Þjóðviljinn - 11.09.1980, Síða 13
Fimmtudagur 11. september 1980
Fimmtudagur 11. september 1980 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 13
Fjaryarmaveita
Framhald af bls. 10.
ber að afla þeirra til annarra
nytsamari hluta en að framan
greinir.
d) Hagur bæjarbúa hlýtur að
vera i fyrirrúmi, litla trú hef ég
á aö þeir taki þvi þegjándi að
greiöa 4-falt til 5-falt verö, mið-
að t.d. viö ibúa i Reykjavik, i
upphafi og siðan margfaldist
munurinn. _
e) Rafhitunartaxti (42)
Rafmagnsveitna rikisins kem-
ur nú i fyrsta sinn i dagsins ljós
óháður Rotterdamskráningu á
oliuverði. Samkvæmt gjald-
skrá frá 1. ágúst er verðiö ca
18,30 kr./kwh og samkvæmt
minu mati er þetta verð alltof
hátt. Það ætti ekki að vera flók-
inn útreikningur fyrir ráða-
menn orkumála að koma þessu
veröi niður i ca 70% eða 12,80
kr./kwh, með sömu reiknings-
forsendum og fyrir fjarvarma-
veitur. Þetta verð ætti að geta
orðið tiltölulega stöðugt þannig
að unnt væri að eyja von um að
húshitunarkostnaður á tslandi
smám saman jafnaðist út, hvar
sem er á landinu.
f) Vilji svo óliklega til aö bæjar-
stjórn samþykki R/O-veituna
og geti á grundvelli laga um
oliustyrk þrælað þeim sem
oliukyndingu hafa inn á veituna
eða ca 40% ibúa, þá get ég ekki
séö með hvaða rökum á að ná
hinum sem raftúbur hafa eða
ca 19% ibúa; sjáanlegt er að
þeir þurfi að borga vænar fúlg-
ur fjár með sér. Ekki þekki ég
nein lög sem heimila. aö þvinga
þá til tengingar.
g) Varaafl R/O-veitna er ekki
sambærilegt við annað varaafl
t.d. dísilafl. Þið getið ekki notað
það til neinna annarra hluta en
að hita þau hús sem tengd eru
veitunni svo framarlega að til
sé rafmagn til að dæla þvi til
þeirra.
Við erum staddir á nákvæm-
lega sama stað með öll önnur
tækifæri. Sé hins vegar vara-
aflið i formi disilafls getum viö
miðlaö þvi innan staðarins á
hvaða tæki sem er, sent það til
annarra staða, sem oft áöur.
Þannig að ég get ekki sætt mig
við þann hugsunarhátt sem
virðist rikjandi á Norðfirði aö
dísilstöðin sé eitthvað privat
fyrir Norðfirðinga eina, hún er
og hefur alltaf verið varastöð
fyrir allt, Austurland, og
hefur gefið okkur öllum birtu
og yl. Siðan er til annað vara-
afl, sem hvort sem er kemur
innan tiðar, þ.e. önnur lina (sú
gamla er ónýt, þ.e.s. þarf að
endurbyggjast eftir að ný lina
veröur komin).
h) Samkvæmt áætlun RARIK
veröur bæjarkerfið að fullu
uppbyggt 1983 til að geta annaö
100% rafhitun. Iönaðarráö-
herra á aö hafa fengið áætlanir
frá RARIK, sem tilgreina þau
markmið.
i) Er ekki skynsamlegt aö doka
við og sjá hvort Seyðfiröingar
krafla sig upp úr brunninum,
áður en þið farið að flana ofan i
hann.
Að lokum vil ég benda ykkur á
aö lesa fram komin gögn i mál-
inu, svo sem Frumathugun 2 frá
VST, helstu sjónarmið varðandi
gjaldskrá R/O-veitna, og
Verðlagning á raforku til R/O-
veitna frá RARIK. Það þarf
engan sérfræðing til að sjá
vitleysuna sem þar er á ferðinni.
Ég vil llka benda ykkur á grein
á forsiðu Dagblaösins Timans 2.
sept. varöandi Hitaveitu á Hellu
og Hvolsvelli.
Þá vona ég aö ákvörðun ykkar
veröi öllum Noröfirðingum gæfu-
rik i komandi framtið.
Heimir Sveinsson
tæknifræðingur.
