Þjóðviljinn - 05.09.1980, Page 8
8 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 5. september 1980
Föstudagur 5. september 1980 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9
Hátíöablaö Lögbergs-Heimskringlu:
Einn tíundi hluti
efnis á íslensku
Vesturlslenska vikublaöiö Lög-
berg-Heimskringla er nú á nítug-
asta og fjóröa árgangi. Aö sjálf-
sögöu hafa blaöi þessu jafnan
fylgt góöar óskir íslendinga
beggja vegna hafsins og vilja
menn gjarnan aö þvi vegni sem
best.
A forsiöu blaösins er vigorö upp
á ensku: Preserves Heritage,
Assures Future.m.ö.o. er blaöinu
ætlaö aö „vernda arfinn og
tryggja framtiöina” þó ekki sé
meö öllu ljóst hvaöa skilningur er
iþað lagöur. Blaöiö er aö þvi leyti
rekiöf þessum anda, aö þaö varö-
veitir margar sameiginlegar
minningar Vestur-lslendinga,
auk þess sem þaö flytur ýmisleg
tiöindi af Islandi i stuttu máli. Ef
aö varöveisla tungunnar á aö
vera liöur I starfi blaösins, þá
sýnist ástandiö ekki sérlega gott.
Blaöiö hefur i vaxandi mæli birt
efni sitt á ensku, hinn Islenski
hluti þess hefur fariö minnkandi,
þvi miöur. Dæmi mátaka af tölu-
blaöi sem nýlega berst inn um
dyrnar og er hátiöablaö, helgaö
tslendingadeginum, hátiö Islend-
inga I Manitoba. I því tilefni er
blaöiö allmiklu stærra en venju-
lega eöa tuttugu siöur. Allmikiö
er af stuöningsauglýsingum,
mest frá einstaklingum af
islenskum ættum og fyrirtækjum
þeirra.
En aöeins tæplega tvær siöur af
þessu tuttugu siöna biaöi eru á
islensku. Allt hitt er á ensku.
Einaf þrem greinum á islensku
i blaöinu er einmitt um islenska
tungu 1 Vesturheimi. Þar eru rifj-
aöirupp kaflar úr bréfum vestur-
islenska rithöfundarins Jóhanns
Magnúsar Bjarnasonar, þar sem
hann rekur dæmi af þvi, hvernig
enska er fyrir meira en hundraö
árum byrjuö aö leggja undir sig
daglegt mál íslenskra manna. t
bréfkafla sem blaöiö birtir segir
Jóhann Magnús Bjarnason á
þessa leiö:
„Flestir munu fara i og úr „kót-
inu” sinu, boröa sinn breakfast,
sinn dinner og sinn supper.
Flestir þurfa aö fá „stampa” á
bréfin sin sem þurfa aö „pósta”.
Þeir kaupa flestir flour og „kor-
viö”, hafa fence fyrir framan
húsin sln og kringum „lotin” sin.
Bændur „brjóta” jöröina, „hóa”
upp moldinni, grafa niöur
„pósta”, byggja „sjenta” og
vinna daglega á „filnum”, þeir
láta harness á hestana, slá heyiö
meö mower, „ripa’ kroppiö”,
draga út „logga”, og geyma
korniö sitt I, ,greiniriinu”, og þeir
eiga uxateam, „póna” og cutter,
og lesa „pappirinn” eftir te. —
Konurnar þurfa aö hafa „bauler”
ogbroom lifter viö stóna „sett” á
boröinu, Wash-stand I horninu og
carpet I „parlorinn”, og þær
„skrobba” gólfiö og „fixa” til i
húsinu. Unga fólkiö fer „út fyrir
drive” og fer á „treininu” til
næstu staöa. Stúlkurnar horfa á
sig i „glasinu” og hafa „topp”
þær bera á sig scent og láta dress-
maker búa>til kjólana sina, þær
sækja um aö veröa diningroom-
stúlkur, eöa komast i „kisjeniö”
og „londrliö”, þær veröa aö baka
pie, ,pila” kartöflur, „rósta” kjöt
og „klina upp húsiö..”
