Þjóðviljinn - 25.10.1980, Side 9

Þjóðviljinn - 25.10.1980, Side 9
Helgin 25. — 26. október 1980 ÞJÓÐVILJINN SIÐA 9 STJÓRNMÁL Á SUNNUDEGI Hjörleifur Guttormsson skrifar: Auölindir, orka og iðnþróun Meðferð auðlinda: pólitískt viðfangsefni Orðiö auölind er aö likindum ekki gamalt i islensku máli, ef marka má orðabækur. Viö áttum fyrir oröin auð og auölegö, en oröiö auölind (resource, resurs) felur i sér uppsprettu auös, oftast i merkingunni náttúruauðæfi, þótt tengja megi hugtakiö i fleiri áttir. Þörfin á slfkum hugtökum fylgir aukinni yfirsýn, nýrri þekkingu, nýjum viðmiðunum. Helstu auöiindir islands eru fólgnar I gæöum hafs og lands svo og fallvötnum og jarðvarma. Þekking okkar á þessum gæöum er enn afar takmörkuð, stjórn á nýtingu þeirra ófullkomin, eignarhald og umráöaréttur i mörgum tilvikum viökvæmt deiluefni, svo ekki sé fastar aö oröi kveöiö. Viöhorfin til ráöstöf- unar á auðlindunum, hvort sem um hagnýtingu eöa verndun er aö ræöa, eru þannig pólitiskt viö- fangsefni og baráttan um auö- lindir hefur vissulega veriö snar þáttur i mannkynssögunni frá fornu fari. Tæknivæöingin, þessi sifellt stækkandi hrammur mannkyns, er i senn ógnvaldur gagnvart náttúrugæöum og tæki til aö auka hagsæld þjóöa og einstaklinga. Engin vitræn stefna veröur mótuö um þróun atvinnulifs til aö treysta hagsæld i landinu án þess aö taka meöferö auðlindanna meö inn i myndina og sókn til bættra lifskjara þarf, ef vel á að vera, aö reisa á vitneskju um eöli þeirra og takmörk. Markaðsöflin og átökin um skiptingu þess.sem sótt er i auölindirnar hverju sinni, knýja hins vegar á um aukna nýt- ingu, sem getur fyrr en varir gengið of langt. Stjórnmálaflokkar komast vart hjá þvi lengur að svara áleitnum spurningum um ráöstöfun og meöferö auölindanna og þau tæki, er þeir telja vænleg til stjórnunar á nýtingu þeirra. Þetta á viö um hagnýtingu fiskimiða, meöferö gróöurlenda og ráðstöfun orku- linda. t þvi efni reynir á aö sam- eina lýöræöislega stjórnun og ábyrgö, koma á skipan er tryggir aö æskileg nýtingartakmörk séu virt og heildarhagsmunir og langsæ sjónarmiö ráöi ferðinni. Skýr umráöaréttur þjóöar yfir auðlindum sinum er vissulega meginforsenda þess að réttmætt sé aö gera kröfur til hennar um skynsamlega nýtingu þeirra. Þann rétt höfum viö Islendingar nú tryggt okkur aö mestu meö 200 milna lögsögu, en nokkrir fisk- stofnar og viss svæöi utan 200 milna veröa þó áfram á dagskrá gagnvart öörum þjóöum svo og mengun lofts og iagar. 1 aöal- atriöum getum viö nú hins vegar ráðiö ferðinni sjálfir um meöferö náttúruauöæfa okkar og þar reynir á eigin tök, stefnufestu eða stefnuleysi. A Iþýðubandalagið og auðlindastefnan Alþýöubandalagiö hefur tals- vert um þessi mál fjallað á sinum vettvangi. Sá stóri þáttur sem flokkurinn átti I sigursælli bar- áttu fyrir útfærslu landhelginnar er almennt viðurkenndur. Um- ræðu um stefnumörkun varöandi auölindir þokar áfram, þótt mörgu sé þar enn ósvaraö. A siö- asta vetri var mikiö rætt um efnahags-og atvinnumál á vegum þingflokks Alþýðubandalagsins, m.a. i tengslum viö stjórnar- myndunarviöræöur. Niöurstaöa þeirra umræöna birtist aö hluta i tillögum, sem gefnar voru út á vegum þingflokksins og náöu sumar hverjar inn i stjórnarsátt- mála núverandi rikisstjórnar. 