Þjóðviljinn - 05.09.1980, Blaðsíða 2
2 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 5. september 1980
Menntun hjúkrunarfrœðinga
Arlegur fulltrúafundur
Samvinnu hjúkrunarfræöinga
á Norðurlöndum, fer aö þessu
sinni fram á Hótel Loftleiðum
dagana 9.—11. september nk.
Aðalumræöuefni verður:
Menntun hjúkrunarfræðinga á
Norðurlöndum og uppfyllir
menntunin þær kröfur sem
gerðar eru til hjúkrunar-
fræðinga.
Fyrirlesarar verða frá
öllum Norðurlöndunum. Jafn-
framt fara fram umræður i
hópum. Fundinn sitja 85 þátt-
takendur, en samvinnan hefur
um 170 þúsund hjúkrunar-
fræðinga innan sinna vé-
banda. Á þessu ári er Sam-
vinna hjúkrunarfræðinga á
Norðurlöndum 60 ára og
verður þess minnst með hófi
að Hótel Sögu.
Fagna árangri pólskra wrkamanna
Fundur I stjórn Verkalýös-
félagsins Rangæings haldinn
2. sept. 1980, samþykkti ein-
róma eftirfarandi ályktun:
„Stjórnarfundur i Verka-
lýðsfélaginu Rangæing hald-
inn 2. sept. 1980 fagnar þeim
árangri sem pólskir verka-
menn hafa náð i baráttu sinni
fyrir bættum kjörum og aukn-
um mannréttindum.
Þá lýsir fundurinn furðu
sinni á þeirri andstööu sem
fram hefur komiö við stofnun
og rekstri frjálsra verkalýðs-
félaga sem óháð séu rikis-
stjórnum og stjórnmálaflokk-
um.”
Almenn kosningaþátttaka styrkur
Eftirfarandi ályktun var
samþykkt á stjórnarfundi
Starfsmannafélags Reykja-
vikurborgar 3. september
1980:
„Stjórn Starfsmannafélags
Reykjavikurborgar beinir
þeim tilmælum til allra
félagsmanna sinna, að þeir
taki þátt i allsherjaratkvæöa-
greiðslunni um kjarasamning
félagsins 4. og 5. september.
Stjórn Starfsmannafélags-
ins mælir með samþykkt
þessa samnings sem gerður er
til 13 mánaða. Er það m.a.
forsenda þess að viðræöur um
sérkjarasamninga geti hafist.
Almenn kosningaþátttaka
er styrkur fyrir félagið.”
Sá týndi var erlendis
Maðurinn sem lögreglan i fram og reyndist hafa skropp-
Reykjavik lýsti eftiri fyrra- ið til útlanda án þess aö láta
kvöld og hafði verið saknað nokkurn vita.
siðan 25. ágúst er nú kominn
(Jtbreiðslunefnd Fyrsta ráðs málfreyja, sem stendur fyrir Akra-
nesfundinum. Neðar frá vinstri: Patricia Hunt, Sigrun Sigurðar-
dóttir, og Sjöfn Sigurjónsdóttir. Ofar: Aldis Jónsdóttir og Dollý
Nielsen.
Málfreyjur kynna sig í Rein
Málfreyjur halda kynn-
ingarfund i félagsheimilinu
Rein Akranesi laugardaginn 6.
sept. kl. 14.
Samtökin hafa nú gefið út
handbók á Islensku og væntan-
lega verða fleiri kynningar-
fundir haldnir úti á lands-
byggðinni á næstunni, segir i
fréttatilkynningu þeirra.
A þessu ári eru liðin 7 ár frá
stofnun fyrstu Islensku mál-
freyjudeildarinnar, en nú eru
starfandi tvær deildir I Kefla-
vik, ein I Hafnarfiröi, og þrjár
I Reykjavlk.
