Þjóðviljinn - 25.10.1980, Qupperneq 11
Helgin 25. — 26. október 1980 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 11
#mér
datt þad
í hug JmIH
Anton Helgi Jónsson skrifar:
„TALKIN’ ’BOUT
MY GENERATION”
„Þaö ætti aö hengja alla þessa
poppara,” var haft eftir aust-
firskum alþýöumanni i Mogg-
anum á liönu sumri. Blaöa-
maður haföi spurt, hvort
maöurinn hlustaði á útvarp eða
sjónvarp. Hann svaraöi: „Mér
finnst viö gamla fólkiö heföum
átt að fá fritt útvarp og sima.
Sjónvarpið hefur samt engan
tilgang. Það er þetta andskot-
ans popp I þvi alla daga. Þaö
ætti aö hengja alla þessa popp-
ara. Það eina sem ég hlusta á i
sjónvarpinu eru fréttirnar. Þaö
er ekkert annaö i þvi fyrir gam-
alt fólk.”
Sá sem þetta sagöi er gamall
maður, fæddur 1896, svo
viöhorfiö til poppara er skiljan-
legt. Sem betur fer er nöldur
gamalmenna yfirleitt ekki tekið
alvarlega. En biöum' viö, hér
kemur önnur tilvitnun:
„Á siðustu misserum hafa svo
risiö upp hér á landi nýir „vinir
alþýöunnar”, sem kveöjast ætla
að hefja hana uppúr niöurlæg-
ingu meö þvi aö leika og syngja
fyrir hana lélega uppsuöu af
þessari fjölþjóðlegu verslunar-
músik við ennþá verr geröa
texta. Helsti samnefnari þessa
fyrirbæris heitir vist gúanó-
rokk.”
Þessi klausa er úr grein sem
birtist i Þjóöviljanum föstudag-
inn 10. október. Höfundur er
Arni Björnsson, maöur á fram-
kvæmdaaldri, og viröist helst
sem nöldur Austfirðingsins hafi
knúiö hann til athafna. Meö
skrifi sinu reisir Arni snotran
gálga og er ætlun hans tvimæla-
laust sú „að hengja alla þessa
poppara.”,Hann fer þó hægt af
staö, og þaö reynist bara einn
sem hann kallar á meö nafni
upp i gálgann. Sá sem veröur
fyrir valinu er Bubbi Morthens.
Svo óheppilega tekst þó til, aö
snaran lendir um hálsinn á Arna
sjálfum. En sleppum þvi i bili.
Aö góöra manna siö byrjar
Arni á þvi, aö þylja nokkur
ákæruatriöi yfir þeim sem hann
hyggst hengja. Hann ákærir
Bubba fyrir aö vera á mála hjá
forheimskunarsérfræöingum
fjölþjóöahringa og umboösaöila
þeirra hérlendis, Vinnuveit-
endasambandi Islands. Þá
sakar hann Bubba um aö halda
verkalýbnum i skefjum og
stuöla aö þvi aö halda lifs-
kjörum niðri.
Þetta eru stórar ásakanir, en
ég efast ekki um að austfirðing-
urinn tekur heilshugar undir
þær. Trúlega vill hann þó bæta
viö, aö þaö séu Bubbi og hinir
poppararnir sem standi i vegi
fyrir þvi að gamalt fólk fái fritt
útvarp og sima.
Nú kann einhver aö spyrja:
„Getur það veriö aö jafn skegg-
prúöur maður og Arni Björns-
son hlaupi til og beri annaö eins
á Bubba Morthens, bara vegna
þess aö einhver kall á Aust-
fjörðum er að nöldra i Mogg-
anum?”
Nei, þaö býr annað og meira á
bakvið. Alveg einsog Þjóövilj-
inn ber Arni Björnsson mikla
umhyggju fyrir þeim merku
hjúum Alþýöu og Verkalýö.
Hann vill þeim allt hiö besta. En
öfugt viö Þjóðviljann er Arni á
móti popptónlist, gott ef hann
telur hana ekki tilheyra
„menningarlegu • lágstigi”,
segir hana gera þau Alþýbu og
Verkalýö að auösveipum vinnu-
dýrum, — og það sem verst er,
koma á þau óorði. Eða einsog
Árni oröar þaö: „Svo leyfa
menn sér aö kalla þetta alþýðu-
tónlist — og fá hrekkleysingja til
að trúa að svo sé. Þaö er verið
aö ýta undir þann gamla áróöur
aö alþýöutónlist hljóti aö vera
„vulger”.”
