Þjóðviljinn - 17.07.1980, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 17.07.1980, Blaðsíða 4
4 StDA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 17. Júlt 1980 UÚDVIUINN Málgagn sósíalisma, verkalýds hreyfingar og þjódfrelsis Ctgefandi: Útgófufélag Þjóöviljans Framkvsmdastjóri: Eiöur Ðergmann Rltstjórar: Arni Bergmann, Einar Karl Haraldsson. Kjartan ólafsson Fréttastjóri: Vilborg Haröardóttir. Auglýsingastjóri: Þorgeir Olafsson. Umsjónarmaöur Sunnudagsblaös: Þórunn Siguröardóttir Rekstrarstjóri: Úlfar Þormóösson Afgreiöslustjóri: Valþór Hlööversson Blaöamenn: Alfheiöur Ingadóttir, Einar Orn Stefánsson, GuÖjón Friöriks- son, Ingibjörg Haraldsdóttir, Magnús H. Glslason, Sigurdór Sigurdórsson. Þingfréttir: Þorsteinn Magnússon. íþróttafréttamaöur: Ingólfur Hannesson. Ljósmyndir: Einar Karlsson, Gunnar Elísson Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar. Safnvöröur-.Eyjólfur Arnasón. Auglýsingar: SigríÖur Hanna SigurbjÖrnsdóttir. Skrifstofa:GuÖrún Guövaröardóttir. Afgreiösia: Kristln Pétursdóttir, Bára Halldórsdóttir, Bára Siguröardóttir. Slmavarsla: Olöf Halldórsdóttir, Sigríöur Kristjánsdóttir. Bflstjóri: Sigrún Báröardóttir. Húsmóöir: Jóna Siguröardóttir. Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir. útkeyrsia: Sölvi Magnússon, Rafn Guömundsson. Ritstjórn, afgreiösla og auglýsingar: Sföumúla 6, Reykjavfk, sfmi 8 13 33. Prentun: Blaöaprent hf. Aö sigra amlóða er ekki nóg • Þann 10. júní s.l. birti dagblaðið Vísir niðurstöður ýtarlegrar skoðanakönnunar, sem unnin hafði verið á vegum blaðsins og náði til yf ir 800 einstaklinga. • Niðurstaða þessarar skoðanakönnunar Vísis varð sú að um 70% þeirra sem svöruðu lýstu sig fylgjandi nú- verandi stjórnarsamstarf i, en aðeins 30% lýstu sig and- víga þvi stjórnarsamstarfinu. • Geri maður ráð fyrir að í skoðanakönnun Vísis hafi allir kjósendur Alþýðubandalags og Framsóknarf lokks, sem þar svöruðu, lýst stuðningi við ríkisstjórnina, en all- ir kjósendur Alþýðuf lokksins lýst andstöðu við hana, — þá sjáum við hvernig kjósendur Sjálfstæðisflokksins skiptast. • Það athyglisverða er að niðurstöður könnunarinnar benda þannig til þess, að um 63% af kjósendum Sjálf- stæðisflokksins í síðustu alþingiskosningum hafi eftir þinglok í vor talið sig fylgjandi núverandi stjórnarsam- starfi, en aðeins um 37% kjósenda Sjálfstæðisflokksins hafi á sama tíma talið sig andvíga ríkisstjórn Gunnars Thoroddsen Séu niðurstöður skoðanakönnunar Vísis hafðar í huga þarf víst engan að undra, þótt ritstjóri Vísis lýsi eftir þvi í forystugrein blaðs síns á mánudaginn var, hvar stjórnarandstaðan sé eiginlega niðurkomin. Hin kostulega auglýsing frá Ellert B. Schram, sú sem birtist í forystugrein Vísis nú í vikunni hljöðaði orðrétt á þessa leið: —„Tapað— Fundið. Týnst hefur stjórnarandstaða á fslandi. Sfðastþegar sásttil hennar með lífsmarki, var hún á leið út úr þinghúsinu í maí. Finnandi vinsamlega láti kjósendur vita." — Þetta voru óbreytt orð ritstjóra Vísis nú í vikunni. Bragð er að þá barnið f innur. Slíkt er nú heimilisböl Geirs Hallgrímssonar og þeirra kumpána sem glaðast gengu fram í leiftursókninni sællar minn- ingar!! En Morgunblaðið, sem líka var næstum búið að týna Geir Hallgrímssyni þoldi ekki þessi frýjunarorð Vísis um stjórnarandstöðuna og fór að leita uppi pólitískan odd- vita sinn, sjálfan Geir Hallgrímsson. Og sjá, — það tókst að hafa upp á ræðu, sem formaðurinn hafði haldið vestur í Bolungavík á dögunum, svo stjórnarandstaðan er þá ekki alveg tröllum gefin. En hvílíkar harmatölur í stað leiftursóknar. i Bolungavík sagði Geir m.a.: „Við (Sjálfstæðismenn) höfum ekki borið gæfu tii