Þjóðviljinn - 12.07.1980, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 12.07.1980, Blaðsíða 4
Sérrit Þjodviljans um ALMENNINGSÍÞRÓTTIR OG ÚTIVIST 12. julí 1980 almenningsíþróttir og utivist NOBMUINN Umsjón: Ingólfur Hannesson Ljósmyndir: Gunnar Elísson Útlit: Björn Björnsson og Har- aldur I. Haraldsson Iþróttahreyfing á krossgötum Hugleiðing á ölympíuári „Gleöi af vöövaáreynslu, lotning og fegurö, Starf f þágu fjölskyldu og samfélags, þetta þrennt i órjúfanlegri einingu, þaö er ólympiuhugsjónin”. Eftir rúma viku hefjast ólym- piuleikarnir i Moskvu og er óhætt aö segja aö aldrei fyrr i sögu leik- anna hafi staöið eins mikill styrr um þá. Hin fagra ólympiuhug- sjón, sem tlunduð er hér aö ofan, hefuralgjörlega falliö i skuggann fyrir hagsmunabrölti áhrifamik- illa einstaklinga og rikja. Sú saga er vfst öllum kunn. Hinn gullni meðalvegur vandrataður Hér heima hafa væntanlegir ólympíuleikar orðiö tilefni til nokkuö fjörugra umræöna um þaö hvort íslendingar eigi aö taka þátt i þeim eöa sitja heima. Þau undur og stórmerki hafa gerst I þeirri umræöu aö heimasetu- menn eru flestir úr þeim flokki manna sem áður hafa viljað stia I sundur iþróttum og stjórnmálum, þó aö þetta tvennt sé, hafi veriö og veröi vissulega spyrt saman. Þetta eru þeir menn sem hvorki hreyföu legg né lið til andmæla þegar Heimsmeistarakeppnin var haldin I Argentlnu áriö 1978, þvf landi pólitiskra ofsókna. Sennilega er þetta allt saman spurning um þaö hvort tilgangur- inn helgi meöaliöeöa ekki, en þaö er önnur saga. Aövitað er mönnum frjálst aö mótmæla, en þá má hræsnin ekki ráöa rlkjum. Ef menn vilja standa uppréttir I þvi aö hvetja íslendinga til þess aö sitja heima meöan ólympiuleikarnir fara fram, þá veröa þeir hinir sömu aö sjá afleiöingarnar fyrir. Þaö er t.a.m. furöulegt aö vilja skera á iþróttaleg samskipti, en um leiö auka efnahagsleg tengsl viö viö- komandi aöila. Þaö hlýtur aö vera erfitt aö finna hinn gullna meöalveg í þessum málum. Afleiöingar bramboltsins i kringum ólympíuleikana i Moskvu eru margvislegar og veröur t.d. ekki annaö séö en aö þaö hrikti heldur betur i undir- stöðum marga hinna alþjóölegu Iþróttasamtaka. Samskipti iþróttamanna austurs og vesturs veröa vafalitið mjög stirö I framtiöinni og þar meö er búiö aö leika grátt þaö uppbyggingar- starf sem unniö hefur veriö á þessum vettvangi. Á meöan umræöan um Moskvu- leikana hefur veriö i fullum gangi hérheima og erlendis hefur mest- öll iþróttahreyfingin þagaö þunnu hljóöi, eins og hún vilji sem minnst af þessu máli vita. Þarna átti auövitaö aö koma til öflug, málefnaleg umræöa, en forystu- sauöirnir hafa hingaö til látiö sér nægja stuttoröar yfirlýsingar. Þá hefur hin svokallaöa olympiu- nefnd veriö fámál, hverju svo sem þaö sætir. íþróttahreyfingin á að vera baráttuafl Þetta leiöir hugann aö þvi mikla umróti, sem nú viröist vera i íslenskri Iþróttahreyfingu. Þeim, sem skilja nauðsyn Iþróttaiökunar I nútlma vel- feröarþjóöfélagi, fjölgar stööugt. Þetta fólk leitar inn I hreyf- inguna, sem er aö mörgu leyti vanbúin aö taka viö hinum aukna fjölda. Fjögun hefur haldist I hendur viö aukinn árangur af- reks- og keppnismanna okkar og þessir 3 hópar knýja á, að sér veröi sköpuö viöhlltandi aöstaöa. Þama er spurningin um að skapa heildarstefnu Iþróttamála og samtök Iþróttamanna — Iþrótta- samband tslands — eiga aö hafa forystuna. ÍSÍ á aö vera baráttu- afl Iþróttamanna, bæöi innáviö sem útáviö, hvort sem sú barátta kallast pólitísk eöa ekki. Raunar má aldrei veröa flokkspólitlskur litur á baráttunni, en ég yröi ánægöur ef fariö væri aö kalla Iþróttahreyfinguna þvi neikvæöa (?) nafni þrýstihópur. Iþrótta- menn geta og eiga aö mótmæla „skilningsleysi stjórnvalda” likt og bifreiöaeigendur. Viö byggingu Iþróttamann- virkja rikir sú regla I fjár- mögnun, aö riki og sveitarfélag leggja fram 80% á móti 20% frá viökomandi félagi. Aö vissu marki hefur regla þessi ýtt mjög