Þjóðviljinn - 15.07.1980, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 15.07.1980, Blaðsíða 15
Þriðjudagur 15. juli '1980 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 15 Hringið í síma 8-13-33 kl. 9-5 alla virka daga eða skrifið Þjóðviljanum Ljósm. — gel. frá lesendum Slæmt að eiga inni peninga hjá ríkinu Sigurlaug Jóhannesdóttir hringdi: — Það er sannarlega ekkert gamanmál að eiga inni peninga hjá rikinu. Þeir eru fljótir að loka fyrir rafmagn og sima hjá manni ef maður borgar ekki sina reikninga á tilskildum tima, en sjálfir draga þeir mann endalaust á greiðslu fyrir vinnu sem maður innir af hendi fyrir þá. Þannig er mál með vexti, aö ég og fleiri héldum námskeið fyrir kennara á vegum endur- menntunardeildar. Námskeiðin voru haldin fyrstu vikuna I júni, og við höföum verið beðin um að halda þau með næstum hálfs árs fyrirvara. Við reiknuðum auð- vitað meö að fá launin greidd i siðasta lagi næstu mánaðamót á eftir, en þvi var ekki að heilsa. Viö fáum svo loöin svör, aö ég er j ekki einu sinni viss um að við I fáum þetta um næstu mánaöa- mót. Ég veit að það eru fleiri en ég sem hafa reiknað með þessum peningum og ráðstafað þeim. Það er ekki einsog maður vaði i seölum. Þessi dráttur hefur þvi komiö sér afskaplega illa. Ekki getur maður fengið pappir uppá aö maður eigi peninga inni hjá rikinu og borgað með honum vixlana sem á mann falla. Mér finnst það satt að segja ógeðs- legt, aö hægt sé aö fara svona meö mann. — 1 Laugardalnum er lítið býli, sem mér þykir mjög at- hyglisvert fyrirbæri. Það er áreiðanlega ekki viöa i borgum af þessari stærð, sem hægt er aö finna sveitabýli inni I miðri borg, þangað sem hægt er aö fara meö börn og sýna þeim sveitastörf. Mér skilst að gamli maðurinn sem þarna býrhafiárum saman staðiö i striði við yfirvöld um að halda þessu býli. Nú er búið að moka upp allt túniö hjá honum, og skilst mér að verið sé að ræsa fram dalinn, en varla getur það verið bóndanum hagstætt á þessum árstima. Mér finnst að nær væri að friöa þetta býli og gera eitthvað fyrir bóndann, í staöinn fyrir að rifa niður fyrir honum. Eftir hans dag veröur áreiöanlega hægt að finna fullorðiö sveita- fólk sem vill setjast þarna að og stunda búskap i Reykjavlk. Ólaunuð hjálp Sigriður hringdi: — Mig langar til að koma þeirri spurningu á framfæri við borgaryfirvöld, hvort það sé satt að konan sem heldur opnu klósettinu I Grjótagötu 6 á kvöldin og fram á nætur vinni þetta starf sem sjálfboöaliði. Unglingarnir á Hallærisplan- inu eiga sterkt athvarf hjá þessari konu, og geta leitað til hennar frá kl. 11 til 2 eöa 3 eftir miðnætti og fengið aöstoð, t.d. ef þau meiða sig eða eru illa á sig komin. Skiptir þá engu máli hvort um stráka eöa stelpur er að ræða, og hvort þau eiga peninga. Gjaldiö er 50 krónur, en það er ekki gengiö hart eftir þvi ef krakkarnir eiga þær ekki til. Þessi kona vinnur þarna al- veg einstakt hjálparstarf, að mér skilst i sjálfboöavinnu, og peningarnir sem inn koma fara i að kaupa það sem til þarf, snyrtivörur og sjúkravörur. Mér finnst að þetta starf þess- arar ágætu konu ætti að meta að veröleikum og launa. Það er alltaf greint frá þvi sem miöur fer, ef einhver gerir eitthvað af sér, en um þetta er ekki talað. Krakkarnir kunna þó svo sannarlega að meta það að geta jafnan flúiö til þessarar góðu konu ef þau meiöa sig eða þurfa á aðstoð að halda einhverra hluta