Þjóðviljinn - 12.07.1980, Side 3
Sérrit Þjóöviljans um ALMENNINGSIÞROTTIR OG ÚTIVIST
12. juli 1980
„Við eram hönnuð
fyrir annað umhverfi
en við lifum nú í”
„Lfkaminn er geröur fyrir
áreynslu, t.d. starfar stór hiuti
heilans viö þaö aö stjórna hreyf-
ingum. Vandamáliö er hins vegar
aö viö erura hönnuö fyrir allt
annaö umhverfi en viö lifum i
nú,” sagöi Jóhannes Sæmunds-
son, iþróttakennari og fræösiu-
fulltrúi tþróttasambandsins i
stuttu spjalli viö Þjóöviljann.
— Hvaö skeöur ef viö nýtum
ekki, af einhverjum orsökum, þá
möguleika sem viö höfum á
hreyfingu. Það sjáum viö best
þegar viö erum sett I gifs. Þá
hrörna vefirnir. Þetta er einfalt
dæmi, sem sýnir vel nauösyn
hreyfingar.
— Hvaöa þætti likamsstarf-
seminnar hefur áreynsla (skokk
o.þ.h.) einkum áhrif?
— t fyrsta lagi er áreynsla
mikilvæg fyrir hjarta og
æðakerfi. Þetta er mikilvægast.
Þá hefur áreynsla mikil áhrif á
vöövana og þar eru kviö- og bak-
vöövar mikilvægastir. t þriöja
lagi eru þaö liöamótin. Þau er
nauösynlegt aö liöka vegna þess
aö þar er engin blóörás. t liöa-
mótum þarf þrýsting til aö taka
upp næringu og losa burt úrgang.
Gerist þaö ekki myndast band-
vefur í liðamótum.
— Eitter þaö sem margir horfa
á í þessu sambandi, en þaö eru
hin svokölluö aukakiló. Viö þurf-
um u.þ.b. 2400 til 2600 hitaein-
ingar a dag, en margir hverjir
brenna ekki meiru en 1800-2000
hitaeiningum á dag. Þaö sem af-
gangs veröur sest á líkamann
sem fita. Viö megum ekki missa
þann hitaeiningafjölda sem viö
fáum og þá verður aö auka
brennsluna. Þetta er I sjálfu sér
Nokkrar upplýsingar
og ráðleggingar til
þeirra sem vilja
iðka íþróttir
ákaflega einfalt mál. 1 þessu
sambandi má geta þess aö
likamsáreynsla eykur ekki
matarlyst, heldur þvert á móti
dregur úr henni. Þetta þykir ef-
laust mörgum skritin kenning, en
sýnt hefur veriö fram á hana meö
margháttuöum tilraunum.
— Hefurðu einhverjar ráölegg-
ingar handa þeim sem vilja byrja
að „trimma”?
— Ja, ef að fólk hefur efasemd-
ir um að likamsáreynsla sé þvi
holl þá er best að leita til læknis
og fá úrskurö hans. Ég held aö I
flestum tilfellum sé áhættan
meiri að trimma ekki. Þá er aö
TRIMM
athuga aö hentug áreynsla í upp-
hafi eru.þ.b. 120 til 130slög á mín.
Eldri og litt þjálfaöir haldi sig þó
ögn neðar.
Eg ráölegg fólki aö byrja á
gömlu, góðu göngunni, þaö er
langbest aö hefja þjálfun þannig.
Þannig má t.d. skilja bilinn eftir
oftar og ganga eitthvað, helst á
hverjum degi. Athuganir hafa
sýnt að þaö er fullnægjandi aö
ganga i 20 mln og tækifærin eru
óteljandi. Agætteraö ganga hratt
og hægt á vlxl, t.d. að greikka
sporiöá milli tveggja ljósastaura.
Einsetjir þú þér aö trimma,
sem er næsta stig, er ágætt aö
ganga og skokka til skiptis og þá
vera i iþróttafötum.
Þegar að næsta áfanga er náö
er um margar leiöir aö velja, en
þaö skiptir samt öllu máli aö
trimmarinn hafi gaman af þvi
sem hann er aö gera. Þaö skiptir
ekki máli hvort viö stundum
badminton, hjólreiöar, göngu,
sund eöa skokk, gleöin veröur aö
fylgja. Reyndar er oft erfitt aö
halda út I upphafi, þvi hin andlega
og likamlega fullnægja kemur
ekki fyrr en eftir svolitinn tima.
Það skiptir einnig miklu máli aö
hafa félagsskap, vini og
kunningja eöa fjölskyldu.
— Hvernig er best að þjálfa
sig? Er t.d. betra aö hlaupa
(synda...) langt og hægt, stutt og
hratt eöa vixla hraöanum?
— Ég vil ráöleggja fólki ein-
ungis aö byrja rólega og auka
álagiö siöan. Þaö skiptir i sjálfu
sér engu meginmáli hver aöferöin
er notuö. Hver og einn veröur aö
finna þaö sem hentar honum best.
ALLIR ÚT AÐ TRIMMA
— IngH
Barnaöryggisstó lar
í bíla.
Tryggið öryggi yngsta
farþegans í bílnum
með góðum öryggisstól!
Póstsendum
Varðan h.f.
Grettisgötu 2A. Sími 19031