Þjóðviljinn - 28.10.1980, Síða 13
Þri&judagur 28. október 1980 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 13
Félagsfundur HÍP:
Fjóröi kaflinn
tekinn til
athugunnar
I gær var haldinn félags-
fundur í Hinu islenska
prentarafélagi og stóö hann
frá kl. 17.15 til kl. 21. A
dagskrá var: „Staöan i
samningum, samkomulag um
4. kaflann” og hin kunnu
„önnur mál”. Þaö er 4. kafl-
inn sem samningarnir hafa
strandaö á, en meö honum
vilja prentarar tryggja at-
vinnuöryggi sitt gagnvart
þeirri tölvuvæöingu sem oröiö
hefur á sviöi prenttækni.
1 byrjun fundar kom fram
tillaga frá Magnúsi E.
Sigurössyni, varform. HIP,
um aö atkvæöagreiösla færi
fram á fundinum um sam-
komulagsdrögin. Eftir miklar
umræöur um ýmsar tillögur
var aö lokum samþykkt frá-
visunartillaga á tillögu
Magnúsar, meö 66 atkvæöum
gegn 9, á þeirri forsendu aö
menn vildu kynna sér sam-
komulagsdrögin betur, en
þeim haföi veriö dreift meöal
fundarmanna i fundarbyrjun
ásamt gildandi samningi og
upprunalegum kröfum varö-
andi 4. kaflann. Málinu var
siöan vfsaö til næsta fundar.
Félagsmálapakki
Framhald af bls. 1
Tvöfalt framlag til
dagvistunarmála
Fjóröa mikilvæga atriöiöi yi
lýsingu rikisstjórnarinnar varöar
dagvistunarmál. Rikisstjórnin
lýsir sig reiðubúna til aö beita sér
fyrir þvi, að á fjárlögum næsta
árs verði 1100 miljónum króna
varið til dagvistunarmála og er
það tvöföldun á framlagi rikisins
til þeirra mála frá þvi ári sem nú
er að liöa, og hækkuöu þessi
framlög þó mjög verulega á fjár-
lögum þessa árs. Einnig er þvi
lýst yfir aö rikisstjórnin muni
beita sér fyrir 10 ára áætlun um
uppbyggingu dagvistunarstofn-
ana.
Fimmta atriöiö varðar at-
vinnuleysistryggingasjóð og mun
rikisstjórnin beita sér fyrir laga-
setningu strax á þessu þingi, sem
feli m.a. sér rýmkun bótaréttar,
lengingu bótatima, breytingar á
atvinnuleysis skráningu og hækk-
un bóta.
Til viðbótar þessum fimm at-
riðum er að finna i yfirlýsingu
rikisstjórnarinnar ákvæöi um
orlofsheimili, um vaxtakjör or-
lofsfjár, um breytingar á reglu-
geröum lifeyrissjóða, um sjó-
mannastofur, um fridaga og lög-
skráningu sjómanna og um
farandverkafólk.
Við áfram —
hinir afturábak
— Þessar viðræöur viö verka-
lýöshreyfinguna hafa staðið yfir
siöan iapríl, og gengið vel. Niður-
staða viöræönanna færir verka-
fólki verulegar réttindabætur.
Þetta er sérstaklega athyglisvert
með tilliti til þess, aö i grannlönd-
um okkar er veriö að draga úr
slikum félagslegum réttindum á
sama tima.
Hér er að nokkru um að ræða
mál, sem verkalýðshreyfingin
hefur barist fyrir áratugum sam-
an, en það er nú við rikjandi
pólitiskar kringúmstæður, sem
þau fást loks fram.
Að lokum er svo rétt að m inna á
það að hér er aðeins um að ræða
hluta af þeim félagslegu réttinda-
málum, sem núverandi rikis-
stjórn hefur afgreitt á stuttum
starfstima. Að auki eru þegar
komin til framkvæmda ný laga-
ákvæöi um réttarstööu sjómanna
almennt i veikinda- og slysatil-
vikum, um lögskráningu sjó-
manna, og lögfest hafa verið þýö-
ingarmikil ákvæöi um aöbúnaö og
hollustuhætti á vinnustöðum, sem
taka gildi frá næstu áramótum,
og svo lagabálkurinn um hús-
næöismál og félagslegar ibúðar-
byggingar frá þvi i vor. —k.
