Þjóðviljinn - 25.10.1980, Qupperneq 10
1« StÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 25. — 26. október 1980
Höskuldur
Þráinsson
Höskuldur Þráinsson var
nýlega skipaöur prófessor I
nútimaislensku viö Háskóla
íslands. Hann er kornungur
maöur, hefur aöeins nokkur ár
framyfir þritugt, en hefur alla
sina skólatiö vakiö athygli fyrir
framúrskarandi námsárangur.
Höskuldur er Mývetningur og
lauk stúdentsprófi frá MA áriö
1966. Þremur árum siöar lauk
hann BA-jirófi frá Háskóla
islands og kandídatsprófi frá
sama skóla 1974. I fyrra lauk
hann svo doktorsprófi i málvis-
indum frá Harwardháskóla i
Bandaríkjunum. Um tveggja
ára skeiö var hann kennari i
islensku viö háskólann f Kiel og
s.i. vetur var hann stundakenn-
ari viö Háskóla tslands, A
háskólaárum sinum tók
Höskuldur mikinn þátt i félags-
lifi og var formaöur Stúdenta-
félags Háskóla Islands. Hann
var lika spretthlaupari og
dægurlagasöngvari um tima.
Viö slógum á þráöinn til
prófessorsins og lögöum fyrir
hann spurningar.
— Er áhugi á málfræöi núna
meöal islenskra stúdenta?
— Já, þaö er vaxandi áhugi
núna eftir svolitla lægö undan-
fariö. Núna er I gildi ný reglu-
gerö um nám á kandídatsstigi
og er unniö aö þvi aö skipu-
ieggja námskipan i málfræöi
eftir henni.
— Þiö Kristján Amason eruö
núna á visindasjóösstyrk til aö
kanna nútimaframburö á
Islandi. Hvernig gengur?
— Viö teljum þessar
rannsóknir ekki vera neitt
einkamál okkar og höfum reynt
aö fá stúdenta til liðs viö okkur
og bæöi t.d. Ingólfur Pálmason
kennari i Kennaraháskólanum
og Jón Aöalsteinn Jónsson, for-
stööumaöur Oröabókarinnar,
hafa lagt okkur liö. Einnig
veröum við varir viö vaxandi
áhuga hjá erlendum
málfræöingum aö kanna
islenskt nútimamál en áhuginn
hefur frekar veriö bundinn viö
fornmáliö til þessa. Viö von-
umst til aö framhald veröi á öll-
um þessum rannsóknum.
— Um hvaö fjallaöi doktors-
riterö þin viö Harwardháskóla?
— Hún fjallaöi um setninga-
fræöi nútimamáls og þá einkum
samsettar setningar i islensku.
Ég varmeö þessu aö prófa ýms-
ar málfræöikenningar, sem nú
eru ofarlega á baugi, á islensk- .
unni.
— Er þaö um svokallaöa
málmyndunarfræöi aö ræöa?
— Já, málmyndunarfræöin
hefur til þessa einkum veriö
bundin viö enska tungu og ég
vonaöist til meö þessari ritgerö
aöleggja nýjan skerf til þessara
fræöa þar sem islenskan hefur
mun flóknara beygingakerfi en
enskan og þvi ýmislegt hægt aö
sjá betur i henni.
— Varst þú kannski nemandi
hins fræga Chomskys?
— Ég sótti tima hjá honum en
hann er reyndar prófessor viö
annan háskóla I Boston, M.I.T.
Helsti kosturinn viö aö nema á
þessum slóöum er aö þar eru
margir ágætir háskólar sem
hafa samvinnu sin á milli og
þess vegna hægt aö sækja ýmis-
legt til þeirra allra.
— GFr.
Arni Bergmann skrifar:
Hermdarverk
nýfasista
Fátt er algengara en aö i blöö-
um og öörum fjölmiölum séu
bornir saman hermdarverka-
hópar „öfgamanna til hægri og
vinstri” og vanalega þó meö
höfuöáherslu á aö ofbeldishætt-
an komi frá vinstri. Tiöindi
þessa sumars og hausts hafa
nokkuö breytt áherslum i um-
fjöllun um þessi mál. I ágúst
fórust átta tugir manna I spreng
ingu i Bologna á Italiu, i
september fórust þrettán
manns i' sprengingu i Mflnchen
ognú i október munaöi minnstu
aö hundruö Gyöinga væru myrt-
ir í sprengingu fyrir utan
synagógu I Paris — var þaö
tilræöi raunar endir á langri
keöju ofbeldisverka gegn
Gyöingum I Frakklandi.
