Þjóðviljinn - 26.08.1980, Qupperneq 6
6 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 26. ágúst 1980
AUGLÝSING
um aðalskoðun bifreiða í
lögsagnarumdæmi Reykjavíkur
í septemher 1980
Mánudaginn 1. sept. R-52801 til R-53500
Þriöjudagur 2. sept. R-53501 til R-54200
Miðvikudagur 3. sept. R-54201 til R-54900
Fimmtudagur 4. sept. R-54901 til R-55600
Föstudagur 5. sept. R-55601 til R-57300
Mánudagur 8. sept. R-57301 til R-58000
Þriöjudagur 9. sept. R-58001 til R-58700
Miðvikudagur 10. sept. R-58701 til R-59400
Fimmtudagur 11. sept. R-59401 til R-60100
Föstudagur 12. sept. R-60101 til R-60800
Mánudagur 15. sept. R-60801 til R-61500
Þriöjudagur 16. sept. R-61501 til R-62200
Miövikudagur 17. sept. R-62201 til R-62900
Fimmtudagur 18. sept. R-62901 til R-63600
Föstudagur 19. sept. R-63601 til R-64300
Mánudagur 22. sept. R-64301 til R-65000
Þriöjudagur 23. sept. R-65001 til R-65700
Miðvikudagur 24. sept. R-65701 til R-66400
Fimmtudagur 25. sept. R-66401 til R-67100
Föstudagur 26. sept. R-67101 til R-67800
Mánudagur 29. sept. R-67801 til R-68500
Þriöjudagur 30. sept. R-68501 til R-69200
Bifreiöaeigendum ber aö koma meö bifreiöar sinar til
bifreiöaeftirlits rikisins, Bildshöföa 8, og veröur skoöun
framkvæmd þar alla virka daga kl. 08:00 til 16:00.
Festivagnar, tengivagnar og farþegabyrgi skulu fylgja
bifreiöum til skoöunar.
Viö skoöun skulu ökumenn bifreiöanna leggja fram full-
gild ökuskirteini. Sýna ber skilriki fyrir þvi aö bifreiöa-
skattur sé greiddur og vátrygging fyrir hverja bifreiö sé í
gildi.
Athygli skal vakin á þvi aö skráningarnúmer skulu vera
vel læsileg.
Samkvæmt gildandi reglum skal vera gjaldmælir i
leigubifreiöum sem sýnir rétt ökugjald á hverjum tima. A
leigubifreiöum til mannflutninga, allt aö 8 farþegum, skal
vera sérstakt merki meö bókstafnum L.
Vanræki einhver aö koma bifreiö sinni til skoöunar á
auglýstum tlma veröur hann látinn sæta sektum sam-
kvæmt umferöarlögum og bifreiöin tekin úr umferö hvar
sem tii hennar næst.
Bifreiöaeftirlitiö er lokaö á laugardögum.
Lögreglustjórinn i Reykjavik.
21. ágúst 1980.
Sigurjón Sigurösson.
Kvennaskóllnn
í Reykjavík
Nemendur Kvennaskólans i Reykjavik
eru beðnir að koma til viðtals i skólann
sem hér segir:
Nýir nemendur á 1. og 2. ári uppeldissviðs
komi mánudaginn 1. september kl. 2.
Nemendur á 2. ári á fóstur- og þroska-
þjálfabraut, félags- og iþróttabraut og
menntabraut komi þriðjudaginn 2.
september kl. 2.
Nemendur9. bekkjar mæti mánudaginn 1.
september kl. 10.
Skólastjóri.
Skrifstofustörf
Óskum að ráða:
Ritara til að annast vélritun á isl. og erl.
tungumálum. Góð vélritunarkunnátta
áskilin.
Simavörð, sem einnig getur annast ljósrit-
un, fjölritun og alm. afgreiðslustörf.
Laun skv. kjarasamn. opinb. starfs-
manna.
Umsóknir ásamt uppl. um menntun og
fyrri störf sendist fyrir 1. sept. n.k.
Iðntæknistofnun tslands
Skipholti 37, 105 r.
simi 81533.
Húsnæði óskast
Ung hjón með 1. barn vantar ibúð strax.
Helst i Hafnarfirði (ekki skilyrði)
Upplýsingar i sima 43945.
Etías Davíösson:
TROJU
Nýlega höf Landsvirkjun sinn
árlega hamagang meö það fyrir
augum aö fá fram heimild til aö
hækka almennt raforkuverö. Viö-
töl eru höfö viö forráöamenn fyr-
irtækisins og greinargeröir send-
ar fjölmiölum. Ráöamönnum
sendir Landsvirkjun auk þess
hótunarbréf frá erlendum yfir-
boöurum fyrirtækisins i von um
aö þau hræöi þá fyrrnefndu til
hlýöni.
Undirritaöur skrifaöi itarlega
grein um Landsvirkjun fyrir 2 ár-
um siöan, en ýmislegt hefur gerst
i millitiöinni og þvl full ástæöa til
þess aö fjalla um fyrirtækiö aö
nýju. Ýmislegt sem sett var fram
fyrir 2 árum hefur þvi veriö
endurskoöaö I ljósi þróunar siö-
ustu ára.