undir framkvæmdir I íþrótta- málum, en hún hefur einnig sína stóru ókosti. Sá er þar mestur er lýtur aö stjórnun sveitarfélaga á uppbyggingunni. Þannig hafa hin gömlu og fjársterku félög dregiö til sih framlög rikis og sveitar- félags i slauknum mæli, á meöan hin „féminni” félög haf ekki getaö ráöist I nauösynlegar fram- kvæmdir. Ungu félögin eru yfir- leitt staösett I barnmörgum hverfum, þar sem þörfin fyrir Iþróttamannvirki er hvaö mest. Hér vantar stjórnun upp- byggingarinnar þannig að fjár- magniö renni þangaö sem þörfin er mest, og um þetta mál þarf Einar Karl Haraldsson íþróttir, útilíf, Iþróttahreyfingin aö leggja orö I belg. Eins og minnst var á hér aö framan er aukning íþrótta- iökenda stööug. Menn veröa varir viö þetta alls staöar á landinu og um leiö veröa viöhorfin gagnvart Iþróttum og útivist jákvæöari. Meö reglubundinni llkams- áreynslu styrkjum viö okkur and- lega jafnt og llkamlega. Sé þaö ekki gert veröur hrörnunar vart fyrr en ella og snöggt og mikið álag getur jafnvel leitt til dauöa. Þessa hluti er I rauninni óþarfi aö tiunda fyrir þá sem til þekkja. Hérna er einnig verk aö vinna fyrir Iþróttahreyfinguna, þ.e. aö kynna vel fyrir almenningi nauösyn iþrótta og útvistar. Þaö veröur aö segjast eins og er aö þessi þáttur hefur oröiö illilega útundan hjá ISI og skrautsýning eins og íþróttahátiö breytir þar litlu. Islensk Iþróttahreyfing er svo sannarlega á krossgötum þessa dagana. Hún þarf aö aölaga sig breyttum aöstæöum og þaö gerist ekki nema meö umræöu og aftur umræöu, sem veröur aö eiga upp- tök sln I innsta kjarna hennar. Þetta er I rauninni llfsspursmál hreyfingarinnar. Lóð á vogarskálina Segja má aö aukablaö þetta um almenningslþróttir og útivist sé afsprengi hins aukna áhuga, sem alls staöar veröur vart viö á þessum málum. Reyndar hafa ýmsir þættir oröiö útundan, en baö er ekki aöalatriöiö. Viö viljum hreinlega leggja okkar lóö á vogarskálina og vonandi kemur Þjóöviljinn meira þar viö sögu á næstunni. —XngH Ritstjórnargrein Meö Sunnudagsblaöi Þjóö- viljans fylgir aö þessu sinni sér- stakt blaö um útivist og almenn- ingslþróttir. Undir þessi hugtök má flokka vítt sviö athafna sem eru þroskandi og holl fyrir ein- staklinga um leiö og þau hafa verulegt þjóöhagslegt gildi sem minni gaumur hefur veriö gef- inn hérlendis en skyldi. Um nauösyn hreyfingar og útivistar mætti hafa mörg orö. Frá sjónarmiöi einstaklingsins er gott llkamlegt ásigkomulag og ómæld ánægja af útiveru dýrmæfi sem fæstir meta næginlega fyrr en heilbrigöinu veröur ábótavant eöa útivistin af skornum skammti af ein- hverjum ástæöum. Frá sjónarmiöi heildar- innar skiptir verulegu máli aö heilbrigöisástand þjóöarinnar almennt sé gott. Heilbrigöisyf- irvöld beina nú æ meir sjónum sinum aö fyrirbyggjandi aö- geröum, sjúkdómaleit og heil- brigöisfræöslu I staö þess aö einblína á lækningar á stofnun- um. Samvirkar aögeröir sem miöa aö því aö bæta heilbrigöis- ástand heillar þjóöar geta sparaö glfurlegar f járhæöir sem annars þarf að verja I dýra stofnaanaþjónustu. Hér undir heyrir barátta gegn reykingum, ofneyslu áfengis, áróöur fyrir bættu mataræöi, hollri hreyf- ingu og heilbrigöari lifsvenjum en almennt tlðkast. A þessum sviðum er fjölda- margt ógert á lslandi enda þótt nokkuö hafi borið á viöleitni til þess aö breyta almenningsálit- inu bæöi af hálfu einstaklinga og yfirvalda slöustu árin. Þaö er langt frá aö þaö sé oröiö al- mennt viöhorf aö hverjum og einum sé hollt og skylt aö gæta likama sins og halda honum viö. Eins og þaö þykir sjálfsagt aö hús og bllar fái sitt reglubundna viöhald, þá er þaö alltof algengt aö fólk taki ekki aö rækta lík- ama sinn fyrr en þaö hefur feng- iö alvarlega áminningu um aö hann sé farinn aö lasnast. Þetta kæruleysi og sinnu- leysi umllkamlega velferö á sér rætur I grónu viðhorfi sem ekki er hægt aö breyta á svipstundu, en má breyta meö skynsamleg- um áróöri og fortölum. Sam- hliöa