:Afrakstur íhaldsstjórnarinnar í Bretlandi:
Fjöldi atvinmileysingja
kominn
Össur Skarphéöinsson
skrifar frá Bretlandi:
Tala atvinnulausra í
Bretlandi hefur nú farið
yfir tvær miljónir í fyrsta
sinn síðan 1939. Einn af
hverjum tólf vinnufærum
Bretum er því án atvinnu.
Atvinnumálaráðherra
(haldsstjórnarinnar hefur
þó látið í Ijós ugg um að at-
vinnuleysingjum kunni enn
að fjölga, einkum þegar
líður á veturinn.
Margrét Thatcher for-
sætisráðherra hefur þrátt
fyrir þetta harðneitað að
breyta um ef nahagsstefnu
og kveður of háar kaup-
kröfur almennings valda
atvinnuleysinu að stærstu
leyti. Kreppan sé m.ö.o.
sök verkafólksins sjálfs.
Ör fjölgun.
Talsmenn rikisstjórnarinnar
tilkynntu slöast i ágúst aö fjöldi
atvinnuleysingja væri nú meir en
tvær miljónir, og heföu aldrei svo
margir veriö án vinnu frá þvi fyr-
ir striö. Samantekt stjórnarinnar
náöi hins vegar ekki nema fram I
miöjan ágúst og þvl ljóst aö veru-
lega hefur bæst i hópinn slöan.
En fjölgunin i hópum hinna
verklausu er óvenju ör um þessar
mundir og hefur valdiö miklum
kviöa. Einungis i mánuöinum á
undan bættust 165 þúsundir verk-
færra manna i hóp atvinnulausra.
Margaret Thatcher meö
Churchillvindil: skellir
skuidinni á verkáfólk.
milljónir
Hin raunverulega tala er
hærri.
Leiötogar verkalýössamtak-
anna staöhæfa þó aö mun fleiri
séu án atvinnu og nefna hér fólk
sem ekki hefur skráö sig atvinnu-
laust, fólk sem hefur neyöst til aö
taka upp hlutastörf og unglinga á
leiö út úr skólum sem enn eru
ekki komin fram á skýrslum.
Telja þeir aö þetta fólk sé a.m.k.
300 þús. talsins, þannig aö tala
verklausra sé I rauninni fyrir
löngu komin yfir tvær miljónir.
Menn eru einnig sérlega
uggandi sökum þess hve margir
Bretar eru nú á því sem kallað er
stytt vinnuvika. Til hennar er
gripiö til aö komast hjá þvi aö
segja upp fólki þegar fyrirtækin
draga saman seglin. Þessi til-
högun er þó ekki einungis til aö
koma vel fram viö eymingjans
verkalýöinn — heldur komast
fyrirtækin einnig hjá þvi aö borga
svokallaðar uppsagnarbætur á
meðan. Þær geta oröiö umtals-
veröar ef viökomandi hefur
starfaö lengi hjá fyrirtækinu.
En þetta fólk sem vinnur á
styttri vinnuvikunni eru einsog
gefur aö skilja næstu fórnarlömb
kreppunnar —atvinnuleysiö biöur
þess I skauti morgundagsins.
Atvinnuleysið fjölgar
dauðsföllum.
Afleiöingar atvinnuleysisins
eru margvislegar. Rannsóknir
hafa nýlega verið geröar i Banda-
rikjunum og Bretlandi á áhrifum
atvinnuleysis á tiöni dauðsfalla.
Niöurstööurnar eru hrollvekj-
andi. Aukist atvinnuleysi um
fimm prósent af heildarfjölda
verkfærs fólks, þá má I tlmans
rás búast viö þvi aö dauösföllum
fjölgi um tiu prósent. Þá eru
náttúrlega ótaldir hvers kyns
sjúkdómar sem atvinnuleysið
leiöir til, beint og óbeint, og ekki
valda dauöa.
Efst á blaöi eru sjálfsmoröin,
sem eru einkum tiö meöal ungra
manna sem tapa vinnunni. Alkó-
hólismi og lyfjaneysla vex i fjöl-
skyldum atvinnuleysingja,
magasjúkdómar, og dauösföll af
völdum hjartaslags stóraukast.
Þungaiðnaðurinn hopar.
Mesti samdrátturinn er I
þungaiönaöi. Röng framtiöar-
skipulagning I stáliönaöinum
veldur þvl aö nú er veriö aö loka
nánast nýjum verksmiöjum,
vegna þess aö spár um þenslu i
stáliönaöinum stóöust ekki.
