Þjóðviljinn - 05.09.1980, Qupperneq 5
Föstudagur 5. september 1980 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5
Norska stjórnin tekur ákvörðun:
Bandarískar birgdastödvar
* anna. En Þrændalöe
verda í Þrændalögum
Norskar stöðvar í Norður-Noregi stœkka um helming
OSLÓ
syni:
frá Ingóifi Margeirs-
Norska stjórnin er þvi
fylgjandi að birgða-
stöðvar fyrir bandaríska
herinn verði staðsettar i
Þrændalögum en ekki í
Norður-Noregi eins og áð-
ur hafði verið ráð fyrir
gert.
Þetta kom fram á fundi
stjórnarinnar meB utanrlkis-
nefnd Stórþingsins norska I gær.
Akvörðun rikisstjórnarinnar
byggist á niðurstöðum svo-
nefndrar Brulandnefndar um
möguleika á staðsetningu
bandariskra birgðastööva á
norskri grund, sem teknar yrðu
i notkun af bandariskum land-
gönguliðum ef til átaka kæmi á
norðausturvæng Atlantshafs-
bandalagsins. Þeir Oddvar
Nordli forsætisráöherra og
Knud Frydenlund, utanrikis-
ráðherra vildu að öðru leyti ekki
tjá sig um málið fyrr en að af-
stöönum landsfundi Verka-
mannaflokksins sem haldinn
veröur nú um helgina. En þar
verður afstaða stjórnarflokks-
ins til bandariskra birgðastöðva
endanlega mótuð.
Norska stjórnin hefur ekki
fyrr látið skýrt uppi afstöðu slna
til þessa máls. Fréttir fyrr 1
sumar báru þvl vitni að áhugi
Bandarikjamanna á birgða-
stöðvum á norskri grund beind-
ist einkum að Norður-Noregi.
Brulandnefndin, sem svo heitir
eftir formanni sinum, Birni
Bruland, ritara i varnarmála-
ráðuneytinu, hefur hinsvegar
skilað áliti nú, þar sem mælt er
meö staðsetningu slikra stöðva I
Mið-Noregi, þ.e. I Þrændalög-
um, norðanveröum. Nefndin,
sem i sátu allir helstu yfirmenn
norska hersins, segir að slík
staðsetning sé bæði skynsamleg
og hernaðarlega mikilvæg.
1 kvöldfréttum norska út-
varpsins i gær segir aö tveggja
manna sendinefnd norsku
stjórnarinnar hafi fylgt sömu
tillögu I viðræðum sinum við
yfirmenn bandarlskra hermála
I Washington fyrr i vikunni.
1 sömu fréttum segir að
stjórnir Sviþjóðar og Finnlands
séu ánægöar með þessar breyt-
ingar á fyrri áformum þvi að
staðsetning bandariskra stöðva
I Norður-Noregi hefði getað
magnaö mjög spennu við
norðurlandamæri Sovétrikj-
anna. En Þrændalög eru 1000
km. sunnar.
Hinsvegar ætlar norska
stjórnin aö tvöfalda vopnabúr
og birgðageymslur norska hers-
ins, þar norður frá — fyrir tvær
5000 manna sveitir I stað einnar
nú.
Borgaraflokkarnir eru
óánægðir með þessa þróun
mála. Formaður Hægriflokks-
ins, KSre Willoch sagði á þingi i
gær, að stefna norsku stjórnar-
innar væri afsláttarstefna gagn-
vart Sovétrlkjunum. Ættu
bandariskar stöövar að vera
þar staðsettar sem hernaðar-
þörfin væri mest.