A fundinum I Rein verður
kynnt starfsemi og markmið
Alþjóða Málfreyjudeilda, sem
er „að stuðla að frjálsum og
fordómalausum umræðum á
hvaða sviði mannllfsins sem
er”, segir I tiikynningunni.
Boðið verður upp á kaffi og
öllum er heimill aðgangur.
í Sokkholti
Ingibjörg Hafstað, fulltrúi
Rauðsokkahreyfingarinnar I
islensku sendinefndinni á
kvennaáratugsráöstefnu
Sameinuðu þjóðanna i Kaup-
mannahöfn i sumar, mun
segja frá ráðstefnunni og
svara fyrirspumum I Sokk-
holti, húsakynnum Rauðsokka
að Skólavörðustlg 12, i hádeg-
inu á morgun, laugardag.
Ráðstefnan var afar fjöl-
menn og vakti mikla athygli
einsog menn muna, en fjöl-
miðlarhafa auðvitað ekki gert
henni skil nema að tak-
mörkuöu leyti, og er ekki að
efa að Ingibjörg hefur frá
Sagt frá
ráðstefnu SÞ
Ingibjörg
mörgu að segja. Áhugafólki
um jafnréttismál er þvi ráð-
lagt aðlabba viði Sokkholti ki.
12 á morgun, fá sér kaffisopa
ogfræðast. —ih
Gæsluvöllurinn kominn á ísafirði
Engar framkvæmdir
viö dagheimiliö
Skortur á dagheimilum og leik-
skólum er mjög mikill á tsafirði.
Hús fyrir þá starfsemi er nú I
byggingu við Eyrargötu. Það var
gert fokhelt sl. haust en I þvl
hefur hinsvegar ekkert veriö
unnið i sumar, og ekki talið trú-
legt að það verði gert á þessu ári.
Þetta hús á að taka upp undir 100
börn I leikskóla og dagheimili.
Kvenfélagið Hvöt i Hnifsdal
hefur beitt sér fyrir byggingu
leikskóla þar. Húsið er komið upp
en skólinn ekki ennþá tekinn til
starfa, sem væntanlega verður þó
áður en langt um liður.
Nýr gæsluvöllur
Búiðernú að opna nýjan gæslu-
völlviðTúngötuá ísafirði. Er það
eini völlurinn á Isafirði en hins-
vegar er litill gæsluvöllur i Hnifs-
dal. Til var að vlsu áður gæslu-
völlur i' Isafjaröarkaupstað en
hann varð að vikja fyrir dag-
heimilis- og leikskólabyggingu,
sem er I fæöingu.
Gæsluvöllurinn hefur verið
ákaflega vel sóttur I sumar og
ótvirætt sannaö þörfina fyrir
sllka velli.
Magnús Reynir Guðmundsson,
bæjarritariá Isafirði, sagði brýna
Hús leikskólans sem gert var fok-
helt á sl. hausti hefur siðan staðið
óhreyft og virðist eiga aö salta
frekari framkvæmdir,
nauðsyn á að bæta úr leikvalla-
málunum I bænum. Nú væri verið
að koma upp leikvelli við Skipa-
götu og annar væri fyrirhugaður i
Holtahverfi, byggðinni við
fjarðarbotninn, en hvorugur
þeirra væri gæsluvöllur, Reynt
væri og að koma upp leiktækjum
viðar um bæinn. ,,En leikvalla-
málin hafa ekki verið I nógu góðu
lagi hjá okkur, það verður að
segjasteins og er”, sagði Magnús
Reynir Guðmundsson. — mhg
Sr. Valgeir
Ástþórsson
kjörinn
í Seljasókn
Talningu lauk i gærmorgun
úr prestskosningu I Selja-
prestakalli I Reykjavik og
hlaut sr. Valgeir Astþórsson
sóknarprestur á Eyrarbakka
kosningu, 903 atkvæði.
Sr. Olfur Guðmundsson
sóknarprestur i óláfsfirði fékk
873 atkvæði, auðir seðlar og
ógildir voru 11 og er kosningin
lögmæt, kjörsókn 65%.