Þessi ranga fjárfesting dregur
enn frekar vindinn úr seglum hins
þjóðnýtta stáliönaöar. Meö
minnkandi stáliöju er svo þörf
færri kolanámumanna, sem unn-
vörpum veröa atvinnulausir
þessa dagana.
Samfara þessu er breskur bila-
iönaöur á hverfanda hveli — ekki
sist fyrir þá sök aö fæstir Breta
leggja útl þaö ævintýri aö kaupa
slna eigin framleiöslu. Heilar
borgir byggjast uppá bilaiðnaði
og veröa fyrir bragöiö illa úti. Sú
borg sem mestum uppgangi átti
aö fagna á sjötta áratugnum,
þegar bllaiönaöurinn var I örri
þenslu — Coventry — er t.d. aö
veröa aö hálfgildings drauga-
borg.
Thatcher glottir við tönn.
Engan bilbug er þó aö finna á
Margréti Thatcher þrátt fyrir
siversnandi ástand. Viökvæði
hennar er aö launakröfur verka-
fólks séu aö sliga landiö — ekki
pólitik thaldsins.
Len Murray, formaöur hins
breska ASt, hefur beöiö frúna I
fulli vinsemd aö hætta aö skella
skuldinni á alla aöra og fara nú aö
gera eitthvaö i málinu.
Hann hefur ennfremur bent á,
aö þrátt fyrir atvinnuleysiö og
þær byröar sem verkafólk hefur
veriö neytt til aö axla, er verö-
bólgan enn ekki tekin aö minnka,
eins og átti þó aö gerast einmitt
um þetta leyti skv. kokkabókum
Thatchergengisins.
Nú er framundan þing verka-
lýössamtakanna og þar kemur I
ljós hvort hin annars sundur-
þykku félög ná aö stilla saman
krafta sina gegn thaldinu. —ÖS.
j Helgi
Haraldsson:
Rússland hið forna í íslenskum landfræðiritum
RÚSSLAND HIÐ FORNA t IS-
LENSKUM LANDFRÆÐIRIT-
UM er heiti ritgerðar eftir Je. A.
Méljnikovu og kom út 1976 á
vegum Sovésku visindaaka-
demlunnar i ritsafninu „Elstu
riki á sovéskri grund”. I upphafi
greinar sinnar telur höfundur upp
helstu norrænar heimildir um
Austur-Evrópu. t fyrsta lagi
sögur, einkum konungasögur, þá
fornaldarsögur s.s. Örvar-Odds
sögu. Athyglisverð heimild er
Ynglinga saga Snorra.
Loks eru þau rit sem aö
einhverju eöa öllu leyti fjalla um
landfræöileg efni sérstaklega til
slikra '„landfræöirita” telur
Méljnikova eftirfarandi:
I. Leiöarvisir og borgarskiptan
eftir Nikulás ábóta Bergsson. (d.
1159 eöa 1160?).
U. Pianisfera er reyndar ekki
rit, hedlur heimskort, llklega gert
um 1200 og nær yfir Asiu, Afrlku
og Evrópu.
III. Heimslýsing og helgifræöi i
Hauksbók.
IV. Sögu- og landafræöiágrip
frá 14. öld I skinnhandriti AM
764,4° i Arnasafni, almennt kall-
aö Brot.
Ýmislegt i ritum þessum er litt
frumlegt og sótt i erlend rit, eink-
um er varöar Asiu og Afriku. 1
annan stað eru sum þeirra fræöa-
syrpur þar sem landafræöi er
aöeins einn af fleiri efnisþáttum.
Af þessum ástæöum hafa sögurit-
arar landafræöinnar oft ekki hirt
um þau. 1)
Nú er ekki ætlunin aö gera
ágætri grein Jelenu Méljnlkovu
nein viöhlltandi skil. Hins vegar
skal reynt aö færa sér þaö I nyt,
aö hér er saman komið á einum
staö yfirlit um fornar norrænar
nafngiftir á löndum, stööum og
fljótum I austurhiuta Noröurálfu.
Veröa þær nú tiundaöar ef veröa
kynni einhverjum til ánægju og
fróöleiks.
