Þjóðviljinn - 01.07.1980, Qupperneq 5

Þjóðviljinn - 01.07.1980, Qupperneq 5
Þriðjudagur 1. jiili 1980. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5 Enska kennsluleikhúsid í Tjarnarbæ Enska kennsluleikhúsiö „The English Teaching Theater” hcldur sýningu I Tjarnarbæ á morgun þriðju- daginn 1. júli kl. 20:00 A efnisskrá er röð stuttra leikatriða sem sýna hvernig nýta má leikræna tjáningu i kennslu. Sýningin er á vegum is- lenskra tungumálakennara, sem hvetja kennara og áhuga- fóik UKl leikhús aö notfæra sér þetta einstæöa tækifæri. 126 útskrifast frá Tækniskólanum 126 nemendur luku prófum frá Tækniskóla Islands á þessu ári, en um 400 nemendur stunduðu nám við skólann á liönu skólaári, þar af voru 26 við nám á Akureyri og 9 á Isa- firði. Þeir 126 nemendur er nú útskrifuðust skiptust eftirfar- andi samkvæmt námsbraut- um: Byggingatæknifræöingar urðu 13, Byggingatæknar 3, Fyrstahlutamenn i véltækni- fræði 8, Fyrstahlutamenn I rafmagnstæknifræði 15, Raf- tæknar 8, Véltæknar 5, tJt- gerðartæknar 16, Meina- tæknar 13, Raungreina- deildarprófsmenn 45. Strætisvagnamenn á þingi í dag og á morgun verður haldið i Reykjavík þing „Nordisk Lokaltrafik Fören- ing”, sem eru samtök almenningsflutningafyrir- tækja á Noröurlöndum. Island hefur að ýmsu leyti sérstöðu í þessum málum. Þéttbýli hefur myndast hér siðaren á hinum Norðurlönd- unum, en þróunin aftur á mðti orðið örari, eftir að hún hófst. Við Islendingar hlupum t.d. yfir sporvagnaskeiðið, en þó má segja, aö viö stöndum að flestu leyti jafnfætis frændum okkar á Norðurlöndum i almenningsflutningum nú, þar sem um sambærilegar stæröir er aö ræða á annað borð. Til gamans má geta þess, að við höfum sérstöðu i þvi, hversu eftirsótt starf strætisvagna- stjóra er hér á landi þrátt fyrir fulla atvinnu, gagnstætt þvi sem er sumstaöar annars staöar á Norðurlöndum, þótt atvinnuleysi sé þar nú viöa. Yfirleitt hefur verið meiri eftirspurn eftir þessu starfi en þörf hefur verið á hér á landi. Erlendir þátttakendur á þinginu eru um 330 frá öllum hinum Norðurlöndunum. Þingiö er haldið I Menntaskói- anum við Hamrahlið. Nýr sendiherra frá Perú Nýskipaður sendiherra Perú, Carlos Vasquez-Aylion, hefur nýlega afhent forseta islands trúnaðarbréf sin að viðstöddum Ólafi Jóhannessyni forsætisráðherra. Nýr sendiherra Austurríkis Nýskipaöur sendiherra Austurrfkis, dr. Erich Pichler hefur nýléga afhent forseta tslands trúnaðarbréf sin að viðstöddum Ólafi Jóhannessyni utanrikisráðherra. Leikendur I Fiugleik hafa notað góða veðrið undanfarið og æft I garðinum heima hjá Brynju leikhússtjóra. — Ljósm, — gei — Flugleikur á Borginni Hópur ieikara, sem nefnír sig „Júli leikhúsið”, frumsýnir leikritið „Flugkabarett” á Hótel Borg n.k. fimmtudag. Höfundur er Brynja Benedikts- dóttir, Erlingur Gfslason og Þórunn Sigurðardóttir. Brynja er jafnframt leikstjóri. Flutningur leikritsins tekur klst. og lýsir flugferð með hinni nýju og glæsilegu Elefant skrúfu- þotu Loftferðafélagsins, Flóka Vilgerðarsyni, frá Keflavik til New York og til baka. Flugstjóri I þessari ferð er Gisli Rúnar Jónsson. Fyrsta flugfreyja er Edda Þórarinsdóttir, önnur flugfreyja Saga Jónsdóttir, þriöja flugfreyja Edda Björgvinsdóttir og fjórða flugfreyja Guölaug María Bjarnadóttir. Skrokk flugvélarinnar og flug- búninga hannaöi Sigurjón Jóhannsson. Tónlist er eftir Karl Sighvatsson. Flugvélstjóri er Þórir Steingrimsson. I júli eru leikhúsin lokuð og sjónvarpiö einnig, en hér ætlar Júll leikhúsiö þvi að koma til bjargar. Gestum verður gefinn kostur á snarli og léttvini fyrir sýningu. Einnig meðan á sýningu stendur. A eftir er dansleikur fyrir þá sem vilja. Unnt er aö kaupa aðgöngu- miða á leikhússýninguna einuneis, eöa á leiksýningu og dansleik I senn. Sýningar standa aðeins yfir I júlimánuði og veröa fimmtudags- föstudags- og laugardagskvöld, en á sunnudögum ’kl. 16 verða síð- degissýningar fyrir alla fjöl- skylduna. 