En þaö er ekki nóg meö að
Arna þyki tónlist Bubba vera
„vulger” og „fjölþjóðleg”, hann
finnur skitalykt leggja af text-
unum. Reyndar telur hann þá
virðingarverða tilraun til að
nálgast hinar slorugu staö-
reyndir, en bætir við: „...hvers
vegna þarf endilega aö kasta
svona til þess höndunum? Halda
fulla leit aö einhverjum veg-
visum og leita þá gjarnan til
baka, á brautir frumherjanna.
Um leið afhrópa þeir hina
áhrifariku miöla auðvaldsins,
og telja þaö svik við málstaðinn,
stingi einhver upp á þvi, aö nota
þessa miöla i þágu sósialism-
menn virkilega, aö skáldskapur
um slor og skit þurfi sjálfur að
vera fúll og slepjulegur? Hall-
grimur Pétursson orti 50 sálma
við viðbjóðslegt athæfi: sak-
lausan mann negldan á kross.
En hann geröi þaö fagurlega.
Halldór Laxness skrifaði Sjálf-
stætt fólk um haröneskju
fátæktarinnar. En það var samt
listaverk.”
Samt var þaö listaverk.
Látum liggja milli hluta hina
dularfullu athugasemd um
Hallgrim Pétursson, hún er
listaverk út af fyrir sig. En
þegar Arni stillir upp Halldóri
gamla frá Laxnesi og Sjálfstæðu
fólki fer maöur loksins aö skilja
hvers vegna hann vill hengja
poppara.
Þaö er ekkert vafamál aö
tækniframfarir siöustu áratuga
hafa komið illa viö sósialista.
Þeir sjá hvernig auövaldið dælir
gegndarlausum áróöri inn á
hvert heimili i gegnum sjón-
varpiö. Þeir sjá hvernig það
dreifir glæsilegum auglýsinga-
og afþreyingarritum i miljóna
upplögum, meöan þeirra eigin
bæklingar, fjölritaöir i fáum
eintökum, rykfalla i hillum. Og
það hefur ekki farið framhjá
sósialistum, að hljómflutnings-
tæki njóta meiri vinsælda en
sellufundir eða fundir i verka-
lýðsfélögum. 1 krafti fjár-
magnsins og tækninnar hefur
auðvaldiö alla möguleika á þvi
aö heilaþvo fjöldann. Gagnvart
þeirri staöreynd standamargir
sósialistar 'lamaöir. Þeir ráöa
hvorki yfir tækni né fjármagni
til að vega upp á móti vitundar-
iðnaði auövaldsins. En til aö
tapa ekki áttum I öllu mót-
lætinu hefja þeir örvæntingar-
ans.
Þaö er engin tilviljun aö Arni
Björnsson stillir upp Sjálfstæöu
fólki sem „listaverki” gegn
„slori” Bubba Morthens. Hér á
landi er til sorglega margt fólk
sem horfir meö dýrbaraugum til
kreppuáranna, vegna þess að
„þá var eitthvað að gerast. Þá
var harka I stéttabaráttunni og
þá voru bestu bókmenntir
aldarinnar skrifaðar. Þá var
enginn rafmagnsgitar og þá var
ekkert sjónvarp. Þá las Verka-
lýður baráttuljóö og Alþýða
vakti langt fram á nætur yfir
Sjálfstæöu fólki.” Og þegar
þetta fólk veit, að það var
herinn sem flutti inn bæöi sjón-
varpið og poppiö, þá, já þá hefur
þaö nú aldeilis gild rök fyrir þvi
að þaö eigi ab hengja alla popp-
ara.
Arni Björnsson er ekki vit-
laus. Hann veit að Halldór Lax-
ness ólst upp i ööru þjóðfélagi en
Bubbi Morthens. Hann veit aö
Halldór læröi aö lesaáMynsters-
hugleiöingar, en Bubbi á Gagn
og gaman. Hann veit aö Halldór
var fóstraöur af ömmu sem
mundi aftur i aldir og kenndi
stráknum skáldskap eldri kyn-
slóða. Hann veit aö Bubbi upp-
fóstraðist undir kanasjónvarpi
og popptónlist. Árni veit lika, aö
Halldór hefur aldrei gert neitt
annaö um ævina en skrifa
bækur. Hann veit lika, að þegar
Halldór gaf út sina fyrstu bók,
leysti móöir hans belju úr fjósi
sinu til aö borga prentsmiöju-
kostnaö. Og Arni veit, aö þegar
Bubbi gaf út sina fyrstu hljóm-
plötu fór hann i loðnubræðslu til
aö vinna fyrir upptökukostnaöi.