Aðeins einn frambjóöandi
var um Hof I Vopnafirði, þar
sem einnig var kosið um heig-
ina. Af 536 á kjörskrá kusu að-
eins 146, þaraf fékk séra Sig-
þór Jón Arnason á Sauðár-
króki 139 atkvæði, en auðir og
ógildir seðlar voru 7. Þátttaka
var ekki næg, svo væntanlega
verður séra Sigþór skipaður
og er þá næst fyrir að kjósa
nýjanprest til Sauðárkróks.
Nýi gæsluvöllurinn við Túngötu. Þar hefur haldið til hópur barna
daglega siðan hann var opnaður. —Ljósm. Vestfirðingur
Landsfundur og opnar panel-umrœður:
Upplýsingar á bókasöfnum
„Bókasafnið er upplýsingamiö-
stöð” er yfirskrift 6. landsfundar
Bókavaröafélags Islands sem
hefst I Norræna húsinu I dag, en
aðalframsögumenn þar verða
Greta Renborg, lektor viö sænska
bókavaröaháskólann og Andras
Jablonkay lektor við Háskóla
tslands og ræða þau um almenna
upplýsingaþjónustu I bókasöfn-
um.
Greta Renborg er þekktur
fræðimaður á sviði bókasafns-
fræði, einkum fyrir kennslu og
skrif um almenn tengsl safnanna
Andras er frá Ungverjalandi,
menntaður þar og I Bandarikjun-
um. Helgi Bernódusson yfirbóka-
vörður I Vestmannaeyjum hefur
framsögu um upplýsingamiðlun
sveitarstjórnarmála og Sigrún K.
Hannesdóttir lektor við
Háskólann um upplýsingamiðlun
til stjórnvalda.
Panel-umræða verður að lokn-
um framsöguerindum og taka
þátt I henni auk framsögumann-
anna þau Birgir Isleifur Gunnars-
son, alþm., Guörún L. Ásgeirs-
dóttir sveitarstj.fltr. Umræöun-
um stjórnar Guörún Helgadóttir,
alþingismaður. Fundurinn er öll-
um opinn og hefst kl. 13.
Almenningsbókasöfn hafa sam-
kvæmt lögum þrlþættu hlutverki
að gegna, þe. þau eiga aö vera
mennta- upplýsinga- og tóm-
stundastofnanir. Upplýsinga-
þjónustan þykir sjálfsögð i sér-
fræði-og rannsóknarbókasöfnum,
en lltið hefur farið fyrir henni I al-
menningsbókasöfnum hér á
landi, þar sem tómstunda- eða af-
þreyingarhlutverkiö hefur verið
mest áberandi fram að þessu.
1 tengslum við landsfundinn,
sem stendur I dag og á morgun,
hefur verið efnt til tveggja nám-
skeiöa fyrir bókaverði, annars-
vegar um skipulagningu safns-
kosts og hinsvegar um almanna-
tengsl (Public Relations). Tveir
fulltrúar þjónustumiðstöðvar
bókasafna I Danmörku verða á
þinginu með kynningu og sýningu
á bókasafnsbúnaði og jafnframt
skipulagningu bókasafna og hafa
þar dæmi um. Þrjú islensk bóka-
söfn eru sýnd. Sýningin er I kjall-
ara Norræna hússins og er að-
gangur öllum opinn á opnunar-
tlma bókasafnsins.
Auðvitað hefur TlvoIIið verið vinsælast meðal yngstu gest-
anna á sýningunni Heimilið 80 I Laugardalshöll og þótt for-
eldrar smástynji undan peningaeyðslunni geta vlst fáir staðist
eftirvæntingaraugum...., svona i þetta eina sinn! Hægt er að fá
sér salibunur bæði I stórri hringekjunni og þeirri litlu, sem hér
sést.
— Ljósm.-eik-