Þeir, sem kunna einhver deili á
Landsvirkjun, vita aö hún er
sameign Reykjavikurborgar og
rikisins, og aö fyrirtækiö starfar
samkvæmt lögum frá Alþingi.
Þaö vita hins vegar færri, aö
Landsvirkjun hefur I raun veriö
rekin allt frá stofndegi til dagsins
I dag, sem dótturfyrirtæki
Alþjóöabankans I Washington.
Þessari grein er ætlað aö sýna
fram á, aö svo sé, og skýra hvers
vegna Alþjóöabankanum er I mun
aö ráöa yfir orkufyrirtækjum.
„Riki í ríkinu”?
Landsvirkjun var stofnuö áriö
1965 meö lögum frá Alþingi. Þeg-
ar máliö var þá til umræöu á Al-
þingi, viröist engum hafa dottiö i
hug, aö annarleg sjónarmiö
kynnu aö hafa legið aö baki stofn-
unar þessa fyrirtækis og inntaki
laganna um þaö. Þó var þaö alls
ekkert leyndarmál, að Alþjóöa-
bankinn var tengdur stofnun
Landsvirkjunar.
1 fylgiskjali I meö skýrslu Stór-
iöjunefndar um aluminiumverk-
smiöju og stórvirkjun, dags. 14.
nóv. 1964, segir m.a. um afskipti
Alþjóöabankans af undirbúningi
Landsvirkjunar:
„Einnig lýsir bankinn þvi yfir,
aðhann muni I væntanlegum viö-
ræöum vilja kanna nákvæmlega
skipulag og fjárhagslega upp-
byggingu virkjunarfyrirtækis-
ins...”
Uögunum um Landsvirkjun frá
1965 er skýrt kveöiö á um bygg-
ingu Búrfellsvirkjunar. Alþjóöa-
bankinn lánaöi þá Landsvirkjun
$18 milljónir vegna þessarar
virkjunar meö þvi skilyröi þó, aö
ALUSUISSE veröi veitt hér viö-
unandi aöstaöa til aö reka álverk-
smiöju.
En athugum nánar lögin um
landsvirkjun. Þar er þess vand-
lega gætt, aö fyrirtækiö geti oröiö
aö „riki i rikinu”. Þaö var þvi
nauösynlegt aö tryggja.sem mest
afskiptaleysi eigenda af fyrirtæk-
inu. Þetta var gert meö tvennu
móti: Annars vegar var fyrirtæk-
iö látiö hafa tvo yfirboöara, rikiö
og Reykjavikurborg, og þess gætt
aö þeir ættu nákvæmlega 50%
hlutafjár hvor um sig. Hins vegar
var fyrirtækinu veitt sú sérstaöa
aö vera óháö fjárveitingarvaldi
og lýöræöislegu eftirliti.
Stjórni tveir herrar sama fyrir-
tæki, getur hvorugur þeirra skip-
aö fyrir án samþykkis hins, nema
slikt leiöi fljótlega til ringulreið-
ar. Hins vegar geta þeir komiö
sér saman — strax í upphafi —
um aö láta þriöja aðilastjórna og
reka fyrirtækiö. Þaö er einmitt
þetta, sem vakti fyrir höfundum
um Landsvirkjun.
Helmingaskipti milli rikisins og
Reykjavikurborgar komu einnig
I veg fyrir þaö, aö skipan fyrir-
tækisins gæti breyst þótt valda-
hlutföll breyttust á Alþingi. Laga-
smiöir reiknuöu bersýnilega ekki
meö þvi aö trúnaöarmenn Bank-
ans gætu misst bakhjarl sinn bæöi
á Alþingi og i borgarstjórn
Reykjavikur samtimis. En til
þess aö hafa allt á hreinu, var
einu ákvæöi enn bætt viö lög um
Landsvirkjun: Skipanir I stjórn
Landsvirkjunar fylgja ekki þeirri
venju aö fulitrúar Alþingis og
borgarstjórnar séu endurskipaöir
eftir kosningar. Þar gildir sú
regla, aö sex ár veröi aö llöa milli
kosninga I stjórn Landsvirkjunar.
Þetta fyrirkomulag hefur hingaö
til tryggt trúnaöarmönnum
þeirra, sem stofnuöu Landsvirkj-
un, meirihlutaaöstööu I fyrirtæk-
inu.
Segja má aö helsta aöhald sem
hægt er aö veita opinberum fyrir-
tækjum sé, aö þau lúti stjórn og
eftirliti þeirra, sem kjósendur
velja sér I frjálsum kosningum.
Þaö er m.a. þess vegna sem opin-
ber fyrirtæki veröa aö leggja
fjárhagsáætlanir sinar og hug-
myndir um fjárfestingar fyrir
kjörin yfirvöld til umræöu og
samþykktar. En Landsvirkjun er
sannarlega ekki opinbert fyrir-
tæki, nema aö nafni til.