að standa saman. Af leiðingin blasir við. Vinstri öf lin eru nú áhrifameiri en þau nokkru sinni hafa verið frá lýðveldis- stofnun. Sósíalistar seilast til áhrifa um allt þjóðlífið. Þeir sitja í stjórnarráöinu. Þeir ráða ferðinni I höfuð- borginni. Þeir stjórna verkalýðshreyfingunni... Haldi svo fram sem horfir, kemur að því innan tíðar, að sósíalistar og aðrir vinstri menn þurfa ekki á neinum Sjálfstæðismanni að halda til þess að tryggja völd sfn og áhrif... Ég veit að margir traustustu fylgismenn flókks- ins fyllast svartsýni, þegar þeir líta yfir stöðuna í íslenskum stjórnmálum." Þetta voru orð Geirs Hallg- rímssonar, þegar Morgunblaðinu tókst loks að hafa upp á stjórnarandstöðunni þar sem hún leyndist vestur í Bolungavík. • Hér þarf engu við aö bæta nema því, aö svo hefði Geir Hallgrímsson mátt minna Bolvíkinga á það, aö þótt Sjálfstæðisflokkurinn hafi ætlað sér aö ná hreinum meirihluta á Alþingi í sfðustu kosningum, og þótt sjálfur eigi hann að heita formaður þess flokks, þá sýndi skoð- anakönnun Vísis, sem birt var í því blaði þann 12. júnf s.l. að aðeins 3,21% aöspurðra telja Geir Hallgrfmsson mestan leiðtoga f hópi islenskra stjórnmálamanna. • Ríkisstjórnina vill Þjóðviljinn hins vegar minna á það, að þótt þægilegt geti verið að glíma við lina og dáð- lausa andstæðinga, þá hefur það eitt að leggja amlóða að velli aldrei nægt til afreksmerkis á Islandi. klrippt ! Tökum saman jhöndum Tökum saman höndum og , stríöum vinnum vorri þjóö svo ■ kommiinistar nái ekki öllum I völdum, er boöskapur Geirs - | armsins I Sjálfstæöisflokknum ■ og Morgunblaösins þessa daga- ■ na. Einhveria utanaökomandi vök aö verjast. Og viö sjáum þess vlöa merki, aö stundar- framgangur þeirra, sem brjóta leikreglurnar, hefur slegiö marga blindu. Ummæli Geirs Hallgrimss. um hyldýpiö miili málefnasamnings og starfa rikisstjórnarinnar og stefnu Sjálfstæöisflokksins eru I fyllsta samræmi viö samþykktir þing- flokks, miöstjórnar og flokks- ráös sjálfstæöismanna f febrdar, þegar stjórnin var mynduö. Þaö veröur þvf ekki Tökum saman höndum og striöum, vinnum, gegn Gunnari og AI- bert. Samdrátturinn „Meöan einstakir atvinnurek- endur hafa yfirráö yfir lifsaf- komumöguleikum fjölda fólks og geta veifaö atvinnuleysis- grýlunni jafnskjótt og þeim finnst hagsmunum sinum ógnaö, þá veröa hin óhjá- kvæmilegu samdráttarskeiö auövaldsbiiskaparins timabil varnarbaráttu launafólks. Meö þessu er ekki veriö aö segja aö samdráttur i auövaldsbú- skapnum hljóti alltaf aö leiða til launalækkana. Hvortsvo veröur ræöst af styrkleikahlutföllum stéttanna og baráttuvilja launa- fólks. Hér er aöeins veriö aö segja aö á samdráttarskeiöum er launabaráttan háö viö erf- iðari aöstæöur en t.d. á þenslu- timum þegar vinnuaflsskortur er rikjandi”. Rúmlega miljón eftir skatt „Þrátt fyrir allt þaö skipu- lagsleysi sem einkennir Is- lenska auövaldsbúskapinn (ný- legasta dæmiö og eitt þaö besta er mokaflinn nú I vor úr of- veiddum stofnum sem leitt hefur til þess aö atvinnurek- endur sitja uppi meö lélega vöru sem er aö sprengja birgöa- « ógnun veröa menn aö sjálfsögöu | aö búa til, ef reyna á aö þjappa I liöinu saman og þessvegna má I reyna aö dubba upp gömlu ■ kommagrýluna. I En vandinn er fyrst og fremst I heimatilbúinn eins og frumiegir I efnahagsþusarar þreytast aldr- ■ ei á aö endurtaka I umræðum I um efnahagsmál. Dæmigerö er I umfjöllun Morgunblaösins I I leiöara i gær, þar sem „tökum r samanhöndum” þemaö er þæft, I um leiö og Geirs-andstæöingum I er sveiaö niöur I ystu myrkur. ■ Stríðum, vinnum, gegn Gunnari ! og Albert Þaö dugar ekki minna en grlpa til stórbrotinna samllk- inga eins og