Þjóðviljinn - 03.05.1980, Page 2
2 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 3. mal 1980
þessi fáu blöð/ stundum kannske lesendabréf-
in, mér datt það í hug, jafnvel leikhús-
krítíkkerinn, ediktunnuna (?) og oftar en ekki
hljóta böndin að berast að Flosa" (Ibr. mín).
Og framar f greininni eru líka nokkur vel
valin orð, sem ég hlýt að taka til mín, en þar
segir orðrétt:
„Hvað eru miðaldra nöldurseggir að
hnýsast í unglingasíðu Þjóðviljans" — og
síðar: „Og hver á að létta áhyggjunum af
ungum dreng, sem er með minnsta tippið í
bekknum?"
AF KYNORUM
Ég hef verið særður djúpu sári. Steinunn
Jóhannesdóttir, ein af mínum ágætustu sam-
verka- og vinkonum um árabil, hefur veist ó-
maklega að mér tilfinninganæmum, róman-
tískum og viðkvæmum vini sínum, komið að
mér óvörum, læst í mig klónum og tekið mig
aftanfrá.
Þetta skeði um síðustu helgi og það í
„Blaðinu okkar" undir yfirskriftinni „Mér
datt það i hug". Og ég verð að segja, að þegar
ég var búinn að lesa greinina þá datt mér
sisona íhug aðflest gæti Steinunni dottið í hug.
En sagt er að tíminn græði öll sár og svo er
um þessa vikugömlu opnu und; hún grær svo
hratt að mig er farið að klæja í hana. Ég er
meira að segja búinn að fyrirgefa Steinunni
þetta fólskulega upphlaup og vona að með
tímanum gleymist mér að þetta vanhugsaða
níðingsverk hafi nokkurn tfma verið framið.
Já, sáttfýsi mín er slík, að ég er til í að f ara
að dæmi frelsarans og rétta henni hina kinn-
ina, jafnvel rasskinnina, ef henni kynni að
þykja það skemmtilegra.
En þar sem Þjóðviljinn er nú einu sinni mjög
víðlesið blað, kemst ég ekki hjá því að fara
nokkrum orðum um grein Steinunnar, svo að
alþjóð fari nú ekki að gera sér rangar hug-
myndir um mig sem slíkan.
Ég held að réttast sé að byrja á byrjuninni
og fara nær orðrétt með upphafið að grein
Steinunnar.
En til þess að ég geti tekið þetta upphaf til
min, eins og svo f jölmargt annað í greininni,
þá séég mig tilneiddan að bæta inn smáorðinu
„ekki" með breyttu letri á f jórum stöðum og
stytta upphaf Steinunnar ögn:
Tilkynni, þjóð mín — ég á ekki von á barni.
Enn eitt móðurlíf er ekki tekið til starfa með
hjálp samferðamanna minna, sem ekki hafa
verið til i að gera það sem ekki má nefna á
síðum Þjóðviljans, því þá hættir fólk að lesa
Blaðið, nema í laumi, kannske læst inná
klósetti áður en það þurrkar sér um botninn á
því. Lítill aðskotahlutur — iykkja var ekki
fjarlægð úr neðra hálsi mínum og náttúran
látin hafa sinn gang.
Sem sagt. Ef upphaf greinarinnar ætti við
mig, þá eru fyrstu þrjú ekki-in augljós (s.s.
hvers vegna ég á ekki von á barni með sam-
ferðamönnum mínum, sem ekki hafa verið til
í að gera hitt).
Afturámóti er ástæðan til þess að ég setti
„ekki" framanvið þá staðhæfingu að lykkja
væri aðskotahlutur í neðri hálsinum í skrokkn-
um á einhverjum, sú að hér örlar á misskiln-
ingi hjá Steinunni. Lykkja er nefnilega ekki
aðskotahlutur i líkama nokkurs manns, sístaf
öllu í neðra hálsi.
Lykkja og neðri háls eru einfaldlega þekkt
bæjarnöfn, nánar tiltekið Lykkja á Kjalarnesi
og Neðri-Háls í Kjós. Sú kenning er meira að
segja að verða ríkjandi meðal örnefna-
fræðinga að hér sé komin skýringin á orðinu
„náttúrunafnakenning".