Heitið Sviþjóö hin mikla hefur
sýnilega verið útbreitt á
Noröurlöndum, enda tilfært i
„Leiöarvisi”, Heimslýsingu” og
„Fragmenti”, en vantar á
Planisferu. I Heimslýsingu segir:
„... oc er austastfþ.e. I Evrópu)
Sviþjóö him micla”. Snorri notar
þetta nafn i Prologus. 1 „Broti”
stendur: „I Europa er austaz
Cithia, þat köllum ver Sviþiod
hina myclu”. Þótt nafniö Sviþjóö
hin mikla komi ósjaldan fyrir i
islenskum fornritum viröist hug-
takiö hafa veriö ónákvæmt og
notkunin reikul.
Nafniö Cithia eða Scithia er
vitaskuld dregiö af þjóöarheiti
Skýþa, en þeir byggöu Suöur-
Rússland þegar sögur hófust,
enda takmarkar Planisfera heitiö
„Scithia frigida” viö suöurhluta
Austur-Evrópu.
Bjarmaiander þekkt af fornum
bófeum- „Brot” segir svo: „Fyrir
noröan Noregh er Finnmörk,
þaöan vikur landinu til lann-
norþrs aör komi til Bjarma-
lands”. tyngra verki („Griplu”)
segir um Bjarmaland: ,,... þat er
skattgilt undir Garöariki”. Ljóst
er að Bjarmaland tekur yfir
rússnesku strandhéruöin I noröri.
Útbreiddasta og tiöasta nafnið i
fornritum er Garöariki og finnst
þaö á rúnaristum. Allt bendir til
aö þaö samsvari i stórum
dráttum Rússlandi i heföbundn-
um skilningi. I Heimslýsingu
segir: „I þui riki (þ.e. I Sviþjóö
hinni miklu) er þat er Ruzcia
heitir, „þat kolium ver Garöa-
riki.”Hér kemur fram aö Sviþjóð
hin mikla er talin viðtækari en
Garöarlki, sem aftur er taliö
sömu merkingar og „Ruzcia”.
Flest önnur dæmi úr fornritum
styöja þá túlkun, en hér sker
Planisfera sig úr. A kortinu er
noröurhluti Austur-Evrópu
merktur Garöarlki, en suöurhlut-
inn, sem fyrr segir, Skýþia hin
kalda (Scithia frigida).
Nikulás ábóti er einn um
nafngiftina Kyifingaland sem
samheiti Garöarikis, hins vegar
mun Kylfinga sem þjóöflokks
vera getiö I fornaldarsögum.
Aölokum tilfærir „Brot” nafniö
Austurriki. Af safnaheimildum
telur Méljnikova einsýnt aö meö
þessu nafni sé átt viö Rússiand.
Af öörum landaheitum i
Austur-Evrópu má nefna: Vir-
land (norðurhluti Eistlands),
Kirjálaland (liklega
suöur-KarelIa), Kúrland (milli
Eystrasalts og Rigaflóa), Llfland
(fyrir botni Rigaflóa),
Tafeistaland (vestur af
Hvitahafi, sem hét Gandvik á
norrænni tungu), Eistland,
Ermland (noröausturhluti
Prússlands) og Samland (milli
Kúrlands og Ermlands). Hollt
mun þó aö gera nokkurn
fyrirvara um staösetningu sumra
þessara svæöa.
Borgauöugt land var Garðariki
eins og nafniö bendir til. Flestar
borgir nefnir Heimslýsing:
Moramar (Múrom), Súrdalar
(Súzdalj), Hólmgarður
(Novgorod), Sýrnes (Tsjerní-
gov?), Palteskja (Polotsk) og
Kænugaröur (Kiev). „Brot”
notar fleirtölumyndina Kænu-
garðar. Sömu borgir en færri er
aö finna i hinum heimildunum
þremur, nema hvaö Nikulás telur
Smalteskju (Smolensk). 1
Örvar-Odds sögu kallast Rostov
Raöstofa, en i Heimslýsingu
Rostofa. Furstadæmiö Súzdalj
mun vera þaö sem I Hákonarsögu
er kallaö Suöurdalariki.
Af öllum þessum borgum
þekktu Noröurlandamenn best til
Hólmgarðs, og nafniö hefur
fundist á rúnaristum frá 11. öld.