130 nýir grunnskólakennarar Aukiö sérgreinanám Fjórir fyrstu hússtjórnar- kennararnir frá Kennaraháskól- anum voru I hópi 130 grunnskóla- kennara sem brautskráðir voru frá skólanum nú I vor, en samtals stunduðu um 400 nemendur al- mennt kennaranám á skólaárinu. Hússtjórn var tekin upp sem valgrein við Kennaraháskólann haustiö 1977, en námið I greininni fer fram I Hússtjórnarkennara- skóla tslands. A sl. hausti hófst einnig nám tónmenntakennara við skólann og fer það fram I Tón- listarskólanum I Reykjavik. Tilfinnanlegur skortur er á kennurum I ýmsum sérgreinum viö grunnskóla landsins, t.d. I tón- mennt, hússtjórn og smiðum. Allar þessar greinar er nú hægt að nema sem valgreinar við Kennaraháskólann, en námið veitir auk þess almenn kennara- réttindi á grunnskólastigi. A sl. hausti og nú I vor hófst viö skólann nám fyrir kennara sem starfað höföu án kennsluréttinda sem settir kennarar á grunn- skólastigi I fjögur ár eða lengur vorið 1978, þegar lög um em- bættisgengi kennara og skóla- stjóra voru samþykkt. I námi þessu taka þátt 137 kennarar og er það byggt upp sem kennaranám I Kennarahá- skólanum og heimanám meö verkefnagerð og bréfaskóla að vetrinum. Þeir sem minnst nám þurfa að stunda öðlast kennara- réttindi á árinu 1981 en aðri ' árin 1982 eða 1983. Fimmtán námskeið fyrir starf- andi kennara verða á vegum Kennaraháskólans á þessu sumri með um áttahundruð þátttak- endum. Umsóknarfrestur um skólavist næsta skólaár er til 1. júli. Mikil aðsókn er að skólanum og þvi óvlst aö hægt verði að veita öllum skólavist sem sækja. Ástæður fyrir bensín- og gasolíuhækkun: Gengisbreytingar og geymdur vandi Um þessi mánaðamót er inn- kaupajöfnunarreikningur bensfns óhagstæður um 666 miljónir króna og innkaupajöfnunarreikn- ingur gasoliu óhag stæður um 1023 miljónir. Það eru gengis- breytingar fsl. krónunnar sem vaida þessari stöðu. Frá verð- ákvörðun bensins I mars I ár fram til nýju verðákvörðunarinnar um siðustu helgi hefurgengi banda- rikjadollars hækkað um rúmlega 13% og frá þvl Idesember I fyrra, þegar gasoliuverö sem gilti I sið- ustu viku var ákveðiö, nemur hækkun á gengi dollarans 18%. Þessar upplýsingar koma fram I fréttatilkynningu frá rlkis- stjdrninni þar sem raktar eru ástæður siðustu hækkunar á benslni og gasoliu, en bensin hefur verið hækkað I 481 kr. pr. liter og gasolian I 196.40 krónur pr. llter. 1 fréttatilkynningunni kemur fram að mestur hluti slð- ustu hækkunar stafi af ofan- greindu gengissigi. Einnig hafi orðiö að mæta geymdum vanda frá slöasta ári og færa tekjuöflun til vegagerðar til samræmis við áætlun fjárlaga. Geymdi vandinn er þannig til kominn, aö I fyrra sumar, þegar hækkanir á oliuverði voru ör- astar, var tekiö 3 miljaröa króna erlent lán til að unnt væri að dreifa hækkunum á gasoliuverði yfir lengra tímabil en ella. Nú er endurgreiðsla þessa láns hafin, og ganga til hennar 5.46 krónur af verði hvers gasollulltra. Bensingjald, sem hækkaði um kr. 8.50, rennur einvöröungu til vegagerðar. Sú hækkun gjaldsins sem nú kom til framkvæmda, var heimil þegar I aprll, eftir að ný byggingarvisitala lá fyrir. — þm

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.