Með ákvörðun þeirri sem hér
um ræðir er norska stjórnin aö
slá tvær flugur I einu höggi:
Friða yfirstjórn hersins sem
hefur gagnrýnt bágboriö ástand
varnarmála i Noregi sunnan-
verðum — og ekki sist þagga
niður i óánægjuröddum sem
kynnu að láta til sin heyra á
landsfundi Verkamannaflokks-
ins nú um helgina. —im
Dauflegt þinghald í Peking:
Mannaskipti
og takmörkun
barneigna efst
á dagskrá
Kínverska þingið er nú á tíu daga fundi i Peking. Þar
hefur það helst orðið til tíðinda, að Deng Xiaoping vara-
forsætisráðherra og hans menn hafa neytt Hua Guofeng
til að segja af sér embætti forsætisráðherra í nafni vald-
dreifingar. Hua Guofeng fær áfram að halda embætti
aðalritara Kommúnistaflokksins. Þá fjallar þingið um
lög sem eiga að reka á eftir því, að tekið verði fyrir
fólksfjölgun í Kína.
Fréttaritari Dagens Nyheter
lýsir samkomunni á þá leið að
hún sé sýnu leiðinlegri en venju-
legtsænskt þinghald. A kinverska
þinginu eiga sæti 3500 manns, og
eru þeir margir komnir svo til ára
sinna, að þeir þurfa aðstoð við að
rétta upp hönd til að samþykkja
þær tillögur og frumvörp sem
fram koma. Leiðinleg er sam-
koman einmitt vegna þess, að
fulltrúarnir eru ekki til annars
komnir á tlu daga fund I Peking
en aö samþykkja það, sem þegar
hefur verið samþykkt af stjórn
Kommúnistaflokksins. I þeim
efnum er ekki sýnilegur munur á
kinverska alþýðuþinginu og
ÆBsta ráðinu sovéska.
Andstaða er engin. í Klna voru
nokkrir smáflokkar, sem ekki
fóru margar sögur af á timum
menningarbyltingar en hafa nú
fengið að starfa aftur um hrið. En
hlutverk þeirra er liklega fyrst og
fremst táknrænt, enda viður-
kenna þeir forystuhlutverk
Kommúnistaflokksins.
Rammi gagnrýni
Fréttastofan Nýja Kina hefur
þær fregnir að flytja, að ýmisleg
gagnrýni komi fram á nefnda-
fundum. En samkvæmt frétta-
stofunni er þessi gagnrýni eitt-
hvað á þessa leið:
„Um leið og því var slegið föstu
Hua Gsufcng missir annað sinna
um munar.
að stefna flokks og stjórnar hefði I
grundvallaratriðum verið rétt á
liönu ári beindu margir fulltrúar
harðri gagnrýni gegn yfirsjónum
og ávirðingum á mörgum svið-
um. Þeir kvörtuðu sérstaklega
yfir skriffinnsku, vanrækslu og
villandi fyrirskipunum. Full-
trúarnir kröföust þess að þeir
sem gerðu sig seka um slikar
yfirsjónir yrðu látnir sæta
ábyrgð’.
Einnig I þessum efnum minnir
klnversk gagnrýni mjög mikið á
hina sovésku: stefnan er rétt en
háu embætta og Deng Xiaoping og hans liðsmenn hafa þau áhrif sem
einstakir aðilar hafa gert eitthvað
rangt. En i báðum dæmum er
ekki hugsanlegt að einhver standi
upp á þingi og gagnrýni mann
sem er verulega hátt settur, t.d.
ráðherra. Valdataflið er flóknara
og fer að mestu fram að baki dyra
sem almennir þingfulltrúar hafa
ekki aðgang aö. Ef aö svo vildi til
að háttsettur maður væri tekinn
til bæna er það á slfkum vettvangi
nokkuð örugg visbending um að
dagar hans I áhrifastöðu séu þeg-
ar taldir af þeim sem áhrifamest-
ir eru.
Uppreisn jranskra vœndiskvenna:
Drógu tólf dólga fyrir rétt
Franskar vændiskonur eru i
ireiðum ham. Þær hafa nú I fyrsta
sinn i franskri réttarsögu dregið
tólf dólga fyrir rétt I Grenoble og
sakað þá um ýmis misindisverk:
barsmiðar, nauðganir, arðrán
o.n. Þetta er lika i fyrsta skipti
sem franskur dómstóll tekur til
athugunar stöðu vændiskvenna
og tilveru. Og þótti kannski mörg-
um timi til kominn.
