Þjóðviljinn - 20.11.1980, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 20. nóvember 1980 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 3
Síldarsala
í Danmörku
Þrjú skip
á leið út
þrátt fyrir lágt verð
Þrjú islensk skip hafa selt síld I
Danmörku aö undanförnu og hef-
ur verðið sem fengist hefur fyrir
sildina verið mjög lágt, eða á
- milli 4 og 5 kr. danskar fyrir kg.
Þetta lága verð veldur þ vi, að það
er á mörkunum að túrinn borgi
sig hjá skipunum. Samt sem áður
halda islensk skip áfram að sigla
með fersksild til Danmerkur og
eru nú þrjú skip á leið þangaö.
Þau eru Ljósfari ÞH með 92 lest-
ir, Hilmir SU með 75 lestir og
Þórshamar með 92 lestir.
Astæðan fyrir þvi að sildarverð
er svo lágt i Danmörku er að
frönsk sildveiðiskip hafa verið að
selja þar og gera enn, þannig að
nm offramboð á sild er að ræða.
Ef á milli 4 og 5 kr. danskarfást
fyrir kg af sildinni, er það um það
bil helmingi hærra verð en greitt
er fyrir sild til frystingar hér
heima, en þá er eftir að greiða
allan kostnað við siglinguna m.a.
hinn grfðarlega mikla olíukostn-
að, sem henni er samfara.
Forráðamenn LIO hafa haldiö
þvi fram, að staða útgerðarinnar
sé afar slæm um þessar mundir
og þvi vekur það nokkra undrun
að skipin skuli sigla með sild til
Danmerkur til að selja fyrir svo
lágt verð sem raun ber vitni, sem
aftur veldur þvi að það er á mörk-
unum að túrinn borgi sig.
— S.dór.
Norskt á
tónleikum
Sinfón-
íunnar
Tveir fyrrverandi hljóm-
sveitarstjóra r Sinfóniuhljóm-
sveitar Islands báðir norskir
koma við sögu á tónleikum henn-
ar I kvöld. Karsten Andersen sem
var aðalstjórnandi I fjögur ár
1973—77, stjórnar þá m.a.
„Concerto Grosso” eftir forvcra
sinn og landa, Olav Kielland, sem
stjórnaði hljómsveitinni um
árabil:
Sieglinde Kahmann syngur ein-
söng með hljómsveitinni og flytur
Vier letzte Lieder Richards
Strauss og aö lokum flytur hljóm-
sveitin Júpitersinfóniu Mozarts
— vh
Bókhald
Alþlngis
undir
ríkis-
bókhaldið
Akveðið hefur verið aö frá og
með næstu áramótum heyri
bókhald Alþingis undir ríkis-
bókhaldið eins og bókhald ann-
arra opinberra stofnana.
A fundi neðri deildar Alþingis i
gær er yfir stóðu umræður um
frumvarp til laga um þingfar-
arkaup alþingismanna tilkynnti
Sverrir Hermannsson (S) forseti
neðrideildar, aöforsetar Alþingis
hefðu ákveöið að frá og með 1.
janiíar 1981 að telja myndu fjár-
reiður og bókhald Alþingis heyra
undir ri'kisbókhaldið eins og
bókhald annarra stofnana á veg-
um hinsopinbera.
Stjórn
Amnesty
gekk á fund
forsætis-
Gervasoni veröi
ekki sendur út
nema tryggt sé að hann lendi ekki í fangelsi
sem þeim er boðið upp á i stað-
inn. Samtökin taka að sér alla
slika i Frakklandi. Astæðan er
sú, að i Frakklandi er mönnum
refsað með þjónustunni sem
þeir mega gegna þar sem hún er
töfalt lengri en herþjónustan.
Amnesty International telur
fullvist að neitun Gervasonis á
að'gegna herþjónustu sé byggð
á samviskuástæðum og þvi
fellur hann undir reglur sam-
takanna.