(fftl Nei takk
w ég er á bíl tp"
L 9
ulUMFERÐAR Uráð
erlendar
bækur
Hansers Sozialgeschi-
chte der deutschen
Literatur von 16. Jahr-
hundert bis zur Gegen-
wart.
Herausgegeben von Rolf
Grimminger. RedaktionHans
Joachim Simm. Band 3. I-II:
Deutsche Aufklarung bis zur
F ranzös ischen Revolution
1680—1789. Deutscher Taschen-
buch Verlag 1980.
Útgefandinn segir i inngangi að
hugtakið félagsfræöi, sé hér notað
i mjög viðtækum skilningi, og sé
nýtt að svo miklu leyti sem
félagslegar forsendur megi auka
skilning á bókmenntum hvers
timabils. Bókmenntalegt verk
eða heimspekileg umræða hvers
timabils verður ekki skilin og
metin, nema gerð sé grein fyrir
samfélagi og tjáningaformi sam-
félagsins á þeim tima i ræðu og
riti, sérmerkingu hugtaka
viðkomandi tima og almennri
notkun málsins. Otal þættir
hverrar samfélagsgerðar móta
málnotkunina og hún er frum-for-
senda bókmennta. Atvinnuhættir,
þar með talin verkmenning er þar
veigamikill þáttur. Þvi er mikill
sannleikur fólginn i þeirri skoðun,
sem gáfaöur maður sló fram, að
íslendingar myndu týna islensk-
unni þegar þeir hættu að stunda
sauöfjárbúskap.
Bókmenntir hvers tima eru
bundnar timanum en þó ekki all-
ar, sumar verða sigildar, ná þeim
hæðum að hver timi skynjar þær
og þær verða uppspretta fyrir alla
tima, en þær eru engu síður
markaðar þvi timabili, og
umhverfi, sem þær eru sprottnar
úr, tjá hið sammannlega og þær
hæðir sem gilda ætiö. Skilningur á
sigildum verkum hvers timabils
veröur dýpri, ef forsenda þeirra
er rakin með skirskotun til lifs-
máta, smekks og meðvitundar
þeirra kynslóða sem skáldin voru
brot af. Þær bókmenntir sem
voru bundnari sköpunartiman-
um, eru ekki siður þýðingarmikl-
ar, sem skuggsjá timabilanna, og
heimild um smekk og mat og
meðvitund timabilsins, sem þær
tjá meðvitað og ekki siður
ómeðvitað.
Arnold Hauser skrifaði m.a.
merkt rit, „Sozialgeschichte der
Kunst und Literatur” sem út kom
I Munchen 1953. Þar eru svipaöar
slóðir þræddar, einkum varðandi
listir, sem leitast er viö aö þræða i
þessu riti, I mun viðameira formi.
Rit þetta á allt að spanna timann
frá þvi seint á 17. öld og fram á
vora tima. Það hefst sem sé, með
upphafi skynsemisstefnu og sin-
um að upplýsingarstefnunni, sem
eru tvö heiti sama fyrirburöar.
Skynsemisstefnan er tengd
uppkomu borgarastéttarinnar og
bókmenntir 18. aldar eru mark-
aöar lifsskoðun og meðvitund
þeirrar stéttar. Skynsemi,
nytsemi, og nauðsyn timanna og
framfarir var hvatinn að sókn
borgarastéttarinnar. Kirkjan
varð að beygja sig undir verald-
lega nauðsyn, sekulariseringin
tók langt skref framá viö. Þetta
bindi rekur sögu bókmennta og
samfélagsmeðvitundar fram að
frönsku byltingunni 1789. Það er
undirbúningsskeiðið undir enn
frekari umsvif borgarastéttarinn-
ar á 19. öld. Andófið gegn þessari
stefnu hefst seint á 18. öld með
Rousseau ofl. og nær hæst með
rómantikinni, en sú saga verður
rakin i 4. bindi þessa ritsafns.
Höfundarnir rekja þessa
forsögu, fyrst meö greinagóðu
yfirliti i fyrra l/2bindi um stétta-
breytingar á 18. öld, nýskipan
skólakerfisins, þróun læsis og
uppkomu leynifélaga, sem unnu
að þvi að gegnsýra samfélagið
vissum skoðunum og mati, svo
sem Frimúrara og Illuminata.