I öllum þessum tilvikum eru
aö verki nýfasisk öfl og hefur
ekki um annað veriö meira rætt
siöustu vikurnar en þann sels-
haus sem nú skýtur upp kolli
imynd margvislegra fasista-
hópa, sem bersýnilega hafa meö
sér samtök og reyna aö sam-
ræma aögeröir sinar.
Horft i aðra átt
Bæöi i Frakklandi og Þýska-
landi hafa fréttaskýrendur og
andfasistar vakiö athygli á þvi,
aö sú alda hermdarverka sem
nú gengur yfir Vestu-Evrópu
veröur meöal annars rakin til
þess, aöyfirvöld hafa mjög séö i
gegnum fingur viö allskonar
fasistahópa, og gert sem minnst
úr umsvifum þeirra. Virt vest-
ur-þýskt blaö, Frankfurter
Allgemeine.segir t.d. aö ofbeld-
isverk hægrisinna hafi yfirleitt
veriö túlkuö á mjög hlutdrægan
hátt á þessa leiö:
Þeir sem aö verki voru eru
kallaöir einstakir fáráölingar
sem ekki er mark á takandi.
Lögö er áhersla á að um
einstaka upphlaup sé aö ræöa —
um leiö og öll áhersla er lögö á
þaö aö hin raunverulega hætta
sé frá vinstrisinnuöum
hermdarverkamönnum.
Þýska vikuritiö Spiegel
leggur á þaö mikla áherslu i yf-
irlitsgrein um málið.hvernig hin
kristilega hægriblökk Þýska-
lands og þeir fjölmiölar sem
hana styöja, hafi keppst viö að
gera sem allra minnst úr nýnas
istahópunum. Þeir hafi þó mjög
unniö gegn betri vitund, þvi aö
lögregluyfirvöldum sé mætavel
kunnugt um mikla vopnasöfnun
þessara hópa, um alþjóðleg
tengsl þeirra og þar fram eftir
götum. Auk þess gerir Spiegel
þann samanburö á sprenging-
um nýfasista og t.d. mannrán-
um Baader- Meinhof hópsins,
sem sprottin eru af vissri teg-
und anarkisma, aö september-
moröin i Miinchen heföu ein
Kostaö fleiri mannslif (13 látna
og 219 særöa), en öll afbrot
Baader-Meinhoffólksins, þar til
kjarni þess hóps var handtekinn
áriö 1972. Auk þess er á þaö
minnt, aö meöan svonefndir
vinstriöfgamenn hafa beint sinu
ofbeldi gegn einstökum mönn-
um stunda nýfasistar „blind
grimmdarverk”, handahófs-
morö sem eiga eftir þeirra
kenningu aö kalla á meira lög-
regluvald og aukna spennu i
þjóöfélaginu og draga úr trausti
manna á lýöræðislegu starfi.
Dapurleg saga
Þessi samanburöur er ekki
nefndur hér til þess aö réttlæta
þá sem kallaöir hafa veriö öfga-
menn til vinstri. Saga slikra
hópa hefur veriö næsta sorgieg,
allt frá þvi aö róttækir
rússneskir hugsjónamenn kom-
ust aö þeirri niöurstööu á seinni
hluta siöustu aldar, aö eina færa
leiöin til aö berjast viö ein-
valdan keisara væri aö sprengja
hann I loft upp eöa helstu em-
bættismenn hans. 1 slikum
hreyfingum fylgir undarleg
spilling jafnan i kjölfar samsær-
isins: endanlegan ósigur biöa
þeir svo þegar upp kemst, aö
samsærismaöur úr innsta hring
er um leiö Utsendari lögreglu
keisarans, tvöfaldur agent sem
á aö leiöa hreyfingu i ógöngur.
Slik reynsla hefur jafnan fælt
eindregiö alla þá vinstrisinna
frá hermdarverkarómantik,
sem gera sér grein fyrir þvi, að
annaöhvort fá þeir fulltingi
alþýöu manna viö sinn málstaö
eöa þeir komast ekki spönn.
Vitanlega eru til þær stjórnir
sem svo djöfullegar eru, aö ör-
þrifaráöiö sýnist þaö eitt aö
skjóta haröstjórann á færi — og
er þar átt viö menn eins og
Ritstjórnargrein
Somoza, Stroessner i Paraguay
eöa þá Hitler meöan hann var
og hét. Aö minnsta kosti veröur
erfitt aö fordæma þá sem
þannig fara aö andspænis valdi
sem engin griö gefur. En jafn-
dapurlegt veröur þaö engu aö
siöur, þegar einstakir hugsjóna-
menn á villigötum yfirfæra vél-
rænt aðstæður hjá glæpastjóm-
um af þessu tagi yfir á tiltölu-
lega siömenntuö réttarriki —
enda er sú villa, sem betur fer,
mjög á undanhaldi.
