi hlaut Vigdls Finnbogadóttir eöa 59 en Pétur Thorsteinsson fékk 49. Guölaugur Þorva'dsson fékk 25, Albert Guömunds- son 15 og Rögnvaldur Páls- son 2. Auðir og ógildir seölar voru 6. — GFr

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.