Þjóðviljinn - 01.08.1980, Qupperneq 1
DJÚÐVIIJINN
Föstudagur l. ágúst. 1980, 173. tbl. 45. árg.
Vigdís Finnbogadóttir
tekur viö embætti
Athöfnin hefst klukkan hálf fjögur
i dag og verður útvarpað
Klukkan hálf fjögur í dag hefst
sú athöfn er Vigdis Finnboga-
dðttir tekur viö embætti forseta
tslands. Athöfnin hefst meö þvf aö
forsetaefniö gengur úr Alþingis-
húsinu yfir i Dömkirkjuna ásamt
fráfarandi forseta.konu hans og
handhöfum forsetavalds auk
nokkurra embættismanna. 1
Dómkirkjunni stýrir biskupinn
yfir tslandi guöþjónustu, en aö
henni lokinni gengur forsetaefniö
yfir i Alþingishúsiö ásamt um
150 boösgestum og þar fer sjálf
embættistakan fram. Athöfninni i
Dómkirkjunni og Alþingishúsinu
veröur útvarpaö auk þess sem
komiö veröur fyrir hátölurum
utan dyra svo fólk geti fylgst þar
meö.
Embættistakan i Alþingis-
húsinu fer þannig fram aö forseti
Hæstaréttar byrjar á þvi að lýsa
forsetakjöri og útgáfu kjörbréfs.
Siöan mælir hann fram eiöstafinn
sem viötakandi forseti undirritar.
Þegar forseti Islands hefur undir-
ritaö eiöstafinn þá ávarpar for-
seti Hæstaréttar forsetann og af-
hendir honum kjörbréfið. Siöan
gengur forseti Islands út á svalir
Alþingishúsins og tekur viö hyll-
ingu almennings. Þegar þvi er
lokið flytur forsetinn ávarp i sal
sameinaös Alþingis og eftir þaö
er þjóösöngurinn sunginn.
Um 150 manns er sérstaklega
boöiö aö vera viöstatt athöfnina
og er þar bæöi um aö ræöa inn-
lenda og erlenda gesti. Af inn-
lendum gestum má nefna eftir-
talda: rikisstjórnin, dómarar
hæstaréttar, forsetar Alþingis og
fyrstu varaforsetar, formenn
stjórnmálaflokkanna og þing-
flokkanna, embættismenn og for-
stjórar rikisfyrirtækja, fulltrúar
alls konar landssamtaka svo sem
ASl og VSl og Stéttarsambands
bænda, fulltrúar fjölmiöla og
fleiri. Þá verða sérstakir gestir
Vigdisar Finnbogadóttur úr hópi
ættingja og vina.
Fulltrúar erlendra rikisstjórna
veröa um 15 talsins og er um aö
ræða sendiherra sem aösetur
hafa á Islandi og einnig nokkra
aöra sendiherra Þá er Bent A.
Koch ritstjóra frá Danmörku sér-
staklega boðiö. — þm
Nýr þjóðhöfðingi
Vigdis Finnbogadóttir, sem
tekur viö forsetaembætti i dag, er
fædd i Reykjavik 15. aprfl 1930.
Móöir hennar er Sigriður
Eiriksdóttir hjúkrunarkona, sem
var formaður Félags fslenskra
hjúkrunarkvenna um 36 ára
skeiö, og býr i Reykjavik. Faöir
Vigdisar var Finnbogi Rútur Þor-
valdsson, hafnarverkfræðingur
og prófessor viö Háskóla Islands.
Hann lést fyrir nokkrum árum.
Vigdis Finnbogadóttir lauk
stúdentsprófi frá Menntaskólan-
um i Reykjavik árið 1949. Hún
stundaði nám i frönsku og frönsk-
um bókmenntum, með leikbók-
menntir sem sérgrein, i hálft
fjórða ár við háskólann i
Grenoble og Sorbonne i Paris.
Þegar heim kom starfaði hún i 5
ár sem bókavörður og ritstjóri
leikskrár i Þjóöleikhúsinu og
annaöist einnig blaöakynningar
fyrir leikhúsiö. Þá stundaöi hún
nám viö Háskóla Islands i ensku
og enskum bókmenntum, meö
leikbókmenntir sem sérgrein, og
hélt áfram námi i frönsku og
frönskum bókmenntum. Einnig
stundaöi hún nám i uppeldis- og
kennslufræðum. Um skeiö las hún
leiklistarsögu viö Háskólann i
Kaupmannahöfn og i Sviþjóö las
hún franska málsögu og tók
áfangapróf i báöum greinum.
Lokapróf i háskólagreinum sin-
um tók Vigdis viö Háskóla ís-
lands.