Enn er
ósamið við
fjolmorg
verkalýðs-
félög
Þótt ASl og VSl hafi nú gengið
frá sinu samkomulagi, er enn stór
hópur verkalýðsfélaga og sam-
banda sem ósamiö er viö. Þessir
aöilar eru: Sjómannasamband
Islands, Farmanna- og fiski-
mannasamband Islands, Bóka-
geröarmenn, Rafiönaöarsam-
bandið, Múrarar, Pipulagningar-
menn, Veggfóörarar, Málarar,
Dúklagningarmenn, Mjólkur-
fræöingar, Bilstjórafél. Sleipnir,
Félag leiösögumanna, Bakarar,
Þjónar, Hljóöfæraleikarar, Bil-
stjórafélög i Rangárvalla- og Ar-
nessýslum og I Borgarnesi, Sér-
samningar fyrir Verkalýösfél.
Rangæing. —S.dór
/ BÍI \
milli bíla
/\þarf að vera rúmtX
— Þú ekur marga
metra á sekúndu.
V //
70%
Framhald af bls. 16
1 bréfi ráðuneytisins er tekið
fram, að þeim bátum sem ekki
veiða sin 70% fyrir áramót, verö-
ur heimilað aðhalda áfram þar til
70% kvótinn hefur verið fylltur.
Fyrirhugað er að stærð loðnu-
stofnsins verði endurmæld i
janúar á næsta ári eins og gert
hefur verið undanfarin tvö ár og
jafnvel fyrr ef þvi verður við
komiö og raunhæft þykir, segir i
fréttatilkynningunni frá sjávar-
útvegsráðuneytinu. Þegar þeim
mælingum lýkur veröur ákveöiö
hver heildarkvótinn veröur fyrir
yfirstandandi vertið.
—ká
Samninga-
viðræður
við Sam-
bandið
hefjast
ídag
Þótt samkomulag milli VSl og
ASI hafi náöst, eru samningar
enn eftir milli ASI og Vinnumála-
sambands samvinnufélaga, sem
stóð algerlega utan viö þær
samningaviöræöur sem staöiö
hafa yfir undanfarna mánuöi.
I dag kl. 15.00 hefjast saminga-
viöræöur milli ASI og VMSS og er
liklegt aö þær standi stutt. VMSS
mun án nokkurs vafa ganga inn i
þaö samkomulag sem ASl og VSI
gengu frá I gær. S.dór
Blaðberar óskast!
Gnoðavogur — Nökkvavogur,
B-D-E og G-lönd i Fossvogi.
Tjarnargata og Háskólahverfi
UOWIUINN
Siðumúla 6
s. 81333 og 81663.
ALÞY£>iJÖANíiALAGIÐ \
Alþýðubandalagsfélag Héraðsbúa
Almennur félagsfundur verður haldinn sunnu-
daginn 2. nóvember kl. 20.30 i hreppsskrifstofu
Egilsstaöahrepps. Umræður um vetrarstarfið
og undirbúningur fyrir landsfund. Hjörleifur
Guttormsson kemur á fundinn.
Fundur i menningarmálanefnd Alþýðubandaiags-
ins
Fundur veröur haldinn i menningarmálanefnd Alþýðubandalagsins aö
Grettisgötu 3, i dag, þriðjudag kl. 17.30.
Lýst er eftir efnisályktunum fyrir landsfund.
Alþýðubandalagsfélag Keflavikur
Aðalfundur
Aöalfundur veröur haldinn fimmtudaginn 30. okt. kl. 20.30 i Tjarnar-
lundi.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Kosning fulltrúa á landsfund.
3. önnur mál.
Félagar mætið vel og stundvislega. „ .
ö Stjornin
Alþýðubandalagið í Reykjavik
Félagsfundur
Alþýðubandalagið I Reykjavik boðar til félagsfundar fimmtudaginn 6.
nóvember á Hótel Esju. Fundurinn hefst kl. 20:30.
Dagskrá: Nánar auglýst siöar.
Félagar fjölmenniö.
Stjórn ABR
Aðalfundur Alþýðubandalagsins í Kópavogi
1980 verður haldinn i Þinghóli miðvikudaginn 29. október n.k. og hefst
kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Kosning fulltrúa á landsfund.
3. Lagabreytingar.
4. önnur mál.
Félagar! Gjörið svo vel að greiða félagsgjaldið.
Stjórn ABK.
Stjórnin.
Orðsending frá Þjóðviljanum
Þeir sem koma vilja tilkynningum á framfæri hér i
flokksdálki Alþýðubandalagsins eru vinsamleqa beðnir
að hafa samband við skrifstofu Alþýðubandalagsins,
Grettisgötu 3, — símar 28655 og 17500, á skrif stof utíma.
Jarðarför systur minnar
Helgu Ingibjargar H. Briem
fer fram frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 29. þ.m. kl. 3.
Páll Helgason.
TOMMI OG BOMMI
FOLDA