slfkri áróöursherferö af hálfu opinberra aöila og sam- taka þarf aö byggja upp aðstööu til fjölbreytilegra íþróttaiðkana af munmeirikrafti en veriö hef- ur og tengja saman íþróttir og útivist. Þá er ekki síöur mikil- vægt aö setja samræmdar reglur um not almennings- af landi okkar til útivistar og taka frá þau svæöi sem til þeirra eru ætluö I framtlðinni áöur en þau spillast. Mikill fjöldi fóiks tekur þátt I starfi fþróttahreyfingarinnar I landinu og ekki veröur annaö séö en aö þau Iþróttamannvirki sem reist hafa veriö séu viöast fullnýtt. Hinsvegar viröist nokkuö á þaö skorta aö Iþrótta- iökun sé hluti af daglegu lifi fólks áriö um kring og á öllum aldri. Alltof margir stunda iþróttir um skeiö en láta slöan likamsræktina þoka fyrir „öör- um brýnni” verkefnum. Breyttir atvinnuhættir gera þaö sérstaklega aökallandi aö reynt sé aö breyta þessu viö- horfi. Nútlmastörfum fylgir mörgum kyrrstaöa eöa -seta, innivera og andlegt álag. Þá er mjög kvartaö undan hverskyns streitu af störfum og samskipt- um I því þjóöfélagi sem viö lif- um I. Aö hluta byggist streituum- kvörtunin á misskilningi þvi öll- um athöfnum fylgir andleg og likamleg streita. Spurningin er um jafnvægiö og hiö hóflega álag sem stuölar aö velliöan og heilbrigöi. Um þaö þarf ekki aö deila aö Iþróttaiðkun og útivist eykur streituþol fólks og andlegt jafnvægi. Þeir sem stunda likamsrækt eru almennt betur i stakk búnir til þess aö mæta álagi daglegs llfs en þeir sem láta hann vera. Einhverjir segja sjálfsagt aö hér sé veriö aö búa til for- múlu fyrir auknum afköstum til hagsbóta fyrir auöstéttina. Ef skólaspeki af þvl tagi má alveg eins snúá upp I nauösyn þess aö efla mönnum þrek tilpólitlskrar athafnasemi sem alltof fáir virðast hafa afgangsorku til. Sóslalistar hafa veriö held- ur sinnulausir um stefnu I iþrótta- og útivistarmálum. Er þaö I samræmi viö áhugaleysi stjórnmálaflokka almennt um þessar athafnir I þjóöfélaginu. í stefnuskrá Alþýöubandalagsins er tam. ekkert aö finna um iþróttir I annars merkum kafla //Samvirkar aðgerðir sem miða að því að bæta heilbrigðisástand heiilar þjóðar geta sparað gífur- legar fjárhæðir sem annars þarf að verja í dýra stofnanaþjónustu. Hér undir heyrir barátta gegn reykingum, of- neyslu áfengis, áróður fyrir bættu mataræði, hollri hreyfingu og heil- brigðari lífsvenjum en al- mennt tíðkast." um menntastefnu. Afleiöingin af áhugaleysi stjórnmálaflokk- anna er m.a. sú aö Iþróttahreyf- ingin íslenska er stefnulltiö rek- ald og íþróttastefna rlkisvalds- ins öll I þoku. Areiöanlega væri af þvi tals- verö bót fyrir íþróttahreyfing- una ef henni tækist aö fá stjórn- málamenn og flokka til þess aö meta starfsemi hennar til fjár út frá heilbrigöissjónarmiði. Heilbrigöismálin eru einn fjár- frekasti útgjaldaliöur rikis og sveitarfélaga og iþróttahreyf- ingin gæti tekiö aö sér stórkost- leg sparnaöarverkefni fyrir heilbrigöisyfirvöld. Rannsóknir hafa t.d. sýnt aö auka má þrek barna og unglinga um 100 til 150% á ári meö réttum og hollum æfingum og aö þjálfum á unglingsárum endist betur en sú þjálfun sem fengin er eftir aö fólk hefur náö fullum þroska. Vafalitiö mætti reikna þaö út I sparnaöi fyrir heilbrigöiskerfiö ef börnum og unglingum væri skilaö þrek- meiri og heilbrigöari út I amstur fulloröinsáranna en nú er. En sannleikurinn er sá aö Iþróttir og útivera eru viöa hornreka i islensku skólakerfi. Hér hefur veriö lögö áhersla á gildi llkamsræktar en engri rýrö skal þó kastaö á keppnis- iþróttir. Sú skemmtun sem felst i þeim fyrir þátttakendur og áhorfendur, samskipti milli landaog staöa, fordæmi og metnaðureinstaklinga og þjóöa, er þess eölis aö fæstir vildu án þeirra vera. Þaö er hinsvegar viöfangsefni Iþróttastefnu aö marka þeim bás og hlutverk, og gæta þess aö kepppnisíþrótt r verði ekki hér á landi fórnar- lömbsvæsinnar markaöshyggju eöa þjóörembu. — ekh

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.