Allt þetta veit Árni og margt
fleira. En eitt veit hann ekki,
hann veit ekki hvernig hann á að
bregöast við þvi þjóöfélagi sem
Bubbi Morthens ólst upp i. Hann
getur ekki sætt sig viö þetta
þjóðfélag. Þaö getur Bubbi ekki
heldur. En Bubbi kann aö
bregðast viö á réttan hátt. Hann
véit af eigin reynslu aö átökin
eru hér og nú. Og hann gripur
þau sterkustu vopn sem hann
hefur viö hendina, án þess aö
velta þvi fyrir sér hvort þau
kallist listaverk eða eitthvað
annað.
Nei, Árni veit ekki hvernig
hann á að bregðast viö, hann
veit bara að Halldór Laxness
spilaði aldrei á rafmagnsgitar.
Þess vegna fer hann út i guö-
fræöi og fer aö tala um „lista-
verk”. Þess vegna afgreiðir
hann kraftmikla rokktónlist
með frasanum „fjölþjóöleg
verslunarmúsik”. Meö nöldri
sinu mun Arni Björnsson ekki
r-4 eyrum ungs fólks á tslandi.
.. ni mun ekki laöa ungt fólk
undir merki sósialismans, eöa i
raðir herstöðvaandstæöinga.
Synir og dætur Verkalýðs og Al-
þýöu munu ekki hlusta á hann.
En Arni greyið má eiga það, aö
hann er prýöilegur i þvi að
fræða gamalmenni um hvað
poppiö sé skitugt. Og snaran
sem hann ætlaði aö koma um
hálsinn á Bubba er farin aö
nálgast hann sjálfan iskyggi-
lega mikið.
Siðustu tvo áratugi hafa verið
ortir margir popptextar á
tslandi. Flestir eru blóölitill
skáldskapur. Viöa má finna i
þeim málvillur, klúðurslegt
orðalag, ófrumlega hugsun.
Yfirleitt f jalla þessir textar ekki
um baráttu daglegs lifs eða póli-
tisk málefni. Svokölluö „ást” og
hennar fylgikvillar eru vin-
sælasta yrkisefniö. Iöulega
spilla þessir lélegu textar þeim
hressilegu lögum sem þeir hafa
veriö sungnir undir. Þetta er
allt ákaflega hryggilegt, sér-
staklega vegna þess, aö þetta er
sá skáldskapur sem hefur náö
eyrum flestra siöustu tvo ára-
tugina. Og þaö er ekki fráleitt aö
áiykta sem svo, aö þessi skáld-
skapur hafi aö einhverju leyti
haft skaðleg áhrif, vanið fólk viö
leirburð og merkingarleysur i
staöinn fyrir kjarngóö ljóð. En
hvers vegna er þetta svona?
Eru textarnir lélegir vegna þess
að tónlistin er fjölþjóöleg? Eru
textarnir lélegir vegna þess aö
þeir eru ortir i anda Eggerts
Ólafssonar? Er kannski brag-
eyrað týnt?
Nei, textarnir hafa fyrst og
fremst verið lélegir vegna þess
aö þeir eru ekki ortir af
skáldum, þ.e.a.s. mönnum sem
leggja einhverja vinnu i aö raöa
saman oröum á skynsamlegan
hátt. Þeir eru ortir af tónlistar-
mönnum sem fyrst og siöast eru
að hugsa um músik. Og tón-
listarmennirnir hafa neyðst til
þess aö setja saman texta.
Skáldin eru ekki á þeim bux-
unum aö láta orða sig við
poppið. Poppiö er „vulger”, nei
þá gef ég heldur út ljóöabók i
hundrað eintökum.
Þaö var ekki draumurinn um
heimsfrægðina, sem kom popp-
urunum til að yrkja á ensku
hérna um árið. Nei, þaö var búiö
að berja svo rækilega inn i þá,
aö þeir væru „fjölþjóölegir”,
„vulger” og „óþjóölegir”, aö
það lá beint viö að yrkja á
ensku. „Ástkæra ylhýra máliö”
var ekki þeirra mál, þaö var
mál menntamannanna, foreldr-
anna og sósialistanna, sem
fussuöu og sveiuöu viö aö sjá
timanna tákn; rafmagns-
gitarinn. Og poppararnir, sjálf-
menntaöir alþýöukrakkar,
fengu minnimáttarkennd, héldu
sig stadda i einhverjum
afmörkuöum „poppheimi” sem
hvergi snerti hið daglega lif. Og
þeir sem byrjuöu i poppinu
uppúr 1960 fóru margir i
hundana, gengu á mála hjá
,,f jölþjóölegu músikhring-
unum” og framleiddu siöan
gelda iönaöarmúsik.