Og hvað því viðvíkur að „þurrka á sér botn-
inn" með Þjóðviljanum. Slíkt hef ég ekki þor-
að síðan amma mín trúði mér f yrir því að slík-
ar skeihingar væru stórháskalegar; gætu or-
sakað blýeitrun á vondum stað.
En nú verð ég að f ara að koma að því, sem
mér sárnaði mest í grein Steinunnar, en það
eru þessi hennar óbreyttu orð:
„í Þjóðviljanum er hamast gegn kynlífs-
síðunni í nafni hins hreina sósíalisma. Það er
að vísu svolítið á reiki, hvar þessi kynlffssíða
er í blaðinu, stundum virðist átt við jaf nréttis-
síðu Rauðsokka, stundum unglingasíðuna,
öllum þessum aðdróttunum hlýt ég að verða
að svara.
Þjóðviljinn hefur að undanförnu legið undir
því ámæli að vera leiðinlegt blað, einkum
vegna skorts á sósíalskri umf jöllun og öðrum
húmor, gríni og gamni. Nú er það staðreynd að
ekkert af efni Þjóðviljans er jafn spreng-
hlægilegtog kynlífssíðan, og þau eru sannar-
lega ótalin skiptin, sem kynlífs- jafnréttis- og
unglingasíðurnar hafa gert Þjóðviljann að
eftirsóknarverðasta grínblaði þjóðarinnar,
blaði sem allir geta hlegið að. Og hver þarf að
lesa „skrípó", þegar krítikkerunum tekst
upp?
Þegar allt þetta er haft hugfast og með hlið-
sjón af þeim hlýhug, sem ég ber til „Blaðs-
ins", er óhugsandi að mér kæmi nokkurn tfm-
ann í hug að veitast að þvi efni, sem „Blaðið"
hef ur sósíalskast og broslegast uppá að bjóða.
Hvað Rauðsokka áhrærir f inn ég mig knúinn
til að upplýsa það, að ég er annar tveggja
karla, sem voru á stofnfundi Rauðsokka í
friðum hópi föngulegra meyja í Þjóðleikhús-
kjallaranum fyrir tíu árum. Sem sagt, maður
ræðst ekki á sjálfan sig.
Ekki trúi ég því, að Steinunn mín viti ekki
hvernig á að létta áhyggjunum af ungum
dreng, sem er með minnsta tippið í bekknum.
Það hefði nú verið kallað tittlingaskitur í
minu ungdæmi.
Hins vegar finnst mér að til ástarauka ætti
veikara kyn þessa lands að einbeita sér að því
að létta áhyggjunum af miðaldra nöldurseggj-
um, sem eru með minnsta tippið í bænum, þó
rétt sé að vísu það sem Einstein sagði þegar
hann lagði fram afstæðiskenningu sína:
Ástin vex hjá eðlilegum konum
er þær höndla karlsins mesta stáss.
Svo fer það bara eftir umbúðonum
hvað innihaldið tekur mikiðpláss.
Flosi
ra
Laus staða
Starfsmaður óskast til þess að hafa um-
sjón og eftirlit með húsbyggingum og við-
haldi skóla i Kópavogi á komandi sumri.
Tæknifræðingsmenntun æskileg.
Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu
Kópavogsbæjar i félagsheimilinu
Fannborg 2.
Umsóknum skal skila til undirritaðs fyrir
10. mai n.k. Bæjarverkfræðingur
Fundur
um Nicaragua
verður haldinn i Félagsstofnun stúdenta
við Hringbraut kl. 15.00 í dag
Dagskrá:
Georg Black, formaður bresku Nicaragua-
samstöðunefndarinnar flytur ræðu og svarar
fyrirspurnum.
Ingibjörg Haraldsdóttir les þýðingar á Ijóðum
eftir nicaraguönsk skáld.
Haukur AAár Haraldsson segir frá stuðningi
verkalýðshreyfingarinnar á Norðurlöndum
við Nicaragua.
Fundarstjóri: Pétur Reimarsson.