Hitt er furðulegra aö ekkert af
umræddum fjórum landafræöirit-
um skuli minnast á Aldeigjuborg
(Ladoga), sem annars er tiönefnd
I sögum, oft I sömu andrá og
Hólmgaröur.
Fljótin I Austur-Evrópu skópu
norrænum mönnum sögu. Eftir
þeim lá „Væringjaleiöin”,
þjóöbraut vikinga og kaupmanna.
Af landfræðiritunum er þaö þó
aöeins Heimslýsing sem telur upp
stórár I Austur-Evrópu (og
Evrópu allri), nema hvaö Planis-
■fera færir upp Tanakvfsl (I
Heimslýsingu Tanais), þ.e. Don.
Annars nefnir Heimslýsing eftir-
taldar ár: Nýja (Néva), Dúna
(Dvlna hin vestri, Daugava),
Vlna (Dvlna hin nyröri), Nepr
(Dnépr), Kúma, Olkoga
(Volhov?) og Seimgol, llklega
Sejm, sem fellur i Désnu, þverá
Dnéprs aö austan.
1) Méljnikova nefnir tvö yfirlits-
verk, sem láta fornislenskra
landfræöirita getiö, þ.e. J.
Lelewel. Geographie du
Moyen-Age, t. I. Bruxelles, 1852,
C. R. Beazly. The Dawn of
Modern Geography, v. 2. London,
1905.
Novgorod hét Hólmgaröur, Polotsk hét Palteskja, stundum hét Rússland Austurriki..
á dagskrá
ólafur
ólafsson:
Það þarf bara óvenjulega liðug rök til
að mótmœla á sannfœrandi hátt
fullyrðingum um að nú á tímum komist
fólk fyrr til þroska, andlegs og
líkamlegs, heldur en fyrir nokkrum árum
Lýðræði fyrir alla
tslendingar eru áhugamenn um
lýöræðiö sitt og kenna börnunum
snemma aö þaö eigi óviöa sinn
lika I heiminum. Þvi var ekki aö
undra þótt lif færöist i gamla
þrætu um vægi atkvæöa I
Alþingiskosningum þegar
stjórnarskrárnefnd svokölluö
skilaöi um daginn af sér bráöa-
birgöaskýrslu.
Sá sokkur veröur ekki
saumaður lengri hér, enda
skýrsla nefndarinnar vist ekki
jafn merkileg og af var látið i
fyrstu — af tæknilegum ástæöum
er óráðlegt aö samþykkja
stjórnarskrárbreytingu fyrr en
kosningar eru i nánd. A hinn
bóginn er við hæfi aö minna á
aöra þarfa breytingu á stjórn-
skipunarlögum sem landsmenn
hafa um nokkurn tima haft minni
áhyggjur af — þaö má mikiö vera
ef kjörgengis- og kosningaaldur
tilAlþingisveröur ekki færöur 118
ár næst þegar tækifæri gefst.
Þaö þarf ekki bara óvenjulega
liöug rök til aö mótmæla á
sannfærandi hátt fullyröingum
um aö nú á timum komist fólk
fyrr til þroska, andlegs og likam-
legs, heldur en fyrir nokkrum
áratugum, — eöa þá hinu aö
ýmislegar skyldur og réttindi
sem fdlk undir tvltugu tekur á sig
gerir rökrétt aö þaö öölist jafn-
framt þessi réttindi. Heldur
einnig þaö aö Ihaldsmenn þurfa
þvi miður ekki lengur aö óttast aö
lægri kosningaaldur veröi
sérstakt vatn á myllu sóslaliskra
samtaka og flokka. Þeir hafa þvf
efni á að taka undir meö verka-
lýösflokkunum á þingi, sem lengi
hafa haft máliö á stefnuskrá, og
slá sér upp á þvl um leiö. Þaö
veröa þannig ekki likamlegir og
andlegir eiginleikar æskulýösins
sem gera óhætt aö færa ddurs-
mörkin niöur, heldur pólitisk
þreyta vinstrisinna.