Bandarikjamaöurinn Joe Hill
hefur verið i miklu uppáhaldi
hjá sósialistum viöa um heim.
Joe Hill orti pólitiska söngtexta,
hann orti þá undir lög sem
Hjálpræðisherinn haföi gert
vinsæl. Og textar hans fóru viöa
og höföu sjálfsagt góö áhrif.
Þegar popptónlistin kom til
Islands horfðu sósialistar aftur
til kreppuáranna og spuröu:
„Spilaöi Halldór Lanxness á
rafmagnsgitar?” Og svöruðu:
„Nei, hann spilaði aldrei á raf-
magnsgitar.”
Þar með þóttust þeir vita, aö
ekki væri hægt aö nota poppiö i
baráttunni. t staöinn fyrir að
taka poppiö upp á arma sina,
létu þeir þaö sigla sinn sjó á
vegum auövaldsins. En ef þá
vantaöi söng til að kyrja, grófu
þeir upp kassagitar og Hjálp-
ræðisherslögin hans Joe Hilt.
•Það var i lagi, þvi Þórbergur
minnist á Joe Hill i Bréfi til
Láru.
Á siðustu árum hafa ungir
sósialistar skynjaö kraftinn i
poppinu, skiliö aö þaö má nota
þaö i baráttunni. Nýjasta dæmiö
um þetta er Bubbi Morthens
og Utangarðsmenn. Tónlist
Bubba og textar túlka frábær-
lega þann sloruga veruleika,
sem hann hefur lifaðog hrærst i.
Vissulega má ýmislegt finna að
textum Bubba, en hann er jú
lika fremur tónlistamaður en
skáld. Og þegar á aö gagnrýna
textana hans verður aö gera
þaö útfrá einhverju ööru en
kreppuárapólitik. Menn veröa
aö skilja, aö þegar Bubbi syngur
eina „sloruga” setningu á balli i
verstöö vinnur hann sósialism-
anum meira gagn en Þjóöviljinn
á heiiu ári. Hvers vegna? Jú,
vegna þess aö Bubbi er á staön-
um. Hann er i slorinu og skitn-
um með þeim Alþýðu og Verka-
lýð.
Mér finnst aö Arni Björnsson
ætti að þakka fyrir að Bubbi
skuli vera sósialisti, en ekki
eitthvað annað. Og Arni ætti ,aö
hætta aö láta poppið pirra sig.
Poppiö er ekki neinn sér
afmarkaöur heimur, það er fátt
sem snertir eins daglegt lif
verkafólks i landinu og einmitt
poppiö. Aftur á móti eru Árni og
hans likar i lokuöum heimi, sem
hvergi snertir lif venjulegs fólks
i landinu. Arni reynir i grein
sinni i Þjóöviljanum aö hengja
poppara, en það er ekki undar-
legt aö snaran skuli lenda um
hálsinn á honum sjálfum; undir
lok greinarinnar reynir hann aö
vera fyndinn. Hann viöur-
kennir, aö honum finnist flestir
sjómannasöngvar siöustu 40 ára
væmnir og púkalegir. Siðan
segir: „Verri eru þó þeir sem
skitalyktina leggur af. Þaö
liggur viö aö maöur andvarpi:
heldur púkó en kúkó.”
Arni gleymir einu; skitalyktin
fylgir lifi, og það er öruggt mál,
aö þau Alþýöa og Verkalýöur
vilja miklu fremur „kúkó”,
heldur en hægðatregðu Arna
Björnssonar.
Látum Arna hanga i sinum
eigin gálga um stund og vonum
aö hann hressist eitthvaö viö
þaö. Best væri aö hann kæmi
ekki niður fyrr en hann er búinn
aö skilja hin miklu sannindi
lifsins og sósialismans: Músik-
hringarnir hafa ekki abeins
smiöaö vopnin sem þeir veröa
vegnir meö, þeir hafa lika
skapaö mennina sem munu
bera þessi vopn — tónlistar-
menn nútimans, popparana.