Þjóðviljinn - 01.07.1980, Page 2

Þjóðviljinn - 01.07.1980, Page 2
2 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 1. júll 1980. Benedikt Gröndal, formaöur Alþýðuflokksins: Óska Vigdísi og þjóðinni til hamingju „Alþýöuflokkurinn hefur haldiö sig algerlega utan viö þessar kosningar og ég hef sem for- maöur flokksins fylgt þeirri stefnu”, sagöi Benedikt Gröndal, formaöur Alþýöuflokksins. Þegar úrslitin lágu fyrir sendi ég sigurvegaranum heillaóska- skeyti og hét henni samstarfi og stuöningi Alþýöuflokksins. Ég óska henni og þjóöinni til ham- ingju meö sigurinn, og vona aö henni farnist vel i embættinu eins og forverum hennar „Þetta eru þriöju almennu for- setakosningarnar og þjóöin hefur gert þær allar sögulegar”, sagöi Benedikt. „1 fyrstu kosningunni hafnaöi þjóöin forystu stjórn- málaflokkanna i vali forseta, i öörum kosningunum hafnaöi hún reyndum stjórnmálamanni fyrir glæsimenni úr menningarllfi og þessar þriöju kosningar veröa án efa taldar sögulegar vegna þess aö þaö skyldi vera kona sem var kosin. Hún flokkast einnig undir leiötoga I menningarlifinu og er kosin fram fyrir frambjóöendur sem ef til vill hafa meiri reynslu i stjórnarfarslegu og pólitisku lifi. Þetta segir sina sögu um sterkt lýöræöi og mjög sjálfstæöa kjós- endur”, sagöi Benedikt aö lokum. — AI Dr. Gunnar Thoroddsen forsætisráöherra: Samfagna Vigdísi „Þegar nú þjóöin hefur skoriö úr I lýöræöislegum kosningum um val milli fjögurra ágætra frambjóöenda, þá samfagna ég Vigdisi Finnbogadóttur meö sig- urinn og árna þjóöinni og henni heilla,” sagöi dr. Gunnar Thor- oddsen forsætisráöherra, einnn þeirra embættismanna lýöveldis- ins sem hvaö nánast samband hefur viö forseta tslands. Dr. Gunnar iét i ljós þá ósk aö Vigdis veröi farsæll forseti og sagöi aö kjör hennar ætti aö veröa til þess aö örva konur til þátttöku i stjórnmálum. Æskilegra væri aö fleiri konur sætu á þingi en hér heföi veriö. — AI Fréttir af forseta- kosningunum erlendis Það var aldrei... Aöfaranótt 30. júni var feröa- maöur á leiö um Skeiöarársand. Hann sló tjaldi sinu undir Lóma- gnúp og lagöist aö sofa. Þegar hann haföi sofiö skamma stund dreymdi hann aö laukst upp gnúpurinn og út kom bergrisi mikill og hóf aö kasta af sér vatni. Bergrisinn kvaö viö raust á meöan á þvi stóö: Þaö var aldrei þjóöin kaus. brtr af hennar bestu sonum læöast um og lúta haus. Löngum stafar illt af konum. Hristi bergrisinn af sér dropann svo dunaöi viö og laukst svo aftur gnúpurinn. Feröamaöur vaknaöi og mundi visuna. Forsetakosningarnar: Misþung atkvæði hefðu engu breytt Hver heföu úrslit forsetakosn- inganna oröiö ef þaö misvægi at- kvæöa er rikir I Alþingiskosning- um heföi gilt I þessum kosning- um? Ef atkvæöi frambjóöend- anna fjögurra eru umreiknuö meö misþungu vægi eftir kjör- dæmum kemur i ljós aö úrslitin heföu I reynd oröiö mjög svipuö. Vigdis heföi fengiö 33.7% i staö 33.6%, Guölaugur heföi fengiö 31.6% I staö 32.2% Albert fengiö 21.9% I staö 19.8% og Pétur fengiö 12.8% i staö 14.0%. Forsetakosningar eru aö þvi leyti sérstæöar og frábrugönar Alþingiskosningum aö þar er landiö allt eitt kjördæmi og þvi vega atkvæöi manna alveg jafnt. 1 Alþingiskosningum er vægi at- kvæöa hins vegar allmisjafnt eftir kjördæmum. Mestur er munurinn á milii Reykjanes- og Vestfjaröakjördæmis, en atkvæöi á Vestfjöröum vegur nær 5 falt á viö atkvæöi i Reykjanesi. — þm Kjör V igdisar Finnbogadóttur sem forseta Islands hefur þegar vakiö mikla athygli I blaöaheim- inum, enda eru staddir hér frétta- menn viöa aö til aö fylgjast meö rás viöburöa. Erlendar fréttastofur hafa einnig sina tiöindamenn sem senda fréttir og einn slikur er Þorsteinn Thorarensen. Frá fréttastofu Reuters bárust I gær eftirfarandi fréttir af forseta- kosningunum sendar af Þ.