Hrafn Bragason var að þvi
spurður hvort fyrir lægju upp-
lýsingar um örlög Gervasonis ef
hann yrði sendur héðan, en sem
kunnugt er ber frásögnum ekki
saman um það atriði. Hrafn
sagðist aðeins hafa þær upplýs-
ingar sem komið hafa frá lög-
manni Gervasonis i Danmörku
sem benda til þess að hann yrði
afhentur Frökkum.
Hrafn sagði að skrifstofan i
London hefði á sinum vegum
rannsóknardeild sem kannar I
mál manna sem geta orðið sam- I
viskufangar, og ekki væri að efa '
að mál Gervasonis hefði verið i
kannað niður i kjölinn. Eftir þá |
könnun gaf aðalskrifstofan |
heimild til að rætt yrði við for- ,
sætisráðherra og varð niður- i
staða þess fundar sú að sögn I
Hrafns, að ástæða er til að halda |
að málið yrði skoðað gaumgæfi- ■
lega. I
__________________r.J
„Við höfum ástæðu til að
halda að mál Gervasonis verði
skoðað gaumgæfilega og við
trúum þvi að hann verði ekki
sendur héðan nema að tryggt sé
að hann lendi ekki I fangelsi”,
sagði Hrafn Bragason formaður
tslandsdeildar Amnesty Inter-
national á fundi með blaöa-
mönnum i gær.
Stjórn Amnesty hér á landi
gekk i gær á fund Gunnars
Thoroddsen forsætisráðherra,
sem nú gegnir störfum dóms-
málaráðherra. Þeir Amnesty-
menn kynntu Gunnari niður-
stöður rannsóknar aðalskrif-
stofu Amnesty i London á máli
Gervasonis, og fóru þess á leit
að Gervasoni yrði ekki visað úr
landi nema tryggt væri að hann
lenti ekki i fangelsi vegna skoð-
ana sinna, hvorki i Frakklandi
né Danmörku.
Þegar mál Gervasonis komst
i hámæli i september sl., bað Is-
landsdeild Amnesty aðalskrif-
stofuna i London að kanna mál
hans. Niðurstaðan varð sú að
samtökin myndu taka hann að
sér sem samvifkufanga yrði
hann fangelsaður fyrir að neita
að gegna herþjónustu. Það væru
þvi fyrirbyggjandi aðgerðir ef
tækist að koma i veg fyrir fang-
elsun hans. Sérstakar reglur
gilda hjá Amnesty vegna
manna sem neita að gegna her-
þjónustu, eða þeirri þjónustu
Hrafn Bragason borgardómari, formaður tslandsdeildar
Amnesty International. — Ljósm: gel.
Heimsmetabókin
með íslenskri viðbót
að setja ný met og aðstæður aö
breytast, en það sem setur þó
fyrst og fremst svip sinn á út-
gáfuna að þessu sinni er þaö að
islenskt efni bókarinnar hefur
verið stóraukið. Er getið is-
lenskrahliðstæðna við met þau er
bókin telur upp, i mjög mörgum
tilfellum, og einnig islenskra sér-
stæðna. Þá er myndaefni bókar-
innar algjörlega nýtt.
Heimsmetabók Guinness er bók
sem nýtur gifurlegra vinsælda
viða um lönd, og hafa nú komiö út
27 útgáfur hennar á fjölmörg-
um tungumálum. Mun Heims-
metabókin vera mest selda bók
veraldar, ef Biblian er undanskil-
in.
Ritstjórar islensku útgáfunnar
eru þeir Ornólfur Thorlacius og
Steinar J. Lúöviksson.
Heimsmetabók Guinness er 352
bls.
Dýrasti fuglshamur i
heimi var geirfuglinn
sem íslendingar keyptu
i London. Eysteinn
Jónsson varð yngsti
ráðherra á íslandi, eng-
inn islensk stjórn hefur
setið lengur en stjórn
Hermanns Jónassonar
frá 1934 til 1941.
