Þjóðviljinn - 28.10.1980, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 28.10.1980, Blaðsíða 1
UÚÐVIUINN Þriðjudagur 28. október 1980 — 243. tbl. 45. árg. 4 miljarðar til félagslegra ráðstafana Kjarasamningar hafa tekist • Almenn launahœkkun 15.200,- kr. •Þeir lægst launuðu fá 25.800,- kr. Grafiskir: HÖFNUÐU VERKFALLI I gær lauk allsherjaratkvæðagreiðslu 1 Grafiska sveinafélaginu um hvort boða ætti til verkfalls frá og með 5. nóvember nk.. Þegar atkvæöi voru talin síðdegis i gær kom i ljós að 37 félagar höfnuðu vinnustöðvun en 35 voru henni meömæltir. —S.dór Klukkan rúmlega 5 aðfaranótt s.l. sunnu- dags tókust samningar i kjaradeilunni sem stað- ið hefur i 10 mánuði milli Alþýðusambands íslands og Vinnuveit- endasambandsins. Þá þegar undirrituðu viðræðunefndir sam- komulagið með fyrir- vara um samþykki félaganna. Klukkan tvö í gærdag kom aðal- samninganefnd Alþýðu- sambandsins saman til fundar, en hún er skipuð 43 mönnum. Á fundi nefndarinnar var sam- komulagið samþykkt einróma. Formleg undirritun átti að fara fram hjá sáttasemjara klukkan 6 siðdegis i gær. Undirritun dróst hins vegar til kl. rúml. 11, i gær- kvöld, þar sem fulltrúar V.S.l. töldu sig þurfa skýringa á atrið- um i félagsmálapakkanum. Klukkan fjögur i gærdag af- henti Svavar Gestsson, félags- málaráðherra samningamönnum Alþýðusambandsins yfirlýsingu rikisstjórnarinnar um margvis- leg félagsleg málefni, sem kjara- samningunum tengjast og sam- komulag hafði orðið um milli rikisstjórnarinnar og samninga- nefndar Alþýðusambandsins. Talið er að hinar félagslegu ráð- stafanir kosti rikissjóð um 4 miljarða króna á ári. Kjarasamningarnir byggjast i öllum meginatriðum á innan- hússtillögu sáttanefndar, sem lögð var fram þann 11. október s.l. Almenn launahækkun er kr. 15.200.- á mánuði. Þeir lægst launuðu fá til viðbótar sérstaka láglaunauppbót, sem er kr. 10.600,- á lægstu laun. Þannig fá þeir lægst launuöu beina kaup- hækkunsem erum 25.800,- krónur á mánuði. Auk þess er samiö um miklar flokkatilfærslur, og launa- kerfið einfaldað verulega. Þannig er flestum félagsmönnum innan Alþýðusambandsins raðaö i 25 launaflokka eftir störfum, en áð- ur skiptu launatilbrigðin hundruðum. Frá hinum nýju kjarasamning- um og félagsmálapakkanum sem þeim fylgja segir nánar annars staðar í blaðinu. Ásmundur Stefánsson, framkvœmdastjóri A.S.I. Mest kauphækk- unájægstu launin Undirritun samninga ASt og VSt hófst um kl. 23.00 i gærkveldi. Fyrstir skrifuðu undir Snorri Jónsson, starfandi forseti ASt, lengst t.h. á myndinni, og Páll Sigurjónsson, formaöur VSt, t.v., en á milli þeirra er rfkissáttasemjari, Guðlaugur Þorvaldsson. (Ljósm. — S.dór) Meðan beðið var eftir undir- ritun kjarasamninganna i gær- kvöld hittum við aö máli Asmund Stefánsson, framkvæmdastjóra A.S.I. Viö spurðum Asmund hvaö hann vildi segja i stuttu máli um þesa samninga. — Þessir samningar eru ótvi- ræðir láglaunasamningar, bæði er kauphækkunin mest i lægstu þrepum launastigans og svo koma t.d. ákvæði um aö aldurs- hækkanir eftir eins árs starf skuli ekki vera minni en 1,75% og að lokaáfangi aldurshækkana verði ekki minni en 5% fyrst og fremst fólki innan Verkamannasam- bandsins að gagni. Samanlagt er sú meðaltals- kauphækkun, sem samningarnir fela í sér líklega 9—10%. Auk hinna almennu kauphækkana og þeirra ákvæða um lágmarks- aldurshækkanir sem ég nefndi, þá veröa með þessum samningum miklar breytingar á röðun starfa i launaflokka. Þar er i sumum til- vikum um að ræöa að taxti er færður I átt til greidds kaups, i öðrum tilvikum er veriö að sam- < ræma kaup sömu starfshópa i sitt hverju verkalýðsfélagi. Þess utan eru svo ýmsar almennar lag- færingar. — En hverjar eru helstu breyt- ingar frá sáttatillögunni? — Launataxtinn er að öllu leyti sá sami og sáttatillagan gerði ráð fyrir. Það sem breyttist var, að Alþýöusambandiö féll frá tillögu sáttanefndarum reglur um fæðis- kostnað farandverkafólks og þeirri tillögu sáttanefndar aö matartimar um helgar skuli reiknast sem vinnutimar. A móti þessu fékkst fram sú breyting að sett var lágmark á aldurshækk- anir eftir eitt ár 1,75%. Það ákvæði var ekki i tilíögu sátta- nefndar. Niðurstaðan er þvi sú, að sá samningur, sem undirritaöur verður eftir stutta stund aö viö vonum, er jafnvirði sáttatil- lögunnar. 