Þjóðviljinn - 17.07.1980, Page 12
12 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 17. júll 1980
Þannig var umhorfs við Landlæknishúsið er endurby ggingin var I full-
um gangi. Þá var litið vitað um væntanlegan kostnað, en nú eru hús-
friðunarmenn reynslunni rfkari og mun bjartsýnni. Ljásm. gei.
Kostnaður við endurbyggingu
Landlæknishússins:
Miklu minni
en ætlað var
segir formaður Torfusamtakanna
„Þetta hefur farið fram úr öll-
um vonum bæði hvað varðar
hraðann og kostnaðinn", sagði
Þorsteinn Bergsson, formaður
Torfusamtakanna i gær, en þessa
dagana er veriö að ganga frá
reikningum við enduruppbygg-
ingu landiæknishússins. Áætlaður
kostnaður er aðeins um 45 mil-
jónir króna.
„Þetta er um þriðjungur af
þeirri áætlun sem rikisskipuð
nefnd gerði á sinum tima”, sagði
Þorsteinn. „Þeir reiknuðu með
tvöföldum byggingarkostnaði
sams konar húss i endurbygging-
una. en nú litur út fyrir að niður-
staðan verði um helmingur af
nýbyggingarkostnaði.”
— Er verkinu lokið?
„Nei, ekki að fullu. Hins vegar
er aðeins um smáfrágang að ræða
sem tekst væntanlega að Ijúka á
hálfum mánuði og siðan verður
framhliðin tekin i gegn eftir tvö
eða þrjú ár. I upphafi létum við
okkur ekki dreyma um að taka
þetta svona vel i gegn, heldur var
fyrst og fremst hugsað um aö
gera við til bráðabirgða og koma
húsinu i notkun. Fúi reyndist hins
vegar hverfandi og þegar upp er
staðið er búið að leggja nýja raf-
lögn, nýtt hitakerfi, nýja vatns-
lögn og setja nýtt járn á allt. Inni i
þessari upphæð eru einnig allar
fastar innréttingar utan þær sem
eru tengdar starfseminni sér-
staklega eins og eldhúsbúnaður-
inn, svo það er full ástæða til að
vera ánægður með niðurstöðuna.
Við byrjuðum um mánaðamót-
in jamlar-febrúar, og framan af
miðaöi hægt og rólega. Siöasta
hálfan annan mánuðinn var hins
vegar unnið dag og nótt en þá
gekk þetta lika eins og I lyga-
sögu.”
— Er vinna sjálfboöaliöa inni I
dæminu?
„Sjálfboðavinna var hverfandi
og hún er ekki tekin i dæmið.”
—Hvað tekur svo við?
„Þegar byrjað var á
Landlæknishúsinu renndum við
eiginlega blint i sjóinn hvað
kostnaðinn varðar, en nú erum
við reynslunni rikari og full
ástæða til að vera bjartsýnn, þvi
þessar tölur sanna að það er hægt
að gera gömul hús upp fyrir
miklu minni fjárhæðir en haldið
er fram. í sumar mun Knútur
Jeppesen arkitekt, sem vann að
Landlæknishúsinu gera áætlun
um frekari uppbyggingu
Torfunnar. Þar verða tindar til
allar hugmyndir um frekari
nýtingu húsanna, viðgerðarþröf á
Bankastræti 2 og endurbyggingu
hinna húsanna, kostnaður metinn
og gerð framkvæmdaáætlun. Það
verk verður kynnt almenningi i
haust,og vist er að margir hafa
sýnt áhuga á að fjármagna upp-
bygginguna eftir að Landlæknis-
húsið komst i gagnið.”
— AI
A fjórum mánuðum og fyrir um 45 miljónir króna var Landlæknishúsiö
gert upp. Þessar staöreyndir eru mikil lyftistöng fyrir húsafriöun I
borginni þar sem kostnaöarhliöin hefur greiniiega verið gifurlega
ofmetin til þessa. Ljósm. — gel.
Egilsstaðir á Völium
Súgþurrkun æ vinsællij
segir Þórhallur Hauksson, rádunautur á Egilsstödum
— Hér eru bændur nokkuð mis-
jafnleg á veg komnir meö slátt.
Bændur á Upp-héraðinu eru trú-
lega búnir að slá einna mest en
eitthvað minna á Ot-héraði.
Vopnfirðingar eru einnig byrj-
aöir. Minna mun um að sláttur
sé hafinn niðri á fjörðum, i
Breiðdal og á Suöurfjörðunum.
Svo sagðist Þórhalli
Haukssyni, ráðunaut hjá
Búnaðarsambandi Austurlands,
frá, er við ræddum við hann i
fyrradag.
Mikið flatt af heyjum
Ýmsir bændur hér i efri sveit-
unum á Héraöi eru búnir að ná
nokkru inn af heyjum. Votheys-
verkun er hér mjög litil en súg-
þurrkun ryður sér æ meira til
rúms. Allmargir bændur hafa
t.d. komið sér upp súgþurrkun
nú i vor. Og hafi menn súg-
þurrkun er oft nægjanlegt aö
dauf þurrkflæsa haldist I 2—3
daga, þá þornar það mikið úr
heyinu aö hægt er að fullþurrka
það I súgþurrkunarhlöðunúm.