Trójuhestsins, þar sem Gunnari, Albert, Pálma og Friöjóni er likt viö þá kappa sem komust inn I miöja Tróju- borg fólgnir I belg hins „véla- fulla tréhests Ödysseifs”. Þeir eru sakaöir um aö hafa brotið leikreglumar og minntir á aö þeirsem sigruöu Trójuborg hafi snúiö heim yfirbugaöir af sigri sinum. Auöséö er á þessari samlikingu aö Morgunblaöiö telur Pálma, Gunnar, Friöjón, Eggert og Albert ekki eiga heima I Trójuborg Sjálfstæöis- flokksins, og sé þeim best aö hreykja sér ekki á stundarsigri heldur pilla sig heim, hvar sem svo þau heimkynni séu. Fálmað í myrkri L„Enginn gengur þess dulinn, aö Sjálfstæöisfiokkurinn hefur átt i auöunnið verkefni, sem Geir Hallgrimsson telur nii brýnast, sem sé aö skapa skilyröi til sátta viö þá menn, sem telja stjórnarstefnuna samrýmast sjálfstæöisstefnunni. Hitt er aö stjálfsögöu rétt, aö Sjálfstæöis- flokkurinn nýtur ekki trausts meöal þjóöarinnar, á meöan ósamkomulag rikir um stefnu- miö hans. A þetta hljóta þeir einnig aö fallast, sem fariö hafa aörar brautir en meirihluti flokksmanna, og væntanlega miöa athafnir sinar viö þaö.” Niöurstaöan veröur þvi ekki nema ein, þaö er aö segja sú aö „tökum saman höndum” þýöir á máli Geirs-armsins og Morgunblaösins „tökum saman höndum” gegn Gunnari og Al- bert. Verðmætasköpun launafólks I Dagblaöiö skrifar Asgeir Danielsson á laugardag um lönguvitleysuna I samninga- málunum, samræmt ramakvein frystihúsaeigenda, og almenn kreppueinkenni sem verkalýös- hreyfingin hefur viö aö striöa i miöjum samningakliöum. Sér- staklega umhugsunarveröur er eftirfarandi kafli I grein Asgeirs þar sem hann sýnir fram á aö verömætasköpun launafólks sé slik aö hún dugi til þess aö rétta hlut láglaunafólksins vilji menn skipta réttlátar en nú er gert og braskarar hverskonar veröi knúöir til þess aö gfna yfir minni hlut: Kjallarinn geymslur), þá nægir núverandi verömætasköpun Islensks launafólks til aö búa öllum mannsæmandi lif. Besta aö- feröin til aö sjá þessa staöreynd ereinfaldlega aö skoöa töliu- um þjóöarframleiöslu og einka- neyslu i landinu. Þá kemur i 1 jós aö á verölagi i dag gefur fram- leiöslan af sér tekjur sem nema rúmlega 400 þús. kr. á mánuöi á hvert einasta mannsbarn i landinu. Ef viö skoðum bara einkaneysluna þá er áætlað aö hún nemi i ár upphæö sem samsvarar á verölagi i dag rúmlega 300 þús. kr. á mánuöi á íbúa. (Böm og gamalmenni meötalin!) Athugið aö inn I einkaneysluna koma ekki beinir skattar og ekki heldur fjárfest- ingar I nýjum ibúöum. Þetta þýöir sem sagt aö meöaltekjur meöalfjölskyldu I landinu, sem I eru 1-2 börn, er rúmlega milljón á mánuöi — eftir skatta!” Stórhœkkun möguleg „Þegar þetta er boriö saman viö þaö sem stór fjöldi láglauna- fólks þarf aö lifa af má ljóst vera aö laun þess mega stór- hækka án þess aö þau fari um- fra m réttmætan hlut þess I þeim verömætum sem þaö hefur skapaö. Þessi verömæti er hægt aö sækja i vasa þeirra atvinnu- rekenda og braskara sem fela stórgróöa sinn meö veröbólgu- braski og oft beinu svindli.” í.k.h. «9 skorrið Vandi Sjálfstæðisflokksins Stefna Sjálfstæöisflokksins hefur veriö í bestum takt viö þau sjónarmið, sem flestir íslendingar telja, aö eigi aö raöa feröinni í stjórn mála sinna. Ekki þarf annað en visa til atkvæðafvlgis flokksins til að staðfesta réttmæti þessarar fullyrðingar. Andstæðingar flokksins hafa fram á siðustu mánuði litið flokkinn sem órjúfanlegt virki. Með hliösjoii af þvi þarf engan að undra, að þeim sé það mikið kappsmál að breikka þá glufu í virkisveggnum. sem þeim tókst að mynda, jægar núverandi ríkisstiórn komst á laggirnar. (jriska sögnin iui o■■11

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.