Nú vitum viö raunar ekki hvort
þessi aldurshópur myndi hafa
stórkostlegt hagræöi af kosninga-
rétti. I besta lagi munu t.d. hags-
munasamtök skólafólks ná betur
eyrum þingseta þjóöarinnar,
e.t.v. jafnvel komist inn i náms-
lánakerfiö eöa geta sýnt fram á
hvllikt hróplegt ranglæti þaö sé
aö hluti skólanema veröi aö
standa undir launakostnaöi
starfsmanna I mötuneytum skóla
sinna. 1 versta falli munu nýju
kjósendurnir fyllast slikri
ábyrgöartilfinningu gagnvart
valdkerfi samfélagsins aö þing-
salamakkiö veröi þeim eini
sjáanlegi baráttuvettvangurinn
fyrir breytingum i og á þjóöfélag-
inu — og hverjum skyldi þaö þá
þjóna?
Þegar öllu er á botninn hvolft,
skiptir þaö kannski enn meira
máli aö fá aukin áhrif á næsta
umhverfi sitt — skóla- eöa vinnu
staö — heldur en hvort það veröi
Gunnar eöa Geir sem plati
Alþýöubandalagiö i rikisstjórn.
Þaö er jú til aö mynda skólans aö
búa nemendur sina undir lif og
starf I lýðræöisþjóöfélaginu.
Veröur slikt gert á annan betri
hátt en aö efla lýöræöislega
starfsháttu þar innan veggja —
meö nokkurskonar verklegri
æfingu?
Þaö var sennilega eitthvaö I ætt
viö þetta sem blaöamaöur
Helgarpóstsins haföi i huga þegar
hann fræddi Ingvar Gislason
menntamálaráöherra á þvi aö
lýöræöi i skólum, þ.e. aukin áhrif
nemenda og kennara á skólahald,
væri mjög á baugi erlendis, hvaö
væri meö okkur hér?
„Þaö hefur nú dálltiö veriö
framkvæmt hérna hjá okkur”
svaraöi ráöherrann og veröur
blaöamanninum ekki láö þótt
hann vilji fá nánari skýringu.
„Aö visu er þaö kannski ekki
fullkomiölýöræöi, en vissulega er
margt i starfi skólanna sem
bendir til lýöræöis og nemendur
eru viöa meö I ráöum I skóla-
stjórn. T.d. i háskólanum,
menntaskólunum og viöar.”
— Hvaö meö lýöræöi I grunn-
skólanum? spyr blaöamaöur, og
enn dregur Ingvar I land:
„Þaö hefur aö visu ekki boriö
svo mikiö á þvi hér á landi og ég
veit satt aö segja ekki hvort þetta
er ákaflega brýnt. Þaö eru uppi
um þetta ýmsar hugmyndir en ég
held aö þaö sé langt i land meö aö
þær veröi aö veruleika”.
Nú er Ingvar Gislason án efa
mikill stuöningsmaöur almenns
lýöræöis I landinu, jafnvel fylgis
maöur ladckaös kosningaaldurs,
þótt eðlilegt sé aö jöfnun vægis
atkvæöa sé full stór biti fyrir
landsbyggöarþingmann. En I
grunnskólann hefur lýöræöiö
ekkert aö gera og má þaö vera I
góöu samræmi viö viöhorf
ráðherrans i Grundarf jaröarmál-
inu þar sem hann þvældist fyrir
þvi aö foreldrar, nemendur og
kennarar losnuöu viö skólastjóra
sem þeim af einhverjum
ástæöum var uppsigaö viö.