Samkvæmt lögum um Lands-
virkjun er fyrirtækinu hlift viö
margvislegum skyldum opin-
berra fyrirtækja. Landsvirkjun
þarf t.d. ekki aö leggja fjárhags-
áætlanir sinar fyrir Alþingi og
borgarstjórn til samþykktar.
Landsvirkjun er heimilt aö ráö-
stafa tekjuafgangi sinum — sem
er tekinn mestmegnis úr vösum
almennings á Reykjavikursvæöi
— án þess aö greiöa eigendum
sinum (riki og borg) arö. A sama
tima hefur Landsvirkjun náö út
úr rikiskassanum og úr borgar-
sjóöi talsveröum upphæöum I
formi framlaga og lána af ýmsu
tagi. Landsvirkjun er heimilt aö
semja beint viö erlenda banka...
og hafa hljótt um inntak samn-
inganna. Landsvirkjun er undan-
þegin ýmsum opinberum gjöld-
um, s.s. aöflutningsgjöldum af
innfluttri vöru, veröjöfnunar-
gjaldi, o.fl. o.fl.
Leyniskýrsla
Alþjóðabankans
Ég hef fengiö I hendur athyglis-
veröa skýrslu, sem Alþjóöabank-
innhefur gefiö út og dagsett er 15.
mars 1972. Þar eru lánveitingar
Alþjóöabankans til orkufyrir-
tækja I þrem heimsálfum metnar
meö tilliti til markmiöa Bankans.
Skýrslan fjallar hispurslaust um
markmiö Bankans meö lánum
sinum. Einnig um aðferöir Bank-
ans til aö móta skipan og stefnu
lántakenda, þvinga rikisstjórnir
viökomandi landa til hlýöni viö
óskir Bankans og tryggja yfirráö
sin yfir viökomandi orkufyrir-
tækjum. Þaöliggur í augum uppi,
aöskýrslan er ekki ætluö almenn-
ingi heldur aöeins trúnaöarmönn-
um Alþjóöabankans.
I skýrslunni koma fram skoö-
anir Bankans á þvi, hvernigorku-
fyrirtæki eigi aö vera rekin, eigi
þau aö njóta lánafyrirgreiöslu
Bankans. Slik fyrirtæki, segir
Bankinn, eiga ekki aö lúta raun-
verulegu eftirliti eigenda sinna á
viökomandi stööum, heldur skulu
þau starfa undir stjóm sérfræö-
inga, sem Bankinn treystir. Þau
skulu rekin eins og einkafyrir-
tæki, þ.e. meö hagnaöarsjónar-
miö aö leiöarljósi, en njóta jafn-
framt einokunaraöstööu á viö-
komandi markaössvæöi. Þaö er
þvi stefna Bankans, aö orkufyrir-
tækisemnjótafyrirgreiöslu hans,
fái hvergi raunhæft aðhald:
Hvorki hjá fulltrúum almennings
né af frjálsri samkeppni viö önn-
ur fyrirtæki. Þetta er hin merki-
legasta hagfræöi.
Bankinn hefur jafnvel neitaö aö
veita lán, nema stjórnvöld á viö-
komandi stööum hafi afsalaö sér
rétti til aö stjórna orkufyrirtækj-
um sinum. Þaö hljóta þvi að vera
veigamiklar ástæöur fyrir þvi,
hvers vegna sjálfstæöi opinberra
orkufyrirtækja skuli vera svo
mikiö hjartans mál fyrir bank-
ann.
láöurnefndri skýrslu eru dæmi
um afskiptasemi Bankans af
skipan orkufyrirtækja. A einum
staö kemur t.d. eftirfarandi
fram:
„EEEB er sjálfstæö stofnun
sem sér um alla þætti raforkuöfl-
unar i Bogota, höfuöborg
Kolombiu(...). Sjálfstæöi stofnun-
arinnar frá öörum borgarstofn-
unum var tryggt meö lögum frá
1959, sem voru sett sem skilyröi
fyrir lánveitingu af hálfu Bank-
ans. Þótt stofnunin sé eign
borgarinnar i Bogota, er til-
nefningum i stjórn EEEB hagað
þannig, aö fulltrúar borgarinnar
geti aldrei náö meirihluta i stjórn
stofnunarinnar. Þessu fyrir-
komulagi var komiö á I samráöi
viö Bankann (...). Virkjunarafl
EEEB, sem þrefaldaöist milli
1950 og 1960, jókst meir en 4 1/2
sinnum á árunum 1960-1970 og
var orðiö 590 Megawött áriö
1970(_). Bankinn hefur verið
mjög viöriöinn hina hrööu þenslu
EEEB frá 1960(...). meö þrem
lánum veittum 1960, 1962, og 1968,
aö andviröi $85.6 millj.”
A öörum staö I skýrslunni er
fjallaö um aöra borg i Kolombiu
— Medellin — þar sem rafveit-
unni hefur veriö stjórnaö um ára-
bil af borgarstjóra og fulltrúum
kaupsýslumanna, sem borgar-
stjórinn velur sjálfur. Þetta fyrir-
komulag, segir skýrslan, hefur
hlotið velþóknun Bankans. Eftir