1 þessum tillögum er kafli um um- hverfismál og auölindir, þar sem segir ma.: „Það er ótvirætt hlutverk opin- berra aöila aö tryggja skynsam- iega nýtingu auölinda og verndun umhverfis. Alþýöubandalagið telur nauö- synlegt, að mörkuö veröi skýr stefna á þessu sviði, er feli m.a. I sér: * Eignarhald og ráöstöfunar- réttur innlendra auölinda sé i höndum tsiendinga og helstu auöiindir þjóöarinnar séu opinber eign (rikis og sveitar- félaga). * Við nýtingu lifrænna auö- linda, sem endurnýjast, sé miöað viö aö ekki sé gengið á „höfuöstól”, en aðeins notuö árleg vaxtargcta (fiskstofnar, gróöurlendi). Þess sé gætt aö varöveita án röskunar vist- kerfi af mismunandi geröum og sérstæö náttúrufyrirbæri og aö náttúrugæöum sé aldrei spillt varanlega meö mengun. • Rannsóknir á isienskum auð- lindum veröi efldar og sam- ræmdar á vegum innlendra aðila og upplýsingar um þær varöveittar i aðgengilegu formi. Stjórnvöld gefi Alþingi yfirlit um ástand auölinda meö vissu millibili. « Geröar veröi áætlanir og skipulag varöandi nýtingu lands, orkulinda og auölinda hafs og hafsbotns og I þvi sambandi tekiö miö af rann- sóknum og stefnu um um- hverfisvernd. • Viö gerö áætlana um þróun atvinnuveganna skal tekiö mið af fyrirliggjandi upplýs- ingum um ástand auölinda og æskilegar takmarkanir á nýt- ingu þeirra.” Hér er i samþjöppuðu máli dreginn rammi um auölinda- stefnu, sem margir geta án efa tekið undir i oröi. En til aö hún verði leiöbeinandi I reynd þarf aö greina leiöir aö settum markmiö- um og síöan aö láta á þau reyna i stefnu og starfi. Þar reynir á marga og ólika hagsmuni, heföir og venjur, þannig aö enginn skyldi halda aö auövelt sé aö ryöja brautina fyrir skynsam- legri nýtingu auðlinda, t.d. þvi markmiöi að nota aöeins árlega vaxtargetu fiskstofna og gróöur- lendis. En fátt er brýnna en að á þessum málum sé tekiö.þar sé miölaö fræöslu til að byggja á um ræöu, er leitt geti til jákvæörar þróunar I tæka tiö. I framhaldi af þessu skulum viö lita til þeirra gæöa, sem hvaö mest hafa veriö i sviösljósi um- ræöu bæöi á alþjóðavettvangi og hér innanlands aö undanförnu, orkumálanna og orkulinda lands okkar sérstaklega. Takmörk íslenskra orkulinda " Eölilegt er aö landsmenn gefi orkulindunum meiri gaum en áöur og bindi miklar vonir viö hagnýtingu þeirra. Onóg orka er hlutskipti margra þjóöa, þar á meðal stórvelda á sviöi iðnaðar, eins og Vestur-Þýskalands og Japans og aðrar sjá fram á þverr andi orkuforöa i formi kola og oliu. Þótt viö tslendingar séum enn háöir innfluttri orku i formi eldsneytis sem svarar til helm- ings núverandi orkunotkunar i landinu, búum viö vel aö dýrmæt- um og varanlegum orkugjöfum i formi vatnsafls og jarövarma. Astæöa er þó til aö hafa vel i huga, aö þessar orkulindir