Vigdis Finnbogadóttir hóf aftur
störf I Þjóðleikhúsinu eftir dvöl
erlendis, en stundaði jafnframt
kennslu við Menntaskólann i
Reykjavik árin 1962 til 1968.
Þegar Menntaskólinn viö
Hamrahliö var stofnaöur réöst
hún þar til starfa. A sumrin vann
hún i mörg ár hjá Ferðaskrif-
stofu rikisins, fyrst sem leiösögu-
maður, en siöan viö landkynningu
og móttöku erlendra rithöfunda
og blaðamanna, sem hingaö leit-
uðu eftir efni i greinar og bækur
um Island. A þeim árum skipu-
lagöi hún leiðsögumannanám-
skeiö Ferðaskrifstofu rikisins,
stjórnaöi þeim og annaðist
kennslu. Áriö 1970 tók Vigdis árs-
leyfi frá störfum og dvaldi i
Frakklandi þar sem hún kynnti
sér samskipti og menningar-
tengsl Islendinga og Frakka á 19.
öld, hinni miklu skútuöld Frakka
á Islandsmiöum.
Síöan 1972 hefur Vigdis starfaö
sem leikhússtjóri hjá Leikfélagi
Reykjavikur i Iönó, en haföi
þegar á siöasta hausti sagt starfi
sinu lausu frá 1. september n.k. A
þeim árum hefur veriö mikil
gróska I leikhúslifi íslendinga og
áhersla lögöá aö hlynna aö leikrit-
um islenskra höfunda og flutningi
verka þeirra. Jafnframt störfum
sinum hjá Leikfélagi Reykjavik-
ur hefur Vigdis verið stunda-
kennari i frönskum leikbók-
menntum viö Háskóla Islands.
Arið 1971 kenndi Vigdis frönsku
i sjónvarpinu og um tveggja ára
skeið sá hún um leiklistarkynn-
ingu i Vöku. Árið 1963 var Vigdis
ásamt fimm öörum stofnandi
fyrsta tilraunaleikhúSs á Islandi,
Grimu. Formaður Aliance
Francaise var Vigdis um þaö
leyti sem sú hefð skapaöist, aö
hafa á þess vegum fastar dag-
skrár i franska sendiráðinu. Vig-
dis hefur haldið fjölda fyrirlestra
um islcnsk menningarmál á þing-
um erlendis. Vigdis Finnboga-
dóttir hefur siöan áriö 1976 setiö i
ráögefandi nefnd um menningar-
mál á Noröurlöndum og verið for-
maöur hennar frá 1978, kjörin af
ráöherranefnd Norðurlanda. Auk
þess hafa henni verið falin marg-
háttuö trúnaöarstörf á opinberum
vettvangi.
Kjördóttir Vigdisar, Astriöur er
sjö ára aö aldri.
II opnu blaðsins i dag er
viötal viö fráfarandi forseta
■ Islands, dr. Kristján Eld-
járn.
Viötalið skráöi Arni
Bergmann.
Kristján Eldjárn, fyrrverandi forseti tslands
Vigdfs Finnbogadóttir, nýr forseti Islands
Ljósm: —gel—
r
ASI og Vinnumálasambandið á fundum um helgina:
Töluverðar líkur eru
Myndin var tekin nokkru áöur en fundur hófst I gær.
á samningum
— segir blaðafulltrúi ASÍ
„Mér viröist allt benda til þess
að töluverðar likur séu á þvi að
samningar takist við Vinnumála-
sambandið, enda var þaö ein-
róma álit manna að halda bæri
þessum viðræðum áfram á þeim
grundvelli sem fyrir liggur”,
sagði Haukur Már Haraldsson,
blaðafulltrúi ASl, eftir fund 43
manna aðalsamninganefndar ASl
i gær, en á þeim fundi gaf 14
manna viðræðunefndin skýrslu
um gang viðræðna.
„Við verður meö fundi yfir
helgina”, sagöi Hakkur ennfrem-
ur „og kveðjuorðin til aðalsamn-
inganefndarinnar voru þau að
menn skyldu vera reiðubúnir að
koma saman til fundar i næstu
viku”. Að sögn Hauks er fyrir-
komulag visitölugreiðslna eina
alvarlega atriðið sem eftir er aö
semja um við Vinnumálasam-
bandið. Sagði Haukur að nú væri
að nokkru leyti búið að leysa þaö
atriöi er varöaði grunnkaups-
hækkanir, en Vinnumálasam-
bandið hefði þó ekki gefið alveg
ákveðiö svar i þeim efnum, en
það myndi þó skýrast i dag eöa á
morgun.
Næstifundur Alþýðusambands-
ins og Vinnumálasambandsins
verður kl. 10 f.h. i dag.
— þm