Bókadreifing er hér rædd,
höfundaréttur og áhrif forleggj-
ara. Sérkafli fjallar um leikhúsiö.
I öðrum kafla fyrra 1/2 bindis er
stiklað á þeim helstu vörðum,
sem varöa veginn, höfundum og
heimspekingum sem móta nýja
meðvitund þ.m. er fjallað um
Johann Arndt: Verus Christianis-
mus, eöur Sannur Christenn-
domur... sem kom út á islensku i
fjórum bindum i Kaupmannahöfn
1731—32. En sú bók kom fyrst út
snemma á 17. öld og varð mjög
áhrifamikil til mótunar nýrrar
trúarkenndar. Fjöldi annarra
höfunda er nefndur. í þriðja kafla
annars 1/2 bindis er komið að
Klopstock, Gellert, Lessing og
fyrri leikritum Schillers, Goethe
ofl. ofl.
barnabækur, satirur og sögu
skáldsögunnar á 18. öld. I bókar-
lok eru nauðsynlegar skrár og
registur, bókaskrár, útgáfur,
heimildaskrár og skrár um
rannsóknir á bókmenntum tima-
bilsins. Og I lokin eru taldir þeir
sem skrifað hafa hina ýmsu kafla
þessa viðamikla rits, sem er tæp-
ar 1200 bls.
Rit þetta er einnig gefið út af
Hanser Verlag. Þetta er mjög
þarft rit, ekki aðeins fyrir þá sem
áhuga hafa á bókmenntum,
heldur einnig fyrir þá sem snudda
i öðrum greinum mannlegrar
viöleitni, svo sem félagsfræði og
sagnfræði. Útgefanda hefur tekist
að kerfa efnið skynsamlega niöur
og höfundum að takmarka sig við
þau efni, sem þeim var falið að
fjalla um. Hér er dregin upp
samkerfuð lýsing samfélags og
samfélagsafla og bókmennta
samfélagsins innan viss
tima-ramma á þýzka
málsvæðinu.
Fjallaö er um ferðasögur
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Umræðufundur um fjölskyldupólitik
1. fundur I umræðufundaröð um fjölskyldupólitik
verður haldinn aö Grettisgötu 3 I kvöld kl. 20.30.
A fundinum mun Guðný Guöbjörnsdóttir flytja er-
indi um skilgreiningu á hugtakinu „fjölskyldupóli-
tik” og þróun og stöðu slikra mála I nálægum lönd-
um. Félagar takið þátt i undirbúningi ABR fyrir
landsfund.
Mætið vel og stundvislega.
Stjórn ABR.
Alþýðubandalagið á Siglufirði
Félagsfundur veröur i Suðurgötu 10 nk. fimmtu-
dagsvköld, 11. september, kl. 21.
Ragnar Arnalds fjármálaráöherra mætir á fundin-
um.
Umræðufundur um kjaramál.
Allur akstur
krefst
varkárni
Ytum ekki barnavagni
á undan okkur við
aðstæður sem þessar
yUMFERÐAR
RÁÐ ___
Næstifunduriumræðufundaröð um kjaramál veröur n.k. miövikudag
kl. 20.30. Nánar auglýst eftir helgi.
Stjórn ABR.
Alþýðubandalagið iReykjavik
Opiö hús n.k. fimmtudag 11. september kl. 20.30. Heitt á könnunni.
Hvað verður? — Stjórnin.
Alþýðubandalagið á Seifossi og nágrenni
Almennur félagsfundur.
alþýðubandalagið á Selfossi og nágrenni heldur almenna félagsfund
fimmtudaginn 11. september kl. 20.30aö Kirkjuvegi 7 Selfossi.
Dagskrá: 1. Inntaka nýrra félaga.
2. Kynnt tillaga að reglum um forval.
3. Nýja húsnæöislöggjöfin. Framsögumaöur Olafur Jónsson.
4. Garðar.Sigurösson og Baldur Óskarsson ræöa stjórnmálaviöhorfið.
Stjórnin.
FOLDA
Ég hef ekki lengur sérherbergi. Lilli á að sofa þsr lika. Hann fleygði sér í gólf ið' og vildi sofa áfram hjá þeim.
.. -^^Hvað y ^sagöi
En þau!
Þau gera bara það
sem þeim sýnist!
Við börnin fæðumst
þegar foreldrarnir hafa
þegar tekið völdin
TOMMI OG BOMMI