1 tengslum við þessa kjara- samninga hefur rikisstjórnin gefið yfirlýsingu um ýmsar félagslegar úrbætur. Þar er ekki i öllu komiö til móts við okkar kröfur, en tvimælalaust er hér um mikilsveröar réttarbætur aö ræöa, sagði Asmundur Stefár.sson, —k Nýr félagsmálapakki Verulegur þáttur i gerö kjara- samninganna nú er hinn svokall- aði félagsmálapakki, en um kl. 4 i gær afhenti Svavar Gestsson, félagsmálaráðherra samninga- mönnum Alþýöusambandsins yfirlýsingu rikisstjórnarinnar um úrbætur i margvfslegum félags- legum málefnum. Yfirlýsingin var undirrituö af þrem ráöherr- um þeim Gunnari Thoroddsen, Svavari Gestssyni og Steingrimi liermannssyni. Við ræddum við Svavar Gests- son, er yfirlýsingin hafði verið af- hent og spurðum hver aðalatriðin væru i yfirlýsingu rikisstjórnar- innar. Svavar sagði: Þarna er fjallað um 12 atriði misjafnlega mikilvæg. I sumum tilvikum er um að ræða endan- legan frágang en i öðrum tilvik- um er þetta yfirlýsing um vinnu að tilteknum málefnum. Helstu atriðin eru: Fœðingarorlof fyrir alla Fyrsta og eitt veigamesta at- riöiö i þessari yfirlýsingu um félagslegar aðgerðir varðar fæð- ingarorlof. Þar er gert ráð fyrir þvi aö foreldri eigi rétt á allt að 440.000,- kr. á mánuði i fæðingar- orlof miöaö við 1. september 1980 i þrjá mánuði. Þetta er hugsaö þannig að móðirin eigi i rauninni réttinn, en ef foreldrar koma sér þannig saman að móðirin taki t.d. tvo mánuði og faðirinn einn mán- uð þá er það þeirra val. Sjómenn fái lífeyri frá 60 ára aldri Annaö atriöi i yfirlýsingunni varðar almannatryggingarnar. Þar eru tvær breytingar. Gert er ráð fyrir að sjómenn fái rétt til aö taka ellilífeyri frá 60 ára aldri, enda hafi þeir haft sjómennsku aö aðalstarfi i 25 ára eða lengur. Þá er tekin upp sú breyting að fólk sem talið er 50% öryrkjar skuli njóta fulls elli- og örorkulifeyris frá 62ja ára aldri, en nú er miðað við 67 ár eins og almenna reglan er. Hœkkun tekjutryggingar um 10% aukaiega á ári Þriöja dæmiö varðar lifeyris- mál. Þann 1. júli s.l. hækkaði tekjutrygging elli- og örorkulif- eyrisþega um 5% umfram verðbótahækkun launa og gert er ráð fyrir þvi i yfirlýsingu rikis- stjórnarinnar nú, að tekjutrygg- ingin hækki aftur sérstaklega um 5% 1. júli á næsta ár. Jafnframt er ákveðið að létta af atvinnu- leysistryggingasjóði þeim gjöld- um sem hann hefur borið vegna fæðingarorlofs og að rikissjóður taki þærgreiðslur á sig. Þetta eru taldarverða 1850miljónir króna á næsta ári. A móti þessu kemur.að rikisstjórnin lýsir sig reiðubúna til að beita sér fyrir auknum lif- eyrisréttindum samkvæmt lögum um eftirlaun aldraðra, enda verði sú sérstaka hækkun borin uppi af atvinnuleysistryggingasjóði þeg- ar hann losnar við greiðslur vegna fæðingarorlofs. Framhald á bls. 13 SVONA VERÐUR LAUNASTIGINN Eins og greint er frá á öðrum staðf hér i blaðinu, þá verða launaflokkar samkvæmt nýju kjarasamningum nú aðeins 30, og þar af 25 „virkir”; Meginþorra félagsmanna Alþýðusam- bandsins er raöað 1 einhvern þessara 25 flokka eftir þvi hvert starf hans er. Byrjunarlaun á mánuði i hverjum flokki verða sem hér segir: Launa- Launa- n. Kr. fl. Kr. 6. 324.325 19. 427.843 7. 330.812 • 20. 438.111 8. 337.428 21. 448.626 9. 344.177 22. 459.393 10. 351.061 23. 470.418 11. 358.082 24. 481.708 12. 365.244 25. 493.269 13. 372.549 26. 505.107 14. 380.000 27. 517.230 15. 389.120 28. 529.644 16. 398.459 29. 542.355 17. 408.022 30. 555.372 18. 417.815 Sjá yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar— sídu 7

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.