Þjóðviljinn - 11.09.1980, Page 7

Þjóðviljinn - 11.09.1980, Page 7
Fimmtudagur 11. september 1980 ÞJÖÐVILJINN — SIÐA 7 Verkalýdsfélagið Eining: Fyrst og fremst aukinn kaupmátt og ekki lakari samninga en BSRB Á almennum félagsfundi Verkalýðsfélagsins Einingar sl. sunnudag þar sem samþykkt var verkfallsheimild fyrir trúnaðarmannaráð tii að ýta á eftir gerð nýrra kjarasamninga i samráði við aðalsamninganefnd ASi var jafnframt sam- þykkt eftirfarandi ályktun um samningamálin: „Almennur félagsfundur Verkalýösfélagsins Einingar haldinn 7. september 1980 telur að það eigi að vera ófrávikjanleg krafa launafólks innan A.S.l. að til samninga verði nú þegar gengið án tafar, til jafns við það sem gert hefur verið við launafólk innan B.S.R.B. og þar á að gilda jafnt um kaup sem félagsleg rétt- indi. Verkalýðsfélagið Eining heitir þvi á allt launafólk innan A.S.Í. að standa saman og sameinast i bar- áttunni til að nú verði afnumið það misrétti sem átt hefur sér staðognú virðisteiga að viðhalda og auka. Fólkið i framleiðslustéttunum, sem öll afkoma þjóðarinnar byggist á, getur ekki þolað það öllu lengur að það sé stimplað sem 2. eða 3. flokks fólk og njóti ekki sömu mannréttinda og með- limir B.S.R.B. Þvi skorar Verkalýðsfélagið Eining á rlkistjórnina að ganga nú þegar inn i samningaviðræð- urnar og hlutast til um að samn- ingar A.S.Í. verði ekki lakari en samningar B.S.R.B. Einnig mynnir Verkalýðs- félagið Eining rikistjórnina á til- lögur A.S.l. til rikisvaldsins i skattamálum, ef þeim hefði verið svarað jákvætt hefði það leyst betur vandamál láglaunafólksins og komið betur að gagni en verð- lausar krónur sem teknar eru aftur með gengisfellingu og gengissigi, eins og gert hefur verið á þessu ári og magnað hefur verðbólgu meir en nokkru sinni fyrr. Við viljum fyrst og fremst auk- inn kaupmátt, en hann kemur aðeinsmeðminkandi verðbólgu”. 43-manna samninganefnd ASt hvatti aðiidarfélög sambandsins til þess að afia sér verkfailsheimildar á fundi sinum i fyrradag. Meöal félaga sem þegar hafa aflað sér verkfalisheimildar eru Dagsbrún, Iðja og Félag járniönaöarmanna i Rvik, Eining viö Eyjafjörð, Vaka á Sigiu- firöi og samtök I prentiðnaði. Ljós, eik. VUja húsið I fréttatilkynningu frá Ibúa- samtökum Vesturbæjar segjast þau hafa kynnt borgarráði þá skoðun samtakanna að þau kysu helst að húsið að Suðurgötu 7 fengiað standa þar sem það er. Ef þess þyki hins vegar enginn kostur,vænta samtökin þess að í miðbænum húsinii verði fundinn staður i miðbænum þar sem það megi áfram prýða bæinn og fái þar hlutverk sem eigi við húsiö og umhverfi þess. Samtökin benda á að þá kæmi vel til greina að nýta húsið sem listhús eins og verið hefur undanfarið. „Þú og ég” komin heim: Fengu mörg til- boð um keppni næsta ár Helga Möller og Jóhann Helgason syngja I keppninni i Sopot i Pói- landi. ,,Þú og ég”, þ.e.a.s. þau Helga Möiier og Jóhann Helgason, sem nýiega komust i fjórða sæti i keppni hljómplötufyrirtækja á „Sopot Intervision Festival” i Póllandi, hafa i framhaldi af þvi fengiö tilboð um þátttöku 1 söngvakeppni i Þýskalandi, Búlgarfu, Finniandi og Japan á næsta ári. Einsog Þjóðviljinn skýrði frá á sinum tima sungu þau „Þú og ég” lag Gunnars Þórðarsonar „Dans, dans” I keppninni, sem sjónvarpað var beint um i alla að var beint um alla Austur-Evrópu og til nokkurra landa vestan tjalds, en auk þess var unnin styttri sjónvarpsdag- skrá um keppnina og mörg laganna verða gefin út saman á kassettu, þ.á.m. annaö islensku laganna. Helga, Jóhann og Gunnar eru nú komin heim úr vel heppnaðri utanför og mun söngparið á næstunni koma fram á skemmt- unum I Reykjavik. — vh Tónleikar í Laugardalshöllinni n. k. laugardag kl. 21. Inn i fjölbreytta tónlistardagskrá kvöldsins fléttast leikatriði og ýmsar óvæntar uppákomur semörugg- lega eiga eftir að vekja mikla athygli. Höllin verður svo að sjálfsögðu skreytt í anda Rokks gegn her Þursaflokkurinn Flokkurinn sá hefur nýlega sent frá sér breiðskífu og vinnur nú að söngleiknum Gretti. Á tónleikum munu þeir flytja splunkunýtt og hressilegt rokkprógramm í anda kvöldsins. T áragas Táragas er rokkleikhús. Sambland kvikmyndar, leikatriða og lifandi tónlistar undir styrkri stjórn Karls Sighvatssonar. Mezzoforte Það hefur verið hijótt um meðlimi Mezzoforte að undanfönu. Þeir hafa verið í stúdíói að vinna að nýrri plötu sem væntanleg er innan skamms. Afraksturinn fáum við að heyra á laugardaginn. Bubbi Morthens Utangárðsmenn Þetta verða síðustu tónleikar Utangarðsmanna á þessu hausti. Þeir munu draga sig í hlé vegna plötuupptöku. Á Iaugardaginn munu þeir félagar leika efni af væntanlegri plötu. Forsala aðgöngumiða er í Bóksölu Stúdenta, Bókaverslun Máls og menningar og hljómplötu- I verslunum Kamabæjar; Austurstræti 22, Laugavegi 66 og Glæsibæ. Miðaverð kr. 7000

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.