Þjóðviljinn - 28.10.1980, Blaðsíða 6
6 S1ÐA _ ÞJÖÐVILJINN Þriöjudagur 28. október 1980
Norski heimspekingurinn
Arild Haaland
heldur fyrirlestur i Norræna húsinu
þriðjudaginn 28. október kl. 20:30 og nefn-
ir fyrirlestur sinn: „Kommer Sigmund
Freud egentlig fra Island?”
Verið velkomin NORRÆNA
hCjsio
Visindastyrkir
Atlantshafsbandalagsins 1980
Atlantshafsbandalagið leggur árlega fé af mörkum til
að styrkja unga visindamenn til rannsóknastarfa eða
framhaldsnáms erlendis. Fjárhæö sú er á þessu ári hefur
komið í hlut tslendinga i framangreindu skyni nemur
rúmum 12 millj. króna, og mun henni verða variö til að
styrkja menn, er lokiö hafa kandidatsprófi i einhverri
grein raunvisinda, til framhaldsnáms eða rannsókna við
erlendar visindastofnanir, einkum i aðildarikjum Atlants-
hafsbandalagsins.
Umsóknum um styrki af fé þessu — „Nato Science
Fellowships” — skalkomið til menntamálaráðuneytisins,
Hverfisgötu 6, 101 Reykjavik, fyrir 1. desember n.k.
Fylgja skulu staðfest afrit prófskirteina svo og upplýs-
ingar um starfsferil. Þá skal og tekið fram hvers konar
framhaldsnám eða rannsóknir umsækjandi ætli að
stunda, við hvaða stofnanir hann hyggst dvelja, svo og
skal greina ráðgerðan dvalartima. — Umsóknareyðublöð
fást i ráðuneytinu.
Menntamálaráðuneytið,
23. október 1980.
Frá f járveitinganefnd
Alþingis
Beiðnum um viðtöl við fjárveitinganefnd
Alþingis, vegna afgreiðslu fjárlaga 1981,
þarf að koma á framfæri við starfsmann
nefndarinnar, Magnús Ólafsson, i sima
11560 eftir hádegi, eða skriflega eigi siðar
en 15. nóvember n.k. s
Skrifleg erindi um fjárveitingabeiðnir á
fjárlögum 1981 þurfa að berast skrifstofu
Alþingis fyrir 15. nóvember n.k. ella er
óvist að unnt verði að sinna þeim.
Fjárveitinganefnd Alþingis.
AUGLYSING
frá Stjórn verkamannabústaða
í Reykjavík um sölu eldri íbúða
Á næstu mánuðum verða endurseldar
nokkrar eldri verkamannabústaðaíbúðir
og framkvæmdanefndaribúðir i Reykja-
vik. Þeir, sem hafa hug á að kaupa þessar
ibúðir, skulu senda umsóknir á sérstökum
eyðublöðum, sem afhent verða á skrif-
stofu Stjórnar verkamannabústaða að
Suðurlandsbraut 30, Reykjavik. Eyðu-
blöðin bera það með sér hvaða skilyrði
væntanlegir kaupendur þurfa að uppfylla.
Á skrifstofunni verða veittar almennar
upplýsingar um greiðslukjör.
Fyrri umsóknir, óafgreiddar, um þessar
ibúðir eru felldar niður, og þarf þvi að
endurnýja þær með framangreindum
hætti, ef' menn vilja halda þeim i gildi.
Stjórn verkamannabústaða i Reykjavik
Systkinin Emma og Lárus (Bryndts Pétursdóttir og Benedikt Arna-
son).
Vandarhögg
eða vindhögg?
Það sem manni leikur einna
helst forvitni á aö vita, eftir aö
hafa séö Vandarhögg i sjón-
varpi, er: aö hve miklu leyti er
þetta verk Jökuls Jakobssonar?
Samkvæmt upplýsingum frá
þeim sjónvarpsmönnum byrjaði
Jökull aö skrifa Vandarhögg
haustiö 1975, og lagöi frumdrög
aö verkinu fyrir Lista- og
skemmtideild voriö 1976. Slöan
var handritið i stööugri
endurskoöun I samvinnu viö
væntanlegan leikstjóra (Hrafn
Gunnlaugsson) og stóö upphaf-
lega til aö hefja undirbúning
upptöku voriö 1978, en þá féll
Jökull frá, sem kunnugt er.