En þaö hefur nú verið vanda-
máliö hérna núna að skúrir hafa
komið á hverjum degi aö undan-
förnu. Það liggur þvi mjög mik-
ið flatt hjá mönnum núna.
Spretta — Kal —
Skepnuhöld
Grasspretta er dálitið mis-
jöfn. Hún er gðð á Héraðinu og
að ég hygg i Vopnafirðinum en
lakari suður i Breiðdal og á Suð-
urfjöröunum. Þó eru tún einnig ■
orðin sláandi þar.
Kal er nokkurt i sumum sveit-
um, einkum þó á Efra-Jökuldal I
og i Hjaltastaðaþinghá. Annars •
staðar er það litið og yfir heild- I
ina tekið með minnsta móti.
Fénaðarhöld voru góð I vor en '
færra af ám var tvflembt en oft !
áður þannig að dilkar verða I
færri I haust.
Minna um framkvæmdir j
Töiuverð eftirspurn er eftir |
skurðgröfum og jarðýtum til j
vinnslu en þó held ég nú aö ,
ræktun verði með minna móti I i
ár og einnig byggingar. Láns-
umsóknir til Byggingafram-
kvæmda voru með allra '
minnsta móti.
Og nú er Arni Jónasson, er-
indreki Stéttarsambands
bænada, væntanlegur hingað ,
austur á næstunni til þess að i
færa bændum kvótabréfin.
— þj/mhg
S '3 : '
Sitjum á meöan sætt er.
Lundavertíd hafin
Frá fréttaritara okkar f Vest-
mannaeyjum:
Hin árlega lundavertið hér i
Vestmannaeyjum hófst I byrjun
júli og eru veiðimenn farnir á
stúfana, einkum þó bráölátir á
heimalandinu, en nú sem endra-
nær er veiðin treg f byrjun veiði-
tima en aldrei svo, að ekki
kroppist einn og einn 1 soöið.
Verð á lunda f ham á bryggju
var ákveðið f vor kr. 300 en á
hamflettum kr. 400.
M.Jóh.
Drottinn gaf- og tók
L:
A aðalfundi Félags
ellilífeyrisþega sam-
vinnuf élaganna, sem
nýlega var haldinn, komu
fram miklar óánægju-
raddir með það fyrir-
komulag sem nú gildir, að
ríki og sveitarfélög
leggja skatta á ellilífeyri
og tryggingabætur, sem
aldraðir njóta, að því er
segirí Sambandsf réttum.
Þykir mönnum aö þarna sé
veriö aö rétta með annarri hend
inni og taka aftur með hinni.
Nokkuð mun þó vera misjafnt
eftir sveitarfélögum hvort út-
svar er lagt á þessa aura eða
ekki.
Af viðfangsefnum félagsins
má m.a. nefna að nýlega gekkst
það fyrir könnun á húsnæöisað-
stöðu, vinnuþörfum og heilsu-
fari félagsmanna sinna.
Formaöur félagsins er
Gunnar Grimsson en meðstjórn
endur þau Anna Guömunds-
dóttir, Björg Agústsdóttir, Haf-
liði Guömundsson og Sveinn
Guðmundsson.
—mhg
Fódurbœtis-
skatturinn:
Veldur SÍS
erfiðleikum!
Nýálagður 200% fóðurbætis-
skattur mun fyrirsjáanlega
valda Sambandinu nokkrum
erfiðleikum, aö þvf er segir i
Sambandsfréttum. Að sögn
Sigurðar A Sigurðssonar,
deildarstjóra Fóðurvörudeildar J
var sala deildarinnar I vor mun
minni en áætlaö hafði veriö.
Astæðurnar fyrir þessum
samdrætti I sölunni taldi \
Sigurður trúlega vera jöfnum
höndum gott tiöarfar og áhrif
frá kvótakerfinu. Þvf eru
birgðir af fóðurvörum nú með
meira móti,en frá þvi að fóöur-
bætisskatturinn var lagður á i
vor hefur salan nánast engin
verið. Sigurður taldi sennilegast
að þessar birgöir seldust ekki
fyrr en i haust. Þvi væri aug-
ljóst, að álagning skattsins
myndi valda Sambandinu tals- :
verðum vaxta- og geymslu-
kostnaði vegna þessara birgöa.
Að auki standa mannafli og
tækjabúnaður verklitlir þar til •
salan tekur við sér á nýjan leik.
—mhg
Skipalyftan
heim
Frá fréttaritara okkar í Vest-
mannaeyjum:
Þá er loks farið að örla á ein-
hverju áþreifanlegu f sambandi
viö skipalyftuna. Framkvæmdir
viö lyftusvæöið eru að hefjast og
heimflutningur skipalyftunnar
er hafinn. Hversu mikið kemst
upp af lyftunni í ár er ekki ljóst
en stefnt er að þvi að ramma
fyrir henni og vinna við undir-
stöður.
M.Jóh.
J