eru takmarkaöar aö magni, þótt þær endurnýist viö hringrás vatns og varmastreymi úr iörum jaröar. Hagnýtingu þeirra eru þvi ákveö- in takmörk sett, og þannig er taliö aö miöaö viö liklega fjölgun ibúa og vöxt i almennri raforkunotkun muni þjóöin á næstu 100 árum fullnýta þaö vatnsafl, sem til ráö- stöfunar er, og hljótum viö þá jafnframt aö taka tillit til um- hverfisáhrifa vegna landnýtingar og verömætra náttúrfyrirbæra. Meiri óvissa er um magn og nýtingarmörk jarövarmans, en þó ljóst aö einnig sú auðlind er takmörkuö og hagnýting hans getur veriö all-kostnaöarsöm og viöa ýmsum erfiöleikum bundin. Viö hljótum þó aö binda miklar vonir viö nýtingu jarövarma, bæði til áframhaldandi beinna nota I húshitun og margskonar iönaöi, en einnig til raforkufram- leiöslu. Þörf er aukinna og mark- vissra rannsókna á þessu sviöi, þar sem við höfum allverulega sérstööu og getum haft forystu og nokkru að miöla á alþjóöamæli- kvaröa,ef rétterá málum haldiö. Hér er ég ekki aö vekja athygli á þeim takmörkunum, sem orku- lindir okkar eru háðar, til aö draga úr þeim vonum, sem eðli- legt er aö landsmenn bindi viö þær, heldur til ab hvetja til var- færni um ráöstöfun þeirra til lengri tima litiö. Þar verður raunsætt mat aö ráöa ferðinni. Það er aöeins aö tiltölu viö fólks- fjölda sem við búum vel aö orku i samanburöi viö margar aörar þjóöir, og islenskar orkulindir eru litlar ab vöxtum, ef litið er á vax- andi orkuþörf i nágrannalöndum, t.d. á öðrum Norðurlöndum. Viö höfum þvi engin efni á aö stunda hér eins konar útsölu á orku til út- lendinga, eins og halda mætti af málflutningi þeirra, sem lengst vilja ganga i erlendri stóriöju hérlendis. Öruggur og hagkvæmur orkubúskapur meginmarkmiðið Eitt meginmarkmiö Islendinga i orkumálum hlýtur að vera að tryggja svo sem verða má sjálf- stæöi og öryggi þjóðarinnar allrar i þessum undirstöðuþætti nútima- lifs, jafnt á heimilum sem til at- vinnurekstrar i landinu. Þaö ger- um viö meö þvi aö taka sem fyrst i notkun innlenda orkugjafa I staö innfluttrar orku, alls staðar þar sem þvi verður við komiö með viðrábanlegum hætti, svo sem I húshitun og iðnaöi. Eftir stendur þá innflutt eldsneyti, bensin olia, á bifreiðar og fyrir skipastólinn. Aöföng eldsneytis hljótum vib að leitast við að tryggja sem best og öryggisbirgðir eldsneytis i land- inu, jafnframt þvi sem dregið veröi úr tilkostnaöi með viötæk- um sparnaðaraðgerðum, bættum búnaöi og stjórnun á rekstri, m.a. á fiskveiöum. Jafnhliöa þurfum við aö fylgj- ast náið með möguleikum á að framleiöa meðhagkvæmum hætti innlent eldsneyti i krafti orku- linda okkar, þótt ekki væri nema aö litlum hluta til aö mæta innan- landsþörfinni i byrjun. Athuganir á þessu sviöi standa yfir á vegum iönaðarráðuneytis og Orkustofn- unar, og þær geta leitt til þess, aö rétt þyki aö hefja slika fram- leiðslu i tilraunaskyni, t.d. á methanóli. Aö minu mati getur framleiösla á innlendu eldsneyti veriö fyllilega réttlætanleg i nokkrum piæli af öryggisástæö- um, þótt