A blaðinu sem gagnrýnendur
fengu i hendur viö forsýningu á
sjónvarpsleikritinu segir enn-
fremur, aö Vandarhögg sé ólíkt
fyrri verkum Jökuls aö þvi leyti,
aö höfundur byggi framvindu
efnisins fremur á atburðum en
texta. „Hann bjó til „plottiö” og
sjálfa atburöarásina áöur en
hann byrjaöi aö skrifa samtölin.
Þannig vildi hann nálgast þá
möguleika, sem sjónvarps-
tæknin býöur upp á, enda er
Vandarhögg eini sjónvarpsleik-
ur Jökuls i þeim skilningi, að
þaö er aöeins hægt aö vinna meö
myndmáli, en ekki sviöi eöa I
hljóövarpi”.
Þessi orð, svo óljós sem þau
eru, þykja mér benda til að
handritið hafi verið fremur stutt
komið i vinnslu þegar Jökull féll
frá. Hinsvegar er ekki gott um
þaö aö dæma, nema gleggri
upplýsingar komi fram. Hvaö
sem þvi liöur held ég aö óhætt sé
aö fullyröa, aö Vandarhögg,
einsog viö sáum þaö á skjánum
á sunnudagskvöidiö, sver sig
fremur i ætt til Hrafns Gunn-
laugssonar en Jökuls
Jakobssonar, þótt áreiöanlega
megi finna i þvi eitt og annaö
sem er frá Jökli komiö. Mér
finnst liklegt að verkiö heföi
oröiö talsvert ööruvisi, ef Jökli
heföi enst aldur til aö vinna aö
undirbúningi upptöku, einsog til
stóö.
Enhvaöumþaö, Vandarhögg
var tekið upp og fullunniö og
frumsýnt. Þaö er meö afbrigö-
um gallaö verk. Brotalamirnar
er einkum aö finna I „plottinu”
og persónusköpuninni. Við get-
um alveg sleppt þvi i þetta sinn
aö tala um tilgang verksins og
boöskap og einbeitt okkur aö
hversdagslegri atriöum einsog
frásagnaraöferö: hvernig er
sagan sögb, hvernig kemst hún
til skila?
Svo virðist sem Rós,eiginkon-
an unga, eigi aö vera helstur ör-
lagavaldur sögunnar. Það er
hún sem stefnir Zetu á fund Lár-
usar og fær hann til aö taka
samtal þeirra upp á segulband.
Þaö er hún (eöa hvaö?) sem
sendir Emmu bréfin, sem Lárus
kannast ekkert viö. Hún heyrir
allt sem fram fer og hún myrðir
bæöi páfagaukinn og Emmu.
Hér er þvi á ferðinni annaöhvort
sadiskur kvendjöfull eöa
örvæntingarfull kona „i viöjum
ástarinnar”, nema hvort-
tveggja sé. Á skjánum sjáum
viö hinsvegar Björgu Jónsdótt-
ur, sem þessar kvenlýsingar
eiga engan veginn viö. Björg
hefur sjálft sagt i blaðaviötali
aö hún hafi aldrei lært neitt i
leiklist og aö það valdi henni
töluveröum erfiöleikum, og þaö
er hverju oröi sannara. Hins-
vegar er ekki vist aö þjálfuð
leikkona heföi getað ráðið betur
viö þetta hlutverk, einfaldlega
vegna þess aö persónan er ekki
til, þaö hefur gleymst aö skapa
hana.
örlitið meira hefur veriö lagt i
Emmu, systur Lárusar. Það
örlar á glóru i henni. Bryndis
Pétursdóttir stendur fyrir sinu
og bjargar þvi sem bjargaö
verður. Meira veröur hún ekki
krafin um, en mikiö heföi nú
veriö gaman aö sjá hana I
áhugaverðara“hlutverki.
Benedikt Arnason er eim
leikarinn sem fær tækifæri til að
skapa persónu, og gerir það
meö ágætum. Hann er meira aö
segja trúverðugur. Hlutverk
Lárusar er greinilega það eina i
leikritinu sem er bæði haus og
sporður á, frá höfundarins
hendi, og Benedikt tekst, aö
minu mati, mjög vel aö koma
þvi til skila. Arni Pétur Guð-
jónsson var lika sannfærandi i
sinu litla hlutverki.