Svo segir I nýrri útgáfu á
Heimsmetabók Guinness sem
örn og örlygur gefa út með
drjúgri viðbót af islensku efni.
Bókin var fyrst gefin út hérlendis
árið 1977, og seldist þá upp á
skömmum tima. Efni hinnar nýju
útgáfu bókarinnar er að verulegu
leyti nýtt, þar sem alltaf er verið
r
Atta dögum af tíu
eytt í atkvæðagreiðslu
Undarleg
vinnu-
brögd
segir
r
formaður FIA
I gær Iagði Gunnar G. Schram
sáttasemjari i flugmannadeilunni
fram sáttatillögu sem Flugleiðir
hafa fallist á fyrir sitt leyti að
sögn Sigurðar Helgasonar for-
stjóra. t sáttatillögunni er kveðiö
svo á að næstu 8 daga skuli félag-
ar I flugmannafélögunum báðum
greiða atkvæði um hana en nú eru
aðeins 10 dagar þar til uppsagnir
flugmannanna taka gildi.
A sáttaíundi, sem stóð i tvo
tima i gærdag var ákveöiö að
gera ekki grein fyrir efnisatriðum
sáttatillögunnar fyrr en hún heföi
verið kynnt i félögunum en i henni
er tekið á sameiningu starfs-
aldurslistanna, endurráðningar
o.fl.
Kristján Egilsson, formaöur
Félags ísl. atvinnuflugmanna,
sagði i gær að afskipti rikisvalds.
ins af þessari deilu væru undarleg
og vinnubrögð öll i sambandi við
hana ættu að verða öörum
stéttarfélögum til varnaöar.
I dag, þegar atkvæðagreiðslgn
má hefjast i húsakynnum sátta-
semjara eru 10 dagar þar til upp-
sagnir flugmanna taka gildi og 8
dögum af þeim tlma á að eyða i
atkvæðagreiðsluna. A meðan
veröurmálið i algerri biðstöðu og
verði sáttatillagan felld er enginn
timi til stefnu. Uppsagnarfrestur-
inn er þvi að engu orðinn, sagði
Kristján og furðulegt að þaö skuli
vera hægt að halda mönnum i
óvissu á þennan hátt fram á
siðasta dag. Þegar uppsagnar-
bréfin voru send út var ,,að þvi
stefnt” aö ganga frá endur-
ráðningum eða réttara sagt
afturköllun uppsagnanna fyrir
nóvemberbyrjun, en nú Hafa
Flugleiðir skotið sér bak við em-
bætti sáttasemjara varðandi þau
mál, sagði hann ennfremur.
Stjórn og samninganefndir
flugmannafélaganna munu sjá
um kynningu sáttatillögunnar I
félögunum og stjórn FIA ákveður
i dag hverjir hafi atkvæðisrétt um
hana, en hluti félagsmanna FIA
eru starfsmenn annarra flug-
félaga en Flugleiða.
—AI
Bankamenn:
í fæðingu
Enginn formlegur sáttafundur
hefur verið boðaöur i kjaradeilu
bankamanna og er málið nú I
höndum sáttanefndar þeirrar er
annaðist samninga BSRB og
rikisins si. sumar.
Vilhjálmur Hjálmarsson for-
maður nefndarinnar sagði i sam-
tali við Þjóðviljann i gær, að sl.
föstudag hefði siöasti sátta-
fundurinn verið haldinn, en þá
daga sem liönir eru siöan, hefði
sáttanefndin rætt við aðila sinn i
hvoru lagi.
— Ég býst fastlega við að sátta-
nefndin muni leggja fram sátta-
tillögu i deilunni fljótlega, en við
höfum enn ekki ákveðið hvenær
deiluaöilar verða boðaðir til
næsta sáttafundar, s,igöi Vil-
hjálmur. Hann sagðist ekki vera
svartsýnn á lausn deilunnar; að
minnsta kosti sagðist hann ekki
ráðleggja skuldurum bankanna i
! desember að treysta á verkfall.
—S.dór