vegna. Býliö í Laugar- dalnum! Lesandi hringdi: Sumarleyfissaga Útvarp U!? kl. 9.05 ’ Asa Ragnarsdóttir leikari byrjar i dag að lesa söguna „Sumar á Mirabellueyju” eftir Björn Rönningen I þýðingu Jóhönnu Þráins- dóttur. Björn þessi er norskur rithöfundur, sem hefur skrifaö mikið fyrir börn, og hafa sögur hans verið fluttar i út- varp og sjónvarp i Noregi. „Sumar á Mirabellueyju” er sumarleyfissaga af bestu gerð, spennandi, skemmtileg og oft full af ljóðrænu, — sagði Gunnvör Braga, þegar við spurðum hana um söguna. — Söguhetjurnar eru Maria, 11 ára, Jeppi bróðir hennar, 6 ára, og foreldrar þeirra. Mamman er rithöfundur og gleymir sér ööru hverju við skriftirnar, og þá er það pabb- inn sem þvær upp og eldar og gerir það sem þarf. Þau eru i sumarleyfi á eyju i norska skerjagarðinum. Þar er lika önnur fjölskylda, og við sögu kemur kaupsýslumaður sem sér að eyjan er gulls Igildi og vill reisa þar hótel, en kemst á þá skoðun að betra sé að leyfa eyjunni aö vera einsog hún er. —ih Minmngar Einars Útvarp kl. 10.25 — Einar Jónsson mynd- höggvari skrifaði tvær bækur, „Minningar” og „Skoðanir”, og við ætlum að lesa nokkra valda kafia úr þeirri fyrr- nefndu, — sagði Agústa Björnsdóttir, stjórnandi þátt- arins „Aður fyrr á árunum”. — Hulda Runólfsdóttir frá Hlið I Gnúpverjahreppi les kafiana, sem fjalla um bernskuár Einars i Galtarfelli i Hrunamannahreppi og um dvöl hans i Hlið á unglingsár- unum. Henni er efniö nærtækt, þvi hún man eftir Einari og heimsóknum hans að Hlið. Þá les Hulda einnig kvæöiö „Hnitbjörg” eftir Guðmund Friðjónsson frá Sandi. Það kvæði fjallar um listaverk Einars og var ort 1922, ári áö- ur en Listasafn Einars Jóns- sonar var opnaö i Hnitbjörg- um. —ih. barnahArnið Hugsunar- yiilur Hér fara á eftir f jórar örstuttar sögur, sem allar eru á einhvern hátt rangt hugsaðar. Sjáið þið hvað er bogið við sögurnar? 1. Maður nokkur lauk bréfi til kunningja síns með þessum orðum:... en ef þú færð ekki þetta bréf, þá láttu mig bara vita og ég verð að skrifa þér aftur. Þinn Brandur. 2. Maður nokkur vaknaði um miðja nótt og heyrðist eitthvert þrusk vera f yrir f raman hurðina. — E r þa r n a nokkur? — kallaði hann. — Nei, — var svarað fyrir framan. — Það er ágætt, þá get ég sofið rólegur. 3. Bakari nokkur sagði við kunningja sinn, sem var að tala um hvað hann seldi ódýrt: — Já vinur minn, ég sel hvert brauð fyrir lægra verð en það kostar mig að baka þau, en vegna þess hvað ég sel mörg, þá græði ég þó nóg handa mér og mín- um. 4. Það var barið að dyrum hjá séra Bjarna. Dóttir hans kom til dyra. Roskin kona stóð fyrir utan dyrnar og spurði hvort séra Bjarni væri heima. Dóttir hans kvað það ekki vera, en spurði hvort hún gæti ekki skilað neinu. Stultur einsog þessar er ekkert sérlega erfitt að smíða. Allt sem til þarf eru tvö löng kústsköft úr tré og tveir þríhyrndir kubbar, sem skrúfaðir eru á sköftin í mátulegri hæð. Spyrjið fullorðna fólkið heima hjá ykkur hvort það nenni ekki að hjálpa ykkur, og svo getið þið æft ykkur í að ganga á stultum einsog spænsku trúðarnir á Listahátiðinni! — Jú, — svaraði konan, — biddu prestinn að líta inn hjá mér ein- hvern næstu daga. — Hvar er það, og hvað heitir þú? — spurði dóttir prestsins. — Presturinn þekkir mig svo ve1, sagði kon- an, og veit hvar ég á heima, svo ég þarf ekkert að útskýra það nánar.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.