AIþýðubandalagið í Reykjavík, SINE,
Fylkingin, Stúdentaráð HÍ
j íslandsmótið
I í sveitakeppni
ILokið er 4 umferðum i úrslit-
um Islandsmótsins i sveita-
keppni, er hófst á Loftleiðum sl.
miðvikudag.
I* Er 3 umferðir voru búnar, var
staða efstu sveita þessi:
1. sveit Þórarins Sigþórssonar
, 46 stig.
12. sveit Hjalta Eliassonar 44
stig.
3. sveit Sævars Þorbjörnssonar
, 41 'stig.
14. sveit Öðals 36 stig.
5. sveit Skafta Jónssonar 25 stig.
I gærkvöld var svo 4. umferð
spiluö, en 5. og 6. umferð i dag
■ og i kvöld. A morgun lýkur svo
Imótinu.
Litið er hægt að segja um
mótið enn, en baráttan virðist
> standa á milli 3 efstu sveitanna.
IÞó skýrast linur væntanlega i
dag, en þá eigast við Þórarinn —
Óðal, Helgi — Hjalti, Sævar —
* Jón Páll og Skafti — ólafur.
| Frá TBK
■ Næsta fimmtudag, hefst 3
Ikvölda Mitchell-tvimennings-
keppni hjá TBK. Mótið er til-
einkaö 30 ára afmæli félagsins,
■ og verða þvi vegleg verðlaun i
Iboði. Spilað verður 8.,22. og 29.
mai.
Helgina 10.-11. mai, verður
* svo 4 félaga keppnin á Akureyri,
Ier fyrirhuguð var um daginn.
Spilamennska hefst kl. 19.30.
Spilað er i Domus Medica. Allir
í velkomnir.
Stuttar keppnir
hjá Ásunum
Enn halda Asarnir áfram eins
kvölds keppnum, svo sem veriö
hefur að undanförnu.
Sigurvegarar sl. mánudags-
kvöld urðu Esther Jakobsdóttir
og Guðmundur Pétursson.
Meðal efstu manna urðu m.a.
Gestur Jónsson, Guðmundur
Baldursson, Sverrir Kristinsson
og fleiri valinkunnir menn.
Spilamennska hefst kl. 19.30.
Spilað er i Fél. heim. Kópavogs,
á mánudagskvöldum.
Bœjarkeppni
Arleg sveitakeppni vina-
félaganna Bridgefélags Kópa-
vogs og Bridgefélags Selfoss
var haldin föstudaginn 25. april.
Kópavogsmenn sóttu Selfyss-
inga heim og var spilað i
Tryggvaskála. Sex sveitir tóku
þátt i keppninni frá hvoru félag- I
anna og 32' spil spiluð við sveit.
Úrslit urðu að Bridgefélag I
Kópavogs sigraði á öllum borð- *
um og hlaut samanlagt 105 stig I
gegn 15 stigum heimamanna. j
Frá Bridgefél- :
agi Kópavogs |
Fimmtudaginn 8. mai n.k. !
verður spilaður einskvölds tvi- |
menningur og verður keppnin
lokaspilakvöld keppnisársins. ]
Að spilamennsku lokinni veröa !
verðlaun afhent fyrir keppnis-
árin 1978-1979 og 1979-1980. Veitt
verða verðlaun fyrir 3 efstu ]
sætin i aðalsveitakeppni, ■
barometer, butler, hraðsveita- I
keppni og tvimenningi.
Frá Barðstrend-
ingafélaginu |
Nú er lokið Einmennings- *
keppninni sem jafnframt var
siðasta keppnin á vetrinum. I
Arangurefstu manna var þessi:
1. Eggert Kjartansson 211 stig,
2. Þorsteinn Þorsteinsson 211
stig, 3. Gunnlaugur Þorsteins-
son 203 stig, 4. Ragnar Björns-
son 203 stig, 5. Helgi Einarsson
201 stig, 6. Þórarinn Arnason 195
stig, 7. Guðrún Jónsdóttir 193
stig, 8. Þorvaldur Lúðviksson
190 stig.
Við óskum öllum gleðilegs
sumars og þökkum fyrir vetur- I
inn og vonandi sjáumst við öll '
heil i haust.