Höfuðpaurinn I þessum mála-
rekstri er ungur rannsóknar-
dómari, Paul Weisbuch sem I
april síðastliönum fékk til með-
ferðar dauöa ungrar konu, Nadiu
Mauliers. Sú rannsókn teygði sig
fljótlega innl myrkviði Grenoble,
leiddi til handtöku fjörutlu manna
og standa tólf þeirra fyrir rétti i
fyrstu umferð.
| iyi
Vitnisburður kvennanna um til-
veru slna er heldur ófagur og
stenst lýsingum Dantesar fylli-
lega á sporöi. Ef þær reyndu að
draga sig útúr þessu helvlti var
þeim þunglega refsað af dólg-
unum og má segja að þeim hafi i
rauninni veriö bannaðar allar
bjargir. Nú hafa þær rofið
þagnarmúrinn og spanna lýs-
ingar þeirra fleiri þúsund blaö-
siöur I réttarskjölum. Þar er ekki
einungis lýst aðförum dólganna
heldur llka viöskiptavinanna. Þvi
eru betri borgarar I Grenoble
heldur ókyrrir i hægum sætum
sinum um þessar mundir, ekki
hvað sist vegna þess að Weisbuch
lætur ekki staðar numið viö rann-
sókn á hinum óæðri hluta vændis-
ins á götum úti heldur hefur nú
snúið sér aö slmavændishringjum
I borginnii sem sniðnir eru við
þarfir betra standsins. Og þar eru
dólgarnir ekki snauðir suður -
Italir eða sikileyjarmenn heldur
virðulegir kaupsýslumenn með
kúluhatta sem búa i afgirtum
hverfum auðkýfinga i Toulouse
eða Marseille.
Vændiskonurnar hafa sam-
kvæmt vitnisburði sinum
óhemjulegar tekjur á degi hverj-
um en aðeins lltill hluti kemur I
þeirra hlut, bróðurpartinn hirða
atvinnurekendurnir einsog
raunar alltaf. Og Weisbuch hefur
sagt að vændiskonur I Frakklandi
eigi sama rétt til hllfiskjaldar
laganna og aðrir franskir borg-
arar, þær borgi þó skatt af sínum
tekjum sem sé meira en hægt er
að segja um dólgana.
Strangari f jölsky Idulög-
gjöf
Fyrir utan mannaskipti (Deng
mun einnig vikja fyrir yngra
manni) er það llklega fréttnæm-
ast af þinginu i Peking, að, sem
fyrr segir, mun haldið áfram að
heröa á aðgeröum til að draga úr
fólksfjölgun með það fyrir augum
að stöðva hana alveg. Kinverjar
er langsamlegasta fjölmennasta
þjóö heims, og munu nú um
miljarður talsins. Um nokkurra
ára skeið hafa yfirvöldin unnið að
þvi að takmarka barneignir með
ströngum aögerðum meö það
markmið I huga að fóiksfjölgun
hafi alveg stöðvast árið 2000.
1 anda þessara áforma er lagt
fram á þinginu I Peking til stað-
festingar frumvarp um ný fjöl-
skyldulög. Samkvæmt þeim á
klnversk fyrirmyndarfjölskylda
ekki að eiga fleiri börn en eitt og
alls ekki fleiri en tvö. Eins barns
fjölskyldur fá verölaun með
launauppbót og öðrum fríðindum.
Fjölskyldum sem eignast fleirien
tvö börn er hinsvegar refsaö með
lægri launum og lélegri félags-
legri þjónustu. Fyrirmyndin að
þessari aðferð mun komin frá
hinu þéttsetna og að mestu kln-
verskra borgriki Singapore.
Þá er og i hinum nýju lögum
gert ráð fyrir hærri lágmarksgift-
ingaraldri. Samkvæmt lögum frá
1950 mega konur gifta sig 18 ára
gamlar en karlar tvitugir. Nú er
lagt til að miðað verði viö 20 og 22
ára aldur. 1 reynd hefur félags-
legum þrýstingi verið beitt óspart
til að meina fólki að giftast fyrr
en það er 25 ára. Þó munu undan-
tekningar hafa verið gerðar með
nokkrar smáar minnihlutaþjóðir.
áb tók saman.