Að falsa
uppáskrift
En þá er ekki getið um einn
þátt þessa máls, sem vert er aö
gefa sérstakan gaum, þegar
fjölmiölar hella i eina súpu ný-
fasistum og leifum af stjórn-
leysingjarómantik. Vikuritiö
Spiegel sem fyrr var nefnt,
minnir á þaö, aö þeir sem eiga
aö vernda stjórnarskrá Vestur-
Þýskalands viti þaö vel, að
nýnasistar hafa mjög velt fyrir
sér möguleikum á aö koma
ábyrgö á hermdarverkum sem
þeir sjálfir fremja yfir á „öfga-
menn til vinstri”, og þeir hafa
ekki látið sitja viö vangaveltur
einar. Tekiö er dæmi af þvi, aö
þekktur hægrisinnaöur prófess-
or i Köln hafi látið kunningja
sina hægrisinnaöa ræna sér rétt
fyrirkosningartilfylkisþings og
látiö sem vinstrimenn væru þar
aö verki. Svipaöir hlutir hafa
gerst á Italiu: þar hafa þær
deildir lögreglunnar sem mest
eru mengaöar fasisma sent
menn inn I vinstrihreyfingar i
þeim tilgangi, aö þeir breyti
friösömum mótmælaaögeröum
i sprengjukast og vopnaviö-
skipti. Til aö hægt sé á eftir aö
hafa hátt um „hættuna frá
vinstri”.
Hvort sem þau mál eru rakin
lengur eöa skemur: þaö er ljóst,
að meöal ráövilltrar miöstétta-
æsku og atvinnuleysingja
Evrópu finnst efniviöur i
fasistahreyfingar, sem þegar
hafa látiö til skarar skriöa meö
árásum á Gyöinga og farand-
verkamenn og meö „blindum”
hermdarverkum. Þaö er engin
ástæöa til aö ætla aö Island losni
meö öllu viö þennan ófögnuö:
eins gott aö menn séu viö öllu
búnir nú þegar.
— áb.
Nýfasistavigorö á vegg IParis: Hitler um þúsund ár.
Cr Gullfiskunum: F.v. Asta Magnúsdóttir, Margrét Snæbjörnsdóttir, Unnsteinn Kristinsson og Hólmberg Magnússon
(Ljósm.: Hreggviöur)
Gullfiskar í Garðinum
I gærkvöldi frumsýndi Litla
leikféiagiö I Garöinum ieikritiö
Gullfiskana eftir sænska rithöf-
undinn Per Gunnar Evander og
er þaö I fyrsta skipti sem flutt er
verk eftir þann höfund hér á
landi. Jakob S. Jónsson þýddi
verkiö og leikstýrir jafnframt
sýningunni.
Gullfiskarnir eru skrifaðir fyrir
um 5 árum og fjallar leikritið um
hræringar i atvinnulifi Svia. Þaö
gerist i litlu þorpi þar sem fólkið
verður fyrir þvi að missa úr hönd-
um sér eina atvinnutækið og
neyöist til aö flytja á brott. Lýst
er lífi einnar fjölskyldu og dregur
höfundur upp mynd af viöbrögð-
um og tilfinningum fólksins gagn-
vart þessum örlögum sinum á
mjög næman og skilningsrikan
hátt.
Leikritið byggist á stuttum at -
riöum og er skemmtilet og
spennandi þótt þaö fjalli um
alvarlega atburöi.
Hlutverkini Gullfiskunum eru 7
og leika þau Ólafur Sigurösson,
Margrét Snæbjörnsdóttir, Unn-
steinn Kristinsson, Hólmberg
Magnússon, Asta Magnúsdóttir,
Hreinn Guöbjartsson og Þórdis
Jónsdóttir. Leikmynd geröu Sig-
fús Dýrfjörö og Bragi Einarsson,
en lýsingu annast Svavar
Óskarsson.
Litla leikfelagið er nú 5 ára
gamalt og hefur á þeim tima sett
upp fjölda rómaðra sýninga
þ.á m. Hart ibak eftir Jökul, Táp
og fjör og Þið munið hann Jörund
eftir Jónas, einnig Delerium
bubonis eftir bræöurna Jónas og
Jón Múla Arnasyni og Sjö stelpur.
Veröur að telja Litla leikfélagið i
Garöi meö þeim öflugustu á land-
inu undanfarin ár. Það hefur nú
að undanförnu sýnt barnaleikrit
eftir Brian Way viða i grunn-
skólum við mjög góðar undirtekt-
ir (m.a. i Reykjavik) og ætlunin
er aö feröast með þessi tvö leikrit
saman á næstunni.
Næstu sýningar á Gullfiskunum
i Garöinum eru á mánudag,
miðvikudag og fimmtudag og
hefjast allar kl. 9.
— GFr.