Þ.: Frú Vigdis Finnbogadóttir var I dag kosin forseti Islands. Hún er fyrsta konan I heiminum sem kosin er forseti i almennum kosn- ingum. Hún er vinstri sinnuö og NATO-andstæöingur og bar sigurorö af þremur karlfram- bjóöendum. Frú Finnbogadóttir sem er fimmtug aö aldri vann naumasta sigur sem um getur i forseta- kosningum hér. Hún sagöi eftir aö sigurinn var ljós aö þetta væri eins og i ævintýri. „Ég er stolt, ekki vegna sjálfrar min, heldur vegna is- lenskra kvenna. Mér er sagt aö þetta sé i fyrsta sinn sem kona er kjörinn forseti lýöveldis i lýö- ræöislegum kosningum”, sagöi hún. Hinn nýi forseti hefur ekki neina reynslu af pólitisku starfi, hún hefur fengist viö kennslu, veriö leiösögumaöur, sjónvarps- stjarna og leikhússtjóri. Andstæöingar hennar bentu á aö hún væri vinstri sinnuö og styddi kröfur um brottför hersins. Þá segir i næsta skeyti: Frú Finnbogadóttir studdi friöarhreyfingu kommúnista dyggilega á yngri árum og sótti ráöstefnur i Sovétrikjunum og Kina. Hún tók árlega þátt i Kefla- vlkurgöngum gegn bandariska hernum, en hún lagöi áherslu á þaö I kosningabaráttunni, aö hún heföi aldrei veriö félagi i Kommúnistaflokknum! „Ég veit ekki hvort ég er kommúnisti. Ef barátta fyrir jafnrétti og réttlæti er sama og kommúnismi þá er ég þaö”, sagöi hún. 1 siöustu sjónvarpsræöu sinni sagöist hún einfaldlega vera friöarsinni og gegn allri hervæö ingu”. (lauslega þýtt—ká) jnr — ■iirmr. ja Erlendir blaöamenn fjölmenntu til landsins til aö fylgjast meö forseta- kosningunum. Kerstin Matz frá Expreseen i Stokkhólmi tók ritvélina meö sér I Klúbbinn til aö vera viö öllu búin. Dr. Ólafur Jóhannesson, utanríkisráöherra: r Anœgju- leg kosning „Þessi spennandi kosning var ánægjuleg vegna þess aö þjóöin heföi veriö sæmd af hverjum þessara' fjögurra manna,” sagöi dr. ólafur Jóhannesson, utanrik- isráöherra. „Ég efast ekki um aö aliir fylki sér nú aö baki Vigdisar.” „Segja má aö þaö sé viöburöur aö kona nái kosningu til þessa embættis, þó aö sjálfsögöu sé ekkert undarlegt viö þaö,” sagöi ólafur ennfremur. „Ég tel þær jafn hlutgengar sem karimenn en kjöriö vekur meiri athygli fyrir vikiö. Eftir þvi sem ég þekki til hefur ekki staöiö á stjórnmála- flokkunum aö taka viö konum tii trúnaöarstarfa svo framarlega sem þær hafi gefiö kost á sér.” — AI Svanhildur llalldórsdóttir: Hvatning fyrir konur „Eins og þegar ég varö fyrst verulega ástfangin” segir Svanhildur Halldórsdóttir, kosningastjóri Vigdísar Ég er álika rugluö og þegar ég varö fyrst verulega ástfangin eöa þegar ég eignaöist börnin min”, sagöi Svanhildur Halldórsdóttir, kosningastjóri Vigdisar Finn- bogadóttur, þegar Þjóöviljinn haföi samband viö hana I gær en Svanhildur vakti mikla athygli i kosningabaráttunni vegna rólegrar framkomu og ferskrar og óheföbundinnar framkomu af kosningastjóra aö vera. Svanhildur sagöi aö kjör Vigdisar væri ákaflega merkilegt vegna þess hún væri fyrsti forseti af kvenkyni sem kosinn væri I heiminum i lýöræöislegum kosn- ingum og hún væri aldeilis á þvi aö þétta ætti aö vera hvanting til þess aö konur létu nú ekki deigan siga heldur gengju ótrauöar fram i baráttunni. Annars sagöist Svanhildur aldrei hafa haft minniminnimáttarkennd, hvorki gagnvart konum né körlum, enda væri hún alin upp af sérdeilis sjálfstæöri konu sem heföi m.a. veriö ein af 50 stofnfélögum i Sparisjóöi Reykdæla. Þá sagöi Svanhildur aö kjör Vigdisar vekti óneitanlega mikla athygli á þvl út um heim hversu viösýnt og fordómalaust þjóö- félag viö byggjum viö en þaö ætti jafnframt aö hvetja okkur til aö lita i eigin barm og heröa okkur til aö gera betur. Svanhildur sagöi aö kosni^ga- baráttan heföi veriö fjarskalega lærdómsrlk fyrir sig og hún heföi kynnst fleira fólki en hún heföi áöur gert á heilli mannsævi en jafnframt kennt sér aö þekkja eigin hæfileika og gera öörum þá ljósa. — GFr

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.