Sagan sem veriö er aö segja
er, að manni skilst, einskonar
sálræn hryllingssaga. Þaö fer
þó ekki betur en svo, að hryll-
ingurinn verður oft pinlegur, og
jafnvel hlægilegur. Tilviljan-
irnar i leiknum eru svo ótrú-
legar aö maöur reynir aö
gleyma þeim sem fyrst.
„Sálfræðin” er Freud fyrir
byrjendur.
Islenska sjónvarpiö er, einsog
allir vita, litil og fátæk stofnun
og framleiöir fá leikrit. Þeim
mun mikilvægara finnst manni
aö þessi fáu Ieikrit séu þokka-
lega úr garöi gerö og hafi eitt-
hvaö aö segja. Aö þau séu ekki
léleg stæling á erlendri
miölungsframleiðslu
Vandarhögg er þvi miður
þessu vonda marki brennt. Það
er ekki vandarhögg á áhorfend-
ur, heldur vindhögg.
Ingibjörg Haraldsdóttir.
Viðar Víkingsson frumsýnir:
Hvítur blettur í hnakka
1 kvöld verður frumsýnd á
vegum Alliance Francaise kvik-
myndin „Hvitur blettur I
hnakka” eftir Viöar Vikingsson.
Myndin, sem er meö frönsku tali
og hálfrar klukkustundar löng,
veröur sýnd f franska bóka-
safninu, Laufásvegi 12, kl. 20.30.
Aögangur er öllum heimill meöan
húsriim leyfir.
Viöar Vikingsson hóf nám i
Paris 1972 og lauk licence-prófi i
frönskum bókmenntum 1975. Þá
tók viö þriggja ára nám við kvik-
myndaskóla franska rikisins,
IDHEC, og var kvikmyndin
„Hvitur blettur i' hnakka” loka-
prófsverkefni Viöars. Hann lagöi
siöan stund á kvikmyndafræöi I
eitt ár undir handleiöslu franska
k vi km yn das t jór a n s Eric
Rohmer.
1 myndinni er þjóösagan um
djáknann á Myrká endursögö á
nýstárleganhátt, og sögusviöiö er
Paris. Meö aöalhlutverkin fara
Gerard Chinotti, Sissi Bene-
diktsson og Siguröur Pálsson.
Viöar Vikingsson veröur viö
sýningu myndarinnar í kvöld og
svarar spurningum áhorfenda.
Fyrsta prófmál á húsaleigulögin:
Samningurinn gildir—
ekki fyrirframgreiðslan
t sibustu viki féll dómur I
fógetarélti Reykjavikur, sem
beöiö hefur veriö eftir meö
nokkurri spennu. Þar var á ferö-
inni málib sem leigusali hér I bæ
höföaöi til aö fá úr þvi skoriö
hvort timabundinn leigusamn-
ingur gilti, eöa hvort þaö ákvæöi
húsaleiguiaganna um aö aöeins
væri heimilt aö borga 1/4 leigu
fyrirfram gæfi leigjendum rétt til
aö vera allt aö þrisvar sinnum
lengur I ibúbinni, en samningur-
inn hljóðaöi upp á.
Leigjendurnir geröu samning
til eins árs og greiddu allt árið
fyrirfram, sem er óheimilt sam-
kvæmt lögunum. Leigusalinn
sagöi þeim upp meö löglegum
fyrirvara, en Leigjendasamtökin
töldu aö leígjendurnir heföu rétt
til aö vera 3 ár I viöbót i ibúðinni,
þar sem þau heföu greitt heilt ár
fyrirfram.
Dómurinn var á þá leið að
timaákvæöi samningsins gilti og
fyrirframgreiöslan breytir engu
þar um. Þessi úrskurður er þvi
leigjendum mjög i óhag,
Aö sögn Jóns Asgeirs Sigurös-
sonar sem sæti á i stjórn
Leigjendasamtakanna verður úr-
skuröinum aö öllum likindum
áfrýjaö til Hæstaréttar.
—ká