Þjóðviljinn - 20.11.1980, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 20.11.1980, Blaðsíða 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 20. nóvember 1980 Kærleiksheimilid Viðtalið Ég var ekki sendur útaf — ég er bara að f ara á klóið. t gær birtum við mynd af Marlene Dietrich á húsvegg i DUsseldorf og hér kemur mynd af veggnum sem mesta athygli vakti I París i sumar. Fólk hrökk i kút og glápti — þangað tii það sá að þetta var bara mynd. Málarinn var beðinn að mála „eitthvað áhugavert” á vegg nýs vöruhúss og það geröi hann lika með glans. Á myndinni er aðeins einn galli. Sérðu hann? Jú, vegggengillinn sveiflar vinstri handlegg fram um leið og hann stigur i vinstri fót. Maðurinn sem gat gengið á vegg Molar „Hinsvegar töldu íslendingar að réttur til herstöðva á tslandi erlendu riki tii handa væri ekki samræmanlegur sjálucæöi tslands og fullveldi”. Ólafúr Thors á Alþingi 1946. Bjarni Benediktsson i Morgunblaðinu 22. marz 1949, (um inngöngu i Atlantshafs- bandalagið). Mikil þörf á ráðgjöf — segir Svavar Sigmundsson nýkjörinn formaður FEF • Fyrir skömmu var Svavar Sigmundsson ritstjóri sam- heitaorðabókarinnar kosinn for- maöur félags einstæðra for- eldra. Hann er þriðji formaður félagsins, en áður hafa tvær konur gegnt þvi embætti. • Hér á landi eru á sjöunda þúsund einstæðir foreldrar og eru konur þar i miklum meiri- hluta. Það telst þvi til tiöinda að karlmaður skuli kominn i fremstu viglinu þessa hóps og Þjóðviljinn spurði Svavar hvort kosning hans væri timanna tákn, merki þess aö karlmenn væru farnir að sinna börnum sinum meira en áður? Það getur hver og einn túlkað það aö vild sinni hvort einhver stefnubrevting .er á ferðinni”, sagði Svavar. ,,I frumvarpinu um barnalögin, sem væntanlega verða lögð fyrir alþingi i fjórða sinn nú, er gert ráð fyrir jöfnum hlut beggja foreldra hvað varðar forsjá barna þeirra og það færist I vöxt að karlmenn sinni börnum sinum. Hvaö mig varöar þá gekk ég I Félag ein- stæöra foreldra síðla sumars, enda nýkominn til landsins. Ég hef ekki komið nálægt svipuðu starfi áður, en mér finnst þarna um kjörinn vettvang að ræöa.” — Hver eru helstu verkefnin sem félagið vinnur að? „Þar er fyrst aö telja húsið i Skerjagaröinum sem keypt var. Það kemst i notkun innan skamms. Þar eru sex ibúðir og fjögur einstaklingsherbergi. í húsinu á að vera einskonar neyðarhúsnæöi fyrir einstæða foreldra og jafnvel námsmenn, en þaö hefur ekki verið gegnið endanlega frá reglum um notkun þess. Skattamálin eru ofarlega i huga og nú er starfandi nefnd sem athugar hvernig nýju skattalögin koma niður á ein- stæðum foreldrum. Þar eigum viö einn fulltrúa. Nú, svo er það barnalagafrumvarpið, sem ég minntist á áöan, viö ætlum að skoða þaö og láta frá okkur heyra um efni þess, en flestir telja þaö mjög til bóta. Við viljum reyna aö knýja á um aö það verði afgreitt. Þetta er það helsta, en siðan er innra starf, barnaskemmt- anir, fjáröflun og slikt.” — Er kraftur i félaginu? „Þaö hefur verið unnið mikið starf á vegum þess og þar fer fram stöðug endurnýjun. Við höfum opna skrifstofu i Traðar- kotssundi og þangað leitar fólk með allskonar vandamál. Þar er veitt lögfræðiaöstoð og það er greinilega mikil þörf á ráðgjöf.” — Eru margir karlmenn i fé- laginu? „Þeir eru um 200, flestir þeirra eru virkir og nokkrir hafa verið i stjórn.” — Heldur þú að það sé mikill munur á aðstöðu einstæðra karla og kvenna sem hafa börn á framfæri sínu? „Viö fyrstu sýn virðist svo, sennilega er auðveldara fyrir karlmann aö vera einn með barn, bæði vegna launa og að- stoðar annarra. Ég hef sjálfur ekki fundið fyrir miklum erfiö- leikum. Stelpan min er á skóla- dagheimili og ég nýt aðstoðar fjölskyldunnar. Fyrir einstæða foreldra eru gæslumálin erfiö- ust, enda vinna flestir fullan vinnudag.” — Hyggið þið á einhverjar breytingar i starfi Félags ein- stæðra foreldra? „Það er staðreynd að mörg þau mál sem félagiö hefur barist fyrir hafa náðst fram og það mætti vel huga aö þvi að útvikka starfið, t.d. að sinna fjölskyldu- pólitik almennt. Ég nefni mál eins og dagvistarmál sem þyrfti aö sinna betur og þrýsta á um úrbætur.” —ká Tekið eftir Þessi verölagsmál i brenni- vini eru alveg að drepa mig. Fyrst þurfti karlinn minn að drekka úr sér óttann við nýja veröhækkun i tiu daga, og nú segist hann þurfa aö drekkja gremju sinni i fimm daga i við- bót! Lærið að blóta Nú er hægt að komast á kvöld- námskeið þar sem kennt er aö tvinna saman blótsyrði. Gróf og krassandi eða einföld en áhrifa- rik — allt eftir þvi sem við á hverju sinni. Það er breski kennarinn David Brikett I Manchester sem stendur fyrir námskeiðinu. Hann kennir þrjú kvöld i viku og námskeiðið er mjög vel sótt. David leggur mesta áherslu á að kenna innflytjendum að krydda málfar sitt, enda segir hann að þeir verði ekki færir um aö bjarga sér og aölagast sam- félaginu fyrren þeir geti svarað fyrir sig með velvöldum oröum. Hingað til hefur enginn haft neitt viö þetta aö athuga, ekki einu sinni breska stjórnin, sem borgar kennaranum kaup. Sjaldan hlegið meira 1 þýska blaöinu Spiegel er sagt frá þvi er þingmaðurinn JOrgen W. Möllemann leitaöi sendiráðshjálpar i Moskvu. Orsökin: Landsleikur Sovéts og Islands i fótbolta á dögunum (5:0). Vildi Möllemann sem auk þingmennskunnar er stjórnar- maður i 2. deildar knattspyrnu- félaginu Preussen Mtlnster, að sendiráösmenn V-Þýskalands fylgdust með leiknum og gæfu skýrslu um frammistöðu islenska landsliösmannsins Guömundssonar (Alberts) sem Preussen Mtlnster mun hafa hug á aö fá til sin. Beiöni Möllemanns var synjaö. „Viö höfum sjaldan hlegið meira”, sagði talsmaöur utanrikisráöu- neytisins. „Við skýrðum rækilega sér- stöðu okkar sem íámennrar og vopnlausrar þjóðar, sem hvorki gæti né vildi halda uppi her sjálf og mundum vér þvi aldrei samþykkja, að erlendur her né herstöðvar væru á landi okkar á friðartimim. Dean Acheson utanrikisráðherra og starfsmenn hans skildu fyllilega þessa afstöðu okkar. Er þvi allur ótti um það að fram á slikt verði fariö við okkur, ef við göngum i bandalagiö, gersam- lega ástæðulaus.”

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.