Sannleikurinn er sá — og þaö
gerir Ingvar Gislason sér mæta
vel ljóst — aö virkt og lifandi
lýöræöi getur oröiö býsna erfitt
valdakerfi þessa þjóöfélags. Þaö
er hægt aö stinga dulu upp i
starfsmenn S.I.S. meö þvi aö
veita þeim áheyrnarsæti i stjórn
sambandsins, eöa kalla þaö
einkenni lýöræöislegs skólastarfs
aö nemendur I menntaskólum
eigi tvö sæti af sex I skólastjórn-
um þótt valdsviö þessara svoköll-
uöu skólastjóma fari einungis
eftir duttlungum viökomandi
skólameistara. En hverju væri
menntamálaráöuneytið ööru lik-
ara en sprunginni blööru ef hug-
myndir Haröar Bergmanns réöu
feröinni:
„... Eigi nemendur aö veröa
virkir þátttakendur I lýöræöis-
þjóöfélagi og færir um aö breyta
þvl, er mikilvægara aö þeir fái aö
kynnast frelsi og þátttöku i
ákvöröunum i raun, en aö þeir
heyri aöeins sagt frá gildi þess. —
Þvi meira frelsi sem starfslið i
stofnun hefur og þeim mun meiri
þátt sem þaö á i aö móta inntak og
aöferöir viö starfið, þvl meiri
áhuga og frumkvæöis er aö vænta
hjá þvi. — I samræmi viö þetta
þyrfti aö breyta núverandi skipan
valda og ákvaröanatöku innan
skólakerfisins. Meginstefnan
væri aö færa völd og áhrif frá
þeim sem ofar standa i valda-
stiganum, miöaö viö núverandi
skipan, til þeirra sem neöar
standa og eiga aö starfa I
samræmi viö ákvaröanir. —
Foreldrar kjósi fulltrúa i
skólanefndir, hafi umsagnar- og
tillögurétt um daglegan og
árlegan starfstlma, stundaskrá,
námsmat, skólastjóra- og
kennararáöningar og fyrirkomu-
lag á skólalóö. — Nemendur kjósi
fulltrúa i skólastjórn, hafi rétt til
aö óska eftir ákveðnum kenn-
urum, fái aukiö valfrelsi i námi,
umsagnar- og tillögurétt um
námsskrá, námsefni og aöferöir,
námsmat, daglegan starfstlma,
fyrirkomulag i skólastofu og á
skólalóö, skólareglur. — 1
framhaldsskólum hafi nemendur
meö ákvöröunarrétt um
námsefni, aöferöir og námsmat.
Kennarar (þ.m.t. skólastjórar)
kjósi fulltrúa I skólanefndir og
fræösluráð, kjósi skólastjóra til 4
ára I senn.. —Hætt veröi aö ráöa
kennara, skólastjóra og
ráöuneytismenn til starfa til
ótiltekins tima, en I staöinn ráöiö
til 4ía ára I senn.” Úr bæk-
lingnum Skóli og þjóðfélag.
Norrænir áldagar á íslandi
Aundanförnum árum hafa nor-
rænu samtökin SKANALUMIN-
IUM haldið árlega ráöstefnu um
efni tengt framleiöslu og úr-
vinnslu á áli. Ráðstefnur þessar
hafa verið haldnar til skiptis á
Norðurlöndunum, og veröur aö
þessu sinni efnt til ALDAGA i
Reykjavik dagana 15. og 16.
september nk.
Dagskrá ALDAGANNA nú i ár
er tvlþætt. Fyrri dagurinn ber
yfirskriftina „Aliönaöurinn og
samfélagið” og veröa þá flutt er-
indi um eftirtalin efni:
Skilyröi aröbærrar álfram-
leiöslu. —Alá niunda áratugnum.
— A1 og orka. — Heilbrigöismál I
álframleiösluiönaöi. — A1 og
orkuaölandi iönaöur á Islandi,
(sem dr. Jóhannes Nordal
flytur).
Siöari daginn er dagskráin
meira tæknilegs eölis og erindi
flutt i tveimur sölum. Annars
vegar veröur fjallaö um notkun
áls I bllaiönaöi, en hins vegar um
málefni sem höföa meira til okk-
ar Islendinga um möguleika á ál-
steypu og smiöum úr áli, og veröa
þá flutt erindi um þessi efni:
Fiskumbúöir úr áli. — Gróöur-
hús úr álprófilum. — Fiskibátar
úr áli. — Alsteypuiönaöur,
markaöir, hagkvæmni og stærö
verksmiöja. — A11 varmaskipta i
bilaiönaöi. — A1 og magnesium I
bandariskum bilum.
Ráöstefnan veröur haldin i
Súlnasal Hótel Sögu, en I lok ráö-
stefnunnar á þriöjudag veröur
ráöstefnugestum boöiö til
hádegisveröar hjá Islenska Alfé-
laginu I Straumsvik.
Stjómunarfélag íslands annast
framkvæmd þessarar ráöstefnu
hér á landi og má fá allar nánari
upplýsingar um ráöstefnuna á
skrifstofu Stjórnunarfélagsins aö
Siöumúla 23 eöa i sima 82930.