hún kosti eitthvaö meira en innfluttar oliuafurðir fyrst i staö. Húshitunarátaki lýkur innan 5 ára Alþýðubandalagið hefur lagt áherslu á ofangreind markmiö i orkumálum landsmanna á undanförnum árum og taliö þau vega mun þyngra viö ráöstöfun á orku og fjármagni en sala til orkufreks iðnaðar, ekki sist er i hlut á erlend stóriðja og samn- ingar á borö viö þá sem gerðir voru viö álveriö I Straumsvik á sinum tima. Einnig haföi Alþýöu- bandalagið um þaö forystu á tima vinstri stjórnarinnar 1971—74, aö tekin var stefna á aö tengja saman raforkukerfi einstakra landshluta meö öflugum stofnlin- um, bæöi til aö auka á hagkvæmni og öryggi i orkuafhendingu og skapa möguleika á jöfnun raf- orkuverös. Þessi stefna hefur nú sannaö gildi sitt og hlotið al- menna viöurkenningu. Henni þarf enn aö fylgja eftir, ekki sist varö- andi viðunandi veröjöfnqn. Innan fárra ára, þ.e. á næstu 3—5 árum, sér fyrir endann á þvi húshitunarátaki meö innlendum orkugjöfum, sem nú er lögð rik áhersla á og staðið hefur sleitu- litiö frá árinu 1973 að telja. Um 70% landsmanna njóta nú hita- veitna og það hlutfall mun ná um 80% aö 4 árum liönum samkvæmt áætlun sem iönaöarráöuneytiö hefur gert á grundvelli fram- kvæmdaáforma. Um 13% búa við beina rafhitun en nálægt 17% viö oliukyndingu. Rafhitunin mun ná til um 20% landsmanna, þeirra sem ekki fá hitaveitur. Til rafhit- unar eru i ár nýttar um 400 giga- wattstundir og viðbótarorkuþörf i þessu skyni gæti numiö um 300 gigawattstundum aö 5 árum liön- um. Eftir 1—2 ár mun f járfestingar- þörf til nýrra hitaveitna dragast saman til muna og jafnhliöa og eftir að húshitunarátakinu lýkur aukast möguleikar á annarri fjárfestingu, sem ekki sist ætti að beinast að iðnaði. Fjölbreytt atvinnulíf og iðnþróun Eins og fram hefur komið er nú á vegum iönaöarráöuneytisins unniö aö gagnasöfnun og könnun á ýmsum iðnaðarkostum, er m.a. tengjast orkunýtingu. Draga þarf upp sem skýrasta mynd af þeim á sviði orkufreks iðnabar, er til álita gæti komið og falliö að skyn- samlegri atvinnuþróun i landinu. Eg er ekki i vafa um aö þar er margra álitlegra kosta völ og aö islensk iðnþróun getur á næstu áratugum eignast sterkan bak- hjarl i orkulindum landsins. Fjár- festing á þessu sviði má hins vegar ekki koma i veg fyrir æski- lega þróun annars atvinnulifs á sviði sjávarútvegs, landbúnaðar og almenns iönaöar. Þegar hugaö er aö islenskri stóriöju, ber að gaumgæfa sérstaklega þróun úr- vinnsluiönaöar er henni gæti tengst. Viö þurfum að sækja fram á breiðri viglinu i atvinnuuppbygg- ingu i landinu, auka fjölbreytni i arðbærum atvinnurekstri, er hvili á skynsamlegri ráðstöfun auö- linda. Fjölmenntuö islensk æska mun valda þvi verkefni, sem hennar býður á þessu sviði. Verkalýðshreyfingin i landinu þarf jafnframt aö láta sig at- vinnuþróunina meira varða en hingað til, þvi aö fólk i hennar röðum á mest undir þvi komiö aö traustar stoðir haldist undir fjöl- þættu atvinnulifi i landi okkar.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.